Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1990, Blaðsíða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1990, Blaðsíða 48
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við _5_ __ - Qy greiðast 2.000 krónur. fréttaskotum allan sólarhringinn. ist eða er notað Ritstjórn - Auglýsingar - Askrift - Dreifing: Sími 27022 LAUGARDAGUR 3. MARS 1990. Iðnrekendur: Lýður fer fram gegn Víglundi „Ég hef hugsað mér að hressa upp á starfsemi félagsins. Öll félög hafa gott af kosningu öðru hvoru og það bara skerpir á mönnum," sagði Lýð- ur Friðjónsson, framkvæmdastjóri Vífllfells, þegar hann var spurður um ástæður þess að hann býður sig fram til formanns Félags íslenskra iðnrekenda. Lýður býður sig fram gegn sitjandi formanni, Víglundi Þorsteinssyni, og er ljóst að framundan er haröur kosningaslagur. Atkvæðaseðlar hefa þegar verið sendir út en þeim á að skila inn fyrir 14. mars. Úrslitin verða birt daginn eftir, á ársfundi félagsins. Lýður sagði að hann vildi beita sér fyrir áherslubreytingum innan fé- lagsins. Honum þætti ekki hafa verið lögð nógu mikil áhersla á stefnuskrá félagsins og of mikið barist í málum einstakra fyrirtækja. Þá sagðist hann hafa mikinn áhuga á að koma upp verkefnaskrá og láta félagið einbeita sér að þrem, fjórum verkefnum á ári. -SMJ Fríhöfnin: Bjórkassinn á 1.640 krónur „Það eru aðallega tvær ástæður fyrir því að ákveðið var að hefja aftur sölu á bjór í fríhöfninni. í fjárlagatil- lögum á Alþingi var gert ráð fyrir tekjuaukningu í fríhöfninni en tekjur minnkuðu mjög þegar bjórsalan var aílögð á síðasta ári. Fjárveitingar- nefnd mælti með að salan yrði heim- iluð aftur. Auk þess hafa framleið- endur komið fram með óskir um sölu á bjór í fríhöfninni,“ sagði Hörður Bjarnason hjá varnarmáladeild ut- anríkisráðuneytisins við DV. Sala á bjór hófst að nýju í fríhöfn- inni á Keflavíkurflugvelli síðastlið- inn miðvikudag eftir margra mánaða hlé. Að sögn Harðar verður áhersla lögð á sölu á íslenskum bjórtegund- um þótt ekki séu neinar hömlur til- teknar varðandi erlendar tegundir. Að sögn starfsmanns í fríhöfninni var byrjað á að selja eingörtgu ís- lenskan bjór — Löwenbráu og dökkan Egils. Verðið fyrir 24 dósir, 33 cl, ér 27 dollarar eða um 1.640 krónur. Til samanburðar má geta þess að Löw- enbráu kostar 2.920 en dökkur Egils 2.780 á útsölustöðum ÁTVR. -ÓTT LOKI Þá pantar maður ekki leigubíl heldur gjafabíl! 16 ára piltur féll af vörubíl í hjöHum við Grindavik: Fekk tonn „Eg stóö uppi á vörubílspalli þeg- ar hann var að bakka upp aö hjöll- unum. Það var nokkur ferö á hon- um. Þegar bíllinn kom að dálitlum bakka stöðvaðist hann snögglega og ég rann út af pallinum. Fullt stálker með seiluðum þorskhaus- um rann á eftir mér. Það lenti ein- hvern veginn á liliðinni og fór yfir höfuðið, hendurnar og bakið á mér. Bara fætumir stóðu út undan kar- inu. Svo man ég ekki eftir öllu,“ sagði Albert Sævarsson, 16 ára Grindvíkingur, sem lifði það af að fá flskkar ofan á sig síðast líðinn fimmtudag. Fiskkarið er um eitt tonn að þyngd að sögn lögreglunn- ar í Grindavík. Albert er starfsmaður hjá Hrað- frystihúsi Þórkötlustaða, Hann var að fara með vinnufélögum sínum til þess að hcngja upp þorskltausa af vörubílspalli í hjalla skammt fyrir utan Grindavík. TaJið er að þaö hafl orðiö Albert til lífs - eða forðaö honum frá stórslysi - að hann lenti í snjóskafli þegar hann féll af vörubílspallinum. Kerið þrýsti honum af öllum sínum þunga niður í snjóinn. Albert er töluvert marinn á höfði og baki og dálítið lemstraður. Hann slapp við beinbrot og er vel rólfær. „Ég vankaðist eitthvað. Fyrst gat ég ekki andað eftir