Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1990, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1990, Qupperneq 13
.oeei Ivm .e nuoAaiiAOUAJ •LAaeARÐAGJUR #. -UÖM-Í' 1990. <aw« m m b w rowiMW»—wwa SI Uppáhaldsmatur Elín G. Ólafsdóttir segist hafa í svo mörgu aö snúast að nær hefði verið að taka mynd af henni með annan handlegg í kápunni ennþá þvi þannig væri henni best lýst. Alltaf á hlaupum. Enda segir hun langt siðan hun hafi haft tima til að elda uppáhatdsmat fjölskyldunnar. DV-mynd Hanna Uppáhaldsmatur: Fiskgratín A La Elín - að hætti borgarfulltrúa Kveimalistans „Eg ætla að gefa ykkur dálítiö ilókna uppskrift en hún er ofsalega góð og því vel þess virði að reyna. Þetta er fiskréttur, sem ég hef reyndar ekki haft tíma til mjög lengi aö elda en hann hefur alítaf veriö i miklu uppáhaldi h)á börn- unum mínum. Eg man eftir að þeg- ar afmæli voru hér áður fyrr og börnin fengu aö velja sér mat var iðulega beðið um þennan rétt,“ sagði Elin G. Ólafsdóttir, borgar- fulltrúi og kennari, sem gefur okk- ur uppáhaldsuppskrift í dag. Elín á sex börn og firam barnabörn og hefur þvi verið með stórt heimili í gegnum tíðina. Þaö er fiskgratin sem hún gefur okkur og uppskrift- in lítur þannig út: Það sem þarf 1 meðalstór ýsa (eða tvö ýsuflök) 7 dl vatn 2 dl mysa sjávarsalt eftir smekk 200 g smjör eða smjörlíki 4 dl heilhveiti eða hveiti 5 egg Aðferðin „Fyrst er suðan látin koma upp á vatni og mysu. Fiskurinn er sett- ur út í og soðinn í u.þ.b. tíu mínút- ur. Þá er hann tekinn upp úr og látinn rjúka. Smjörið (eða smjörlík- ið) er bætt úti soðið og hrært þar til það bráðnar. Heilhveitinu eða hveltinu er sáldrað yfir og hrært stöðugt á meðan og látið rjúka í nokkrar mínútur eða þar til deigið er laust frá sleif og potti. Nú er deigið sett í hrærivélarskál og hrært áfram í vélinni. Bætið einni og einni eggjarauðu út i í einu og kryddið meö fiskkrafti og hvít- um pipar eftir smekk. Á meöan þetta hrærist í vélinni er gott að beinhreinsa fiskinn og er hann síð- an látinn í deigið, Hrært áirara. Að lokum er stífþeyttum eggjarauðum blandað léttilega saman við með sleif eða sleikju þannig að loft leiki enn um hvítumar. Eldfast mót er smurt vel að innan og þakið brauðraspl Deigið sett í formið og rasp yfir auk smjörklípa hér og þar. Rétturinn er loks bak- aður í oíhi við 200 gráður í þijátíu mínútur eða þar til hann er orðinn gulbrúnn. Með réttinum er gott að hafa soðnar kartöflur með niðurbrytj- uðum graslauk úr garðlnum og salat úr jöklakáli, rifnum gulrótum eða rófum og brytjuöum eplum. Yfir saiatið má setja púðursykur og appelsínusafa. Bráöið smjör er lflta ágætt fyrir þá sem vflja yfir kartöflumar,“ sagði Elín G. Ólafs- dóttir og lofaði að þetta væri af- bragðsmáltíð sem þó þyrfti að nostra pínulítið við. „Það er þess virðL“ sagði hún. -ELA Vanefndauppboð Vegna vanefnda uppboðskaupanda verður fasteignin Kársnesbraut • 59, þinglesin eign Björns Emilssonar, boðin upp að nýju og seld á nauðungar- uppboði sem fram fer á eigninni sjálfri þriðjudaginn 12. júní 1990 kl. 16.00. Uppboðsbeiðendur eru skattheimta ríkissjóðs i Kópavogi, Ingvar Björnsson hdl., Landsbanki Islands og Ásgeir Thoroddsen hdl. Bæjarfógetinn í Kópavogi "Gríptu gæsina meÓan hún gefst” - en ekki meÖ höndunum! SMAAUGLYSINGAR SÍMI 27022 Laust embætti sem forseti íslands veitir Prófessorsembætti í heimilislækningum við læknadeild Háskóla íslands er laust til umsóknar. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Gert er ráð fyrir að stöðunni verði að sinni ráðstafað til tveggja ára. Prófessorinn mun fá starfsaðstöðu fyrir rannsóknir og kennslu í húsnæði Háskóla íslands í heimilislæknisfræðum og sem yfirlækn- ir á heilsugæslustöð á Reykjavíkursvæðinu samkvæmt samkomu- lagi heilbrigðisráðuneytis, menntamálaráðuneytis og læknadeildar Háskóla islands. Umsækjandi skal vera sérfræðingur í heimilislækningum. Umsókn- ir, ásamt itarlegum upplýsingum um vísindastörf umsækjanda, ritsmíðar og rannsóknarstörf, svo og námsferil og störf, skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 1 5. júlí nk. Menntamálaráöuneytið 7. júni 1990. Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðar og tæki sem verða til sýnis þriðjudaginn 12. júní 1990 kl. 13-16 í porti bak við skrifstofu vora að Borgartúni 7, Reykjavík, og víðar. Tegundir Árg. 1 stk. Saab 900 i fólksbifr. 1987 2stk. Subaru 1800 Glstation 4x4 1987 2 stk. Toyota Corolla fólksbifr. 1986-87 1 stk. Mazda 626 fólksbifr. 1983 4 stk. Fiat 127 GL fólksbifr. 1985 2stk. Volkswagen Transporter 1987 1 stk. RenaultTrafficsendilbilr. 4x4 1985 1 stk. Isuzu Microbus fólks/sendib. disil, skemmdur 1985 1 stk. Mazda E 2200 Panel Van disil 1985 1 stk. Mazda E-2200 Double cab disil 1984 1 stk. Mercedes Benz 370 d sendib. dísil 1982 1 stk. Ford Econoline E-150 sendib. bensin 1979 1 stk. Dodge pickup bensín 4x4 1983 1 stk. Lada Sport bensin 4x4 1986 1 stk. Nissan pickup Double cab disil 4x4 1985 1 stk. Daihatsu Taftdísil 4x4 1983 1 stk. Toyota LandCruiser bensin 4x4 1983 2 stk. Harley Davidson Fl 1200 lögreglubifhjól 1974-77 1 stk. Man 16,240 vörubifreió m/framdrifi 1981 Til sýnis hjá Pósti og sima, birgóastöó Jörfa. 1 stk. Toyota Hiace sendib. bensin (ógangfær) 1982 Til sýnis hjá Vegagerö rikisins, Akureyri. 1 stk. Toyota Hilux D C. (skemmdur eftir óhapp) 4x4 1987 1 stk. Mitsubishi Pajero bensin 4x4 1986 1 stk. Mitsubishi L-300 Mini Bus 4x4 1984 Til sýnis hjá Vegagerö rikisins, Reyðarfiröi. 1 stk. Mitsubishi Pajero bensin 4x4 . 1984 Tilboðin verða opnuð sama dag kl. 16.30 aó viðstöddum bjóðendum. Rétt- ur er áskilinn til að hafna tilboöum sem ekki teljast viðunandi. IIMNKAUPASTOFIMUN RÍKISINS BORGARTUNI 7 )05 REYKJAVIK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.