Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1990, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1990, Side 6
ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS. 199.0. Viðskipti Takmarkanir á flölda sendibifreiða og vörubifreiða: „Sendibílstjórar sitja tímunum saman á bekknum aðgerðalausir“ - allar takmarkanir stríða gegn frjálsri samkeppni, segja hagfræðingar á höfuöborgarsvæðinu og vörubif- reiöa 150. Nú er talið að sendibifreið- ar séu um 600 á svæðinu. Þessar tak- markanir á sendibifreiðum minna í leiðinni á takmarkanir á fjölda leigu- bifreiða sem hafa verið í gildi frá 1955. Lárus Svanlaugsson, fram- kvæmdastjóri Trausta, segir enn- fremur að sendibílstjórar hafi sam- þykkt að fara fram á takmarkanir í stéttinni fyrir um ári. Reglugerðin frá í síðustu viku gengur út á að þeir sem þegar eru í Trausta, félagi sendi- bifreiðastjóra, en það eru langflestir sendibílstjórar á höfuðborgarsvæð- inu, halda réttindum sínum til að aka sendibílum. Fækkað verður hins vegar í stéttinni með þeim hætti að ekki kemur nýr sendibílstjóri í staö þess sem hættir. Ljóst er því að fækk- un sendibílstjóra muni taka nokkur ár. Allar takmarkanir stríða gegn frjálsri samkeppni Þeir hagfræðingar sem DV ræddi við í gær sögðu að hvers konar tak- markanir á atvinnustarfsemi stríddi á móti beinni og frjálsri samkeppni. Svo væri einnig í þessu tilvM. Til- gangur þeirra atvinnustétta sem tak- marka öðrum aðgang að stéttinni sé fyrst og fremst sá að halda uppi tekj- um. Jafnframt leiði allar takmarkan- ir til hærra verðs á þjónustunni og minna magns. Jafnframt sé sú hætta á ferðum, þegar takmarkanir eru að ákveðinni starfsgrein að þeir sem þar eru fyrir sofni á verðinum í rekstrinum vegna einokunarstöðu sinnar og missi tök- in á útgjöldum. Þetta endi oft á því að um minni hagnað verði að ræða þegar upp sé staðið. Einokunargróð- inn fari þá til þeirra sem eigi við- skipti við þá sem hafa einokun. Offjárfesting Og hvað um það? Rök sendibílstjóra og vörubílstjóra fyrir takmörkunum eru meðal ann- ars þau að þeir sem fyrir séu hafi fjárfest svo mikið í dýrum bílum að þegar fleiri nýir bílstjórar bætist við minnki tekjur hvers og eins og þar með hagnaður. Þessi rök hafa raunar heyrst hjá fleirum í atvinnurekstri. Þannig voru þær raddir uppi þegar verslun- arhúsiö Kringlan var byggt fyrir nokkrum árum að fyrir væru nægi- lega margar verslanir í höfuðborg- inni til að sinna sölunni. Því yrði um hreina ofljárfestingu að ræða með Kringlunni og hagnaður allra versl- unareigenda í borginni yrði á endan- um minni. „Það er brýnt að fækka sendibílum. Það eru of margir sendibílar fyrir markaðinn. Útkoman er sú að sendi- bílstjórar sitja tímunum saman á bekknum án þess að hafa neitt að gera,“ segir Lárus Svanlaugsson, framkvæmdastjóri félags sendibif- reiðastjóra, Trausta, um takmarkan- ir sem settar hafa verið á fjölda sendibifreiða og vörubifreiða. Það var Steingrímur J. Sigfússon samgönguráðherra sem, að ósk sendibílstjóra, skrifaði undir reglu- gerðina um takmarkanir á íjölda sendibifreiöa og vörubifreiða og gild- ir hún frá 20. mars. Fjöldi sendibíla verði 540 á höfuðborgarsvæðinu í reglugerðinni segir að fjöldi sendibifreiða verði ekki meiri en 540 Kvótakerfið er takmörkun á veiðum og útgerð hérlendis. En spurningin er bara sú hverjir eiga að hafa kvóta og hverjir ekki? Fréttaljós