Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1990, Side 3
FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 1990.
3
dv Viðtalið
Nafn: Róbert Trausti
Arnason
Staða: Skrifstofustjóri
varnarmálaskrifstofu
Aldur: 39 ára
Þann 1. júní í sumar tók Róbert
T. Árnason, sendiherra í utanrík*
isþjónustunni, viö starfi skrif-
stofustjóra vamarmáiaskrifstofu
utanriksiráöuneytisins.
„Ég er nokkuð kunnugur verk-
sviði vamarmálaskrifstofunnar
og hef fengist viö þennan mála-
flokk mjög lengi. Eg var starfsr
maöur Nató í Brussel 1981 til 1986.
Þar var ég hjá alþjóðastarfsJiði
bandalagsins. Árin 1986 til 1988
var ég svo í utanríkisráðuneytinu
hér en fór þá aftur til Brussel.
Þá vann ég hjá fastanefnd fslands
hjá Átíantshafsbandalaginnu.
Hingaö kom ég svo í vor,“ sagði
Róbert.
Róbert er fæddur og uppalinn í
Reykjavík. „Þar hef ég alltaf búið
að undanskildum árunum í
Brussel og nokkrum árum í
Kanada. Ég er algjört borgar-
barn.“
Róbert lauk BA prófi i stjórn-
málafræði frá Háskóla íslands
árið 1979. „Þá fór ég til Kanada
til framhaldsnáms. Ég var þijú
ár í framhaldsnámi og lauk svo-
kölluöu MMA prófi frá Queens
háskólanum í Kingston í Ontario.
Eftir þaö starfaði ég í Kanada viö
stofnun sem fékkst viö rannsókn-
ir á alþjóðamálefnum.
Mér líkaði mjög vel I Kanada
og á margar góðar minningar
þaöan. Þaö var viss freisting aö
sefjast að í Kanada því þar var
margt gott aö fa sem ekki voru
möguleikar á hérlendis. En nú
hefur margt æxlast ööruvísi hér
á landi.“
Róbert kveöst ekki vera á útleið
aftur. „Ég er búhm að taka út
minn kvóta. Nú er komið að því
aö ferðast hér á íslandi. Ég hef
farið í aila landsfjóröunga síðan
ég kom heim og ætla aö heim-
sækja Vestfirði í næstu viku.“
Gojfáhugi
„Ég er mikið í golfi og reyni aö
fara eins oft og ég get. Ég veit
samt ekki hvort ég telst mikill
golfari. Um síðustu helgi tók ég
þátt í opna Icy mótinu í Borgar-
nesi en fór ekki heirn með nein
verðlaun í þaö skiptið.
Ennþá er ég ekki kominn í
neinn klúbb hér á landi, það er
svo stutt síöan ég kom heim. Ég
var einn af stofnendum golf-
klúbbs í Belgíu og er reyndar enn
í þeim klúbbi.
Golfaðstaðan á Islandi er rnjög
góð, hvort sem fólk vill trúa því
eða ekki. Vellirnir eru góðir og
vel hirtir. Skemmtilegasti völlur-
inn sem ég hef spilaö á siöan ég
kom heitn er AkranesvÖllurinn.“
Róbert segir vinnuna vera sitt
áhugamál. „Sumir segja þvi mið-
ur en mér fínnst þaö ágætt. Einu
sinni var stjórnmálaáhugi minn
mikill og starfaði ég þá bæöi i
Vöku í Háskóla íslands og í
Heimdalli. Þó ég sé ekki lengur í
pólitik hef ég enn mína bamatrú
og glata henni ekki.“
Eiginkona Róberts er Klara
Hilmarsdóttir. Synir þeirra eru
KristjánogHilraar. -hmó
Fréttir
í kjölfar vlkinganna:
Hef alltaf verið
ævintýramaður
- segir Þorsteinn Jónsson flugmaöur
„Ég hafði orð á því viö David Lom-
ax, leiðangursstjóra víkingaskipsins,
að það gæti veriö gaman að sigla með
honum einhvem hluta leiðarinnar.
Þá spurði hann mig hvort ég vildi
ekki koma með og ég var ekki lengi
að hugsa mig um heldur gaf honum
strax jákvætt svar. Enda hef ég alltaf
verið ævintýramaður í eðh mínu,“
segir Þorsteinn Jónsson flugmaður.
