Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1990, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1990, Blaðsíða 15
LAUGARDAGUR 3. MARS 1990. 15 Hvaö er aö frétta af lýöræðinu á íslandi? Einræöisherrar falla víða um heim. Lýðræöið er í sókn við- ast hvar. En viö drögumst aftur úr þróuninni. Lítum til dæmis á verkalýðsfélögin og vinnulöggjöf- ina. Nú stefnir vafalaust brátt í ein- hvers konar átök milli launþega- hreyfingar og stjórnvalda. Viö treystum því tæplega að stjórnvöld standi við sinn hluta af svokallaðri núll-lausn í kjarasamningunum. Samningarnir voru um margt tímamótasamningar. í alvöru er reynt að koma verðbólgunni niður á svipaö stig og er í grannríkjum okkar. Með því á aö komast hjá tíð- um gengisfellingum. Með því á að lækka vexti. Verðlagi skal að mestu halda í skefjum. En nú þegar er kurr. Aðilar vinnumarkaðarins kvarta, einkum launþegar. Vextir lækkuðu, en ekki jafmikið og aðilar vinnumarkaðarins töldu að um hefði verið samið. Verð hefur víða hækkað. Launþegar eru víða með sitt eigið verðlagseftirht, lið sem á að fylgjast með verðlagi. Síðan er klagað til annarra stofnana. Þetta getur verið gott og blessað. Aðhald að fyrirtækjunum er nauðsynlegt. Verðskyn fólks þarf að aukast. Það getur verið þáttur í aukinni upp- fræðslu að verkalýðsfélögin hafi eitthvert verðlagseftirlit. Þegar sýður upp úr á ýmsum sviðum. Það á ekki sízt við um hækkun á bif- reiðatryggingum og bifreiðaskoð- un. Líkur eru til þess að slíkar deil- ur fari vaxandi. Málamyndaaðgerðir Stjórnvöld eru sem sé vís til að svíkja í tengslum viö samningana. Líkur eru til að verðbólgan verði mun meiri en gefið var upp í kjara- samningunum. Hvað gera launþeg- ar þá? Jú, sem fyrr munu þeir væntanlega halda íjölmennan úti- fund á Lækjartorgi - og mótmæla hækkunum á verði á opinberri þjónustu. Þetta mun hins vegar falla dautt. Hér mun ekkert gerast í líkingu við það sem við heyrum nú um frá öðrum löndum. Sumir segja að hér sé of kalt til þess að fólkið fari að ráði út á göturnar og mótmæh kröftuglega. Kannski mæta menn á einum útifundi, hrópa eitthvaö og fara svo heim. Forysta launþegahreyfingarinnar er einnig að miklu í samtryggingu við þá ríkisstjórn sem nú situr. Ekki þarf mörg orð um hversu núverandi stjóm er rúin trausti. Henni fylgir aðeins um þriðjungur landsmanna. En menn gætu haldið að launþegahreyfingin væri sterk. Mikil geta verið völd hennar. En innviðirnir eru fúnir. í launþega- hreyfingunni ríkir fámennisstjórn. Þar hafa víðast sterkar klíkur kom- ið sér þægilega fyrir og völdunum verður ekki haggað. Við það bætist svo nú að flestir forystumenn í launþegafélögunum standa nærri núverandi ríkisstjóm. Það þýðir ekki fyrir hinn almenna félags- mann.að kvarta. Hann getur engu um þokað. Á fundum mæta yfir- leitt tiltölulega fáir, jafnvel í félög- um með mörg þúsund félagsmenn. Yfirleitt em þaö vinir stjómenda félaganna og þeir sem smalað hefur verið sem mæta. Þetta er ein skýr- ingin á því hvers vegna hinir lægst- launuðu verða alltaf útundan. Stjórnendur félaganna vilja hygla öörum sem betur geta. DV hefur greint frá því í vikunni að í flestum verkalýðsfélögunum er í reynd ókleift að skipta um stjórn. Enda eru þess fá dæmi síðasta áratug. í verkalýðshreyfmgunni ríkir þann- ig samtrygging um að menn eins flokks eða flokka ráði sumum fé- lögunum - aðrir öðrum. Þegar á reynir hópast þetta lið saman - og ágreiningur, sem heyrist um, er yfirleitt málamyndaágreiningur einn. Þess vegna gengur í seinni tíð svo vel að fá samninga samþykkta. Láglaunamaðurinn alltaf eftir En vel að merkja þýða þessar setningar ekki að fulltrúar laun- þega geri allt illt. Þeir stóðu th dæmis nú að samningum sem eru góðir fyrir þjóðfélagið - að því und- anteknu að rétt einu sinni var lág- launamaðurinn skilinn eftir. Við vitum öll að nú í kreppunni er nær ógerlegt fyrir fjölda fólks að lifa á launum sínum. En þessu verður ekki um þokað og ekki í fyrirsjáan- legri framtíð. Á meðan við lesum stöðugt um aukið lýððræði víða um lönd þrjóskast menn við hér heima og halda fast í ólýðræðislegt skipu- lag. Þannig kjósa nokkrir klíku- menn stjórnir félaga. Þannig mæta nokkrir menn úr klíkunni og sam- þykkja samninga. Vel að merkja er það einnig fámennur klíkuhópur sem mætir á fund th að segja upp samningum og