Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1990, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1990, Blaðsíða 30
38 LAUGARDAGUR 3. MARS 1990. LífsstOl Ferðabæklingar: Sólarlandaferðir yinsælastar Þegar feröabæklingum feröa- skrifstofanna er flett kemur í ljós aö sólarlandaferöir eru það sem flestar stærri ferðaskrifstofur landsins leggja höfuöáherslu á að bjóða í sumar, eins og undanfarin ár. Þaö hefur heldur veriö dregið úr sætaframboöi til sólarlanda og eru um 20 prósent færri sæti i boði en voru á síðasta ári. Sömuleiðis eru nær allar ferða- skrifstofumar með pakkana flug og bíl eða flug og sumarhús á sínum snærum. Rútuferðir um Evrópu virðast njóta ákveðinna vinsælda og er boðið upp á gott úrval þeirra á mörgum ferðaskrifstofanna. Thailand, Egyptaland og Banda- ríkin eru sömuleiðis á dagskrá hjá velflestum ferðaskrifstofunum. Það eru einkum minni ferðaskrif- stofurnar sem leggja áherslu á að bjóða upp á einhverja aðra og öðru- vísi ferðamöguleika. Austur-Evrópa er komin inn á ferðakortið hjá nokkrum aðilum og munu nokkrar ferðaskrifstofur bjóða upp á ferðir þangað. Þær eru það sem hæst ber af nýjum ferða- möguleikum. Ýmist eru þessar ferðir baðstrandar- og heilsuferðir, svo sem til Búlgaríu og Júgóslavíu, eða skipulagðar hópferðir þar sem lögð er áhersla á að skoða fleiri lönd en eitt, eða þá að boðið er upp á ferðir austur í gegnum erlendar ferðaskrifstofur, bæði borgarferðir og skoðunarferðir. Annars er úr- valið af ferðum til nýrra áfanga- staða ekki ýkja mikið í ár, raunar mun minna en á síðasta ári. -J.Mar Alís: Leiguflug til Billund Leiguflug ferðaskrifstofunnar Alís til Jótlands hefst 19. júní. Billund verður áfangastaðurinn í þessu flugi. Billund liggur ágætlega við ferðum um Danmörku. Þaðan er auðvelt að komast til Skandinavíu og hvað þá til Þýskalands og Mið-Evrópu. Alís er með á sínum snærum pakk- ann Flug og bíl í Evrópu, sama hvort j flogið er til Danmerkur, Þýskalands, Lúxemborgar eða Englands. Auk þess vill Alís vekja athygli á ferðum til Vínar og Salzborgar í Austurríki, Ungverjalands og Tékkó- slóvakíu en á þessum stöðum getur ferðaskrifstofan útvegað sumarhús, íbúðir, hótel og gistingu á óðalssetr- um svo eitthvað sé nefnt. í sumar mun svo Alís skipuleggja lengri og skemmri ferðir til heims- borgarinnar Parísar og til Bandaríkj- anna. í Tyrklandi verður boðið upp á dvöl á baðströndum við borgina An- talyan og skoðunarferðir víðs vegar um Tyrkland. Loks má svo geta þess að enn einn möguleikinn hjá Alís er ferðir til Egyptalands þar sem hægt er að velja milli þess að fara í skoðun- arferðir eða slappa af á sólarströnd- um. Veðrið í útlöndum HITASTIG IGRÁÐUM -10 #6« Ingra Otll-6 1 1115 61U10 11 tll 15 1511120 2011126 vropa Helsinki 0' Kaupmarmahöfn 4° Berlln 9' rcelona 1 Mallorca 10' Algarve 18°JíC Malaga 17‘ Norðu LéttakýjaB Chicago 0' Aiskýjaö Los Angeles 13' Orlando 14' Býggt á veðuriréttum Veðurstotu Islands kl. 12 ó hádegl, töstudag Þrándheimur -2 'jjl'v \ Reykjavík 1» BergenJ Þórshöfn 4° $ Osló 4° (% 9 Glasgow 4^g í T ; Hamborg 4 London 6° Luxemborg 1 S. Tfc París 4° New York 1 Atlanta 9° DVJRJ Rigning y Skúrir „ Snjókoma pj Þrumuvoöur = Þoka Úrval-Útsýn og Saga: Fjölbreyttar sumarleyfisferðir Það er fjölbreytt úrvahð af sumar- leyfisferðum sem ferðaskrifstofurn- ar Úrval-Útsýn og Saga bjóða upp á nú í sumar. Þessar tvær ferðaskrif- stofur hafa