Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1990, Qupperneq 8
8
MÁNUDAGUR 25. JÚNl 1990.
Utlönd
Pólland:
Formlegur klofningur
innan Samstöðu
Valdabarátta milli Samstööu-
leiötogans Lech Walesa og fyrrum
samstarfsmanna hans hefur leitt til
fyrsta formlegs klofnings innan
hins óháða verkalýösfélags Sam-
stöðu. Sextíu og þrír valdamenn
innan Samstöðu sögðu sig í gær úr
flokksráðinu en það er skipað 200
manns. Þar á meðal er Bronislaw
Geremek, formaður þingílokks
Samstöðu, og nokkrir ráðherrar
hinnar nýju ríkisstjórnar.
Þessi klofningur veikir mjög
valdastöðu Walesa en hann hefur
sótt mjög stíft í að verða næsti for-
seti landsins. Samstarfsmenn Wa-
lesa innan Samstöðu hafa gagnrýnt
framkomu leiðtogans að undan-
förnu og sakaö hann um að leiða
hjá sér lýðræði og haga sér eins og
einræðisherra.
„Þangað til í dag höfum við verið
samtaka. Frá og með deginum í dag
greinir okkur algjörlega á um hvað
lýðræði er og hvað það er ekki,“
sagði Adam Michnik, ritstjóri dag-
blaðs Samstöðu, Gazeta Wyborcza,
og einn af áhrifamestu mönnum
innan Samstöðu.
Lech Walesa og stuðningsmenn
hans hafa lagt mikla áherslu á að
Walesa taki sæti forseta landsins,
Wojciech Jaruzelski, fyrrum leið-
toga kommúnistaflokksins. Þeir
vilja einnig nýjar þingkosningar
sem fyrst en fyrrverandi félagar
kommúnistaflokksins eiga enn tvo
þriðju hluta sæta pólska þingsins.
Walesa hefur lýst því yfir að
breytingar innan stjórnkerfisins
gerist of hægt og segist hræddur
um að „byltingin fallega verði að
engu“ eins og hann hefur látið hafa
eftir sér. En fyrrum samstarfs-
menn Walesa innan Samstöðu, ráö-
herrar og fleiri, vilja fara að hlut-
unum rólegar og varast of miklar
sviptingar í breytingaátt á efnahag-
skerfi landsins.
Vænta má mikilla átaka á fundi
landssamtaka Samstööu sem
ákveðið hefur verið að halda um
næstU helgi. Reuter
Bronislaw Germek, formaður þingflokks Samstöðu í Póllandi, er einn
þeirra sem hefur sagt sig úr flokksráði Samstöðu. En í gær átti sér stað
fyrsti formlegi kiofningurinn innan Samstöðu. Símamynd Reuter
Gabriel
HÖGGDEYFAR
STERKIR, ORUGGIR
ÓDÝRIR!
G ”
SKEIFUNNI 5A, SIMI: 91-8 47 88
Kohl, kanslari Vestur-Þýskalands, og Mitterrand, forseti Frakklands, telja nauðsyn á að Vesturlönd styðji fjár-
hagslega við bakið á Gorbatsjov Sovétforseta. Simamynd Reuter
Leiðtogafundur EB hefst í dag:
Sovésk efnahagsmái
ofarlega á baugi
Efnahagsvandræði Gorbatsjovs
Sovétforseta munu setja svip sinn á
leiðtogafund aðildarríkja Evrópu-
bandalagsins, EB, sem hefst í Dyfl-
inni á irlandi í dag. Ofarlega á baugi
verður hugsanleg efnahagsaðstoð til
Sovétríkjanna en leiðtogar bæði
Vestur-Þýskalands og Frakklands
hafa hvatt til þess að aðildarríkin
rétti sovéska forsetanum hjálpar-
hönd í umbótaherferð sinni. Frétta-
skýrendur telja að efnahagsástandið
í Sovétríkjunum, sem og pólitískt
ástand, muni skyggja á flest annað
sem tekið verður til umfjöllunar á
þessum fundi, þar á meðal mynt-
bandalag aöildarríkjanna sjálfra.
Nokkur vestrænu ríkin, þar á með-
al Bretland, telja ekki að Gorbatsjov
og markaðsherferð hans eigi svo
góða framtíð fyrir sér að það réttlæti
mikla efnhagslega aðstoð Vestur-
landa. Kohl, kanslari V-Þýskalands,
og Mitterrand, franski forsetinn, eru
á öndverðum meiði og telja að aðstoð
verði að koma til hið fyrsta eigi að
fyrirbyggja óstöðugleika innan
Kremlarmúra. Vestur-Þjóðverjar
vilja margt til vinna að fá samþykki
Sovétmanna fyrir sameiningu þýsku
ríkjanna og að því er fram kom í
vestur-þýska tímaritinu Der Spiegel
hefur stjórnin í Bonn þegar boðið
Sovétmönnum lánsloforð upp á þrjá
milljarða dollara. Þá hafa Frakkar
lagt til tuttugu milljarða dollara lán
til að styrkja sovéska efnahaginn.
En það verður fleira rætt á fundin-
um en ástandið í Sovétríkjunum.
Þegar eru uppi haröar deilur um
áform Evrópubandalagsins um sam-
eiginlega mynt aðildarríkjanna. Um
helgina lét Thatcher, forsætisráð-
herra Bretlands, enn á ný í ljósi efna-
semdir um efnahags- og gjaldmiðla-
sameininguna. Á föstudag sagöi ráð-
herrann að Bretar væru ekki reiðu-
búnir að láta fjárhagsstjórnun sína
eftir „hópi tólf seðlabankastjóra sem
ekki þurfa að standa neinum skil
gjörða sinna". Breska ríkisstjórnin
hefur lagt fram nýjar tillögur í þessu
máli en leiðtogar sumra EB-ríkja
telja að þessi ummæli Thatchers sýni
að hún sé enn mótfallin takmarki
bandalagsins um sameiginlega mynt
og samevrópskan seðlabanka.
Reuter
Mótmæli á eyðniráðstefnunni
Mikil mótmæli á götum úti settu
svip sinn á sjöttu alþjóðlegu ráðstefn-
una um eyðni sem lauk í San Frans-
isco í gær. Á meðan fjöldi lækna,
sérfræðinga og embættismanna
fundaði um þennan alvarlega sjúk-
dóm safnaðist saman mikill mann-
íjöldi fyrir utan fundarstaðinn og
hafði uppi alls kyns mótmæli.
í gær, á lokadegi ráðstefnunnar,
yfirgnæfðu köll frá gjallarhornum
ræðu opinbers embættismanns úr
heilbrigðiskerfmu sem lagöi áherslu
á samstöðu allra til aö reyna að vinna
gegn eyðni.
Hinir 300.000 mótmælendur lýstu
vonbrigðum sínum með þann litla
árangur sem náðst hefur í baráttunni
gegn eyðni.
4
4
4
4
4
4
4
4
við flytjum-sendum-sækjum
25050
00
SENDIBILASTOÐIN HF
opið um kvöld og helgar