jafnvel að fara í verkfah þegar forystan hugsar þannig. Við þurfum að breyta Laugardagspistíll Haukur Helgason aðstoðarritstjóri þessu. Verkalýðsfélögin eru einn hornsteininn - og þar þarf að koma á lýðræði. Annars erum við bara ekki með í lýðræðisþróuninni sem nú gerist. Breyta þarf vinnulöggjöfinni Miklu fleira þarf að líta á í tengsl- um við verkalýðsfélögin. Til dæmis er það ólýðræðislegt athæfi þegar svo sem 20-30 manna hópur í þús- unda manna félagi etur félaginu í verkfall. Þannig hafa orðið mikil verkfóll hér á landi. Það er lýðræð- isleg skylda að vinnulöggjöfmni verði breytt. Th þess að verkfall teljist löglegt þurfi samþykki meiri- hlutans við aimenna atkvæða- greiðslu félagsmanna. Sama á að giilda ahs staðar um kjarasamninga. Til þess að þeir teljist samþykktir eða felldir þurfl ahsherjaratkvæðagreiðslu félags- manna. Þetta á einnig við um kosningu stjórna félaganna: Stjórnir á hvar- vetna að kjósa við almenna alls- herjaratkvæðagreiðslu. Setja verð- ur í landslög að bjóða megi fram í einstök sæti í stjórnum verkalýðs- félaga og ekki þurfi að leggja fram lista með öllum öðrum nöfnum en uppstihingarnefndir valdaklík- unnar leggja th. Enn eitt skiptir miklu máli. Víða eru starfsmenn fyrirtækja í fjölmörgum verkalýðsfélögum, jafnvel örfáir frá sumum félag- anna. Þannig geta örfáir menn í einu félagi stöðvað stór fyrirtæki, skipa- félög, útgerðarfélög eða flugfélög, sett þjóðfélagið úr skorðum og valdið ómældu tjóni, til dæmis í þjóðartekjum og útflutningi. Þetta verður löggjafinn að stöðva. Sjá verður til þess að starfsfólk ákveðins fyrirtækis sé í einu félagi. Með ýmsum slíkum hætti má bæta ástandið í þjóðfélaginu. Vinnulöggjöfm skiptir þar geysi- miklu. Við verðum að hafa vit til að láta tekjur þjóðarinnar ekki drabbast niður fyrir asnalega lög- gjöf. En verkalýðsstjórarnir hafa lengi komist upp með sitt. Vald þeirra er gífurlegt og það er guhtryggt eins og hér hefur verið rakið. Þetta hð mun vafalaust í sumar efna til mótmæla gegn svikum þeg- ar þau koma fram og stjórnvöld fylgja ekki samningunum. En á móti þessari dularfullu launþegaforystu munu standa menn sem eru í landsstjórn og hafa einnig að miklu leyti gulltryggt veldi sitt. Ólýðræðislegt þjóðfélag Þannig ríkir samtrygging allra flokka - með nokkrum undantekn- ingum - um að viðhalda hér ólýð- ræðislegu skipulagi í þjóðmálum. Þessu kerfi eru fjölmargar þjóðir að kasta frá sér - en við ekki. Ekki er aðeins að íslandi sé iha stjómað og hafi verið lengi. Hér ríkir vald- boðið. Stjórnvöld vhja setja hvem mann og sérhverja atvinnugrein og fyrirtæki á bás þar sem hinir „vitru“ landsfeður hugsa fyrir al- múgann. Þetta er svipað kerfi og gilti til skamms tima fyrir austan tjald. Erum við að hverfa frá þessu kerfi? Höfum við dregið lærdóma af lýðræðisþróuninni? Svarið er neitandi. Við höldum enn í hið steinrunna fyrirkomulag og ekki er fyrirséð að við hverfum frá því á næstunni. Þetta er ólýðræðislegt Og fyrir vikið kostar þetta okkur miklar fjárhæðir í lífskjöram. Við höfum dregist aftur úr. Við sjáum hlut okkar versna - að miklu leyti vegna óstjórnar og ólýðræðislegrar stjórnar. Hér á hið sama við og um verkalýðsfélögin sem yfirleitt búa við ólýðræðislegt skipulag. Þjóðin öll býr við ólýðræðislegt skipulag. Og við gjöldum þess. Þegar Berlín- armúrinn hrynur byggja lands- feður á íslandi bara nýja múra th að viðhalda völdum sínum. Að því leyti eru okkar foringjar engu betri en Ulbricht var í Austur-Þýska- landi eða Brezhnev í Sovétríkjun- um. Steinaldardýr Ef svo fer fram sem horfir verður ísland brátt sem steinaldardýr, risaeðla. Við horfum spennt á hvað gerist í umheiminum. En hér hljóta að finnast menn með næghegt vit og skilning og nægilega öflugir th þess að við getum fylgst með öðr- um. Slíka menn er því miður ekki marga að finna á alþingi eða í leið- togahópi launþegasamtaka. Lík- lega má helst finna slíka menn í atvinnulífinu. Og þá eiga þeir aö láta meira að sér kveða. Við höfum gert tiltölulega skikk- anlega kjarasamninga að þessu sinni. En það breytir ekki þeirri ömurlegu staðreynd að hest er hér í sama feni og fyrr. Og við getum ekki fullyrt að ein- hver ný ríkisstjórn muni taka rétt- an pól í hæðina. Við skulum fara að taka th. Haukur Helgason

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.