Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1990, Side 22
22
LAUGARDAGUR 9. JUNÍ 1990.
Helgarpopp
Bob Dylan á sviöi með Bruce Springsteen og Mick Jagger. Hann er jafnóútreiknanlegur á hljómleikum og utan þeirra.
Hans Bobness
kemur á hátíðina
Listahátíðamefndum hafa verið
mislagðar hendur þegar dægurtón-
listin hefur verið annars vegar. Sú
sem nú ræður ríkjum virtist sannar-
lega ætla að slá öll fyrri met meö því
að bjóða upp á hvítan negra og græn-
ar blökkukonur. En svo kom Bob
Dylan til sögunnar...
Reyndar eigum við enn eftir að sjá
þessa lifandi goðsögn koma til lands-
ins. Og síðan stíga á svið með gítar
og munnhörpu. Dylan eða Hans Bob-
ness, eins og hann er stundum kall-
aður, er nefnilega einn dyntóttasti
skrattakollurinn í öllum bransanum.
Já í dag þýðir ekkert endilega já á
morgun. En við verðum að vona það
besta.
OhMercy
Bob Dylan hafa svo sannarlega
verið mislagðar hendur undanfarin
ár. Margar plötur hans hafa verið
hálfgert rusl. Ein sú síðasta, Dylan
And The Dead, sem unnin var í sam-
vinnu við hljómsveitina Greatful
Dead, er ekki einu sinni tahn með.
Meira að segja Dylan sjáifum ofbauð
hversu léleg hún var.
En öðru hveiju hittir gamli maður-
inn (48 ára gamall) í mark. Platan
Oh Mercy, sem út kom á síðasta ári,
er ein hans besta um langt skeið.
Enda virðist platan hafa sett sölumet
og skemmst er þess að minnast að
hún varð hljómplata ársins 1989 hér
á landi eftir að plötudómarar höfðu
gengið til atkvæða um áramótin um
áheyrilegustu plötur ársins.
Upptökustjóranum Daniel Lanois
er að miklu leyti þakkað hversu vel
Oh Mercy heppnaðist. Sjálfur er Bob
Dylan afar sáttur við útkomuna. í
nýlegu blaðaviðtali kvaðst hann
glaður vilja taka upp aöra plötu síðar
með Lanois við stjómvölinn.
Hins vegar virðist annað stór-
menni úr stétt ungra upptökustjóra
ætla að vera við stjómvölinn á næstu
plötu Dylans. Don Was úr Was (Not
Was) vann með meistaranum í hljóð-
veri að fjórum lögum. Þar sem við
sögu komu David Lindley, bræðumir
Stevie Ray og Jimmy Vaughan og
Kenny Arnoff trommuleikari. Vænt-
anlega hefur eitthvað bæst í sarpinn
síðan þá.
Cohen/Dylan
Leonard Cohen, aðaldægurtónhst-
amúmer Listahátíðarinnar 1988, og
Bob Dylan em báðir úr hópi gáfu-
mannapoppara sjöunda áratugarins.
Báðum hefur þeim fatast nokkuð
flugið með árunum að flestra mati.
En rétt eins og Dylan hefur komið
sterkur frá síðustu plötu sinni má
það sama segja um Cohen. Er hann
kom hingað 1988 hafði hann nokkr-
um mánuðum áður sent frá sér sína
langbestu plötu um langt skeið, I’m
Your Man. Báðir eiga þvi fuht erindi
á Listahátíð hafandi nokkru fyrir
hátíð hrist hressilega af sér öh svig-
urmæh um að vera útbmnnir, dauð-
ir úr öllum æðum og fleira í þeim
dúr.
Dylan á tónleikum
Fram kom hér áðan að Bob Dylan
er dyntóttur með afbrigðum. Það sést
best af frammistöðu hans á hljóm-
leikum. Stemningin á þeim fer al-
gjörlega eftir því hvernig skapi hsta-
maðurinn er í þann daginn sem leik-
ið er. Stundum þykir hann mislukk-
aður með öllu, falskur, óútreiknan-
legur og uppstökkur. TU er í dæminu
að fyrstu lög hljómleikanna séu 'með
öUu misheppnuð. Þá á Dylan til að
glotta út í annað, gefa undirleikumn-
um merki og setja svo aUt í gang.
Stundum gengur aUt eins og smurð
vél frá upphafi til enda. Reyndar
hefur einn kunningi Dylans haft á
orði að á honum séu svo margar hhð-
ar að hann sé í raunog vem kringl-
óttur!
Það má sem sagt búast við hveiju
sem er þegar Bob Dylan mætir til
leiks á Listahátíð 1990. Vonandi sér
hann ekki eftir öllu og hættir við
áður en á hólminn veröur komiö.