Jón G. Hauksson Hin nýja reglugerð verndar þá sem hafa stundað sendibilaakstur en gera ungum mönnum, sem vilja spreyta sig í faginu, mjög erfitt fyrir. Nú hefur fjöldi sendibíla verið takmarkaður hérlendis. I Reykjavík mega þeir ekki verða fleiri en 540 talsins og á Akureyri mega í framtíðinni aðeins 8 sendibílar vera í rekstri. Rök þeirra sem aðhyllast frjálsan markað og samkeppni eru þau að hann leysi þetta mál sjálfkrafa þegar til lengri tíma er litið. Þeir sem hafa minnstu tekjurnar sjá sæng sína ein- faldlega upp reidda og snúa sér að einhveiju öðru. Þannig verði sjálf- krafa fækkun í greininni. Þetta jafn- ist út af sjálfu sér. Stólarnir sex í tannlæknadeildinni í áraraðir hefur verið takmörkun að námi í tannlækningum hérlendis. Lengi vel voru aðeins til sex tann- læknastólar í háskólanum sem þýddi að ekki komust fleiri en sex nemend- ur af fyrsta ári upp á annað ár og svo koll af kolli. Þrátt fyrir óskir þeirra tannlæknanema, sem náðu ekki einu af efstu sex sætunum, um mun fleiri stóla hefur sú krafa ekki náðst í gegn. Niðurstaðan er því sú að um tak- markanir er að ræða að tannlækna- námi sem auðvitað skilar sér í færri tannlæknum og hærra veröi á tann- læknaþjónustu en ella. Samkvæmt hagfræðinni er kenningin sú að verð- ið sé lægra því fleiri sem eru í greinni. Sérhagsmunir og hagur heildarinnar, þjóðfélagsins í hagfræðinni er einnig minnst á að ekki þurfí að fara saman sér- hagsmunir og hagsmunir heildar- innar, þjóðfélagsins. Dæmin um sendibílstjórana, vörubílstjórana, leigubílstjórana og tannlæknana falla hér undir. Takmörkunin dregur stórlega úr samkeppnisstöðunni. Meö takmörkuninni fara ekki saman sérhagsmunir þeirra sem eru í þess- um atvinnustéttum og heildarinnar, þjóðfélagsins. Þjóðfélagiö græðir á því í gegnum lægra verð að fleiri heldur en færri séu í þessum at- vinnugreinum. Kvótakerfið í sjávarútvegi Eitt þekktasta dæmið í íslensku atvinnulífi um takmörkun á frelsi einstaklinga og fyrirtækja að ákveð- inni atvinnugrein er í sjávarútvegi. Þessi takmörkun heitir kvótakerfl. Þess skal getið að þar er takmörkun- in ekki innleidd vegna sérhagsmuna útgerðarfyrirtækja heldur til að vemda náttúruna. Það er veriö að koma í veg fyrir rányrkju. Engu að síður er útgerðum og bát- um skammtaður ákveðinn kvóti. Þegar kvótanum var fyrst úthlutaö var í meginatriðum tekiö miö af afla hvers báts á árunum á undan. Út- koman var sú aö þær útgerðir sem voru fyrir í greininni sátu að veiðun- um. Afleiðingin er sú að nýjar eiga erfltt með að komast aö nema aö kaupa sér aðgang með því að kaupa kvóta. Fijáls markaður leysir þetta mál með sölu á veiðileyfum sem síðan fá Fræg hefur takmörkunin i tann- læknadeild verið. Þar hefur allt snú- ist um sex stóla. að ganga kaupum og sölum á mark- aöi. Hérlendis hafa stjórnvöld ekki viljað ganga þetta skref heldur út- hlutað ókeyps kvóta til útgerða. Ljóst er aö sérhagsmunir þeirra sem fyrir eru og þeirra, sem uppfullir eru af hugmyndum og vilja gerast útgerð- armenn, fara ekki saman. Þeir sem fyrir eru segja sem svo: Það er ekki pláss fyrir fleiri. Að fá sjónvarpsrás ókeypis frá ráðherra Þetta vandamál skýtur einnig upp kollinum á sjónvarpsmarkaðnum ís- lenska þar sem takmarkaður fjöldi er af rásum á ákveðnu tíðnisviði. Hægt er að nefna metrabylgjusviðið sem Ríkisútvarpið, Stöð 2 og Sýn eru á. Með þessum þremur fyrirtækjum