Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1990, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1990, Page 12
12 MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 1990. Spumingiii Hvaða farartæki finnst þér öruggast? Auðbjörg Halldórsdóttir blaðamað- ur: Hestar. Það er allavega skemmti- legast að vera á hestum. Katrín Tauriainen fóstra: Bíll, held ég. Þar er maður með öryggisbelti. Þórhallur Ingason nemi: Tveir jafn- fljótir eru öruggastir. Tryggvi Gunnarsson matsveinn: Reiöhjól. Ég hjóla á gangstéttinni og á hjóli er maður einn með sjálfum sér. Guðlaug Þórhallsdóttir bankastarfs- maður: Mér er aiveg sama með hvaða farartæki ég ferðast. Ragnar Sigurðsson: Reiðhjól. Þá fer ég nægilega hægt yfir til að geta forð- að mér frá öðrum. Ég er reiðhjóla- unnandi. Lesendur DV Ráðherraráð Evrópubandalagsins: „Tekur við þessu öllu“ Guðmundur Karlsson skrifar: Mig langar til að leggja inn nokkur orð vegna skrifa og tíðra frétta nú orðið af gangi viðræðna okkar ís- lendinga og annarra þjóða um inn- göngu í Evrópubandalagið. Það hefur veriö megináhersla lögð á það af hálfu okkar embættismanna og ráð- herra, að aldrei.skuli eða megi gefa eftir varðandi fiskimiðin og leyfa löndum bandalagsins að fá aðgang að þeim. Mér og mörgum öðrum lands- möiínm hefur því áreiðanlega brugð- iö við er þeir lásu frétt um það að ráðherraráð Evrópubandalagsins hafi nú þegar samþykkt tiilögu fram- kvæmdaráös Efnahagsbandalagsins um þetta mál. - Þar segir m.a. að búiö sé að samþykkja kröfu t.d. Spán- verja um óheftan aðgang að fiskimið- um í öllum EFTA-löndum, gegn því að veittar séu ívilnanir á tollum á fiskafurðum í löndum Evrópubanda- lagsins. Þegar þetta var borið undir forsæt- isráðherra svaraði hann því til, eins og margra íslenskra stjórnmála- Ráðherrar Evrópubandalagsins myndaðir i Fontainbleu. - „Vilji Islendingar yfirþjóðlegt vald eina ferðina enn...“, segir hér m.a. manna er háttur til að vinna tíma, að hann hefði nú ekki séð þessa sam- þykkt, en það kæmi ekki til greina af hans hálfu að gefa eftir varöandi þetta mál og leyfa öðrum þjóðum EB að nýta fiskimið okkar. - Hann bætti svo við orðrétt „Þá geta þeir alveg eins tekið við þessu öllu.“ Hérna held ég að einmitt sé komið að alvarlegum þætti. Getur hugsast aö forsætisráðherra fari hér nær sannleikanum í svari sínu en hann vill viðurkenna? Ráðherraráð Evr- ópubandalagsins á hverjum tíma hlýtur að vera það sem endanlega ræður ferðinni. Það er því næsta víst að hvað sem viö íslendingar sam- þykkjum okkar í milli og stöndum fastir á hér heima, þá er lítil von til þess að hið yfirþjóðlega vald, sem felst í uppbyggingu bandalagsins, hafi nokkra samúð með sendinefnd minnsta og fámennasta ríkis í Evr- ópu. - Aðrar og stærri kröfur frá hinum EFTA-ríkjunum hafa þegar valdið því að kröfur um „sérrétt- indi“ smáríkis til eigin fiskveiðilög- sögu verða ekki einu sinni barðar augum. - En vilji íslendingar yfir- þjóðlegt vald eina ferðina enn þá „geta þeir alveg eins tekiö viö þessu". Þar er ég sammála forsætisráðherra. Bjórinn og ilmurinn Snorri Jónsson skrifar: í Morgunblaðinu í dag, 20. júní, er frá því sagt að verið sé að þvo með ilmefnum götur og gangstéttir á mið- bæjarsvæði Reykjavíkur. Mig rak í rogastans. Aldrei hafði ég heyrt getið um þrifnað á svona háu stigi í neinu sveitarfélagi. „Hvað er þetta?" varð mér að orði, „naumast er það uppá- tækið.