Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1990, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1990, Síða 13
ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 1990. 13 DV Lesendur Að mððga ekki reyklngafólk! H.S. skrifar: Bréfritari í lesendadálki DV sl. fóstud. er mjög móðgaöur yfir því að banna skuli reykingar í flugvélum og segir að stór hluti farþegarýmis sé reyklaus. Það ætti að nægja. Það sér þó hver heilvita maður að þar sem reykt er fer reykurinn sína leið um allt farþegarými vélarinnar og angrar alla þá sem finnst reykingafýla verst alls óþefs. Bréfritari segir að fólki, sem er flughrætt, líði betur ef það fær að reykja. Hann má þó vita þaö að mörg- um flughræddum líður ennþá verr að þurfa að auki að þola reykinga- svælu hinna eigingjömu svælara sem hugsa ekki um annað sjálfa sig og vilja ekki virða þann sjálfsagða rétt fólks að fá að anda að sér hreinu lofti. Hann kallar fólk með heilbrigða hugsun, fólk sem vill ekki una yfir- gangi reykingafólks, öfgamenn. Ég minnist þess hins vegar að hafa séð viðbrögð reykingafólks við margs konar annarri óþverralykt og finnst því það sjálft þá engir öfgamenn. Má þar nefna t.d. lykt af skarna, sem berst inn um glugga, bræðslulykt eða útblástur frá bifreiðum. Fólk, sem angrar aðra í hverjum matar- og kaffltíma á vinnustað með reykingum, myndi ekki sætta sig við þaö frekar en við hin, að molar af skarna yrðu settir í öskubakkann á matborðinu. Já, öskubakkinn. Hvernig vfkur því við að þeir skuli ennþá settir á matarborð á vinnu- stöðum - þrátt fyrir að lög mæli svo fyrir að fólk skuli eiga rétt á að mat- ast í reyklausum matsal? Hvar er nú Tóbaksvarnanefnd? Hver er skylda yfirmanna á vinnu- stöðum? Eru allir hræddir við að móðga reykingafólkið? - Fólk sem er alveg sama þótt það valdi öðrum óþægindum, fullorðnum, en ekki síð- ur varnarlausum börnum! Já, það er vitað mál, að börnum er mjög illa við reykingar hinna fullorðnu, en sjaídnast er á þau hlustað. í þætti um reykingar á Stöð 2 komst fréttamaður svo að orði: „Ætli þessi unga kynslóð, sem nú er að vaxa úr grasi, muni ekki í framtíðinni líta á öskubakka eins og við lítum nú (eða litum) hrákadallana?" Úr því verður framtíðin að skera. - „Bönn hafa alla tíð verið til bölvunar," sagði K.S. í bréfi sínu í DV. Ef eitthvað er til í því flnnst mér að reykingafólk ætti ekki að gera neitt sem bannar öðrum að lifa og hrærast í hreinu lofti úti sem inni. - Að síðustu vil ég þakka forráðamönnum Flugleiða fyrir að huga að þessu góða máli. Enginn er eins blindur og sá sem ekki vill siá Hellen Linda skrifar: Vegna skrifa í DV undanfarið um barnaverndunar- og forræðissvipt- ingar langar mig að segja hvað mér finnst um þann misskilning að for- ræðislaus foreldri séu undantekn- ingarlaust „óhæf ‘ foreldri! - Ástæð- ur fyrir upphafl slíks ferils eru marg- ar, örfáar réttmætar en afleiðingarn- ar oftast eins. Þegar eitthvert slíkt ferli hefst er einblínt á það sem miður fer og þjóð- félagið bendir feitum fingri á „svo- leiðis fólk“ og dæmir harðlega. Enda- laust er talað um hag barnsins og mistaka- og óþurftargjörðir fram- kvæmdar í skjóli þess. Sannleikur- inn er sá.að foreldrar eru brotnir niður en ekki byggðir upp sem þó gæti afstýrt mörgum harmleiknum. Á endalausum viðtölum við félags- ráðgjafa, sem oft eru misskilningur á báða bóga, upplifir foreldrið lítil- lækkun, skömm og dulda andúð. Og eftir því sem sjálfsmynd foreldris brotnar meira styrkist félagsráðgjaf- inn í vissu sinni um að þar sé „óhæft foreldri“ á ferð. Þegar skömm og vanmáttur hjá foreldri eykst (sem gerist óhjá- kvæmilega eftir því sem ferlið þró- ast) eflist vantraust ráðgjafans á for- eldrinu. Ferlið endar því þannig að barn er svipt foreldrum sínum sem hvorki geta snúið ferlinu við né bor- ið hönd fyrir höfuð sér vegna ör- væntingar, reiði og vanmáttar. Enginn ráðgjafi virðist skilja að þar er um fyllilega eðlileg viðbrögð að ræða við mjög svo óeðlilegum að- stæðum. Ekkert