Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1990, Qupperneq 34
•4 46
LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 1990.
Lífestm__________________ðv
’ Ódýrast að gista hjá .
Ferðaþjónustu bænda
Tveggja manna herbergi án baðs
hjá Ferðaþjónustu bænda kostar 3000
krónur nóttin en svipað herbergi
kostar 3.600 krónur á Edduhótelun-
um.
Þeir sem nenna ekki eða vilja ekki
tjalda á ferðalögum sínum um landið
geta sparað sér umtalsverðar upp-
hæðir með því að athuga hvar sé
ódýrast að gista og borða morgun-
verð.
Yfir 100 bóndabæir
Það eru yfir 100 bóndabæir sem eru
meðlimir í Ferðaþjónustu bænda og
eru bæimir staðsettir um land allt.
Gistíaðstaðan er mismunandi frá
bæ til bæjar, á sumum stöðum er
boðið upp á gistingu í sérhúsum,
annars staðar er gistingin inni í íbúð-
arhúsinu á bænum og á allnokkrum
stöðum er boðið upp á sumarhús.
Herbergin og rúmin, sem í boði
eru, eru einnig misgóð og þau eru
nær öll án baðs.
Hjá Ferðaþjónustunni kostar
svefnpokapláss í rúmi 1000 krónur,
uppbúið rúm kostar 1500 krónur,
vika í 6 manna sumarhúsi kostar
28.000 þúsund og jafnlangur tími í 4
manna húsi er verðlagður á 24.500
krónur. Morgurtverður er seldur á
550 krónur.
Edduhótel er að finna hringinn í
kringum landið, þau eru yfirleitt
starfrækt í heimavistarskólum sem
breytt er í sumarhótel á sumrum.
Herbergin eru látlaus og yfirleitt
lítíð í þau borið.
Á Edduhótelunum kostar tveggja
maxma herbergi með baði 4.900 krón-
ur nóttin en eins manns herbergi
með baði kostar 3.500 krónur, sams
konar herbergi án baðs kosta 3.600
og 2.600 krónur nóttín.
Svefnpokapláss í herbergi kostar
1050 krónur en svefnpokapláss í
skólastofu kostar 600 krónur. Morg-
unverður er seldur á 600 krónur.
Sértilboð
í júni og ágúst bjóða Edduhótehn
upp á sérstök tilboð. Þá er hægt að
kaupa 4 nátta pakka. Kostar þá
Þeir sem geta ekki eða vilja ekki gista í tjaldi á ferðum sínum um landið geta sparað umtalsverðar upphæðir með
því gista þar sem það er ódýrast.
Veðrið í útlöndum
HITASTIG IGRÁÐUM
Þrándheimur
Heisinki 16
Berlín 1
London 14
Luxemborg 13
> Feneyjai
arcelona
k Mailorca 25'
Malaga 27°
Byggt á veöurtréttum Veöurstofu Islands W. 12 á hádegl, fðsludag
i
íW
Reykjavík 13°
0
Þórshöfn 15° v
/p <
Glasgow14° )
C_^ yyjnmpeg 13°ú ^5
(3 u^r—Jk/QL^p****
C"*4* ChlcagolS"
Skýjtó R W
^ _ Atlanta 24°
A‘*ký,a0 Angeles 17°
LpOrlando 24
\ / OVJRJ
(New York 19°
Rlgning V Skúrir *.* Snjákoma Þrumuvefiur — Þoka
tveggja manna herbergi án baðs 2.600
krónur nóttin, svo heildarverð pakk-
ans er 10.400 krónur. Hægt er að
nota pakkann að vild. Það má flakka
á milli hótela eða gista allar næturn-
ar fjórar á sama staðnum.
Nokkru dýrara er svo að gista á
betri hótelunum. Á Hótel ísafirði,
sem telst með betri hótelum á lands-
byggðinni, kostar tveggja manna
herbergi með baði 6.000 krónur en
eins manns herbergi kostar 5.100
krónur. Á það skal hins vegar bent
að morgunverður er nmifahnn í gis-
tíverðinu en stakur morgunverður
kostar 600 krónur.
Hótel ísafjörður rekur einnig sum-
arhótel í heimavist Menntaskólans á
Ferðir
ísafirði, þar eru herbergin án baðs.
Kostar tveggja manna herbergi 4.800
krónur en eins manns herbergi 3.300
krónur nóttin, morgunverður er ekki
innifahnn í gistiverðinu.
Svefnpokapláss í skólastofu kostar
600 krónur.
Dýrara á KEA
Nokkru dýrara er að gista á Hótel
KEA á Akureyri, þar kostar tveggja
manna herbergi með baði 6.500 krón-
ur nóttin en þann 15. júní hækkar
verðið og kostar herbergið þá 7.600
krónur. Eins manns herbergi kostar
4.650 krónur en eftir 15. júní kostar
það 5.400 krónur. Morgunverður
kostar 650 krónur.
Á Hótel Höfn, Homafirði, kostar
tveggja manna herbergi með baði
6.200 krónur en eins manns herbergi
4.800 krónur. Svipuð herbergi án
baðs kosta 4.900 krónur og 3.100
krónur. Morgunverðurinn kostar 500
krónur sem er ódýrara en hjá Ferða-
þjónustu bænda.
-J.Mar
SAS:
Lækkar
flugfar-
gjöld
SAS hefur ákveðið að lækka verð á apexmiðum til
London um 15 prósent.
Ljósu svæöin sýna
vegi sem eru lokaöir allri umferö þar til
annaö veröur auglýst
Beintflugtil
Sao Paulo
Frá og með 1. september næstkom-
andi mun SAS hefja beint flug frá
Kaupmannahöfn til Sao Paulo í Bras-
ihu og verða flugvélar af tegundinni
Boeing 767-200 notaðar á flugleiöinni.
SAS hefur um nokkurt skeiö flogið
til Rio de Janeiro og mun bjóöa upp
á beint flug þrisvar í viku þangað í
sumar.
Nýlega ákvað skandinavíska flug-
félagið SAS að lækka verð á apex-
flugmiðum milli Bretlands og Kaup-
mannahafnar.
Frá l. júlí tíl 26. ágúst lækkar verð-
ið á apex-miðum tíl London um 15
prósent en um 10 prósent til annarra
áningarstaða í Bretlandi.
Á þessum tíma kostar 1710 krónur
danskar, eða 16.100 krónur íslenskar,
að fljúga tii London plús 300 krónur
danskar, eða 2800 krónur íslenskar,
sem greiða þarf í flugvallarskatta.
Bóka þarf miðana með 14 daga fyr-
irvara og ekki er hægt að breyta
brottfarardögum eða komudögum
eftir það.
Eftir að félagið fer að fljúga til Sao
Paulo mun SAS hætta að fljúga beint
til Rio de Janeiro og verða farþegar
sem hyggjast fara þangað að milh-
lenda í Sao Paulo.
-J.Mar
Astand
vega
Höfn
9
i
9