Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1990, Page 24
Kristinn Jónsson
Fram
...
LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 1990.
Iþróttir
• Ásgeir Elíasson, Pétur Ormslev og Eyjólfur Ólafsson með viðurkenningar sinar ásamt Magnúsi Helgasyni, forstjóra Hörpu. Viðurkenningarnar eru áletraðar klukkur í laginu eins og hörpur.
DV-mynd Brynjar Gauti
Viðurkenningar DV og Hörpu í knattspymunni:
Pétur, Asgeir og
Evjólfur útnefndir
leikmaður, þjálfari og dómari maímánaðar
DV mun í sumar útnefna besta
leikmann, þjálfara og dómara í
hveijum mánuði fyrir sig í samvinnu
við Hörpu hf., styrktaraðila 1. deild-
arinnar í knattspymu sem gengur
undir heitinu Hörpudeild.
Verðlaunin fyrir maímánuð voru
afhent á fimmtudaginn en þar var
lögð til grundvallar frammistaðan í
fyrstu tveimur umferðum íslands-
mótsins. Pétur Ormslev, landshðs-
maöur úr Fram, var útnefndur leik-
maður maímánaöar, Ásgeir Elías-
son, þjálfari Fram, þjálfari maímán-
aðar, og Eyjólfur Ólafsson úr Víkingi
dómari maímánaðar.
Pétur í aðalhlutverki
í tveimur stórsigrum
Pétur Ormslev var í aðalhlutverki
hjá Fram í tveimur fyrstu umferðun-
um eins og oft áður. Hann lék mjög
vel í 0-4 sigrinum gegn ÍBV í Vest-
mannaeyjum í fyrstu umferðinni og
sömuleiðis þegar Fram lagði Skaga-
menn með sömu markatölu í annarri
umferð. Pétur var ennfremur í sviðs-
ljósinu þegar ísland sigraði Albaníu,
2-0, í Evrópukeppni landsliða á
Laugardalsvelhnum þann 30. maí.
Pétur er 32 ára gamah og er leikja-
hæsti leikmaður Fram í dehdinni frá
upphafi. Hann hefur leikið með Fram
frá 17 ára aldri ef undan eru skilin
tvö ár sem hann var atvinnumaður
í Vestur-Þýskalandi.
Átta mörk í
tveimur leikjum
Ásgeir Ehasson, sem nú stjómar hði
Fram sjötta árið í röð, var með sína
menn á toppi deildarinnar að loknum
tveimur umferðum. Staða hðsins var
þá sérlega glæsileg, 6 stig í húsi og
markatalan 8 mörk gegn engu. Undir
stjóm Ásgeirs hefur Fram unnið
marga titla síðustu fimm árin og
miðað við þessa byijun má búast við
hðinu í toppbaráttunni í sumar.
Eyjólfur stóð
sigbest
Eyjólfur Ólafsson hefur verið í
fremstu röð íslenskra knattspymu-
dómara síðustu árin og fengið nokk-
ur verkefni á erlendum vettvangi.
Hann fékk bestu umsögn í DV af
þeim dómurum sem dæmdu í fyrstu
tveimur umferðunum. Eyjólfur
dæmdi þá leik FH og KA í Hafnar-
firði og þótti standa sig mjög vel.
DV-lið maímánaðar
DV/Hörpu-hð maímánaðar, sem fylg-
ir hér með, er skipað 11 leikmönnum
úr sjö félögum. Framarar eiga þrjá
leikmenn, Valsmenn tvo, Víkingar
tvo og KR, Þór, Stjaman og FH einn
leikmann hvert félag.
-GH/SK/VS/JKS
Pétur Ormslev, Fram,
leikmsður maimánaðar hjá DV og HÖrpu.
Ragnar Gfslason
Stjömunni
Luca Kostic
Sig. Björgvinsson
Janez Zílnik
Vikingi
Olafur Kristjánss.
FH
Antony K. Gregory
Val
Bjarni Sigurðsson
Val
Rfkharður Daöas.
Fram