Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1990, Qupperneq 4
4
LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 1990.
Fréttir
Tillögur Þjóðhagsstofnunar um efnahagsráðstafanir:
Minni hækkanir og
smáhækkun gengis
- stofnunin telur freistandi að leita eftir breiðri samstöðu
Þjóðhagsstofnun hefur lagt fram
tillögur fyrir ríkisstjórnina um það
hvemig bregðast skuli við fyrirsjá-
aniegri hækkun á vísitölu umfram
rauðu strikin svokölluðu.
Þjóðhagsstofnun telur að einkum
komi femt til greina:
1. Gera engar ráðstafanir og sætta
sig viö að hækkun framfærslukostn-
aðar verði nokkru meiri en að var
stefnt.
2. Draga úr verðhækkunum með
því að lækka opinbera gjaldskrá eða
skatta. Til dæmis mætti íhuga afnám
jöfnunargjalds eða hækka opinbera
gjaldskrá og skatta minna á næst-
unni en áformað er.
3. Hækka gengi krónunnar lítils-
háttar og auka aðhald að efnahagshf-
inu með aðgerðum á sviði peninga-
mála.
4. Samsettar aðgerðir á sviði ríkis-
fjármála, peningamála og gengis-
mála, það er blanda af leiðum 2 og
3. Ef til vill mætti freista þess að ná
breiðri samstöðu um aðgerðir af
þessu tagi.
Um leið og þetta er lagt til er sagt
að mikilvægt sé að markmið í verð-
lagsmálum náist. Er því bætt við
sterkari vísbendingu um tillögu
Þjóðhagsstofnunar en rætt var um
hér að framan: „Að öllu samanlögðu
er hér talið freistandi að leita með
óformlegum hætti eftir breiðri sam-
stöðu við aðila vinnumarkaðarins
um leið 4 hér að framan og ákveða
næsta skref að því loknu.“
Ríkisstjórnin hefur lítillega rætt
þessi mál og samkvæmt heimildum
DV er forsætisráðherra á því að eitt-
hvað verði að gera en menn munu
hins vegar ekki vera á eitt sáttir um
að það sé besta lausnin. Hafa þau
sjónarmið komið upp að framúrakst-
urinnn sé svo lítilvægur að rétt sé
að sætta sig við hann.
-SMJ
• Kamerúnmaöurinn Omam-Biyik skorar sigurmarkið gegn Argentinu með
skalla i opnunarleiknum í Mílanó í gær.
Argentína
Heimsmeistarar Argentinu fengu
óvæntan skell í fyrsta leik heims-
meistarakeppninnar sem fram fór í
Mílanó í gær. Argentínumenn, með
Diego Maradona í broddi fylkingar,
töpuðu fyrir Afríkumeisturunum frá
Kamerún, 0-1. Eina mark leiksins
gerði framheijinn Francois Omam-
Biyik á 66. mínútu.
Það var enginn meistarabragur á
liði Argentínu og Maradona og félag-
ar komust htið áleiðis gegn sterkum
og eldfljótum Kamerúnmönnum.
Leikmenn Kamerún hefðu með smá-
heppni getað bætt fleiri mörkum við
fékk skell
og það þrátt fyrir aö þeir væru tveim-
ur leikmönnum færri á lokakaflan-
um en tveir leikmenn liðsins fengu
rautt spjald.
Heimsmeistarakeppnin heldur
áfram af fullum krafti í dag og ís-
lenskir sjónvarpsáhorfendur fá að
sjá leik Sovétríkjanna og Rúmeníu í
beinni útsendingu klukkan 15. Á
morgun veröa tveir leikir beint í ís-
lenska sjónvarpinu. Bandaríkin og
Tékkóslóvakía leika klukkan 15 og
leikur Svía og Brasihumanna verður
á skjánum klukkan 19.
-RR
Sigurður Markússon, stjómarformaður Sambandsins:
Erfitt dæmi en
ekki óleysanlegt
„Staða Sambandsins er erfitt dæmi
en ahs ekki óleysanlegt. Ef rétt er á
haldið er mikið afl í þeim breytingum
sem nú hafa verið samþykktar og
ganga út á að gera Sambandið að
eignarhaldsfélagi og skipta deildum
þess upp í sex hlutafélög," segir Sig-
urður Markússon, nýkjörinn stjóm-
arformaður Sambandsins.
