Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1990, Qupperneq 11
ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 1990.
11
Herferð gegn verðbólgunni í Brasilíu er nú hafin. Teikning Lurie.
Forseti í vígahug
Fáir leiðtogar hafa látið jafnmikið
til sín taka í upphaíi ferils síns eins
og Fernando Collor de Mello, forseti
Brasilíu. Fyrstu tíu dögum hans í
embætti hefur verið líkt við jarð-
skjálfta.
Hann er vanur átökum, er með
svart belti í karate, og nú hefur hann
ráðist til atlögu gegn einum versta
óvini þjóðarinnar, verðbólgunni.
Collor hefur fyrirskipað að láta
frysta meirihluta bankainnistæðna
og verður ekki hægt að hreyfa yfir
100 milljarða dollara næstu 18 mán-
uðina. Á fimm dögum var yfir 30
þúsund verkamönnum sagt upp
störfum um stundarsakir, að því er
áætlað var í blaðafregnum í Brasilíu.
Fyrirtækin hafa ekki reiðufé og eftir-
spum eftir framleiðslu þeirra er eng-
in. Dregið var enn frekar úr þensl-
unni í gær en þá sendu bílaframleið-
endur 42 þúsund verkamenn heim.
Og í Amazonskógunum er áhrifa
áætlunar Collors einnig farið aö
gæta. Verð á gulli hefur hrapað og
gætir mikillar spennu meðal gull-
grafara. Þúsundum þeirra lenti sam-
an við lögreglu um helgina.
Skoðanakannanir sýna aö yfir 80
prósent Brasilíubúa styðja efna-
hagsáætlun Collors. Mikil fátækt
ríkir meðal flestra íbúanna og fagna
þeir tilraunum forsetans til að bæta
ástandið. En íjöldi menntamanna,
sérstaklega lögfræðingar og blaða-
menn, telja lýðræðinu ógnað. Á
fóstudaginn fóru átta vopnaðir lög-
reglumenn inn í byggingu eins helsta
dagblaðsins í Brasiliu, Folha de Sao
Paulo, og höfðu á brott með sér tvo
yfirmenn til þess að yfirheyra þá um
viðskipti blaðsins við auglýsendur.
Blaðið leit á þetta sem tilraun til að
hræða gagnrýna fjölmiðla. Aðgerð-
irnar hafa beinst gegn fleirum. Eig-
andi stórmarkaðar hefur verið í
stofufangelsi í Sao Paulo fyrir að
hafa verðlagt svitalyktareyði of hátt.
Reuter
Margaret Thatcher, forsætisráðherra Bretland:
Mun ekki víkja af valdastóli
Breski forsætisráðherrann, Marg-
aret Thatcher, segist ekki hafa í
hyggju að segja af sér þrátt fyrir
mikinn ósigur íhaldsflokksins í
aukakosningum í Mið-Staffordskíri
nýlega og vaxandi óánægju almenn-
ings með stefnu stjórnar flokksins í
efnahagsmálum. „Er ég í vandræð-
um? Nei,“ sagði ráðherrann í viðtali
við Sunday Telegraph nýlega.
Ummæli Thatcher komu á sama
tíma og birtar voru niðurstöður
skoðanakönnunar sem, enn á ný,
sýna að vinsældir íhaldsmanna fara
sífellt minnkandi en fylgi Verka-
mannaflokksins vaxandi að sama
skapi. í könnuninni, sem gerð var á
vegum Harris-stofnunarinnar fyrir
Observer dagblaðið, var forskot
Verkamannaflokksins tuttugu og
átta prósent. Það er mesta forskot
ílokksins á íhaldsmenn í þau fiörutíu
ár sem skoðanakannanir hafa verið
gerðar í Bretlandi. Mesta forskot sem
Verkamannaflokkurinn hefur notið
fram að þessu var 21,5 prósent í júlí
árið 1971. Þessar niðurstöður þýða
að efgengið yrði til kosninga nú fengi
stjórnarandstaðan hreinan meiri-
hluta á þingi.
íhaldsflokkurinn fékk afis 29 pro-
sent á móti 57 prósentum til handa
Verkamannaflokknum 1 þessari
könnun. í annarri könnun, sem Mori
gerði fyrir Sunday Times blaðið, fékk
Verkamannaflokkurinn tuttugu og
þriggja prósenta forskot.
í könnun Sunday Times sögðu að-
eins þrettán prósent aðspurðra að
þeir vildu að Thatcher leiddi íhalds-
flokkinn í næstu kosningum en til
þeirra verður að boða eigi síðar en
um mitt ár 1992.
