Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.1990, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.1990, Blaðsíða 9
MIÐVIKIÍDAGUR 11. JÚLI 1990. 9 Utlönd Búlgaría: Tékkneska sendlráðlð í Havana á Kúbu er nú I svtðsljósinu. Þangað hala sjö Kúbumenn leitað aðstoðar. Tveir kúbskir námsmenn leituðu hælis í tékkneska sendiráðinu í Havana, höfuðborg Kúbu, í gær og báðust pólitísks hælis. Námsmennirn- ir klifruðu yíir grindverkið umhverfls sendiráðið aðeins örfáum mínútum áður en lögregla kom þangað. Fyrir í sendiráðinu voru fimm Kúbumenn, allir andófsmenn, sem þangað sóttu til að leggja áherslu á kröfur sínar um að fá að ferðast að vild utan landamæranna. Þeir hyggjast þó ekki yfirgefa iandið aö fullu. í landinu í gær og var þannig greinilega að reyna að koma i veg iyrir svipað ástand og nú ríkir i Albaníu þar sem þúsundir vongóðra flótta- manna hafa leitað ásjár í erlendum sendiráðum. Ráðherrann sagði að stjórn sín væri ekki reiðubúin að semja um brottfór þeirra sem væru í sendiráði Tékka. Gómuðu eituriyfjasala Lögreglan í Kólumbíu hefur haft hendur í hári 11 forystumanna innan eiturlyfjahringsins í Medellínborg. En aðaleiturlyfiabarón borgarinnar, ef ekki landsins alls, Pablo Escobar tókst að komast undan. í gær var tilkynnt um þessar handtökur eftir að 1500 manna sérþjálfað arinnar. Nokkrir ættingjar og helstu aðstoðarmenn Escobars voru i hópi þeirra sem gómaðir voru. Escobar sjálfur slapp í þetta sinn naumlega en honum hefur jafnan tekist á ótrúlegan hátt að sleppa undan lögregiunni sem undanfarið ár hefúr gert ítrekaðar tilraunir til að handtaka hann. Vaxandi þíða Sovétríkin hafa lagt til að emb- ættismönnum NATO, Atlantshafs- bandalagsins, verði boðið að sifia fundi Vai-sjárbandalagsins nú þeg- ar kalda stríðinu er lokið, sagði Markus Meckel, austur-þýski utan- rikisráðherrann, í gær. Meckel, sem hefur nýlokið heimsókn til höfuðstöðva NATO, sagöi á fundi með blaðamönnum aö sovéski ut- anrikisráðherrann hefði lagt þetta til 1 bréfi sem hann sendi utanríkis- ráðherrum allra Varsjárbanda- lagsríkjanna. Það er vaxandi þíða í samskiptum bernaðarbandalaganna. i síðustu viku samþykktu NATO-rikin að bjóða þjóðhöfðingjum Varsjár- bandalagsrílfianna að sitja fund hins vestræna hernaöarbandalags. Þá samþykkti NATO friðaryfirlýs- ingu til handa hinum fornu fiend- um sínum, Varsjárbandalaginu. Markus Meckel, utanrlkisráðherra Austur-Þýskalands. saman Fyrsta þing Búlgaríu, sem kosið er til í ftjálsum kosningum í 45 ár, var sett í gær. Fjögur hundruð ný- kjörnir þingmenn táka sæti á þessu nýja þingi. Um tvö hundruð þjóðernissinnar reyndu að hindra að 23 þingfulltrú- ar tyrkneska minnihlutans kæm- ust inn í þinghúsið. Mótmælendur báru búlgarska fánann og hrópuðu: „Búlgaría, Búlgaría, við viljum ekki annað Kýpur.“ Nokkrir veitt- ust að bílum sem óku erlendum sendifulltrúum sem ætluðu að vera viðstaddir athöfnina í þinghúsinu. Ekki kom þó til átaka. Sósíalistaflokkur landsins, sem er nýtt nafn á gamla kommúnista- flokknum, fékk 211 fulltrúa í þing- kosningunum sem fram fóru í síð- asta mánuði. Þingmenn Bandalags lýðræðisafla hafa lýst því yflr að þeir muni ekki taka þátt í sam- steypustjóm með Sósíalistaflokkn- um. Bandalag lýðræðisaíla fékk 144 þingfulltrúa. Reuter Gorbatsjov boðar breytingar - forsetinn kiörinn 1 leiðtogaembætti kommúnistaflokksins Sovésk efnavopn í A-Þýskalandi Vestur-þýsk yfirvöld álíta að Sovétmenn geymi mikið magn efnavopna í Austur-Þýskalandi þrátt fyrir aö því sé neitað. Það eru erindrekar vest- ur-þýska varnarmálaráðuneytisins sem koma fram með þessa yfirlýs- ingu. Segjast þeir vita um nokkurt magn efnavopna Sovétmanna sem komið hafi verið fyrír á nokkrum stöðum í Austur-Þýskalandi. í Austur- Berlin og í Sovétríkjunum er þessu hins vegar neitað. Sovésk stjórnvöld hafa að jafttaði fullyrt að þau geymi ekki nein eftiavopn í öðrum löndum. Námsmenn sækja um pólitískt hæli Þingið kemur Þjóðernissinnar reyndu að stöðva þingfulltrúa tyrkneska minnihlutans á leið til setningarathafnarinnar í þinghúsinu i Sofiu i Búlgariu í gær. Símamynd