Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1990, Qupperneq 25
ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 1990.
25
Sviðsljós
Golfmót í Kringlunni
Þótt verslunarmiðstöðin í Kringlunni sé stór þá er ekki hægt að búa til Ljósmyndari okkar mætti á staðinn og myndað kylfmga við það nákvæmnis-
golfvöll þar. En einn angi golfíþróttarinnar er púttkeppni sem er nokkurs verk sem pútt er. Allur ágóði af mótinu rann til unglingastarfs Golfsam-
konar minigolf. Þess konar mót var haldið í Kringlunni á sunnudaginn og bands íslands.
voru verðlaun hin glæsilegustu. Meðal annars utanlandsferðir og golfvörur.
Einbeitnin leynir sér ekki í svip
þessa keppanda þegar hann púttar
upp „brekkuna". Félagar hans fylgj-
Brautirnar þurfa ekki að vera langar til að vera erfiðar. Það er nákvæmnin sem gildir.
DV-myndir Hanna ast með af áhuga.
Að laera að verða prinsessa
Kiko Kawashima er ósköp venju-
leg japönsk stúlka, dóttir prófess-
ors. Henni hefur gengið vel í skóla,
þykir falleg og gáfuð. Það er samt
ekki nóg þegar haft er í huga að
hún mun giftast syni Japanskeis-
ara, Aya prins, í júní næstkom-
andi. Þegar þessi ráðstöfun var
kunngerð lá strax fyrir Kiko að
fara í strangt og mikið nám, nám
sem gerði hana að prinsessu. Því
námi fylgir að læra alia hirðsiði
sem keisaraættin viöhefur, full-
komna sig í sögu Japans, ljóðalestri
og tónlist, svo eitthvað sé nefnt.
Aya prins er næstelsti sonur Aki-
hito keisara, er annar í röðinni af
þeim sem eiga tilkall til krúnunnar.
Hér er Kiko ásamt einum kennara sinna.
Hann nemur nú við Oxford og er
ljóst að kærustuparið hittist ekki
mikið fram að brúðkaupinu sem
verður 29. júní. Þá verður breyting
á lífi Kiko. Hún sem hefur að baki
góða háskólamenntun mun sjálf-
sagt aldrei geta nýtt sér hana því
það er ekki siður að japanskar
prinsessur vinni úti.
Kóngafólk á ferð og flugi
Karl Bretaprins eyddi helginni í Afr-
íkurikinu Kamerún þar sem hann
heimsótti meðal annars regnskóg-
ana og er þessi mynd af honum tek-
in á hengibrú einni í skóginum.
Albert prins af Mónakó og systir
hans, Karólina prinsessa, fóru ekki
langt um helgina heldur brugðu sér
á mikinn snobbdansleik sem haldinn
er árlega í Mónakó og kallast Bai
de la rose. Er myndin tekin af þeim
þegar þau dönsuðu saman einn
dans.
Díana prinsessa, sem var með eig-
inmanni sínum, Karli prinsi, á ferð
hans i Kamerún, flýtti sér heim á
föstudagskvöldið þegar hún frétti að
hertogafrúin af York, eða Fergie eins
og hún er yfirleitt kölluð, væri búin
að eignast dóttur....
...og hér er hún í London á sunnu-
deginum og óskar Andrew, hertog-
anum að York, til hamingju með
dótturina sem er sú önnur i röðinni
hjá honum. Er myndin tekin fyrir
framan Portland spítalann þar sem
Fergie dvelur.
mm
wm.
Ólyginn
sagði...
Michael Jackson
er í sárum þessa dagana vegna
fráfalls besta vinar hans, apans
Bubbles, sem tók allt í einu upp
á því að deyja. Apinn góði mun
þó ekki hverfa úr lífi hans því að
Jackson hyggst láta stoppa hann
upp og hafa hann hjá sér það sem
eftir er ævinnar. Michael Jack-
son hatar hótel og vill helst ekki
gista í slíkum húsum. Janet syst-
ir hans var með tónleika í Miami
í byrjun mars og Michael lofaði
að koma að hlusta á hana. í stað
þess að þurfa að gista á hóteli tók
hann á leigu villu eina í eitt ár,
þótt óvíst sé að hann eyði fleiri
en einni nóttu í villunni. Leigan
fyrir árið er 12 milljónir.
Stefanía
prinsessa
af Mónakó er ekki sú trygglynd-
asta, eins og margoft hefur komið
fram. Stefanía, sem hefur reynt
fyrir sér sem sýningarstúlka,
kvikmyndaleikkona, fatahönn-
uður og ilmvatnsframleiðandi,
vill nú verða söngkona. Meðan
kærastinn hennar, Ron Bloom,
var að leggja síðustu hönd á LP-
plötu með henni, hitti hún enn
einn draumaprinsinn, Jean-Yves
Le Fur, og gleymdi um leið söng-
ferlinum og kærastanum sem var
heima í Hollywood. „Þetta var ást
við fyrstu sýn,“ sagði Stefanía við
blaðamenn þegar þeir gengu á
hana.
James Brown
er sem kunnugt er í fangelsi fyrir
að hafa stungið af á bíl sínum
undir áhrifum eiturlyfja. Fljót-
lega mun hinn sextíu og eins árs
söngvari, sem kallaður hefur ver-
ið guðfaðir soultónlistarinnar, fá •
tækifæri til að losna úr fangels-
inu ef hann getur fært sönnur á
að hann gangi að fastri atvinnu í
þjóðfélaginu. Af þessu frétti gam-
anleikarinn Arsenio Hall sem
stjórnar daglegum rabbþætti í
sjónvarpi. Hann var ekki lengi
að bjóða Brown vinnu og segist
tilbúinn að búa til fast starf
handa honum við þáttinn sinn ef
það hjálpar Brown að komast út
úr fangelsinu. Hall hefur enn
ekkert frétt en biður eftir svari.