Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1990, Qupperneq 23

Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1990, Qupperneq 23
ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 1990. Bridge Undánkeppni íslandsmótslns: Úrslit eftir bókinni í sveitakeppni í bridge Undankeppni íslandsmótsins í sveitakeppni fór nú í fyrsta skiptið í heild sinni fram utan Reykjavíkur, nánar tiltekið á Akureyri. Sex sveitir í fjórum riðlum kepptu um réttinn til að spila í úrslitum íslandsmóts, sem fram fara um páskana, en sveit- ir Verðbráfamarkaðar íslandsbanka (núverandi íslandsmeistarar) og Flugleiða höfðu þegar áunnið sér þann rétt. Úrshtin í undankeppninni þóttu vera nokkuð eftir bókinni og ljóst að úrslitin í ár verða með sterkara móti. Bridge ísak Sigurðsson Efsta sveitin úr hverjum riðh komst áfram og þar að auki þær tvær sveit- ir sem hæsta höfðu skorina að hinum fjórum frátöldum. í A-riðli vann sveit Samvinnuferða/Landsýnar öruggan sigur og komst ein áfram úr þeim riðh, skoraði samtals 156 stig. B- riðilinn vann sveit Modern Iceland eins og búist var við með 139 stig en aðrar sveitir komust ekki áfram úr þeim riðli. B-riðillinn þótti vera einna jafnastur. í C- og D-riðlum var nánast um ein- stefnu tveggja sveita að ræða og kom- ust tvær sveitir i úrsht úr þeim báð- um. í C-riðli voru það sveit Ólafs Lárussonar með 161 stig og sveit Tryggingarmiðstöðvarinnar með 151 stig. D-riðil sigraði sveit Ásgríms Sig- urbjörnssonar, eina sveitin utan Reykjavíkur sem komst í úrslit. Hún skoraði 152 stig en í öðru sæti varð sveit Símonar Símonarsonar en hún skoraði 147 stig. Aðstæður allar þóttu vera til fyrir- myndar en spilað var í Alþýðuhús- inu á Akureyri. Bridgefélag Akur- eyrar sá, í samvinnu við Bridgesam- band íslands, um alla framkvæmd mótsins og þótti takast vel. Keppnis- stjóri á mótinu var Agnar Jörgens- son sem hefur stjórnað ílestum meiriháttar bridgemótum á íslandi í áraraðir. Mörg skemmtileg spil htu dagsins ljós á mótinu en þetta spil þótti bjóða upp á skemmtileg tilþrif í vörn. Það kom fyrir í leik í D-riðli og voru tví- burabræðumir Ormarr og Sturla Snæbjörnssynir í aðalhlutverki í vörninni. Samningurinn var fjögur hjörtu eftir að suður hafði opnað á einum spaða. Ormarr hitti á gott út- spil, laufkóng: * 87 V ÁD96 ♦ Á843 + 976 * G96 V 542 ♦ K10765 + KG ♦ D54 V GIO ♦ G92 + ÁD1053 * ÁK1032 V K754 ♦ D + 842 Laufkóngur átti fyrsta slag og austur yfirdrap næst laufgosa með ás og spilaði laufdrottningu. Nú virðist sem spilið standi alltaf þar sem hjört- un liggja, 3-2, og spaðinn, 3-3, og ht- ið aö gera annað en taka þrisvar tromp og síðan ÁK í spaða og trompa spaða. En vestur gerði sér htiö fyrir og henti spaða í þriðja laufið og aust- ur spilaði í fjórða slag spaðadrottn- ingu. Það varð til þess að suður breytti spilaáætluninni, drap spaða- drottningu á ás, tók þrisvar tromp og svínaði spaðatíu og spihð fór einn niður. ÍS Skák Búnaðarbankaskákmótið: Helgi í hópi efstu manna Er þremur umferðum er ólokið á Búnaðarbankaskákmótinu eru sex stórmeistarar efstir og jafnir með sex vinninga. Þetta eru Sovét- mennirnir Dolmatov, Polugajevsky og Razuvajev; Seirawan og de Firmian, frá Bandaríkjunum og Helgi Ólafsson. í níundu umferð, Skák Jón L. Árnason sem hefst kl. 17 í dag í skákmiðstöð- inni Faxafeni 12, hefur Helgi hvítt gegn Seirawan, Dolmatov hvítt gegn Razuvajev og de Firmian hvítt gegn Polugajevsky. Jafnir í 7.