Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1990, Síða 2
2
MÁNUÐAGUR 25. JÚNÍ 1990.
Fréttir
Arctic Open golfmótið:
Guð velur stundum
óverðuga til stórra hluta
- sagði séra Jón E. Baldvinsson sendiráðsprestur sem vann bifreið fyrir að fara holu 1 höggi
Jón E. Baldvinsson, sendiráðsprestur í London, við bifreiðina glæsilegu sem hann hreppti fyrir „holu í höggi“ á
Akureyri um helgina. DV-mynd gk
Seðlabankinn:
Fjármagnsfrelsi eykur hagsæld
- og veitir stjórnvöldum aðhald
I skýrslu Seðlabanka Islands um
áhrif frjálsra fjármagnsflutninga á
íslenskt efnahagslíf kemur fram að
hugsanlegt er að íslendingar geti
meinaö útlendingum þátttöku í ís-
lenskum sjávarútvegsfyrirtækjum
þrátt fyrir að ísland gerðist aðili að
Evrópska efnahagssvæðinu eða jafn-
vel Evrópubandalaginu sjálfu. í
skýrslunni segir að þrátt fyrir frjáls-
an ijármagnsflutning milli landa séu
til margar undantekningar frá þessu
frelsi; til dæmis hafa mörg lönd tak-
markað þátttöku útlendinga í flutn-
ingafyrirtækjum á sjó og í lofti.
Niðurstöður skýrslunnar eru að
ööru leyti þær að frjálsir fjármagns-
flutningar milli landa muni auka
hagsæld á íslandi og veiti stjórn-
völdum aðhald varðandi efnahags-
stefnuna; aðhald sem skýrsluhöf-
undar teljá 'ekki vanþörf á. Til dæm-
is minnkar svigrúm íslenskra stjórn-
valda til að reka hér vaxta- og pen-
ingastefnu sem er á skjön við það
sem tíökast í Evrópu. Stjórnvöld
verða að gæta sín í ríkisfjármálum,
halda skattheimtu í hófi til að raska
ekki samkeppnishæfni fyrirtækja og
halda aftur af útgjöldunum til að
hallarekstur ríkissjóðs auki ekki
verðbólgu og veiki þar með gjaldmið-
ilinn.
Þetta aðhald á stjórnvöldum ásamt
aukinni hagræðingu vegna betri nýt-
ingar á fjármagni muni auka hér
hagsæld, að mati skýrsluhöfunda.
-gse
Elísabet II og hertoginn
af Edinborg koma í dag
Elísabet II, drottning Englendinga,
og hertoginn af Edinborg koma tií
landsins í dag. Mun forseti íslands,
Vigdís Finnbogadóttir, taka á móti
þeim á Reykjavíkurflugvelli klukkan
12.30.
Snæddur verður hádegisverður í
Ráðherrabústaðnum, í boði forseta.
Að því loknu verður haldið til Lista-
safns íslands og farin gönguferð aö
Tjörninni.
Eftir heimsókn í Árnastofnun, þar
sem gömul handrit verða skoöuð,
efna drottningin og hertoginn til
móttöku í breska sendiráðinu.
Klukkan 16.30 verður tekiö á móti
erlendum sendimönnum um borð í
Britanniu, sem mun einnig verða
bústaður hjónanna meöan á Islands-
dvölinni stendur.
Að kvöldi býður forseti til kvöld-
verðar að Hótel Sögu.
-tlt
Britannia kom til landsins í gær. Mun skipið verða bústaður Elísabetar II,
drottningar Englands, og hertogans af Edinborg meðan íslandsheimsókn
þeirra stendur yfir. DV-mynd Brynjar Gauti
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Það skemmtilegasta við þetta var
að höggið var mjög gott og félagar
mínir kölluöu strax að þetta væri
höggið sem myndi færa mér bílinn.
