Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1990, Síða 8
*8
.LAUGÁáDACtíR!^.MARS 1090.
Tilboö óskast í ýmsar gerðir af röntgenfilmum ásamt framköllunarefni
fyrir ríkisspítala og nokkur sjúkrahús.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu Innkaupastofnunar ríkisins, Borg-
artúni 7, Reykjavík.
Tilboðsfrestur er til kl. 11.00 f.h. þann 23. apríl nk.
INIMKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTUNI 7. 105 REYKJAVIK
LOPI - LOPI
3ja þráða plötulopi - 10 sauðalitir,
auk þess gulir, bláir,
rauðir, grænir og lillabláir.
Hnotulopi í sömu litum.
Sendum í póstkröfu um landið.
Lopi ullarvinnslan
Sími 30581
Súðarvogi 4
104 Reykjavík.
Heilbrigðiseftirlit
Eyjafjarðar
óskar eftir að ráða heilbrigðisfulltrúa sem starfa skal
að almennu heilbrigðiseftirliti undir stjórn fram-
kvæmdastjóra.
Starfsréttindi heilbrigðisfulltrúa samkv. reglugerð
150/1983 eru áskilin.
Umsóknarfrestur er til 31. mars 1990. Staðan veitist
frá 1. júní 1990. Umsóknir, er greini frá menntun og
störfum umsækjanda, skal senda formanni svæðis-
nefndar, Ólafi H. Oddssyni héraðslækni, Heilsu-
gæslustöðinni, 600 Akureyri, og veita hann og fram-
kvæmdastjóri, Valdimar Brynjólfsson, nánari uppl.
um starfið.
Svæðisnefnd Heilbrigðiseftirlits Eyjafjarðar
Auglýst er eftir umsóknum um störf námstjóra í grunnskóla-
deild menntamálaráðuneytisins (áður skólaþróunardeild).
Á verksviði deildarinnar eru einkum þróunarverkefni á
grunnskólastigi sbr aðalnámskrá grunnskóla.
Baeði er um að ræða 4-5 stöður við deildina og hins veg-
ar verkefnaráðingu til ákveðins tíma.
A Fjórar til fimm stöður námstjóra:
Verkefni þeirra verða:
- að stuðla að almennri skólaþróun og stjórna og vinna
með starfshópum sem sinna þróun í ákveðnum náms-
greinum, námsgreinaflokkum og á ákveðnum aldursstig-
um.
Námstjórar:
- vinna með fræðsluskrifstofum, skólum sem annast
kennaramenntun, Námsgagnastofnun og öðrum sem
sinna skólaþróun
- skipuleggja og hafa með höndum eftirlit og ráðgjöf
- fylgjast með þróun skólamála innanlands og utan
- miðla upplýsingum um skólamál.
Ráðið er í þessar stöður frá 1. ágúst 1990.
B Ennfremur er auglýst eftir umsóknum um störf nám-
stjóra sem ráðið verður í tímabundið i eitt til fjögur ár
frá 1. ágúst 1990 til að sinna sérstökum verkefnum.
Ráðning í hálft starf kemur til greina.
Þau verkefni, sem fyrst um sinn verður lögð áhersla á, eru
eftirfarandi:
Ráðgjöf um námsmat, umsjón með samræmdum grunn-
skólaprófum og könnunarprófum, íslenska, stærðfræði, list-
og verkgreinar, umhverfismennt.
Auglýst er eftir fólki í öll þessi störf sem hefur menntun í
uppeldis- og kennslufræðum, menntun á ákveðnum
greinasviðum og reynslu af störfum í skólakerfinu. Störfin
krefjast frumkvæðis, sjálfstæðra vinnubragða og skipulags-
hæfni. Mjög reynir á samstarf við aðra.
Um laun fer samkvæmt launakerfi ríkisins.
Umsóknarfrestur er til 30. mars nk.
Umsóknir ásamt ítarlegum upplýsingum um menntun og
fyrri störf skulu sendar til menntamálaráðuneytisins, Sölv-
hólsgötu 4, 150 Reykjavík.
Hinhliðin
Sigrióur Beinteinsdóttir söngkona segir að lífið leiki við sig þessa dagana og ekkert sé því leiðinlegt að gera.