að ég skall niður og fékk karið ofan á mig. Ég grófst niöur í snjóinn. Ég sneri svo höfð- inu einhvern veginn og þá gat ég andað. Vinur minn reyndi að lyfta karinu ofan af*mér - en hann bif- aði því ekki. Síðan kom annar og hjálpaði honum. Þeir náðu aöeins að lyfta karinu og þá held ég að ég hafi skriðið undan,“ sagði Albert i samtali við DV. „Fyrst gat ég ekki hreyft bakið og aðra höndina. Þeir létu mig svo upp í bílinn sem fór með mig i frystihúsið. Læknir leit svo á mig og ég er mikið marinn á bakinu. Strákunum brá mikið þegar þetta geröist. Þeir sögðu mér að eftir að ég var farinn hefðu þrír reynt að lyfta karinu upp - en þá tókst það ekki. Þessum tveimur sem lyftu karinu ofan af mér hefur líklega tekist það vegna þess aö þeim brá svo mikið að sjá mig þama undir,“ sagði Albert. -ÓTT á höfði og baki Alberts en talið er í snjóinn undan ofurþunga hlassins unum sem eru skammt frá Grindavik. ....... Karið lenti að bjargað hafi lífi hans að lenda í snjóskafli þar sem hann þrýstlst ofan er tekln við slysstað og er búlð að hengja „þá gulu“ upp í hjöll- DV-mynd GVA Veðrið á sunnudag og mánudag Élja- veður Á sunnudag og mánudag verð- ur fremur hæg suðvestan- og vestanátt með éljum sunnan- og suðvestanlands en austangola og stöku él á annesjum norðanlands. Annars staðar verður skýjað en úrkomulaust. Hitinn verður alls staðar vel undir frostmarki, 3-6 stig. „Hreindýr vaða hér um þorpið“ „Hreindýrin vaða hér um þorpið og eru meðal annars við eldhús- gluggana hjá fólki. Þetta er með ólík- indum. Það halda engar girðingar þessum dýrum og þau eru búin að éta mikið af græðlingum og trjám. Dýrin styggjast þegar komið er mjög nálægt þeim en 30-40 dýr eru búin að halda sig hér í þorpinu um nokk- urt skeið,“ sagði Sigurður Gíslason, íbúi og lögreglumaður í hjáverkum á Djúpavogi, í samtali við DV. Mjög fjölskrúðugt dýralíf er um þessar mundir á Djúpavogi því rjúpa og fálki sjást nú daglega í þorpinu. Mjög algengt er að sjá rjúpu og hrein- dýr í görðum húsa. „Það var stúlka hérna í þorpinu sem varð fyrir því, þegar hún var að opna þvottahúsdyrnar að utanverðu, að rjúpa kom fljúgandi bent í flasið á henni eins og orrustuflugvél - og fálki á eftir. Rjúpan lenti á stúlk- unni. Hún hallaði þá aftur hurðinni og klemmdist þá rjúpan á milli stafs og hurðar. Þegar hún opnaði aftur sá hún fálka sem greinilega ætlaði að ná í rjúpuna. Fálkinn hvarf en rjúpuna þurfti að aflífa,“ sagði Sig- urður. „Önnur rjúpa kom síðan fljúgandi og lenti hún á glugga á öðru húsi. Hún var alblóðug, enda var fálki á éftir henni sem náði henni síðan.“ -ÓTT Sendibílastríð: Aka fólki frítt eftir miðnætti Sendibílstjórar hafa bundist sam- tökum um að bjóða fólki frían akstur eftir miðnætti í kvöld. Sendibílar munu safnast saman fyrir utan alla stærstu skemmtistaði borgarinnar og bjóða farþegum ókeypis akstur. Með þessu hyggjast bílstjórarnir mótmæla ýmsum lögum og reglu- gerðum sem settar hafa verið um starfsemi þeirra. Stefnt er að því að hafa bíla til reiðu fyrir utan Hótel ísland, Hollywood og sem víðast í miðbænum. „Þessi mótmæli beinast ekki gegn leigubílstjórum heldur miklu frekar gegn því opinbera," sagði Albert Ómar Guðbrandsson sendibílstjóri í samtali við DV. „Við viljum hins vegar mótmæla því að okkur skuli vera bannað að aka með fólk en leigubílstjórum heimilt að aka með vörur og pakka. Einnig viljum við vekja athygli á því að lögin um virð- isaukaskatt hafa komið illa niður á sendibílstjórum. -pá NYJA SENDIBÍLASTÖÐIN 68-50001 Uti að aka 40 ár I t t t t t t BILALEIGA v/Flugvallarveg 91-61-44-00 4 í <

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.