Kúlan lenti svo á flötinni og rúllaði
beint í holuna. Það var óneitanlega
skrítin tilfinning sem greip um sig,
og það var mikið öskrað á teignum“
sagði séra Jón E. Baldvinsson, sendi-
ráðsprestur í London, sem vann það
afrek að fara „holu í höggi“ í Arctic
Open golfmótinu á Akureyri um
helgina.
Verðlaunin fyrir þetta afrek, sem
Jón vann á 6. braut vallarins, voru
ekki af lakara taginu, ný glæsileg
bifreið af Opel Vectra gerð sem Jöt-
unn hf. og Þórshamar hf. gáfu og
Ellert Guöjónsson, framkvæmda-
stjóri Þórshamars, afhenti Jóni lykl-
ana að bílnum í lokahófi mótsins.
„Guð velur stundum óverðuga til
stórra hluta,“ sagði Jón við það tæki-
færi, og bætti við að hann hefði ekki
beðið þess að hann myndi fá bíhnn.
Hann sagði í spjalli við DV að við
draumahöggið hefði hann notað 4-
járn og hefði aldrei áður farið „holu
í höggi“.
„Ég ætlaði einmitt að fara að skipta
um bíl og mun semja við þá sem gáfu
þessi verðlaun um að fá bílinn af-
hentan í London,“ sagði Jón að lok-
um. Hann stóð í ströngu á Akureyri,
lék golf aðfaranótt laugardags fram-
undir morgun, gaf síðan saman Neil
Elsey, ritstjóra Golf Illustrated We-
ekly, og Elisabeth Bateman um
morguninn áður en hann fór til
keppni að nýju og eftir „drauma-
höggið" lék hann sitt besta golf og fór
síðari 9 holurnar á aðeins 2 höggum
yfir pari.
Eigið fé fjárfestingarlánasjóða
- eigiö fé sem hlutfall af niöurstöðutölum efnahagsreiknings
Framleiðnisjóður með
versta eiginfjárstöðu
Eins og fram hefur komið í DV er
gert ráð fyrir því í frumvarpsdrögum
Jóns Sigurðssonar viðskiptaráð-
herra að lögum um fjárfestingar-
lánasjóði að eiginfjárhlutfall þeirra
verði 8 prósent. Þetta er byggt á lág-
marki eigin fjár sambærilegra sjóöa
í Evrópu. Miðað við stöðu íslensku
sjóðanna um síðustu áramót, sam-
kvæmt reikningum þeirra, standast
þrír sjóðanna ekki þetta lágmark og
tveir til viðbótar eru rétt viö mörkin.
Sjötti sjóðurinn, Stofnlánadeild land-
búnaðarins, er með 18,4 prósent eig-
infjárhlutfall samkvæmt reikning-
um en þar sem stofnunin hefur lánað
um 1,8 milljarða til loðdýraræktar
má telja fullvíst að skráð hlutfall
gefi ekki rétta mynd af raunveru-
legri stöðu sjóðsins.
Sá sjóður, sem hefur versta eigin-
fjárstöðu, er Framleiðnisjóður en
eiginfjárstaða hans er neikvæð um
tæp 22 prósent. Eiginfjárstaöa Fram-
kvæmdasjóðs er jákvæð um rúmt 1
prósent en talið er víst að hann muni
á þessu ári tapa meira fé en lagt hef-
ur verið til hliöar á afskriftareikning
útlána. Þessi staða getur því versnað.
Aðrir sjóöir, sem standast ekki þessi
mörk, eru Veödeild Búnaðarbankans
og Verslunarlánasjóður. Stofnlána-
deild samvinnufélaganna og Land-
flutningasjóður eru síðan alveg á
mörkunum.
Þeir sjóðir, sem hafa bestu eigin-
fjárstöðu, eru Lánasjóður sveitarfé-
laga og Iðnþróunarsjóður. Þá er
staða Iðnlánasjóðs og Fiskveiðasjóðs
traust miöað við ársreikninga þeirra.
-gse