-8. sæti eru Sokolov og Vaganjan, sem hafa 5,5 v. og tefla saman í dag. Síðan koma 18 skák- menn með 5 v., þar á meðal Jón L. Árnason, Margeir Pétursson og Þröstur' Þórhallsson, sem vann góða skák af Alexander Ivanov á sunnudaginn. Með 4,5 v. eru m.a. Hannes Hlífar Stefánsson, dr. Kristján Guð- mundsson og Snorri Bergsson, sem komið hefur mjög á óvart fyrir frísklega taflmennsku og óvenju- legar byijanir. Ef Snorri fær með- byr í síðustu umferðunum á hann möguleika á áfanga að alþjóða- meistaratith. Einnig Halldór G. Einarsson sem hefur 4 v. gegn sterkum andstæðingum. Sömu vinningatölu hafa Dan Hansson, Guðmundur Gíslason, Karl Þor- steins og Tómas Björnsson. Flóttamaður veginn Skákmenn eru jafnan ómyrkir í máh er þeir ræða áhugamál sitt. Menn „drepa“ mann og annan á taflborðinu, „slátra andstæðingn- um“ og svo mætti áfram telja. Skák Helga Ólafssonar við sovéska undrabarnið Gata Kamsky í 6. umferð vakti slík viðbrögð meðal áhorfenda. Helgi lét þennan 15 ára gamla unghng, sem komst á forsíðu New York Times í fyrra er hann flúöi heimaland sitt ásamt foður sínum, heldur betur finna til te- vatnsins. Kannski verður skákinni ekki betur lýst en með orðum áhorfan- dans sem gekk úr salnum að henni lokinni og sagði sigri hrósandi: „Helgi tætti barnið í sig!“ Hvítt: Gata Kamsky Svart: Helgi Ólafsson Drottningarpeðsby rj un. 1. d4 RfB 2. Rf3 g6 3. Bg5 Bg7 4. Rbd2 d5 5. e3 0-0 6. Bd3 Rbd7 7. h4?! De8! 8. Bf4 Fyrstu merki þess að eitthvað sé ekki eins og þaö ætti að vera. Hvít- ur reynir að hindra e7-e5 en tapar leik með biskupnum. 8. - c5 9. c3 Rg4! 10. h5 e5 11. dxe5 Rdxe5 12. Be2 Bf5 Og svartur á betri stöðu. Takið eftir að hvítur hefur leikið hvorum biskupnum tvisvar og eytt tveimur leikjum í tilgangslausa framrás h- peðsins. 13. hxg6 fxg6! 14. Rh4 Bd3! 15. Rdf3 Ef 15. Bxg4, þá 15. - Hxf4! o.s.frv. 15. - Bxe2 16. Dxe2 16. - Hxf4! Rökrétt afleiðing af taflmennsku hvíts í byrjuninni. Helgi fórnar skiptamun og fær í staðinn tvö peð og sterkt frumkvæði. 17. exf4 Rd3+ 18. Kd2 Dxe2+ 19. Kxe2 Rxf4+ 20. Kd2 Rxf2 21. Hhfl R4d3 22. g4 c4 23. g5 He8 24. Habl b5 25. Rg2 Re4+ Svörtu riddararnir ráða lögum og lofum á borðinu og nú fer upp- skerutíminn í hönd. 26. Kdl Rg3 27. Hgl Rf2+ 28. Kcl Re2+ 29. Kd2 Rxgl 30. Hxgl b4! 31. cxb4 Bxb2 32. Rf4 Hf8 33. Ke3 Hxf4! Önnur skiptamunsfórn á f4! Hvít- ur er glataður. 34. Kxf4 Rh3+ 35. Ke3 Rxgl 36. Rxgl d4+ 37. Ke4 d3 38. Rf3 Ba3 39. Re5 Bxb4 40. Rxc4 d2 41. Rb2 Be7 42. Kd3 Bxg5 43. Ke2 Bf4 44. Rd3 g5 Og nú loks gafst Kamsky upp. -JLÁ Verðbótaþáttur vaxta og kjarasamningarnir Við gerð kjarasamninganna náð- ist einhvers konar samkomulag við bankavaldið um lækkun vaxta. Töldu forráðamenn launþegasam- takanna það skipta meginmáli fyrir heimilin í landinu. Það kom hins vegar fljótt á dag- inn að þessi vaxtalækkun tók að- eins til svonefndra nafnvaxtalána, þ.e. lána sem ekki eru verðtryggð. Núlllausnin nær skammt Þau eru aðeins um 10-15% af heildarútlánum bankakerfisins. Er þarna um að ræða yfirdráttar- heimhdir, víxla og önnur skamm- tímalán sem eru aðallega notuð af kaupsýslumönnum. Lækkunin var þó lítil. Vextirnir eru enn 22% í 6,5% verðbólgu, eins og hún mældist síðast. Raunvextir af þessum lánum eru því 15,5% og eru það orkuvextir á máli sið- menntaðra þjóða með þróað pen- ingakerfi. En