Reuter Mikhail Gorbatsjov Sovétforseti var í gær kjörinn leiötogi sovéska kommúnistaflokksins á þingi hans sem nú fer fram í Moskvu. Aður en gengið var til atkvæða um forystu- embætti flokksins lét Gorbatsjov aö því hggja að víðtækra breytinga væri að vænta í forystuliði flokksins næði hann kjöri. En leiðtogans, sem fyrst tók viö þessu embætti árið 1985, bíður erfltt verkefni. Um tvö hundruð þúsund verkamenn i alls sextíu námum eru harðákveðnir í að halda til streitu hoðuðu sólarhringslöngu verkfalli sem hefiast átti á miðnætti þrátt fyr- ir hvatningu Gorbatsjovs um að af- lýsa því. Námamennimir krefiast afsagnar stjómarinnar og segja að hún hafi ekki staðið við gefin loforð frá því í námaverkfallinu í fyrra sem lamaði alla vinnu í kolanámum landsins. Sneri stöðunni sér í hag Gorbatsjov var kjörinn leiðtogi með miklum meirihluta atkvæða, eða 3.411, í leynilegri atkvæða- greiðslu, þeirri fyrstu um leiðtoga- embætti flokksins í sögu hans, Mót- frambjóðandi hans, Teimuraz Aval- iani, einn forystumanna námaverka- manna, hlaut rúmlega fimm hundr- uð atkvæði. Sjö framhjóðendur voru uppmnalega tilnefndir til að standa gegn Gorbatsjov en sex þeirra gáfu ekki kost á sér í embættið, þar á meðal var Eduard Sévardnadze ut- anríkisráðherra en hann er dyggur stuðningsmaður stefnu Gorbatsjovs. Fréttaskýrendur segja að sú stað- reynd að Gorbatsjov hafi borið sigur úr býtum í leynilegum kosningum sýni vel hvemig leiðtoganum hafi tekist að snúa þessu þingi sér í hag. Hann hefur mátt þola mikla gagn- rýni hæði harðlínumanna og um- bótasinna á þessu þingi og hefur per- estrojka verið mjög til umræðu. En Gorbatsjov sagði að kjör hans í emb- ætti þýddi að flokkurinn styddi við bakið á umbótastefnunni. Talið er að Gorbatsjov muni nú reyna að koma stuðningsmanni sín- SkæniKðar neita að semja Harðir bardagar áttu sér stað í Monróvíu, höfuðborg Líberíu, og nágrenni i gær og skæruliðar segj-' ast nú búa sig undir að taka borg- ina á sitt vald hvað sem líður hvatningu Doe forseta um vopna- hlé. Fulltrúar skæruliða hafa ákveðið að fresta aðild sínni að við- ræðum um frið í þessum heims- hluta, sem hófúst í gær, um einn dag og segjast munu taka þátt í þeim í dag. Leiðtogi þeirra, Charles Taylor, sagði að þeir færu til aö hlusta á það sem aðrir hafa fram að færa, ekki til að semja. Doe hvatti tii vopnahlés í síðustu viku og um helgina féllst Taylor á það. í gær dró hann orð sín til baka í samtali við breska útvarpið BBC og sagði að sínir menn myndu ráð- ast til inngöngu i Monróvíu eins fljótt og auðiö væri til að binda enda á frekari þjáningar. Líberfskir skæruiiöar standa vörð nærri borginni Tappita. Símamynd Reuter Mikhail Gorbatsjov, sem i gær var kjörinn leiðtogi sovéska kommúnista- flokksins, steytir hér hnefa til að leggja áherslu á orð sin á þingi flokksins sem nú fer fram í Moskvu. Simamynd Reuter um að í embætti varaframkvæmda- stjóra. En það er þingið sem tilnefnir í það embætti og harðlínumenn geta enn fengið sínu framgengt hvað það varðar. Uppstokkunar að vænta Aður en gengið var til kosninga lét Gorbatsjov að því hggja að verulegr- ar uppstokkunar væri að vænta næði hann kjöri. „Ég tel að víðtækra breytinga sé þörf á skipan miðstjórn- ar flokksins... Þið ættuö að hafa það hugfast áður en þið greiðið atkvæði," sagði hann við þingfulltrúa. Ellefu hundruð þingfulltrúar greiddu at- kvæði gegn honum en samkvæmt kosningareglum geta fulltrúar skráð hverjum þeir greiða atkvæði gegn ekki síður en hvern þeir styðja í embætti flokksleiðtoga. í ræðu fyrr um daginn, sem stuðn- ingsmenn hans telja hafa valdiö straumhvörfum á þessu þingi, varaði Gorbatsjov harðlínumenn við því að engin leið væri að snúa aftur til fyrri tíma. „Einræði, detti einhverjum í hug svo bijálæðisleg hugmynd, getur ekki leyst neinn vanda,“ sagði hann og steytti hnefa til að leggja áherslu á mál sitt. Gorbatsjov ítrekaði að perestrojka væri eina tækifærið fyrir flokkinn til aö koma í veg fyrir að honum yrði ýtt til hliðar í sovésku stjórnmálahfi. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.