Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.1990, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.1990, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 11. JÚLÍ 1990. 11 JOV Til harðra átaka kom á milii verkfallsmanna og stuðningsmanna stjórnarinnar í Managua i gær. Símamynd Reuter Nicaragua: Harðir götubardagar Til harðra skotbardaga kom á göt- um Managua, höfuðborgar Nic- aragua, 1 gær. Það voru stuðnings- menn forsetans, Violetu Chamorro, sem hófu bardagann. Sumir þeirra eru fyrrum kontraskæruliðar. Árás- ina gerðu þeir á verkfallsmenn, stuðningsmenn Sandínista. Ekki hefur verið staðfest hvort ein- hveijir týndu lífi í bardaganum en nokkrir slösuðust. Verkfall stuðningsmanna Sandín- ista til að mótmæla efnahagsstefnu forsetans hefur nú staðið í níu daga. Á mánudag var her landsins kvadd- ur á vettvang og hóf hann að fjar- lægja vegartálma sem verkfallsmenn höfðu komið upp. Frá Hvíta húsinu hafa borist þær yfirlýsingar að verkfallið og aðgerðir verkfallsmanna séu tilraun til að eyðileggja markaðsstefnu ríkis- stjórnar landsins og nauðsynlegar breytingar á efnahagskerfmu. Og að eftir tíu ára valdasetu Sandínista hafi efnahagur landsins verið í mik- illi óreiðu og því hafi verið nauðsyn- legt að gera ýmsar ráðstafanir og breytingar. Violeta Chamorro vann sigur á Sandínistaleiðtoganum og fyrrum forsetanum Daniel Ortega í kosningum í febrúar síðasthðnum. Að minnsta kosti fjórir hafa látist í átökum síðan verkfallið hófst og margir hafa slasast. Á fostudag shtn- aði upp úr samningaviðræðum verk- fahsmanna og forsetans. Reuter Fyrrum leiðtogar í Austur-Þýskalandi: Grunaðir um að hafa að- stoðað hryðjuverkamenn Innanríkisráðherra Vestur- Þýskalands, Peter-Michael Diestel, fuhyrðir að fyrrum kommúnista- stjórnin í Austur-Þýskalandi hafi aðstoðað alþjóðlega hryðjuverka- menn, þar á meðal hinn alræmda hryðjuverkamann Carlos. Þetta kemur fram í viðtah við ráðherrann í vestur-þýska dag- blaðinu Bild í gær. Segir hann að Carlos og einkum hryðjuverka- menn frá Palestínu hafið notið stuðnings stjómarinnar og örygg- islögreglu landsins. Hryðjuverka- mennirnir hafi haft bækistöðvar í Austur-Þýskalandi þegar þeir gerðu árásir á Vesturlöndum. Ráðherrann segir að gögn, sem fundist hafa, séu ótvíræðar sann- anir þessa og að fljótlega geti hann lagt þau fram opinberlega. Telur hann að að minnsta kosti 10 af hæstsettu mönnum landsins hafi vitað um athæfið. Þar á meðal séu Erich Honecker, fyrrum formaður kommúnistaflokksins og forseti landsins, og Erich Mielke, fyrrum yfirmaður öryggislögreglunnar. Segir ráðherrann þá geta átt yfir höfði sér mjög alvarlegar ákærur. Reuter Ítalía: Vilja flytja 3000 flóttamenn ítölsk stjómvöld eiga nú í samn- ingaviðræðum um að koma 3000 al- bönskum flóttamönnum úr landi og flytja þá th ítahu. Talsmaður ítalska sendiráðsins í Albaníu sagði í gær að líklegt væri að 3000 flóttamenn í sendiráðum Ítalíu, Frakklands og Vestur-Þýskalands fengju leyfi á næstunni th að fara til Italíu. Þaðan geta flóttamennimir svo ferðast th annarra landa eftir því sem leyfhegt verður. ítalski rauði kross- inn mun taka við flóttamönnunum í Brindisi á suðaustur Ítalíu og hugsa um þá þann tíma sem þeir verða í landinu. Ungir Albanar eftir fyrstu nóttina í Tékkóslóvakíu. Símamynd Reuter Fyrstu albönsku flóttamennimir, til Prag í Tékkóslóvakíu í gærmorg- sem leyft var að fara úr landi, komu un. Útlönd George Bush, forseti Bandaríkjanna. Þekktur kinverskur