Sigurður hiaut yfirburðakosningu
í stjómarformennskuna. Hann fékk
93 atkvæði, Geir Magnússon, banka-
stjóri Samvinnubankans, fékk 11,
Þorsteinn Sveinsson, varastjórnar-
formaður Sambandsins, fékk 2 og
einn seðiil var auður. Samtals
greiddu 107 atkvæði.
Sigurður hefur verið í áratugi í
starfi hjá Sambandinu og var fyrir
aðalfundinn framkvæmdastjóri sjáv-
arafurðadeildar. Á mánudaginn hef-
ur hann starfaö í nákvæmlega 39 ár
hjá Sambandinu, þar af hefur hann
verið í um 20 ár í framkvæmdastjórn
fyrirtækisins.
- Hver er framtíð Guðjóns B. Ólafs-
sonar sem forstjóra Sambandsins?
„Það eru engin áform uppi um
breytingar á vem hans sem for-
stjóra. Vandinn er enda það stór að
það veitir ekki af að hafa tvo menn,
stjómarformann og forstjóra, til að
takast á við málin."
- Þú ert mikill persónulegur vinur
Guðjóns. Er ekki hætta á að það hefti
þig í erfiðum ákvörðunum sem þú
þyrftir hugsanlega að taka og gætu
snert hann?
„Ég sé enga hættu í því að við
Guðjón séum vinir og að það sé vin-
átta á milli tveggja manna sem þurfa
að vinna mikiö saman við að leysa
erfið vandamál. Verra hlyti það að
vera ef við værum óvinir."
- Nú sagði einn fuhtrúinn á aðal-
fundinum, Jóhannes Geir Sigur-
geirsson, að þær breytingar, sem nú
era fyrirhugaðar, komi of.seint og
hefðu þurft að verða miklu fyrr?
„Ég tel þetta alls ekki of seint.
Vissulega hefði verið betra að þetta
hefði gerst fyrr. En aUt hefur þetta
sinn tíma. Nauðsynleg samstaða um
breytingarnar hefur ekki náðst
fyrr.“
- Þú varst kjörinn stjómarformaður
Sambandsins til þriggja ára í fuUt
starf. Er stjómarformennskan fuUt
starf til frambúðar eftir að breyting-
arnar eru um garð gengnar?
„Ég lít fyrst og fremst á þetta sem
tímabundið starf eða þar til búið er
að ganga frá skipulagsbreytingun-
um.“
- Hvað telur þú að þær taki langan
tíma?
„Ég er að tala um einhver ár frekar
en nokkra mánuði.“
-JGH
Sæmundur Pálsson á Vigdísi EA:
Sökk þegar nefið
snerti bryggjuna
„Mig grunaði að lekinn væri við
stefnisrörið. Ég athugaði það en það
var vonlaust að komast að til að gera
við. Við vorum dregnir í land og það
má segja að báturinn hafi sokkið
þegar nefið snerti bryggjuna. Ég
hefði ekki boðið í það hefði hann
sokkið á landleiðinni. Okkur var orð-
ið kalt og þess vegna voram við í
stýrishúsinu," sagði Sæmundur
Pálsson, formaður á Vigdísi EA, sem
sökk viö bryggju á Bakkafirði aö-
faranótt föstudags.
Tveir menn vora á Vigdísi, Sæ-
mundur og Einar Pálmi Ámason.
Þeir vora að leita að fiski þegar þeir
urðu varir við leka í bátnum.
„Við voram út af Strandhöfn suður
af Digranesi. Hleðsluljósið kviknaði
og þá urðum við varir við að sjór var
kominn í bátinn. Það var blankalogn
en þoka. Það gekk ágætlega að draga
okkur í land. Óneitanlega voram við
hræddir. Þegar báturinn sökk stóð
nefið eitt upp úr. Björgunarmennirn-
ir vora fljótir að átta sig og brutu
rúðu og náðu okkur út. Okkur var
kalt en við erum búnir að jafna okk-
ur á því. Einar Pálmi tognaði tals-
vert á handlegg," sagði Sæmundur
Pálsson þegar DV ræddi við hann í
gær.