eru rásirnar fullnýttar. Fleiri komast ekki að á þessu sviði. Þeir sem ekki komast aö á þessu tíðnisviði hljóta að spyija sig að því hvort það sé eðlilegt að ráðherra út- hluti ákveðnum fyrirtækjum þessum rásum endurgjaldsláust. Á sama hátt og í kvótakerfinu segja þeir sem mæla með frjálsum markaði að bjóða ætti leyfln út, selja þau. Útkoman yrði að þeir sjónvarpsmenn sem teldu sig með bestu hugmyndirnar og arðbærustu stöðina byöu þá auð- vitað hæst og keyptu leyfið. Þeir ættu svo að geta selt leyfið að vild aftur. Svo viö víkjum aftur að kvótanum þá hafa veriö uppi umræður um áhrif þess að veita þeim útgerðum sem fyrir eru endanlegan kvóta án endur- gjalds. Að kvótinn renni þá til þeirra prívat. Spurt hefur verið hvort þetta sé ekki óeðlilegt þar sem sú útgerð eða einstaklingur sem fær þannig ókeypis kvóta til eignar frá hinu op- inbera getur selt hann daginn eftir og þannig hagnast stórlega á einni nóttu. -JGH Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverðtryggð Sparisjóðsbækurób. 3-5 LB Sparireikningar 3jamán.uppsögn 4-6 lb 6 mán. uppsögn 4,5-7 Ib 12mán. uppsögn 6-8 Ib 18mán. uppsögn 15 ib Tékkareikningar, alm. 0,5-1 Allir nema Sp Sértékkareikningar 3-5 Lb Innlan verðtryggð Sparireikningar 3ja mán. uppsögn . 1.5 Allir 6mán. uppsögn 2,5-3,0 Lb.Bb,- Sb Innlán með sérkjörum 2,5-3,25 Sp Innlán gengistryggð Bandaríkjadalir 6,75-7,25 Sb Sterlingspund 13,5-14,25 Sb Vestur-þýsk mörk 6,75-7.25 Sb.lb Danskarkrónur 10,5-11,2 Bb ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst Útlán óverðtryggð Almennirvíxlar(forv.) 18,25-18,5 Ib.Sb Viðskiptavíxlar(forv.) (1) kaupgengi Almennskuldabréf 18,5-19 lb,Bb,- Sb Viðskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir , Hlaupareikningar(yfirdr.) 25-26,5 ib.Bb Utlan verðtryggð , Skuldabréf 7,5-8,25 Lb.Bb Utlán til framleiðslu isl.krónur 17,5-19,5 Ib SDR 10,95-11 Bb Bandaríkjadalir 9,95-10 Bb Sterlingspund 16,75-17 Lb.Bb ' Vestur-þýskmörk 10,15-10,25 Bb Húsnæðislán 4,0 Lífeyrissjóðslán 5-9 Dráttarvextir 30 MEÐALVEXTIR Óverðtr. mars 90 22,2 Verðtr. mars 90 7,9 VlSITÖLUR Lánskjaravísitala mars 2844 stig Lánskjaravlsitala apríl 2859 stig Byggingavísitala mars 538 stig Byggingavísitala mars 168,2 stig Húsaleiguvisitala 2,5% hækkað 1. jan. VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi bréfa verðbréfasjóða Einingabréf 1 4,777 Einingabréf 2 2,615 Einingabréf 3 3,150 Skammtímabréf 1,623 Lífeyrisbréf Gengisbréf 2,102 Kjarabréf 4,733 Markbréf 2,521 Tekjubréf 1,978 Skyndibréf 1.418 Fjölþjóðabréf 1,270 Sjóðsbréf 1 2,292 Sjóðsbréf 2 1,727 Sjóðsbréf 3 1,611 Sjóðsbréf 4 1,362 Vaxtasjóðsbréf 1,6280 Valsjóðsbréf 1,5325 HLUTABRÉF Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.: Sjóvá-Almennar hf. 600 kr. Eimskip 500 kr. Flugleiðir 165 kr. Hampiðjan 180 kr. Hlutabréfasjóður 174 kr. Eignfél. Iðnaðarb. 185 kr. Skagstrendingur hf. 373 kr. Islandsbanki hf. 158 kr. Eignfél. Verslunarb. 158 kr. Oliufélagið hf. 403 kr. Grandi hf. 160 kr. Tollvörugeymslan hf. 118 kr. (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb= Búnaðarbankinn, lb= Iðnaðarbank- inn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnu- bankinn, Úb= Útvegsbankinn, Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóðirnir. Nánari upplýsingar um peningamarkaö- inn birtast i DV á fimmtudögum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.