Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1990, Page 33

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1990, Page 33
LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 1990. 7— .Ofifil 114Ub .fi ÍUJOACutAuUTQ 45. blaö frjálslyndra og vinstri manna um fjögurra ára skeið. Þegar þeim kafla lauk sótti ég um starf sem aðalféhirðir hjá Ferðaskrifstofu ríkisins og þar starfaði ég í tólf ár. Það var á þeim tíma sem ég byrjaði að læra,“ segir Hjörtur. „Þegar ég var búinn að vera í nokkur ár hjá Ferðaskrifstofunni fór ég að taka tíma í Öldungadeild- inni mér til ánægju og skemmtun- ar. Námið átti aldrei að verða ann- að en skemmtun og bara fyrir sjálf- an mig. Allt í einu var ég orðinn stúdent og mig langaði að læra meira. Ég hef sungiö með Karla- kómum Fóstbræðrum í 32 ár og m.a. talsvert í kirkjum og kynnst því starfi sem þar er. Þegar kom að því að velja grein í Háskólanum datt mér í hug að það gæti verið skemmtilegt að kynnast guðfræð- inni. í rauninni kom engin önnur deild til greina og nú er þvi námi lokið,“ segir Hjörtur. Velvild atvinnurekenda „Ég er búinn að vera níu ár í námi og af þeim tíma vann ég í fullu starfi í sjö og hálft ár. Þetta er auðvitað erfitt og gerist ekki nema með velvilja atvinnurek- enda. Kjartan Lárusson, forstjóri Ferðaskrifstofunnar, og hans hægri hönd, Auður Birgisdóttir, vom mér mjög velviljuð og hliör- uðu til fyrir mig, t.d. meðan ég var í prófum. Svo þarf vitaskuld mik- inn skilning fjölskyldunnar. Það er eigingjarnt að fara út í svo langt nám. Á þessum aldri er maður mun lengur að tileinka sér hlutina og ná þeim en þeir sem yngri em. Menn fara heldur ekki í svona langt og erfitt nám nema hafa brennandi áhuga." - Nú ert þú útskrifaður úr Háskó- lanum og hefur þegar fengið stöðu sem prestur. Hvernig kom það til? „Ég var kallaður að Ásum í V- Skaftafellssýslu til prestsþjónustu í maí. Þeirri köllun fylgdi skilyrði um að ég lyki mínu námi. Nú er næsta mál vígslan sjálf og síðan fer ég í þjónustu. Ég hygg að vígslan fari fram í lok júní.“ Sveitalífið heillar - Langaði þig út á land? „Alveg endilega. Ég er uppalinn á ísafirði til sautján ára aldurs. Þar lauk ég gagnfræðiprófi og skóla- stjóri minn var Hannibal Valdi- marsson. Á sumrin var ég í sveit í ísafjarðardjúpi og sveitalífið hefur alltaf síðan haft áhrif á mig. Þrátt fyrir að ég sé búinn að búa í þétt- býlinu þetta lengi þá togar í mann að fara út á land. Ég er mjög ókunn- ugur í Skaftafellssýslunni og hafði ekki komið þar oft. Þegar ég kom þangað í vor og leit yfir byggðina fannst mér hún undrafógur. Það var því engin spuming hvort ég vildi flytja,“ segir Hjörtur. , „Ég hef allan minn búskap búið í Kópavoginum. Ég gifti mig mjög ungur og var rétt tvítugur kominn með tvö böm, þá prentaralærling- ur. Það vildi þannig til að ég kynnt- ist Finnboga Rúti Valdimarssyni, sem byggði upp Kópavog, fór á fund hans og bað um lóð. Finnbogá fannst ég fullungur til að fara að byggja en lét mig engu að síður fá lóð í Hvömmunum með þeim orð- um að bjartsýnin myndi byggja húsið. Þar byggði ég hús, flutti inn 24ra ára gamall og þar bý ég enn- þá. Ég er því einn af frumbyggjum í Kópavoginum.