-sme
öðrum mannanna, sem voru á Vigdísi EA 11, bjargað úr sökkvandi bátn-
um. Ekki mátti tæpara standa þar sem stýrishús var nær fullt af sjó og
mennirnir komust ekki út hjálparlaust. Þeir voru fljótir að jafna sig eftir
volkið. DV-mynd Margrét Arngrímsdóttir
Salmonella
í kryddi
Fundist hefur salmonellumeng-
un í tveimur kryddtegundum frá
fyrirtækinu G. Pálsson & Co. Hér
er um aö ræða heilan (ómalaðan)
svartan pipar og skorið rósmarín.
Er neytendum eindregið ráðlagt
að nota ekki þær kryddvörur sem
salmonella hefur fundist í, sérs-
takiega er varað viö því að
krydda mat með þessu kryddi
eftir matreiöslu og borða afganga
aí'mat sem þannig er kryddaöur.
í fréttatilkynningu frá Holl-
ustuvemd kemur fram að krydd-
tegundir þessar era seldar í 125
ml neytendaumbúðum úr glæru
plasti með hvítu loki og i 60 ml;
glerumbúðum með rauðu loki.
Umbúðir eru einungis merktar
meö heiti vörunnar og nafni
pökkunaraðila, þ.e.a.s. G. Pálsson
& Co.
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur
hefur fyrirskipað stöðvun dreif-
ingar og innköilun þessara vöru-
tegunda úr verslunum. Heil-
brigðiseftirlitiö og Hollustuvernd
ríkisins itafa unnið í þessu máli
í samvinnu viö umrætt fyrirtæki.
Kryddvörurnar eru framleiddar
af fyrirtæki í Þýskalandi og hefur
viðskiptum viö hinn erlenda
framleiðanda verið híett og jafn-
framt óskað eftir því við ríkistoll-
stjóra að allur innílutningur á
kryddi frá honum vei-ði stöðvað-
Þegar matvæh era vel soðin eða
steikt er tryggt að salmonellusý-
klar drepast. Þeir geta hins vegar
íjölgað sér í vöram, sem ekki eru
hitaðar eöa geymdar (kæling) á
fullnægjandi hátt og þannig vald-
ið matareitran. -GHK
Konráö Guömundsson:
Hættir sem
hótelstjóri
Konráö Guðmundsson, hótel-
stjóri á Hótel Sögu, ætlar að
hætta sem hótelstjóri um miðjan
mánuðinn eftir 27 ára starf.
„Þetta er gamalt heit sem ég
vann þegar ég varð fimmtugur
um að draga saman seghn þegar
ég yrði sextugur," sagði Konráð
en liann varð sextugur 28. maí
síðasthðinn.
Við starfi hótelstjóra tekur Jón- ;
as Hvannberg sem verið hefur
aðstoöarhótelstjóri undanfarin
ár. Konráð iætur hins vegar ekki
af störfum hjá Sögu því hann
verður áfram framkvæmdastjóri:
hússtjórnar Bændaiiallarinnar
eins og áður. Jónas verður því
undirmaður hans.
„Nú ætla ég bara að fara að
dútla eitthvað milh níu og fimm
í stað þess að vinna 70 til 80 tíma
á viku,“ sagöi Konráð. -gse
Orð Guðjóns
vöktu reiði
Orð Guðjóns B. Ólafssonar, for-
stjóra Sambandsins, á aðalfund-
inum í gærmorgun um að margir
aðalfundarmenn töluöu þannig
að það væri eins og þeir skildu
ekki vanda Sambandsins vöktu
mikla reiði á fundinum og úr
varð nokkur rimma. Minnti Guð-
jón jafnframt á að vandi Sam-
bandsins væri skuldir þess.
Jóhaimes Geir Sigurgeirsson,
fulltrúi KEA á fundinum og vara-
þingmaður Framsóknarflokks-
ins, fór þegar i pontu og ávítaði
forstjórann harðlega fýrir aö tala
niður til fundarins og væna menn
um skihúngsleysi.
Haukur Ingibergsson, fulltrúi
KRON á fundinum, fór einnig í
ræðustól og var mjög harðoröur
í garö Guðjóns. Hann minnti á
orð Guðjóns sjálfs fyrir nokkrum
árum um að menn væra ráðnir
og reknir og varpaði því síðan
fram hvort ekki væri orðin þörf
á að grípa til þess síðarnefnda.
-JGH