frekari lækkun vaxta af þessum lánaflokki er þó lofað á næstunni. Vaxtalækkun samkvæmt kjara- samningunum nær hins vegar ekki th verðtryggðra lána. Svo að segja öll lán heimilanna í landinu eru verötryggð. Það eru fyrst og fremst íbúðalán og að litlum hluta náms- lán. Samtals nema þau um 100 milljörðum króna. Það táknar að 0,53% hækkun lánskjaravísitölu, sem varð milli febrúar og mars, þ.e. á einum mán- KjáOariim Eggert Haukdal alþingismaður uði, eykur skuldir heimilanna um sem næst 530 milljónir króna. Er ég hræddur um að núll-lausn þeirra Ásmundar og Ögmundar nái skammt th að greiða þær milljón- ir. Uppsöfnunaráhrifin Þetta er atriði sem allir lands- menn þurfa að gera sér glögga grein fyrir. Þegar lánskjaravísitala hækkar vex ekki aðeins liður greiddra vaxta - eins og liður greiddra launa við hækkun kaup- gjaldsvísitölu - heldur eykst allur lánastofninn, allur skuldahali fyr- irtækja og heimila, og raunvextir koma svo ofan á upphækkaðan höfuðstólinn. Það eru þessi uppsöfnunaráhrif sem erfiðleikunum valda og eru að „fara með allt til andskotans", svo að ég noti orð Guðmundar J. Guð- mundssonar. Ljóst er að áþján vaxtaokurs og skuldafjötra mun aldrei linna fyrr en lánskjaravísitala hefir verið af- numin, eins og ég hefi lagt til með frumvarpi á Alþingi um lánskjör og ávöxtun sparifjár í þrjú ár sam- fleytt. Eggert Haukdal „Vaxtalækkun samkvæmt kjarasamn- ingunum nær hins vegar ekki til verð- tryggðra lána. Svo að segja öll lán heimilanna í landinu eru verðtryggð.“ ________________________Meiming Sellósnilli Sjöttu tónleikar Tónlistarfélagsins fyrir styrktarfélaga voru haldnir í íslensku óperunni á laugardaginn var. Arto Noras sellóleikari og Kryst- yna Cortes píanóleikari léku þar verk eftir Schumann, Schubert, Brahms og Paganini. Rómantík Tónleikarnir hófust á Adagio og Allegro í As-dúr op. 70 eftir Robert Schumann. Verkið var mjög fallega leikið af flytjendunum og var sam- hæfni þeirra góð. Þó að tónn Arto Noras sé jafnfíngerður og raun ber vitni býr hann engu að síöur yfir miklum tjáningarkrafti og var túlkun hans á verkinu stórmögnuð. Sama má segja um næsta verk sem þau léku, en það var Sónata „Arp- eggione" eftir Schubert, utan að hér var samhæfmg þeirra ekki eins ein- beitt og í fyrra verkinu. Hin stóra Sónata nr. 2 í F-dúr, op. 99 eftir Johannes Brahms tók við eftir hlé. Þetta mikla og erfiða verk reynir mjög á flytjendur þess, en hér Tónlist Áskell Másson skhuðu þau Arto Noras og Krystyna Cortes rismikilli og sterkri túlkun. Annan þáttinn, Adagio affettuoso, lék Arto Noras með einstaklega fógrum og syngjandi tón og listfengi leiks hans á verkinu í heild var slík að fáir geta þar jafnað um. Snilli Síðasta verk tónleikanna var Variazioni di Bravura eftir Niccolo Pagan- ini. Verkið hefst á stefi úr óperunni Móses eftir Rossini sem Arto Noras lék sérlega fallega, en síðan tóku við thbrigöi þar sem reynir á tæknilega leikni til hins ýtrasta. Einleikarinn lék verkið ekki einungis af tækni- legri fullkomnun heldur náði hann einnig að gæða flutninginn thfmninga- legri spennu. Sem aukalag lék Arto Noras lítið Rondino eftir Sibelius sem upphaflega var samið fyrir fiölu, en hefur nú veri útsett fyrir selló. Verk þetta er létt og skondið og var flutningur þess skemmthegur end- ir eftirminnilegra tónleika.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.