Hljómleikaferðin sem Dylan og félag-
ar era nú á er reyndar orðin svo löng
að hún hefur fengið nafnið Ferðin
endalausa „The Never Ending To-
ur“. Á henni hefur sjálfsagt verið
troðið upp í misjafnlega góðum hús-
um fyrir misjafnlega góða áheyrend-
ur. Reyndar segir hstamaðurinn að
það séu áheyrendumir sem fyrst og
fremst ráði því hvemig lögin hljómi
í það og það skiptið. Við skulum vona
að öU bestu lög Dylans fái hinn eina
sanna hljóm í HöUinni þann 27. júní
næstkomandi. ÁT
Eitt lag enn
komin í gull
Hljómsveitin Stjómin þótti standa
sig prýðUega er hún lék í Stokkhólmi
á vegum skandinavíska flugfélagsins
SAS á dögunum. Leikur Stjórnarinn-
ar vakti talsverða. athygli sænsks
fjölmiðlafólks. Athyglin styrkir
stöðu Stjómarinnar í Svíþjóö en hún
kemur fram á tónleikahátíðinni „AU
Star Festival" í Gautaborg þann 5.
júh næstkomandi.
Plata Stjórnarinnar, Eitt lag enn,
hefur nú náð guUsölu. Geisladiskur-
inn kom í verslanir í fyrsta skipti í
verslanir í byijun vikunnar. Ástæð-
an fyrir því hve hann var seinn var
samspU óhappa að sögn talsmanns
Skífunnar. Nú eiga hins vegar að
vera til nægar birgðir af Einu lagi
enn fram eftir sumri.
Nóg er að gera hjá Stjórninni um
þessar mundir. AUs kyns verkefni
hlaðast á hljómsveitina í miðri viku
og um helgar er síðan lehtið á dans-
leikjum. Hljómsveitin var til dæmis
í Miðgarði í gærkvöld. í kvöld
skemmtir hún í Ýdölum og á morg-
un, sunnudag, leikur hún á sjó-
mannadagsdansleik í Stykkishólmi.
Stjórnin fer strax eftir verslunar-
mannahelgi í hljómleikaferð um
Danmörku og Noreg. Síðustu
skemmtanir hljómsveitarinnar fyrir
þá för verða á þjóðhátíðinni í Vest-
mannaeyjum. ÁT
Stjórnin: nýkomin frá Svíþjóð og fer þangað aftur eftir tæpan mánuð.
Ólétta stöðvar
Shakatak
Ekkert verður af því að Friðrik
Karlsson fari með bresku hljómsveit-
inni Shakatak í hljómleikaferðalag í
sumar. Ástæðan er einföld. Söng-
konan JiU Saward er með barni og
því verður ekkert um hljómleikahald
fyrr en hún verður léttari. Hins veg-
ar hefur það verið orðað við Friðrik
að hann sláist í hópinn með haust-
inu.
Það verður einnig í haust sem
fyrsta sólóplata Friðriks kemur út.
Verið er að kanna með útgáfu henn-
ar á erlendri grund um þessar mund-
ir. Þaö er hljómplötuútgáfan Steinar
semgefurplötunaút. ÁT
Hljómsveitin Rikshaw stendur í
stappi vegna ólöglegrar útgáfu
plötunnar YeUow Above The Sea í
Frakklandi. Að sögn Richards
Scobies, söngvara Rikshaw, er ekki
vitað hve stórt ólöglega upplagið
er. Hins vegar er á hreinu hverjir
em að bijóta lögin á hljómsveit-
inni.
„Þetta em menn sem ætluðu að
gefa plötuna út í Frakklandi. Það
tókust ekki samningar við þá en
þeir héldu áfram með verkið eins
og aUt væri í lagi,“ segir Richard.
„Við höfum fengið bandaríska og
íslenska lögfræðinga til að hjálpa
okkur við að fá þessa útgáfu stöðv-
aða með öUum tiltækum ráðum.“
Að sögn Richards er ólöglega út-
gáfan í Frakklandi aðeins eitt áfaU-
f ifl
1 \ mm
Rikshaw. Óheppnin hefur elt hljómsveitina á röndum við útgáfu Yellow
Above The Sea.
Umsjón
Ásgeir Tómasson
ið enn sem hljómsveitin Rikshaw
hefur orðið fyrir vegna plötunnar
YeUow Above The Sea. „Þaö er
engu líkara en óheppnin elti okkur
á röndum,“ segir hann mæðulega.
Eigi að síður ætlar hljómsveitin
aö senda frá sér nýja plötu í haust.
Sú er langt komin í vinnslu. Óvíst
er hvortr Rikshawnafnið verður
notað áfram á hljómsveitina eða
nýtt nafn fundið.
ÁT
Friðrik Karlsson: væntanlega til liðs
við Shakatak i haust.