“ Það er svo sem ekki að ófyrir- synju að Davíð og flokkur hans fær nærri tvo af hverjum þremur Reyk- víkingum til að kjósa sig í borgar- stj órnarkosningum. Svo las ég til enda þessa yfirlætis- lausu frétt á öftustu síðu blaösins og sjá; síðan farið var að selja bjór á veitingstöðum okkar virðulegu höf- uðborgar er fólk símígandi á gang- stéttir, í port og skúmaskot. Og þegar sólskinsdagar koma - svo sjaldgæft sem það nú er á þessu blessaða lands- ins horni - þá upphefst stækjan og fólk tekur fyrir nefið og segir: ja, sveiattan og svei því. Og borgar- stjómin sér og finnur að þetta gengur ekki lengur, sker upp herör gegn stækjunni og lætur spúla borgina með lykteyðandi undraefnum. „Bjórinn og menningin eiga sam- leið,“ sögðu menn og börðust fyrir því að fá að drekka bjór í friði fyrir slettirekum laga og réttar. Auðvitað leggja menn misjafnan skilning í orð- ið „menning“ og enginn fær gert við því en æth fólk sér að vanvirða bjór- inn með áframhaldandi menningar- starfsemi af þessu tagi verður mið- bær Reykjavíkur kannski orðinn eitt allsherjar salerni að nokkrum tíma hðnum í viðbót við hundrað þúsund tyggigúmmíklessur á torgunum frægu sem kennd eru við hlemm og læk. Þá munu ilmefna- og sápusalar brosa í kampinn og fá spón í askinn sinn. Sjóminjasafn í mynd um og munum Dóra finnst miöar á tónleika Bob Dylan vera seldir á okurveröi. inn á tónleikum. Meistar- Okurverð á Dylan Dóri Sig. hringdi: Nú er miðasalan hafin á tónleika Bob Dylan og verður sennilega lokið þegar þetta birtist, ef þið þá birtiö það. Ég vil nefnileg mótmæla harð- lega þessu óheyrilega verði á að- göngumiðunum, kr. 4.500 miöinn, hvork meira né minna! - Mér finnst þetta vera okurverð og lái mér hver sem vill. Ég hafði hugsað mér að fara og sjá vininn og heyra en þetta verð greiði ég ekki fyrir. Ég get alveg eins hlust- að á hann í góöum græjum og meö „eðhlegu sándi“ sem ég veit að ekki verður á hljómleikunum. Og svo á að koma í veg fyrir svartamarkað á miðunum með því að takmarka miöasölu viö sex stykki á mann! Halda menn yfirleitt að einhveijir fari að kaupa miða fyrir meira en 4.500 krónur? Ef svo er þá er líka fólk meira en lítið vitlaust, sem það er náttúrlega, er það kaupir einn miða á 4.500 krónur. En hverjir geta keypt svona dýra miða? Jú, einhverjir þrjú þúsund - ef þeir seljast þá allir. En það eru varla þeir sem ganga nú atvinnu- lausir og kvarta yfir því að fá hvergi vinnu. Eða hvað? Þetta eru kannski allt hótelgestir á Hótel Pabbiog- mamma. Ég vildi ég væri einn í þeirra hópi (að sjálfsögðu án þess að ég sé neitt að öfundast!). Ég hef bara aldrei viljað láta plata mig upp úr skónum. Það finnst mér þeir láta gera við sig sem kaupa miðana á Dylan fyrir 4.500 krónur - og hananú! Gunnar Þórarinsson skrifar: Mér var boðiö að skoða eitt merk- asta safn sem ég hef lengi litið aug- um. Þetta safn er í eigu J. Hinriks- sonar og er til húsa uppi á lofti í vél- smiðju Toghleragerðarinnar í Súðar- vogi og framtaksmaðurinn og hug- myndasmiðurinn J. Hinriksson rek- ur það. Ég var bæði hrifinn og þakklátur fyrir hönd íslendinga að einn maður skuli gæta sögu sjómannastéttarinn- ar, eiginlega sögu 80 ára tímbils af harðri baráttu fyrstu sjómanna okk- ar, sögu sem líka er fórnarsaga lát- inna manna, sem voru brautryðjend- ur í harðri baráttu fyrir lifibrauði okkar frá sjónum. Það mætti skrifa metsölubók um safnið en í stuttu lesendabréfi er erf- itt aö lýsa öllu þessu fágæta minja- safni. Safnið hefur ekki verið auglýst í sjónvarpi eða í blöðum að ég held og heldur er það ekki ríkisstyrkt. Þetta safn er geysimikill fróðleikur fyrir afkomendur okkar sem eiga eft- ir að stunda sjómannsstörf. Þarna er hægt að sjá og virða fyrir sér merkar mymhr, muni, styttur o.fl. Það eru ekki allir sem leggja svona skerf fram með nokkrar krónur í vasanum í upphafi. - Ég sem skrifa 'þessar línur hef verið á sjónum, á ýmsum togurum og bátum, en vil þó ekki kalla það alvörusjómennsku. í þessu safni er ekki tekinn neinn aðgangseyrir. Þarna ættu sem flestir aldurshópar að líta inn því það hefur mikið reynslugildi og lærdóm. - Sjón er sögu ríkari. Svipmynd frá safni J. Hinrikssonar i Súöarvogi 4. - „Hefur að geyma sögu um 80 ára timabils sjómanna okkar,“ segir hér m.a.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.