Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1990, Síða 28
36
FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ 1990.
Kvikmyndir
Andlát
Bíóhöllin - Fullkominn hugur
★ ★ ★
Draumur
eða veruleiki?
Fullkominn hugur (Total Recall) er fyrst og fremst
snjöll kvikmynd. Áhorfandinn fær beint í æð
háspennu frá upphafi til enda og það eina sem dreifir
huganum frá söguþræöinum er sú ótrúlega tækni sem
hvað eftir annað gerir mann nánast orðlausan af undr-
un.
Taliö er að Fullkominn hugur sé einhver dýrasta
kvikmynd sem gerð hefur verið og held ég að enginn
geti efast um það eftir þá stórskotahríð sem birtist á
hvíta tjaldinu í þessari vísindaskáldsögu.
Eins og oftast í framtíðarsögum þá er ekki djúpt
kafað í mannssálina, heldur athafnir látnar tala sínu
máh. Hlutverk í slíkum kvikmyndum eiga einkar vel
við Amold Schwarzenegger sem sjálfsagt hefur aldrei
komið jafn vel fyrir augu áhorfenda sem og nú.
Schwarzenegger leikur Doug Quaid, byggingaverka-
mann sem veit ekki betur en hann hafi verið hamingju-
samlega giftur í átta ár. Hann fær þó af og til martrað-
ir um að hann sé staddur á Mars og sé þar í mikilli
hættu. Quaid fer eftir auglýsingu þar sem boðið er upp
á ferðalög í huganum sem era eins raunveruleg fyrir
hann og veruleikinn. Allt fer þó úrskeiðis þegar planta
á í heila hans ferðinni tíl Mars, enda kemur í ljós að
þegar hefur verið plantað í heila hans heilu lífsskeiði
og hann er í raun allt annar en hann er.
Upp frá því verður veröld Quaids einn flótti frá ein-
um viðkomustað til annars. Gerist meirihluti myndar-
innar á Mars þar sem ræður ríkjum Cohaagen sem
hagar sér eins og einræðisherra. Það kemur í ljós að
hann er fyrrverandi vinnuveitandi Quaid og hefur
aUt annað í huga en að bjóða hann velkominn til starfa
aftur.
Hraði og spenna eru einkenni Fullkomins hugar.
Leikstjóri er Hollendingurinn Paul Verhoeven sem
sýndi það með RoboCop að hann er vel fær um að
stjóma slíkum framtíðarmyndum. Og hversu vel Full-
kominn hugur heppnast er sjálfsagt mest honum að
Arnold Schwarzenegger og Ronny Cox í hlutverkum
sínum i Fullkominn hugur.
þakka.
Fullkominn hugur er samt ekki gallalaus. Varla er
réttlætanlegt það mikla ofbeldi sem er í myndinni. Sum
atriðin virðast nær eingöngu gerð ofbeldisins vegna
og hvernig menn og vélar ryðjast gegnum alla veggi,
hvort sem er úr stáli eða gleri, í tíma og ótíma verður
hálfleiðigjamt áður en yfir lýkur.
Hvað um það, Schwarzenegger og félagar skila því
til áhorfandans sem til var ætlast og sjálfsagt verða
menn að bíða Die Hard 2 til að fmna jafnmikinn hraða
og spennu og er í Fullkominn hugur.
Fullkominn hugur (Total Recall)
Leikstjóri: Paul Verhoeven.
Handrit: Ronald Shusett, Dan O'Bannon og Gary Goldman.
Kvikmyndun: Jost Vacano.
Tónlist: Jerry Goldsmith.
Aðalhlutverk: Arnold Schwarzenegger, Rachel Ticotin, Sharon
Stone, Michael Ironside og Ronny Cox.
