Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1990, Page 27

Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1990, Page 27
ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 1990. 27 pv__________________________________________Lífcstm Heilsuræktarstöðin Máttur: Fj árfesting í heilbrigði „Heilsuræktarstöð er trúlega besta nafnið á þetta en þetta er samt ekki nein venjuleg líkamsræktarstöð," sagði Grímur Sæmundsen læknir, forsvarsmaður Heilsugarðsins, í samtali við DV. Heilsugarðurinn mun annast rekstur heilsuræktar- stöðvar sem tekið hefur til starfa í samvinnu verkalýðsfélaga og fyrir- tækja. Verkalýðsfélögin eiga stöðina að 2/3 á móti 1/3 sem nokkur fyrir- tæki eiga og er Verslunarmannafélag Reykjavíkur stærsti hluthafinn. Máttur, en svo er stöðin nefnd, er til húsa á 100 fermetrum í Faxafeni 14 og tók formlega til starfa á laugar- dag. Neytendur „Hér er unniö forvarnarstarf og markvisst verið að fjárfesta í heil- brigði," sagði Grímur. „Starfsemin verður fólgin í námskeiðahaldi í umsjón sérfræðinga hvers á sínu sviði. Hér vinna læknar, sjúkraþjálf- arar, hjúkrunarfræðingar, sálfræð- ingar og næringarfræðingar. Sá sem vill nýta sér þjónustu stöðv- arinnar er settur í svokallað heilsu- mat sem er fólgið í nákvæmum mæl- ingum á þreki, blóðþrýstingi og al- mennu heilsufari. Síðan er hverjum og einum leiðbeint í samræmi við þarfir hans og boðið upp á 7 mismun- andi námskeiö sem hluta af heildar- meðferðinni. Allan tímann er fylgst með viðkomandi og heilsufar hans síðan metiö að námskeiðum loknum og að lokum fær hann í veganesti ráðleggingar um áframhaldandi heil- brigðan lífsstíl. „Við viljum hjálpa hverjum og ein- um að lifa heilbrigðu lífl við sitt hæfi,“ sagði Grímur Sæmundsen. Heildarverð 6 vikna námskeiðs er 12.000 krónur. Stéttarfélög, sem hlut eiga í stöðinni, greiða niður kostnað fyrir félagsmenn sína. Að auki greiða fyrirtæki, sem eru hluthafar, kostn- að enn frekar niður fyrir starfsmenn sína. Því getur kostnaðurinn farið niður í rúmar 2.000 krónur, að sögn Gríms Meðal þátta í starfseminni má nefna forvarnarfræðslu, námskeið í ; Guðmundur Þ. Jónsson, formaður Iðju, og Lýður Friðjónsson framkvæmdastjóri Vífilfells, stiga þrekhjólin í kapp. Hilmar Björnsson íþróttakennari, framkvæmdastjóri Máttar, tekur púisinn á þeim. DV-mynd BG hreyfingu, hollustu, slökun, megrun og reykbindindi. Boðið verður upp á skipulagningu vinnustaðaleikfimi og fræðslunámskeið, starfsstellinga- fræðslu, bakskóla og endurhæfingu vegna atvinnusjúkdóma. Eigendur stöðvarinnar eru: Versl- unarmannafélag Reykjavíkur, Líf- eyrissjóður verslunarmanna, sjúkrasjóður Iðju, sjúkrasjóður Dagsbrúnar, Lögreglufélag Reykja- víkur, Trésmíðafélag Reykjavíkur, Heilsugaröurinn h/f, Vífilfell h/f, Hampiðjan, Sjóvá-AImennar, Mjólk- ursamsalan, Sjóklæðagerð íslands, B.M. Vallá, Securitas, Prentsmiðjan Oddi, Áburðarverksmiðjan, Flug- leiðir og Þýsk-íslenska. AÚs er reikn- að með að hlutafé verði 65 milljónir króna en 43 milljónir hafa þegar safnast. Grímur Sæmundsen kvaðst vongóður um að vel gangi að safna því sem á vantar. Viljum vinna að góðri heilsu fyrir okkar fólk „Við tókum þátt í þessu vegna þess að við viljum gjarnan vinna aö góðri heilsu fyrir okkar fólk,“ sagði Guð- mundur Þ. Jónsson, formaður Iöju, felags verksmiðjufólks, í samtah við DV. Iðja á 10% í Mætti en innan vé- banda félagsins eru 2.500 manns. „Við hrifumst snemma af hugmynd- inni og væntum þess að það góða samstarf, sem hér á vonandi eftir aö takast milli félagsins og atvinnurek- enda, eigi eftir að leiða af sér aukinn skilning gagnvart ýmsum baráttu- málum félagsins innan vinnustað- anna sem lúta að heilbrigði," sagðði Guðmundur. Ótvírætt hagur fyrirtækja „Ég hef fylgst með því og séð marg- ar skýrslur um að erlend stórfyrir- tæki