ákveðið að samnýta krafta sína og bjóða því upp á sömu ferðirnar í ár. Sólarlandaferðir ferðaskrifstof- anna eru fjölmargar og verður boðið upp á ferðir í beinu leiguflugi til Mallorca, Costa del Sol, Portúgal og Kýpur. Á þessum stöðum er svo hægt að fá gististaði í ýmsum verð- flokkum. Ferðamöguleikinn flug, bíll og sumarhús nýtur æ meiri vinsælda. Hægt er að nýta hann í Lúxemborg, Þýskalandi, Áusturríki, Frakklandi,. Ítalíu, Englandi og víðar. í ár verður boðið upp á nokkrar rútuferðir um Evrópu. í júní og ágúst verður farið um Mið-Evrópu. í júní verður efnt til þriggja landa feröar þar sem ekið verður um suðurhluta Júgóslavíu, Grikkland og ferðinni lýkur svo í Albaníu. í júlí verður haldið til Austur-Evrópu og í ágúst til Austurríkis og Ungverjalands. Að lokum má svo nefna ferð til Tyrk- lands í september. Af sérferöum sem Úrval-Útsýn og Saga bjóða upp á í ár má nefna ferð- ir til Brasilíu, Thailands, Flórída, og með haustinu verða farnar sérstakar ferðir til Þýskalands og Frakklands og tekið þátt í vínuppskeruhátíðum innfæddra. Ferðaskrifstofumar bjóða einnig sameiginlega upp á málaskóla í Bret- landi, Frakklandi, Þýskalandi, Ítalíu og á Spáni. Þessar ferðir em sniðnar að tungumálakunnáttu hvers og eins. Loks má svo geta nokkurra íþrótta- ferða á vegum Úrvals-Útsýnar og Sögu. Fyrsta má nefna golíferö til Skotlands í maí en hún er orðin ár- viss atburður. Allt sumarið geta kylf- ingar farið til Englands en þar stend- ur þeim til boða að leika golf á golf- völlum Sundridge Park á Bromley. Sömuleiðis er hægt að leika golf á flestum sumarleyfisstöðunum á Costa del Sol, Mallorca og Portúgal. í lokin má svo geta þess að boðið verður upp á sérstaka ferð á heims- meistarakeppnina í knattspyrnu sem fram fer á Italíu dagana 8. júní til 8. júlí. Land og saga: Hvítasimnan í Berlín Páskaferð Lands og sögu verður óheíðbundin Mallorcaferð. Á meðan ferðalangar dvelja á Mallorca verður gengið á milli lítilla þorpa og út frá þeim. Dvölinni á eyjunni lýkur svo með nokkmm frjálsum dögum við ströndina. Fararstjóri veröur Stein- unn Harðardóttir. Um hvítasunnuna verður boðið upp á hálfsmánaðarferð til Berlínar undir fararstjóm Steingríms Gunn- arssonar sem mun sýna feröalöngum baeði Austur- og Vestur-Berlín. í byijun júní verður efnt til Frakk- landsferðar. Flogið veröur til Parísar og þaðan verður haldið til Suður- Frakklands og síðan til Parísar aftur. Rússland er á dagskrá í ágúst. Þetta er 15 daga ferð þar sem gist verður eina nótt í London á útleið, þá fjórar nætur í Moskvu, sjö nætur í Yalta við Svartahafið og þrjár nætur í Len- ingrad. Á heimleiðinni verður flogið um London. Fararsijóri verður Ingi- björg Haraldsdóttir. í september verður boöið upp á 15 daga hópferð til Spánar og Frakk- lands. Ferðin hefst í París og verður leið pílagrímanna forðum fylgt til Santiago de Compotela á Norður- Spáni en hún er ein af þremur helg- um borgum kristninnar ásamt Róm og Jerúsalem. Þegar líða fer á haustið verður skipulögð hópferð fyrir eldri borgara um Evrópu, ferð til Flórída sem verö- ur sniðin að kröfum þeirra sem vilja ferðast án áfengis og loks verður haldið til Kenya í nóvember. Auk ofangreindra ferða skipulegg- ur Land og saga ferðir bæði fyrir ein- staklinga og hópa en þaö er í auknum mæh ferðamáti íslendinga að ferðast nokkrir saman á „eigin vegum".

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.