David Lomax og leiðangursmenn
hans hyggjast sigla á skipi sem verð-
ur nákvæm eftirlíking af víkinga-
skipi því sem Leifur heppni er talinn
hafa siglt á þegar hann fann Vínland
fyrir um 1000 árum. Víkingaskipið
mun leggja af stað frá Noregi, halda
þaðan til Hjaltlands, svo til Færeyja
og íslands. Grænland verður síðan
næsti viðkomustaður en þaðan verð-
ur haldið í lokaáfangann til Norður-
Amríku. Tilefni leiðangursins er að
mikil hátíðahöld verða árið 1992 í
Ameríku í tilefni af því að 500 ár eru
hðin síðan Kólumbus steig þar á
land. David og leiðangursmenn hans
vilja hins vegar minna á að Leifur
heppni og fylgdarmenn hans höfðu
komið til álfunnar 500 árum áöur.
„Kynni mín af David hófust fyrir
tilviljun í Narssarssuaq á
Grænlændi í fyrrasumar. Ég var þar
staddur er David kom þangað sigl-
andi á skútu sinni en þá var hann
að kanna siglingaleiðina fyrir vík-
ingaskipið.
Fyrir skömmu ég fékk svo bréf frá
honum þar sem hann baö mig að
kynna leiðangurinn á íslandi og at-
huga einnig hvort einhver fyrirtæki
væru tilbúin aö leggja fram fé til
stuðnings málefninu. AIls er áætlað
að kostnaður við smíði skipsins og
siglinguna frá Noregi til Ameríku
muni nema um 300.000 pundum og
verður fé til þessa verkefnis safnaö
hjá fyrirtækjum og stjórnvöldum í
þeim löndum þar sem víkingaskipið
hefur viðkomu.
Það er fyrirhugað að leggja í hann
frá Noregi í maí á næsta vori. Það
veit hins vegar enginn hversu langan
tíma það tekur að sigla þessa leið.
Ég er ekki ákveðinn hvort ég verð
um borð allan tímann eða hvort ég
sigh aðeins hluta leiðarinnar," segir
Þorsteinn.
-J.Mar
Tilboð í smíði lóðsbáts
Fjórtán tilboð bárust í smiði lóðs-
og dráttarbáts fyrir Hornafjarðar-
höfn.‘ Þar af voru fjögur erlendis frá
og tíu inniend.
Lægsta tilboðið kom frá David
Abels í Englandi og hijóðaði það upp
á rúmar 35 milljónir króna en lægsta
innlenda tilboðið kom frá Stáh hf.á
Seyðisfirði upp á tæpar 36 milljónir
króna. Hæsta tilboðið var frá Dröfn
hf. og var það upp á rúmar 58 milijón-
ir króna.
Tilboðin eru nú í athugun og er
gert ráð fyrir aö niðurstöður hggi
fyrir innan mánaðar. Það skal undir-
strikað að varhugavert er að bera
ofangreind tilboð beint saman þar
sem um mismunandi hönnun getur
verið að ræða og nokkuð misjafnt er
hvað innifahð er í hverju tilboði fyr-
irsig. -J.Mar
Þorsteinn Jónsson flugmaður lætur ekki deigan siga. A næsta ári ætlar
hann að taka þátt í leiðangri sem ætlar að sigla í kjölfar víkinganna á eftir-
líkingu af víkingaskipi alla leið frá Noregi til Norður-Amríku.
DV-mynd JAK
TÍTANhf
LÁGMÚLA 7
SÍMI 84077
KYNNINGARVERÐ
kr. 198.925 stgr.
COMBICAMP, TRAUSTUR OG CÓÐUR FÉLAGI í FERÐALAGIÐ.
NYTT!
FRA
COMBI
CAMP
Nú geta allir
eignast tjeldvegn
Combi Camp Night Rider er fjölhæfasti
tjaldvagninn (ferðalagiö, sumar, vetur,
vor og haust.
Hann er nettur, léttur (vegur aöeins
150 kg) og handhægur.
Það tekur aðeins 15 sek. að tjalda.
Vagninn erfallega straumlínulagaður og
allur einangraður.með polyurethan.
Hverjum vagni fylgir svefntjald, dýnur,
farangursgrind, geymsluhólf undir
svefnrými og á beisli.
Úrval aukahluta fáanlegt: Skíði,
thermo-svefntjald, pokahengi,
10mJ hliðartjald o.fl. o.fl.