Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1990, Qupperneq 18
18
LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 1990.
Veiðivon
spaug DV
Megi þokan
vera sem lengst
Einhverju sinni var hringt á af-
greiöslu Plugleiða. Var þaö karl-
maður sem spurðist fyrir um
komutima vélarinnar frá Húsa-
vík. Stúlkan í upplýsingunum
kvað komutimann óákveðinn
vegna þoku nyrðra en bað hann
að hringja aftur eftir hálftíma,
sem hann og geröi. Komutíminn
var þá enn óljós. Pór þá maðurinn
fram á þaö viö stúlkuna í upplýs-
ingum að hún hringdi í sig þegar
vélin kæmi frá Húsavík. Tók
stúlkan því þurrlega og spurði af
hverju hann gæti ekki bara
hringt aftur seinna. Þá.svaraði
maðurinn:
„Það var nú eiginlega meining
mín aö nióta síöustu stundanna
meö hjákonunni áður en eigin-
konan kemur úr fríinu frá Húsa-
vík.“
tjll JLCÍflUL
Margir hafa verið aö leíka sér
að því að bua til svokölluð ný-
yrði. Telja sumir að stígvél sé
meira réttnefhi á farartæki á
tveimur þjólum heldur en reið-
þjói. Og svo eru þeir einnig til sem
viija líma meinloku á sár og fella
þar með orðið plástur úr gildi.
Tíminn í Japan
Maöur nokkur var rekinn úr
starfi. Hann var frekar ósáttur
viö brottreksturinn og ákvað því
að hefna sin grimmilega á for-
stjóranum. Og eftir að forstjórinn
var farinn heim af skrifstofunni
hringdi vinurinn í klukkuna í
Japan og lét hana þylja upp jap-
anska tímann allt til morguns er
forstjórinn mastti aftur til vinnu.
Hann fékk víst ansi góöan sím-
reikning fljótlega á eftir.
„Málet"
Dani og íslendingur hittust eitt
sinn yfir glasi á Ölveri. Er þeir
höfðu rabbað saman um stund
heyrösit íslendingurinn segja:
„Nu skal jeg at písse. Mig er
mál.“
- sagði Davíð Oddsson borgarstjóri sem opnar Elliðaámar í fyrramálið
„Mér hst vel á að opna Elhðaámar
í fyrramáhð, hef fengið mér göngu-
ferð með ánni og sá í sporöinn á
þremur löxum í fossinum. En þeir
geta verið famir þegar ég renni,“
sagði Davið Oddsson borgarstjóri í
vikunni. „Það verður maðkurinn
sem verður reyndur fyrst í fossinum
og ég vona að einhver okkar sem
opnum fái fisk,“ sagði Davíð og var
orðinn spenntur að renna fyrir þann
silfraða.
Laxveiðin hefst í Laxá í Kjós á
sunnudaginn og margir veiðimenn
hafa litið i ána eins og þessi sem
var við Laxfoss fyrir fáum dögum.
DV-myndir G.Bender
Þau eru vígaleg við Norðurá í Borgarfirði, Ólöf Stefánsdóttir, Karl Ómar Jónsson og Friðrik D. Stefánsson. í bak-
sýn Stokkhylurinn og Stokkhylsbrotið sem gefur oft góða veiði.
„Það verður gaman að sjá byijun-
ina í EUiðaánum, töluvert af laxi er
komið í ána,“ sagði Garðar Þórhahs-
son, nefndarformaður EUiðaáa, í
samtah í vikúnni. „Við hleyptum 24
löxum úr kistunni í vikunni og þetta
lofar mjög góöu.
Á hveijum degi em opnaðar nýjar
veiðiár fyrir veiðimönnum með
stangir sínar og tól. Núna á sunnu-
daginn byijar Laxá í Kjós, Elhðaám-
ar og Laxá í Aðaldal. Veröur gaman
að sjá hvemig veiðin verður í þess-
um ám en töluvert hefur sést af
laxi.
Davíð Oddsson borgarstjóri, Hauk-
ur Pálmason og Aðalsteinn Guðjohn-
sen opna EUiöámar meðal annarra.
Davíð Oddsson mun renna manna
fyrstur í fossinn. í Laxá í Kjós renna
Arni Baldursson, BolU Kristinsson,
Skúh G. Jóhannesson og Þórarinn
Sigþórsson svo fáir séu taldir. í Laxá
í Aðaldal verða bændur fremstir í
flokki og veiða víða í strengum í
Laxá.
Spenningurinn fer vaxandi með
hverri mínútu. Fær borgarstjóri lax
í fyrsta kasti á maðkinn? Veiðist sá
stóri í Laxfossinum í Laxá í Kjós?
Veiða bændur vel við Laxá í Aðal-
dal? Svör við þessum spurningum
fást um helgina.
-G.Bender
„Sá í sporðinn á þremur
löxum í fossinum"
Finnur þú fimm breytingai? 58
Ókei, þú tapar kannski. En þú ert að minnsta kosti alltaf í nærmynd f
sjónvarpinu... Nafn:
Heimilisfang:
Myndirnar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þegar betur
er að gáð kemur í ljós að á
myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt.
Finnir þú þessi fimm atriði
skaltu merkja viö þau með
krossi á hægri myndinni og
senda okkur hana ásamt nafni
þínu og heimilisfangi. Að
tveimur vikum liðnum birtum
við nöfn sigurvegara.
1) Hitateppi fyrir bak og
hnakka, kr. 3.900,-
2) Svissneska heilsupannan,
kr. 2.990,-
Vinningamir koma frá Póst-
versluninni Príma, Hafnar-
firði.
Merkið umslagið með
lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 58
c/o DV, pósthólf 5380,
125 Reykjavík
Sigurvegarar fyrir fimm-
tugustu og sjöttu getraun
reyndust vera:
1. Jakobína E. Björnsdóttir,
Álfaskeiði 10,220 Hafnarfirði.
2. Guðný Jósteinsdóttir,
Ásgarðsvegi 4, 640 Húsavík.
Vinningarnir verða
sendir heim.