Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1990, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1990, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 1990. Fréttir_______________________________________________________________________________dv Misjöfn skuldastaða stærri kaupstaða: Vestmannaeyjar, Kópavogur og Keflavík skulda mest - skuldastaða Reykvikinga best Skuldir 10 stærstu sveitarfélaganna 100 50 Vestmannaeyjar Kópayoaur 7il Veltufjárhlutfall* Akranes............ Seltjarnarnes Garðabær Hosfellsbær Akureyrí Hafnarfjörður fíeykja- 6 6 S Skuldir á hvern íbúa í þúsundum króna miöaö við stöðu í árslok 1988 á verðlagi 1990. * Veltufjárhlutfall gefur vísbendingu um greiðsluhæfi sveitarfé- laganna. Ef þetta hlutfali er undir 1,00 má búast við greiðsluerf- iðleikum. Ef það fer langt undir 1,00 má búast við greiðsluþroti. Af tíu stærstu kaupstöðunum skuldar Vestmannaeyjabær mest eða sem nemur um 95 þúsund krónum á hvem íbúa í bænum. Þessi skuld er rúmlega þrefóld skuld Reykvíkinga en skuldir borgarinnar svara til um 31 þúsund króna á íbúa. Hér er miðað við stöðu bæjanna í árslok 1988 en allar tölur eru á verð- lagi ársins í ár. Þeir kaupstaðir sem koma á eftir Vestmannaeyjum eru Kópavogur, Keflavik, Akranes og Seltjarnarnes. Skuldir þessara bæjarfélaga eru meira en helmingi hærri en skuldir Reykjavíkur sé miðað við skuldir á hvern íbúa. Þegar litið er sérstaklega til skammtímaskulda og möguleika sveitarfélagana til þess að standa í skilum með þær kemur í ljós að Keflavík stendur verst. Skammtíma- skuldir Keflvíkinga vom um þriðj- ungi hærri en veltufé bæjarins í árs- lok 1988. Bærinn á því í erfiðleikum með aö standa við skuldbindingar sínar til skemmri tíma. Vestmannaeyjar og Keflavík Eins og áður sagði skulda Vest- mannaeyingar mest eða um 95 þús- und krónur. Tekjur bæjarins á árinu 1988 vom hins vegar ekki nema um 93.500 krónur á mann. Ef allar tekjur bæjarins fæm í að greiöa niður skuldimar tæki það Vestmannaey- inga um eitt ár. Utistandandi kröfur Vestmannaey- inga voru hins vegar núklar miðað við skammtímaskuldir. í árslok 1988 var svokallað veltufjárhlutfall 1,03 hjá Vestmannaeyjabæ. (Veltufjár- hlut er hlutafall milli veltufjár og skammtímaskulda og gefur til kynna líkur á því að bærinn lendi í greiðslu- vandraeðum. Ef þetta hlutfall fer undir 1,00 bendir það til greiðsluerf- iðleika.) Næstmestu skuldaramir eru Kefl- víkingar. Skuldir bæjarins námu um 84 þúsund krónum á mann sem er svipað og tekjurnar. Veltufjárhlutfall Keflavíkurbæjar var mjög slæmt eða 0,66. Það er því líklegt að bærinn eigi í miklum greiðsluvandræðum. Kópavogur, Akranes, Seltjarnarnes og Garðabær Þriðju á skuldalistanum eru Kópa- vogsbúar sem skulda um 83 þúsund krónur á mann. Þetta eru um 97 pró- sent af árstekjum bæjarins. Veltufj- árhlutfallið var rétt undir hættu- mörkum eöa 0,92. Akumesingar em fjórðu mestu skuldaramir og skulda 74 þúsund krónur á mann eða um 87 prósent af árstekjum bæjarins. Miklar líkur eru á alvarlegum greiðsluerfiðleik- um hjá bænum þar sem veltuféð er um fjórðungi minna en skammtíma- skuldimar. Fimmtu í röðinni em Seltimingar sem skulda um 67 þúsund