foreldri gæti brugð- ist öðruvísi við, nema vera t.d. á ró- andi lyfjum eða vera haldinn óeðli- legum tilfinningaviðbrögðum! - Og því meira sem foreldri brotnar því minni möguleikar. Því spyr ég; Er það dauðasök ef foreldri lendir í erfiðleikum og mis- stígur sig í lífinu? Á að fremja sálar- morð á heilum íjölskyldum fremur en að aðstoða foreldra til sjálfshjálp- ar? - Það má nota námskeið, fullorð- insfræðslu eða kærleika til að hjálpa og það myndi hjálpa mörgum börn- um til að alast upp hjá blóðforeldrum sem væru reynslunni ríkari - og kerfinu þakklátari. / / / 2 í i Ta AUKABLAÐ Matur og kökur fyrir páskana Miðvíkudagínn 4. apríl nk. mun aukablað um matartílbúníng fyrír páskana og páskasíðí fylgja DV. Þeir auglýsendur, sem hafa áhuga á að auglýsa í þessu aukablaðí, hafi samband víð auglýsinga- deíld DV hið fýrsta í síma 27022. Vínsamlegast athugið að skílafrestur auglýsínga er fýrír fimmtudagínn 29. mars. AUGLÝSINGADEILD ÞVERHOLTI 11 - SÍMI 27022 ffiéturá felauáturf^ Hádegistilboð alla daga Súpa og fiskur dagsins kr. 490,- Laugavegi 73, sími 23433 <8> FJÖLBREYTT ÚRVAL BW EIK - BW ASKUR - BW MERBAU - BW WENGI Fulllakkað, álímt gæðaparket frá Sviss Verð frá kr. 2.500,- Við gefum 15% staðgreiðsluafslátt - nýjar birgðir Heildsala - smásala BUBbTAFELL Bildshöfða 14 -112 Reykjavík ■ Simar S1-38840 / 672545 PARKEl Firma- og félagakeppni Breiðabliks Hið árlega innanhússknattspyrnumót Knattspyrnu- deildar Breiðabliks, firma- og félaga-, verður haldið dagana 6., 7. og 8. apríl nk. í íþróttahúsi Digraness. Spilað verður með 5 í liði og á stór mörk. Nánari upplýsingar gefa eftirtalin: Þóra Ólafsdóttir, vs. 43699/641990, Björn Þór Egilsson, vs. 608082, Ari Þórðarson, vs. 687600. 12. leikvika - 24. mars 1990 Vinningsröðin: 212-112-12X-1X1 HVERVANN? 1.934.253- kr. 0 voru með 12 rétta - og fær hver: 0- kr. á röð 8 voru með 11 rétta - og fær hver: 45.796- kr. á röð Þrefaldur pottur!! Lukkulínan s. 991002 Nauðungaruppboð þriðja og síðasta á eftirtöldum fasteignum: Dalaland 1, hluti, þingl. eig. Jóhann Karl Einarsson, fer íram á eigninni sjálfri fimmtud. 29. mars ’90 kl. 15.30. Uppboðsbeiðandi er Gjaldheimtan í Reykjavík. Eddufell 8, þingl. eig. Kaupfélag Reykjavíkur og nágrennis, fer fram á eigninni sjálfri fimmtud. 29. mars ’90 kl. 17.30. Uppboðsbeiðendur eru Bjöm Ólafúr Hallgrímsson hrl., Jón Ingólfs- son hdl. og Gjaldheimtan í Reykjavík. Frostafold 22, þingl. eig. Birgir Már Guðnason, fer fram á eigninni sjálfri fimmtud. 29. mars ’90 kl. 16.30. Upp- boðsbeiðendur em Gjaldheimtan í Reykjavík, Ólafur Bjömsson lögfr. og Ásgeir Thoroddsen hdl. Grjótasel 6, þingl. eig. Ámi Guð- bjömsson, fer fram á eigninni sjálfri fimmtud. 29. mars ’90 kl. 13.30. Upp- boðsbeiðendur em Gjaldheimtan í Reykjavík og Ólafur Axelsson hrl. Iðufell 12, hluti, þingl. eig. Kristín Lárusdóttir, fer fram á eigninni sjálffi fimmtud. 29. mars ’90 kl. 14.00. Upp- boðsbeiðendur era Ólafúr Axelsson hrl., Veðdeild Landsbanka íslands, Magnús Norðdahl hdl., Guðríður Guðmundsdóttir hdl., Gjaldheimtan í Reykjavík, Guðjón Armann Jónsson hdl., Friðjón Öm Friðjónsson hdl., Ásgeir Þór Ámason hdl., Guðmundur Markússon hrl. og Gjaldskil sf. Kambsvegur 30, neðri ítæð, þingl. eig. Guðjón Olafsson, fer fram á eigninni sjálfri fimmtud. 29. mars ’90 kl. 17.00. Uppboðsbeiðendur em Gjaldheimtan í Reykjavík og Biynjólfúr Kjai-tans- son hrl. NönnufeU 1, 4. hæð t.v., þingl. eig. Anna Maríanusdóttir, fer fi-am á eign- inni sjálfri fimmtud. 29. mars ’90 kl. 14.30. Uppboðsbeiðendur em Baldur Guðlaugsson hrl., Gjaldheimtan í Reykjavík, Sigurmar Álbertsson hrl. og Sigurberg Guðjónsson hdl. Stíflusel 3, hluti, þingl. eig. Sigríður Gissurardóttir, fer fram á eigninni sjálfri fimmtud. 29. mars ’90 kl. 15.00. Uppboðsbeiðendur em Ólafiir Bjöms- son lögff., Gjaldheimtan í Reykjavík, Veðdeild Landsbanka Islands og Fjár- heimtan hf. BORGARFÖGETAEMBÆTriÐ í REYKJAVÍK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.