Hilmar Karlsson
/ /
EINSTAKT AISLANDI
Ferðalög
BLAÐSIÐUR
FYRIR
KRONUR
Úrval
TIMARIT FYRIR ALLA
Ferðafélag Islands
Helgarferðir 20.-22. júlí:
1. Þórsmörk - Langidalur. Gönguferðir
um Mörkina við allra hæfi. Sumarleyfis-
dvöl á tilboðsverði. Kynnið ykkur að-
stæöur til skemmtilegrar dvalar hjá
Ferðafélaginu í Þórsmörk.
2. Skógar - Fimmvörðuháls. Gengið á
laugardaginn yfir Fimmvörðuháls tll
Skóga ( 8 klst.). Gist í Skagfjörðs-
skála/Langadal.
3. Landmannalaugar. Gönguferðir um
nágrenni Lauga. Litríkt fjallasvæði sem
ekki á sinn líka. Gist í sæluhúsi F.í. í
Laugum. Brottfór í ferðimar er kl. 20
fóstudag frá Umferðarmiðstöðinni, aust-
anmegin. Farmiðasala og upplýsingar á
skrifstofunni, Öldugötu 3.
Tórúeikar
Franz Haselböck leikur
í Vestmannaeyjum
Austurríski orgelleikarinn Franz Has-
elböck heldur tónleika í Landakirkju,
Vestmannaeyjum, í kvöld, 19. júli, kl.
20.30.
Bjarnína Jónsdóttir, Borgamesi,
andaðist 17. júlí.
Jón Þorkelsson, Grenimel 8, lést
þriðjudaginn 17. júlí.
Georg Ólafsson, Víghólastíg 8, Kópa-
vogi, lést í sjúkrahúsinu á Blönduósi
aðfaranótt 18. júlí.
Jón Jónsson, bifreiðastjóri frá Þjórs-
árholti, andaðist á Landspítalanum
17. júli.
Andrea Pálína Jónsdóttir, Leirhöfn,
Norður-Þingeyjarsýslu, andaðist 18.
þ.m.
Jarðarfarir
Ásberg Sigurðsson, fyrrverandi
borgarfógeti, Aragötu 7, Reykjavík,
sem lést í Landspítalanum 14. júlí,
verður jarðsunginn frá Dómkirkj-
unni föstudaginn 20. júlí kl. 13.30.
Grétar Ingimarsson, Grenigrund 5,
Kópavogi, verður jarðsunginn frá
Kópavogskirkju föstudaginn 20. júlí
kl. 13.30.
Jón Sigurjónsson frá Bláfeldi, Kapla-
skjólsvegi 27, verður jarðsunginn frá
Áskirkju föstudaginn 20. júlí kl. 15.
Skúli Sveinsson, fyrrverandi aðal-
varöstjóri og þingvörður, Flókagötu
67, Reykjavík, verður jarðsunginn
frá Háteigskirkju föstudaginn 20. júlí
kl. 15.
Karl Þórarinsson, Lindarbæ, Ölfusi,
andaðist 11. júlí á Ljósheimum, Sel-
fossi. Hann verður jarðsunginn frá
Selfosskirkju laugardaginn 21. júlí
kl. 14. Karl var fæddur á ísafirði 20.
nóvember 1913 og ólst upp í Amardal
hjá hjónunum Guðrúnu Jónsdóttur
og Sigurgeiri Katarínussyni. Karl
var búfræðingur frá Hvanneyrar-
skóla og stundaði búskap frá 1945
fyrst í Stafholtstungum í Borgarfirði
og síðan á Kjartansstöðum og Lind-
arbæ í Árnessýslu. Hann lætur eftir
sig konu og þrjú uppkomin börn.
Tilkyrmingar
Félag eldri borgara
Opið hús í Goðheimum, Sigtúni 3, í dag,
kl. 14 frjáls spilamennska, kl. 19.30 félags-
vist, kl. 21 dansað. Göngu-Hrólfar hittast
nk. laugardag kl. 10 að Nóatúni 17. Ath:
Margrét Thoroddsen frá Tryggingastofn-
un ríkisins verður til viötals á skrifstofu
félagsins 26. júli nk.