krónur á mann. Skuldir bæjarins em þó minni en árstekjumar eða um 68 prósent af þeim. Það getur hins vegar bragð- ið til beggja vona með greiðslugetu bæjarins en veltufjárhlutfallið er um 1,04. Skuldir Garðabæjar nema um 58 þúsund krónum á mann. Það eru um 68 prósent af árstekjum bæjarins. Litlar líkur em á að Garöabær lendi í greiðsluerflðleikum þar sem veltufé bæjarins er um 77 prósent hærra en skammtímaskuldirnar. Mosfellsbær, Akuryeri, Hafnarfjörður og Reykjavík Skuldir Mosfellsbæjar eru svipað- ar og Garðabæjar eða um 57 þúsund krónur á mann. En þar sem tekjur Mosfellsbæjar eru meiri eru þessar skuldir eilítið minna hlutfall af tekj- unum eða 64 prósent. Veltufé bæjar- ins er hins vegar mun minna og því er veltufjárhlutfallið nálægt hættu- mörkum eða 1,06. Akureyringar skulda um 49 þús- und krónur á íbúa. Það samsvarar um 51 prósent af árstekjum bæjar- ins. Bæjarsjóður stendur nokkuð vel þar sem veltufjárhlutfallið er um 1,61. Næstir koma Hafnfirðingar sem skulda um 42 þúsund krónur á mann. Þetta er um 47 prósent af árstekjun- um. Veltufjárhlutfallið er 1,30. Það sveitarfélag sem stendur áber- andi best er Reykjavík. Skuldir þess eru ekki nema um 31 þúsund krónur á íbúa eða um tveir þriðju af skuldum þess sveitarfélags sem skuldar næst- minnst. Borgarsjóður á einnig vel fyrir skammtímaskuldbindingum sínum þar sem veltufjárhlutfallið er 1,85. Það skal ítrekað að hér er um tölur frá árslokum 1988 að ræða. Skulda- aukning sveitarfélaganna á síðasta ári var misjöfn og því getur röö þeirra hafa riðlast í fyrra. -gse Danmörk: Laxveiðibátur var færður til hafnar Danskur laxveiðibátur hefur nú verið færður til hafnar í Hirtshals í Danmörku. Báturinn heitir Onkel Sam og siglir undir fána Panama. Þegar báturinn var tekinn var hann drekkhlaðinn og á leið til hafn- ar í Póllandi þar sem ætlunin var að gera að aflanum. Mun hann hafa veitt laxinn í Norður-Atlantshafi. Samkvæmt upplýsingum frá emb- ættismanni í danska sjávarútvegs- ráðuneytinu var báturinn tekinn um leið og hann sigldi inn í danska land- helgi á þeim forsendum að hér væri um villtan lax aö ræða. Samkvæmt dönskum reglum er óleyfilegt að veiða eða flytja slíkan lax um danska landhelgi. Réttað verður í málinu í vikunni en ef útgerð skipsins verður fundin sek þá má búast við háum sektum og upptöku afla. -SMJ í dag mælir Dagfari Vantraust á Óla í síðustu alþingiskosningum reis upp nýtt afl í stjórnmálunum. Borgaraflokkurinn bauö fram og vann glæstan sigur. Sá sigur byggðist á þeirri draumsýn for- ystumanna flokksins að feykja burtu gömlu vinnubrögðunum, ráðast gegn spiflingunni og sam- tryggingunni, klíkuskapnum og flokkseigendunum. Borgaraflokk- urinn sagði að það ætti að taka til- lit til litla mannsins, fólksins sem ekki væri bundið á klafa flokk- anna. Þetta var nokkurs konar uppreisn gegn flokksræðinu, ekki síst eftir aðforina gegn Albert Guö- mundssyni, sem Sjálfstæðisflokk- urinn hafði flæmt úr áhrifastöðu vegna þess að flokkseigendafélagið hafði vfljaö Albert feigan í pólitík- iniú. Þetta nýja afl fékk sjö menn kosna á þing. Eitthvað hefur kvamast úr liðinu síðan á kosning- anótt. Albert er farinn til Parísar, Ingi