Songunnn
númer eitt
- segir Sigríóur Beinteinsdóttir söngkona
Sigríður María Beinteinsdóttir
hefur sannarlega slegið í gegn með
rödd sinni, fyrst í Landslaginu á
síöastliðnu ári, nú í Eurovision,
auk þess sem hún er aðalsöngkona
í nýju handboltalagi sem heyrist
alloft í útvarpinu þessa dagana.
Sigríður er um þessar mundir að
undirbúa plötu ásamt hljómsveit-
inni Stjórnirmi sem hún syngur
með á Hótel íslandi. í maí fer hún
til Júgóslavíu ásamt Grétari Örv-
arssyni en þau vilja að Síjórnin
komi með til að leika undir í laginu
á sviðinu, Það munu hins vegar
vera skiptar skoðanir hjá Sjón-
varpinu þannig aö ekki er víst
hvort af verður. En Sigríður segir
að hún vonist til að samkomulag
náist, ailavega hætti þau varla við
að fara út með lagið. Það er Sigga
Beinteins sem sýnir hina hliðina
að þessu sinni:
Fullt nafn: Sigríður María Bein-
teinsdóttir.
Fæðingardagur og ár: 26. júií 1962.
Maki: Enginn.
Böm: Ég er bamlaus.
Bifréið: Engin sem stendur.
Starf: Söngkona en það er mitt
draumastarf.
Laun: Þau eru svona upp og niður.
Áhugamál: Söngur og hestar.
Hvað hefur þú fengið margar tölur
réttar í iottóinu? Mest þtjár held ég.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera? Það er að syngja, alveg ör-
uggt.mál, og hefur veriö frá því ég
byrjaði fyrir níu árum.
Hvað fínnst þér leiðinlegast að
gera? Mér fmnst alit svo skemmti-
legt þessa dagana aö ég man bara
ekki eftir neinu sem er leiðinlegt.
Ætli'ég sé ekki bara svona ánægð
meö lífiö.
Uppáhaidsmatur: Matur er mjög
góður en ég er hrifhust af pastarétt-
um um þessar mundir.
Uppáhaldsdrykkur: Mjólk. Ég
drekk mjög mikiö af henni.
Hvaða iþróttamaður stendur
fremstur í dag að þínu mati? Það
er Alfreð Gíslason.
Uppáhaldstímarit: Mannlíf.
H ver er faliegasti kari sem þú hefur
séð? Ég myndi segja að það væri
Mel Gibson.
Ertu hlynnt eða andvig ríkisstjórn-
inni? Ég veit nú ekki hvað ég á aö
segja um það. Ég er miög lítið inni
í pólitík og því hlutlaus.
Hvaða persónu langar þig mest að
hitta? Mig langar mest að hitta
Tinu Turner.
Uppáhaldsleikari: Jack Nicholson.
Uppáhaidsleikkona: Edda Björg-
vinsdóttir.
Uppáhaldssöngvari: Tina Turner.
Uppáhaldsstjórnmálamaður; Hall-
dór Ásgrímsson.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Grettir. -
Uppáhaldssjónvarpsefni: Ég horfi
mjög iítið á sjónvarp en éghef gam-
an af flestum bíómyndum.
Ertu hlynnt eða andvíg veru varn-
arliðsins hér á landi? Hlutlaus.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? Aðalstöðin.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Gunn-
laugur Helgason.
Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið
eða Stöð 2? Stöð 2.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Mér
þykir Helga Guðrún Johnsen mjög
góður sjónvarpsmaður og koma vel
fyrir á skjánum.
Uppáhaldsskemmtistaður: Ég fer
aldrei út að skemmta mér en er
sjálf að skemmta á Hótel íslandi
svo ég nefni hann.
Uppáhaidsféiag i íþróttum: Hlut-
laus, ég er ekkert inni í íþróttamál-
um.
Stefnir þú að einhverju sérstöku í
framtíðinni? Ég stefni bara að því
að gera vel í söngnum.
Hvað gerðir þú í sumarfríinu og
hvað ætlar þú að gera næsta sum-
ar? Ég fór í ferðalag um Evrópu auk
þess sem ég var með Stjórninni á
■ Benidorm i tvær vikur þar sem viö
skemmtum. í vor fer ég til Júgó-
slavíu en reikna ekki meö að fara
neitt annað.
-ELA