“ Prestur í tíu ár - Hvaö segir fjölskyldan við þess- ari breytingu á högum ykkar? „Þegar maður er kominn á þenn- an aldur og lætur hlutina gerast hægt og rólega þá tekur maður því sem að höndum ber. Háskólanám gat í sjálfu sér þýtt breytingu, ný verkefni og jafhvel nýtt lif. Ég mun eiga mitt hús áfram í Kópavoginum þó að við flytjum austur og hafa hér aðstöðu." Hjörtur er kvæntur Unni Axels- dóttur sem starfar í félagsmála- ráðuneytinu og þau eiga fjögur uppkomin böm og tíu bamaböm. „Bömin og barnabömin hafa mik- ið verið hjá okkur og ég á ekki von á að það breytist þó við flytjum austur. Fjölskyldan hefur tekið þessu öllu mjög vel. Hún hefur stutt mig og hvatt til að halda áfram.“ - Nú em ekki mörg ár þangað til þú kemst á eftirlaunaaldurinn. „Ég verð sextugur 8. desember og á því aðeins rúm tíu ár fyrir prestsþjónustuna, ég þarf að hætta sjötugur samkvæmt starfsaldri op- inberra starfsmanna. Ef manni endist líf og heilsa á ég mér draum. Þegar þessu tímabili er lokið langar lærlingur, að þú ættir eftir að verða prestur? „Nei, aldrei dottið það í hug. Þetta bjó aldrei í mér sem draumur, að minnsta kosti ekki meðvitandi. Söngurinn var alltaf mitt hjartans mál og þar sem ég hef mikið sungið í kirkjum hlýtur það aö hafa mótað mig. Ég lærði söng á sínum tíma um nokkurt skeið en hafði aldrei áhuga fyrir að verða frægur í tón- list. Ég hef haft mikla ánægju af félagsskap Fóstbræðra og hef ferð- ast með þeim víða um heim. Það hefur nægt mér í söngnum." - Öldungadeildinhefurbreyttþínu lífi. Heldurðu að svo sé um marga á þínum aldri? „Ég er viss um það og hef fylgst með manni á míniun aldri sem var með mér í Hamrahlíðinni og fór síðan í sagnfræði. Öldungadeildin er stórkostlegt fyrirbæri. Margir hafa haldið áffam námi eftir stúd- entspróf sem hefðu ekki átt þess kost annars. Prófessoramir í Há- skólanum voru líka alveg öndveg- ismenn,“ segir Hjörtur Hjartarson guöfræðingur sem segist vera fyrsti prestminn í sinni ætt svo langt sem menn muna. -ELA Prentari verður prestur - Hjörtur Hjartarson sat á skólabekk milli flmmtugs og sextugs og lauk guðfræðiprófi „Ætli megi ekki segja að líf mitt hafi verið í köflum og nú eru enn ein kaflaskiptin,“ sagði Hjörtur Hjartarson, nýútskrifaöur guð- fræðingur og væntanlegur prestur að Ásum í Vestur-Skaftafellssýslu, í samtali við DV. Um síðustu helgi lauk Hjörtur guðfræðinámi sínu eftir fjögur og hálft ár í Háskóla íslands og annan eins tíma í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Hjörtur verður sextugur í desem- ber og það er ekki síst vegna ald- ursins að útskriftin telst óvanaleg. „Ég starfaði sem prentari í prent- smiðjunni Eddu en þar nam ég prentiðn á sínum tíma. Árið 1972 sneri ég mér að stjóramálum um tíma og tók þátt í bæjarpólitík í Kópavogi þar sem ég var í bæjar- stjóm og framkvæmdastjóri fyrir Hjörtur Hjartarson verður sextugur í desember en lét það ekki aftra sér frá því að Ijúka guðfræðinámi við Háskóla ísiands. Hann útskrifaðist um síðustu helgi og hefur fengið starf sem prestur að Ásum i V-Skafta- fellssýslu. DV-mynd GVA mig að komast til útlanda og setjast á bekk í erlendum háskóla. Að minnsta kosti hlusta og fylgjast með. Ég hef bæði áhuga fyrir Þýskalandi og Bandaríkjunum og gæti vel hugsað mér annan hvom staðinn." - Ertu feginn að vera búinn að ljúka þessu námi? „Mér þykir það gott og ánægju- legt. Það er komið nóg í bili. Þetta voru allmargir lausir endar sem binda þurfti saman í lokin. Ég er búinn að taka níutíu próf á undan- fömum árum og ég held að þaö sé ágætt.“ Mikill söngáhugi - Heföi þig gmnað, tvítugur prent- <

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.