Herraúr fannst
í Borgarfirði
Nýlegt Edox herraúr fannst í Þyrli í Borg-
arfirði. Aletrun er aftan á úrinu. Upplýs-
ingar í síma 93-38925.
Rúmeníuhjálp RKI komin
á leiðarenda
Um núðjan júnímánuð sl. bárust til
Rúmeníu hjálpargögn frá Rauöa krossi
íslands en ákveðið hafði veriö að afrakst-
ur fjársöfnunar sl. vetur, um 3 milljónir
íslenskra króna, rynni allur til dvalar-
heimilis fyrir munaðarlaus böm í hérað-
inu Tirgu Mures í Transilvaniu. Á heim-
ilinu dvelja að jafnaði 76 böm á aldrinum
3-7 ára og hafa þau ilest dvaliö á stofnun-
um frá fæðingu. Vigdís Pálsdóttir hjúkr-
unarfræðingur, sendifulltrúi Rauða
kross íslands, tók á móti sendingunni og
rikti mikil gleði á heimilinu þegar hún
barst. Bömin fengu öll alfatnað og skó
að ógleymdum leikfóngum. í sending-
unni var einnig þurrmjólkurduft, vítam-
ín, sængur og sængurfatnaður, rúmdýn-
ur, þvottaefni, sápur, tannkrem og tann-
burstar, bamasalemi og ýmislegt fleira.
Ennfremur voru keyptar fyrir heimihð 3
þvottavélar í Rúmeníu. Starfsfólk heimil-
isins baö fyrir innilegar kveðjur og þakk-
ir til íslendinga fyrir hjálpina og vUl
Rauði kross Islands taka undir þær
kveðjur og sendir hér með innilegar
þakkfr öllum þeim einstaklingum og fyr-
irtækjum sem aðstoðuðu við og studdu
þetta verkefni.
Fjölmiðlar
Skilaboð að handan
íslendingar hafa löngum veríð
þekktir fyrir áhuga sinn á andlegum
málefnum. Hafa hérstarfaðmargir
miðlar, bæði sannir og lognir, sem
sinnt hafa þessu míkla hugðarefiú
landsmanna. Persónuleg upplifun
og kynni af verum að handan eru
heldur ekki sjaldgæf. Kukl af ýmsu
tagi var lengi stundaö og fengu
galdramenn og galdrakerlingar
æðri máttarvöld til liðs við sig.
Umræðan hérlendis hefur ávallt
verið opin og sjálfsögð. Okkur finnst
ekkert athugavert viö þaö að rabba
um draugagang og yfirnáttúrleg fyr-
irbæri, það er næstum eins og aö
tala um veðrið. Mörg hver höldum
við einnig að sambærileg umræða
fari íram erlendis og þyki jafnsjálf-
sögð þar. Svo er nú reyndar ekki
og hefur margan útlendinginn rekið
í rogastans þegar málefni af þessu
tagi hefur borið á góma og jafnvel
skellt hressilega upp úr. Sérstaða
okkar í þessum málum vekur þó oft
á tíðumforvitni þeirra sem ekki
þekkjatil.
Til marks um þetta var hálftíma
langur þáttur á rás 1 í gærkvöldi
þar sem Þórliallur Guðmundsson
var tekinn tali. Mjög einlægt viðtal
þar sem hann sagði frá reynslusinni
og viðskiptum við veröldina hinum
megin. Þórhallur hefur fullt starf
af því að vera miðill, hann kemur
skilaboðum áleiðis að handan. Sagði
hann tímann vera afstæðan, tíma-
víddina vera allt aðra og að verald-
legir lilutir væru fáir hinum megin.
Það vekur alltaf upp mikla forvitni
hvernig líf eftir þetta líf kemur til
með að verða, það er að segja ef
menn á annaö borö hafá trú á þessu.
Það er í öllu falii alltaf spennandi
að heyra upplifun manna á þessum
málum.
Telnia L. Tómasson