andófsmaöur vill aö hann beiti meiri hörku í samskiptum við Kína. Simamynd Reuter Einn þekktasti andófsmaður Kina, Fang Lizhi, gagnrýnir Bandaríkin fyrir að vera ekki nógu hörð í samskiptum sínum við harðhnukommún- istana sem em viö stjórnvölinn í Kína. Lizlii, sem fékk inni sem pólitískur flóttamaður í bandariska sendiráð- inu í Kína i fyrra, segist þakklátur Bandaríkjamönnum en hann vill að bandarísk stjómvöld þrýsti frekar á kínversku ríkisstjómina, Hann vhl að bandarísk y firvöld setji fram ákveðnar kröfur í samskiptura þjóðanna. Lizhi tekur sem dæmi viðhrögð Bandaríkjanna við aðgerðum kínversku ríkisstjórnarinnai’ í stúdentaóeirðunum í Peking í fyrra en hann telur þau hafa mátt vera miklu harðari. Bresk stjórnvöld hafa nú ákveðið að taka aftur upp rannsókn á Titanic- slysinu. Spjótunum verður beint að því hvort skipinu hefði hugsanlega verið hægt að bjarga af nærstöddu skipi. Þráðurinn er tekinn upp að nýju eftir langt lhé en í um 30 ár var reynt að rannsaka hvort skipstjóri breskrar ferju, The Califomian, hefði getað brugðist öðmvísi við og bjargað Titanic. En The Califomian var stödd um 10 milur frá slysstað er Titanic sökk í apríl 1912. Skipstjóri The Californian tók þá ákvörðun að halda sig fjarri slysstað vegna lnæðslu um að frekari hörmungar gætu átt sér stað. Á sínum tíma urðu miklar umræöur um hvort sú ákvörðun hefði verið rétt og hvort dæma bæri skipstjórann fyrir vikið. Nú, um þrjátíu árum eftir að sá maður lést, hefur verið ákveðiö að taka upp þráðinn á nýjan leik. Bandaríska timaritið Forbes hef- ur fellt kaupjöfurimi Donald Trump út af lista sínum yfir millj- arðamæringa heims. Trump var á jiessum lista árin 1988 og 1989 en þá mat Forbes auð hans á 1.7 mihj- ai’ða dohara. í mai skýrði tímaritið frá því að eigur Trumps væru 3,7 milljaröa dohara virði en að skuldir hans næmu 3,2 mhljörðum. Þannig eru nettó eigur hans metnar á fimm hundruð milljónir dollara. Efstur á nýjasta Forbes-Iistanum er Japaninn Yoshiaki Trutsumio en eigur hans cru motnar á sextán mhljaröa Bandarikjadollara og er þetta fjórða áriö í röð sem hann er efstur á þessum lisla yfir ríkustu menn heims. Fjórir af tíu efstu mönnunum á þessum lista eru jáp- anskir en þrír bandarískir. Bandaríkin eru þó enn í efsta sæti hvað varð- Donald Trump ásamt eiginkonu sinni, Ivönu. mænngar. Pílu-madurinn“ enn laus jhí j'yl ■ > - - - BB Iggrö- "Jpj ■..■ - “ ■ RSgar* Ppj ■ TO | 1 * ■ S# r jjji fcfíl’ ' If'L Frá Manhattan i New York. Þar gengur nú laus maður sem hefur gam- an af þvt að skjóta örvum í afturenda kvenna. Lögreglan á Manliattan í New York hefur nú sent óeinkennisklæddar lögreglukonur út á götumar í þeim thgangi að hafa hendur í hári „pílu- mannsins'1 svokahaöa. En að undanfömu hefur maður gengið um götur Manhattan og skotiö litlum örvum úr röri í rass kvenna sem arka um götur staðarins. Konurnar, sem hafa oröið fyrir þessari reynslu, hafa þurft að leita aðstoðar til aö ná örvunum úr sárinu en við rannsókn hef- ur komið í ljós aö frekari hætta stafar ekki af örvunum. Nú hafa 52 konur orðiö fyrir barðinu á „pílu-manninum“. Langflestar konumar eru ungar, Ijósar yfirlitum og klæddar dragt. Lögreglan hefur beðið fólk að fylgjast vel meö og reyna aö aðstoða við leitina að manninum. Fjöldi kvenna, sem starfar á Manhattan, hefur nú tekiö upp á því aö mæta í stuttbuxum í vinnuna th aö forðast „phu- manninn“ sem sækist eftir konum í phsi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.