Bjöm og Hreggviður stofnuöu enn nýjan flokk, hægra megin við Borgaraflokkinn og kjósendur Borgaraflokksins hafa ekki fundist í skoðanakönnunum. Það sem skiptir þó mestu máli er sú stað- reynd að Júlíus Sólnes og Óli Þ. Guöbjartsson hafa staðið dyggan vörö um þá hugsjón Borgara- flokksins að berjast gegn spilling- unni og til þess aö ná fram þeim stefnumálum sínum hafa þeir gengiö spillingunni á hönd. Þeir em sem sé komnir í ríkisstjórn, orðnir innanbúðarmenn í bræðra- lagi samtryggingarinnar, þar sem þeir geta fylgst með launráöunum og vaktaö kjötkatlana og séð til þess að gömlu flokkamir taki loks- ins tillit til litla mannsins. Þetta er ekki amaleg staða fyrir nýtt afl í pólitíkinni að geta setið sjálft í bílstjórasætinu og beitt að- haldi innan frá og haft meira að segja tækifæri til þess stöku sinn- um að hygla litla manninum, þegar brauðmolamir hrökkva inn á borð- ið hjá ráðherrum Borgaraflokks- ins. Svo gerist þaö að sæti hæstarétt- ardómara losnar vegna þess að gamli hæstaréttardómarinnar keypti of mikið brennivin og það þuifti siðavandan og ófullan dóm- ara í staðinn. Staöan er auglýst og nokkrir valinkunnir lögfræðingar sækja um. Þar á meðal einn sem heitir Jón Oddsson og hefur opin- berlega stutt nýja aflið í pólitíkinni og hefur þannig lagt fram sinn skerf til hugsjónamálanna og mál- staðar litla mannsins. Gamal- reyndir lögfræðingar taka ekki upp á því að segja skiliö við gömlu flokkanna nema vegna þess að þeir eru búnir að fá nóg af spillingunni og klíkuskapnum sem viðgengst á þeirra vegum. Það er hugsjónin sem rekur slíka menn út í óvissuna og menn af því sauðahúsinu ætlast auðvitað til þess að þeim sé umbun- að í tímans rás. Þeir reikna jú með að Borgaraflokkurinn standi með þeim þegar nýjar stöður losna í Hæstarétti. Það er einmitt á þessu augnabliki sem dómsmálaráðherrann úr Borgaraflokknum bregst. Hann tekur upp á þeirri vanvirðu að ganga fram hjá lögfræðingi Borg- araflokksins og skipar annan dóm- ara, sem kemur Borgaraflokknum alls ekkert við. Sjálfsagt hefur Óla dómsmálaráðherra fundist Hjörtur Torfason best til þess fallinn að hljóta stöðuna því annars hefði hann ekki gengið framhjá Jóni Oddssyni. Þetta er að mati Borg- araflokksins í Reykjaneskjördæmi alger vanvirða og svo alvarleg mis- tök, að lýst er yfir vantrausti á dómsmálaráðherra Borgaraflokks- ins. Borgaraflokksmenn í Reykja- neskjördæmi eru kannske ekki margir. En þeir hafa samt fundist nógu margir sem búa í nágrenni við Jón Oddsson til að hittast núna fyrir helgina og fordæma þessi svik ráðherrans við málstaðinn. Óli Þ. Guðbjartsson hefur nefnilega mis- skiliö stefnuna, sem Borgaraflokk- urinn berst fyrir. Borgaraflokkur- inn er á móti spillingunni og klíku- skapnum hjá öðrum flokkum, en auðvitað á Borgaraflokkurinn aö misnota stöðu sína eins og gömlu flokkamir og skipa sína menn í allar stöður sem losna, til að bola klíkuskap hinna flokkanna út úr stjórnkerfinu. Það er ekki hægt að uppræta klíkuskapinn og flokk- seigendur annarra flokka, nema koma flokkseigendum Borgar- flokksins að. Menn mega ekki gjalda fyrir sínar eigin hugsjónir. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.