Fyrrum varnarmálaráðherra
Thatchers, George Young, segir að
ráðherrann eigi að taka gagnrýni þá
sem hún hlýtur til gaumgæfilegrar
athugunar en að halda sömu stefnu.
Thatcher, sem verið hefur við stjórn-
völinn í ellefu ár, hefur sætt mikilli
gagnrýni, ekki einungis stjómarand-
stæðinga heldur og félaga í eigin
flokki. Almenningur í Bretlandi er
mjög óánægður með hinn nýja nef-
skatt sem stjóm Thatchers hyggst
leggja á í Englandi og Wales um
næstu mánaðamót og hafa heyrst
raddir um að forsætisráðherrann
eigi að segja af sér.
Ósigur Ihaldsflokksins í Mið-Staf-
fordskíri var ekki til að bæta stöðu
flokksins né ráðherrans. íhaldsmenn
hafa hingað til getað reitt sig á stuðn-
ing íbúanna þar en nú brá svo við
að frambjóðandi Verkamanna-
flokksins, Sylvia Heal, bar sigur úr
býtum með rúmlega níu þúsund at-
kvæða mun. Þessi úrslit sýna í hnot-
skurn óánægju kjósenda með að
Thatcherstjórnin skuli beita háum
vöxtum til að berjast gegn verðbólg-
unni sem og skattinum fræga sem á
að koma í staðinn fyrir eignaskatt.
Þessi úrslit endurspegla auk þess þá
stefnu sem kjósendur hafa sýnt
merki um í skoðanakönnunum.
Reuter
Ötlönd
Honecker flýr nýja
heimilið sitl
Erich Honecker og eiginkona hans, Margot, eiga ekki sjö dagana sæla.
Þau urðu að yfirgefa dvalarstað sinn í þorpinu Giihlen aðeins um sólar-
hring eftir að þau komu þangað vegna mótmæla þorpsbúa. Þessi mynd
var tekin af þeim hjónum þegar Erich Honecker var handtekinn í janúar á
þessu ári, sakaður um spillingu í átján ára stjórnartíð sinni. Simamynd Reuter
Erich Honecker, fyrrum leiðtogi
Austur-Þýskalands, er næsta heimil-
islaus eftir að íbúar í Guhlen, sem
er lítið þorp fyrir norðan Berlín, ráku
leiðtogann fyrrverandi út úr bænum.
Fyrir eigi löngu hefðu íbúamir safn-
ast saman fyrir framan heimili
Honeckers með blóm í hönd og hyllt
þennan fyrrverandi leiðtoga sinn. En
nú var annað upp á teningnum. Með
pottum og pönnum börðu íbúarnir í
þak bifreiðar Honeckers er hann ók
út úr bænum. „Svínið þitt,“ hrópaði
fólkið að Honecker-hjónunum sem
flúðu innan við sólarhring eftir að
þau fluttu inn. Enn á ný leita þau á
náðir kirkjunnar sem veitt hefur
þeim skjól síðustu mánuði.
Viðbrögð fólksins í Gúhlen voru
enn frekari auðmýking fyrir þennan
aldna, fyrrum leiðtoga Austur-Þjóð-
veria. Maðurinn, sem árum saman
bjó við velsæld og lúxus, þarf nú að
láta sér nægja tvö lítil herbergi án
þeirra þæginda sem hann var vanur
á átján ára valdaferli sínum.
Ákveðið var að flytja Honecker
burt frá heimili prestshjóna, þar sem
hann hafði dvalið í tvo mánuði, í
þeirri von að heilsa hans færi batn-
andi. Brugðið var á það ráð að flytja
hann í húsnæði í Gúhlen. Það féll
íbúum þorpsins aftur á móti ekki í
geð og því tóku þeir til sinna ráða.
Honecker-hjónin, Erich og Margot,
voru ekki búin að dvelja í Guhlen
nema tvær klukkustundir þegar
mótmælin hófust. Nokkrir þorps-
búar söfnuðust saman fyrir framan
húsið sem þau dvöldu í og létu álit
sitt berlega í ljós. Eftir stöðug mót-
mæli var ljóst um miðjan dag á
sunnudaginn aö þau hjón yrðu að
fara. Og svo varð. Reuter
CARRY-I PC tölvan
í heimanámið
# PC 100% samhæfð sam-
kvæmt IBM staðli
# 2x3.5" diskiingadrif
# MGA skjár
# 10 Mhz vinnsluhraði
# 1 serialtengi
• 1 paralleltengi
• 1 leikjatengi
• Mús
• MS-dos 3.3
• Handtaska fyrir tölvuna
Kynningarverð aðeins
kr. 68.900,-
TÖI,VHA\I>
Laugavegi 116 (við Hlemm) Sími 621122