Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1990, Side 17
LAUGARDAGUR 9. JUNI 1990. 17
DV Bridge
Bridgekeppni bresku þingdeildanna:
Lávarðadeildin sigraði með yfirburðum
Hin árlega bridgekeppni bresku
þingdeildanna fór fram fyrir stuttu
og lauk með yfirburðasigri lávarö-
anna. Keppnin fór fram á hinu
glæsilega Meredienhóteli sem er í
nágrenni þinghússins og gerði það
að verkum að ekki minna en 14
þingmenn fylgdust með af og til.
Einn af lávöröunum, Lever lá-
varður, er orðlagður fyrir „hroða-
legar“ eða „framtakssamar“ sagn-
ir, allt eftir því hvemig þær heppn-
ast.
Við skulum skoða eitt spil frá
keppninni þannig að lesendur geti
sjáífir dæmt.
V/A-V
* 9876
V -
* AKG95
* KD105
♦ G103
¥ ÁK98632
♦ 4
+ 93
♦ K
V DG74
♦ 10872
+ 8762
♦ ÁD542
V 105
♦ D63
+ AG4
Sagnir gengu þannig með Lever
lávarð í suðursætinu:
Bridge
Stefán Guðjohnsen
Vestur Norður Austur Suður
21auf 2hjörtu pass 3grönd
pass pass dobl pass
pass pass
Tveggja laufa sögnin var gervisögn
sem sýndi 11-15 punkta. Vestur
byrjaði með tígulkóng og austur lét
sjöið. Vestur spilaði nú htlum tígli,
Lever fékk slaginn á drottningu og
fór inn á hjartakóng meðan vestur
kastaði laufi. Það virðist nú freist-
andi að spila spaðagosa en eins og
spilið liggur gengur sú leið ekki.
Tæknilega spilamennskan er að
spila litlu úr blindum. Eins og spil-
ið liggur er þetta vinningsleiðin.
En hugsum okkur að vestur eigi
K98x; hann drepur drottninguna
með kóngnum, tekur tíglana og
pínir út laufaásinn, sem er einn
eftir. Spaðinn er nú blokkeraöur
og spilið er þrjá niöur.
Líklega er því rétt eftir allt saman
að spila gosanum. En Lever er með
mikla tilfinningu fyrir spilinu og
bætti því um betur. Hann tók
hjartaás, þrátt fyrir að það myndi
fría tvo hjartaslagi fyrir austur.
Vestrn- gæti átt erfitt með að átta
sig á að suður væri með fimmlit í
spaða og því gæti hann kastað
spaða. Sú varð einnig raunin og
þegar Lever spilaði spaðagosanum
fékk hann fimm spaðaslagi og þar
með unnið spil.
Á hinu borðinu náðu lávarðarnir
einnig lokasamningnum, fimm
tíglum í vestur. Sá samningur varð
einn niður.
Stefán Guðjohnsen
ÁRLEG ÓKEYPIS SKOÐUN!
Árlega koma fulltrúar framleiðenda hingað til lands og skoða bílana,
eigendum að kostnaðarlausu.
ÞRIGGJA ÁRA ÁBYRGÐ!
Við bjóðum nú þriggja ára ábyrgð á þessum frábœru bílum.
Greiðslukjör eru við allra hœfi.
Öll verð eru staðgreiðsluverð. Bílarnir eru ryðvarðir, skráðir, tilbúnir á götuna
með útvarpi og segulbandi.
SAMBAND ISLENSKRA SAMVINNUFÉLAGA
HÖFÐABAKKA 9 112 REYKJAVÍK SÍMI 91-670000 OG 674300
■ ■ ■ Isuzu Gemini. LT þriggja dyra hlaðbakur kostar
aðeins 793 þúsund og LT fjögurra dyra 808 þúsund krónur.
Isuzu Gemini er kallaður STÓRISMÁBÍLUNN, vegna hins ótrúlega rýmis
sem í honum er. í Gemini sameinast frábœr stjórnsvörun, sparneytni,
viðbraðgssnerpa og þœgindi.
Vélin er 1300cc. 12 hö„ hann er framhjóladrifinn, 5 gíra, með aflstýri,
aflhemlum, PCV-lœsingavara á hemlum og upphitaðri afturrúðu.
Komdu með fjölskylduna
og reynsluaktu þessum
frábœrabíl!