telja sig hafa ótvíræðan hag af því að taka þátt í svona starfsemi," sagði Lýður Friðjónsson, fram- kvæmdastjóri Vífilfells h/f, í samtali við DV. Vífilfell er eitt þeirra fyrir- tækja sem á hlut í stöðinni. „Þar sem ekkert fyrirtæki á íslandi er nógu stórt til að reka slíkt upp á eigin spýtur fannst okkur þetta góð- ur kostur. Við munum hvetja starfs- fólk okkar til þess að nýta sér þessa þjónustu og stuðla þar með að auknu heilbrigði og minni fjarvistum vegna veikinda. Þetta er gott dæmi um jákvæða samvinnu milli aðila vinnumarkað- arins. Það er betra að vinna með verkalýðshreyfingunni en á móti henni,“ sagði Lýður Friðjónsson. -Pá Eggj asamkeppni 1. mars verður sett á laggirnar sérstakt söluátak á vegum Félags eggjaframleiðenda og verða öll egg í verslunum seld í íslenskuni endur- unnum umbúðum frá Silfurtúni í Garðabæ. Jafnframt þessu efnir Félag eggja- framleiðenda til verðlaunasam- keppni um bestu eggjaréttina 1990 og rennur skilafrestur út 15. apríl. 1. verðlaun eru vikuferð til Parísar. Ekki er sett sem skilyrði að réttirnir séu úr eggjum eingöngu þó ætlast sé til þess að þau séu meginuppistaðan. Senda skal uppskriftinrnar fyrir 15. apríl nk. Viðtakandi uppskriftanna er Mat- ur og menning, pósthólf 1157, 121 Reykjavík -Pá Heilsudagar í Kringlunni Kringlan gengst í þriðja sinn fyrir svokölluðum heilsudögum sem standa yfir frá 1. til 17. mars. Kjörorð heilsudaganna er Bætt heilsa - betra líf. Um 30 félagasamtök og opinberir aðilar munu kynna starfsemi sína og veita almenningi ráðgjöf í málum sem lúta að heilbrigði og betra líf- erni. Gefin verða út 3 fréttabréf með ráðleggingum og fróðleik um bætt mataræði og heilbrigðan lifsstíl. Veitingastaðir í Kringlunni munu leggja sérstaka áherslu á heilsusam- lega rétti og hollt fæði og einnig verða ýmsir heilsuréttir boðnir í hádeginu í Hagkaupi í Kringlunni. -Pá Mötmæli sendibílstjóra: Raðuneytm aó - hafast ekki - skortir efnisleg rök „Hér í fjármálaráðuneytinu vita tækja þarf að greiða virðisauka- leigu- og sendibílstjóra þá er það merrn af þessum vanda með tví- skatt af sölunni þrátt fyrir að sölu- mál sarogönguráðuneytisins." sköttunina.Þaöerhinsvegaróhjá- skattur hafi verið greiddur við „Þessi mál hafa lengi verið til kvæmilegur fylgifiskur þess að kaup. skoðunar hér í ráðuneytinu og skipt er um skattkerii og snertir í öðru lagi mótmæla sendibíl- þessi mótmæli breyta í sjálfu sér mum fleiri en sendibflstjóra og stjórar verkaskiptingu rnflli leigu- engu um afstöðu ráöuneytisins. áhrif þess jafiiast út með tímanum. bíla og sendibfla og segja aö leigu- Viö teljum aö efnisleg rök skorti tfl Það væri óhemjuflókið mál að gefa bílar flytji mikið magn af vörum breytinga," sagði Helgi Jóhannes- eittlivað eftir í því enda verður það án þess aö afþví sé greiddur virðis- son, deildarstjóri í samgönguráðu- ekki gert,“ sagði Mörður Árnason, aukaskattur enda leigubílstjórar neytinu, i samtali viö DV, „Ráöu- upplýsingafulltrúi fjármálaróöu- undanþegnir. Hins vegar er greidd- neytið á aö þjóna hagsmunum al- neytis, í samtali við DV. ur virðisaukaskattur af öllum mennings, ekki bara sendi- og Mótmæli sendibflstjóra um heig- flutningum meö sendibílum. leigubílstjóra. Ég vil einníg benda ina beindust einkum að hinu opin- „Fólkstlutningareruundanþegn- á að fuflyrðing sendibilstjóra um bera. Sérstaklega mótmæla bil- ir virðisaukaskatti en vöruflutn- að reglugerð frá í fyrra standist stjórar tvísköttun sem fylgir rnrðis- ingar ekld. Því verður ckki breytt," ekki lög á ekki við rök að styðjast aukaskattkerfi. í því felst að við sagöi Möröur Ámason. „Hvaö og hggur álit umboösmanns Al- sölu sendibíla og annarra atvinnu- varðæ- verkaskiptinguna milli þingisþartilgrmidvaflar.“ -Pá

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.