Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1990, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1990, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 1990. Utlönd Efnavopn flutt frá V4 Fyrstu vörubílarnir flytja bandarísk efnavopn í V-Þýskalandi til eyðilegg- tngar. Símamynd Reuter Bandaríkin hófii brottflutning efnavopna sinna frá Vestur-Þýskalandi i gær. Umhverfisverndarsinnar reyndu árangurslaust aö fá brottflutning- inn, sem er landleiðis, stöðvaðan vegna þess að þeir telja leiðina hættu- lega. Þeir kveðjast styðja heilshugar brottílutning vopnanna en eldd með vörubílum og lestum i gegnum þéttbýl svæði. Mikil öryggisgæsla var á leiö bifreiðanna og lestanna sem flytja efna- vopnin á brott Um tíu þúsund efhavopnasprengjur Bandaríkjanna voru í V-Þýskalandi og verður þeim nú eytt. Vopnin höfðu veríð geymd ieyní- lega í Clausen skammt frá landamærunum viö Lúxemborg. Árið 1986 sömdu Kohl, v-þýski kanslarinn, og Reagan, þáverandí Bandaríkjafor- seti, um aö vopnin skyldu fjarlægö og skýrðu þá frá hvar þau væru. Forsetalausi í Búlgaríu Búigarska þinginu tókst ekki að kjósa forseta iandsins í gær og er þaö í fjórða sinn sem þingmönnum tekst ekki að koma sér saman um eftir- mann Petars Mledanov sem neyddist tii að segja af sór embætti fyrr í þessum mánuði. Engum frambjóðanda tókst að tryggja sór stuðning tveggja þriöju hluta þingmanna í kosningum í gær og var ákveðið aö gengið yrði til kosninga á ný á mánudag. Frambjóðandi fyrrum kommún- ista, sem nú kalla sig sósíalista, Chavdar Kiuranov, hefur fengið flest atkvæði í kosningum hingað til og fékk í gær 194 atkvæöi af 384 sem greidd voru. Olíuráðherrar OPEC-rikjanna funda nú í Genf. Á þessari mynd má sjá ráðherra Indónesíu, Saudi-Arabíu og írak. ^ Símamynd Reuter Málsókn gegn Scargill frestað Fundur aðildarríkja OPEC: Samband breskra námamanna hefur ákveðið að fresta málsókn á hendur Artliur Scargill, leiötoga sambandsins. Þannig vonast þau til að leysa ágreining sinn við Scargill um fjármuni sem evrópsk- ir námamenn greiddu í verkfalls- sjóð breskra námamanna i vcrk- fallinu 1984-1985. Scargill heí'ur verið sakaður um aö hafa iagt féð inn á reikning Alþjóðasambands námamanna en hann er jiar einnig í forystu. Um er að ræða tvær millj- ónir punda. Breskur dómari samþykkti að í'resta málsókn í þrjá mánuði til að gefa deiluaöilum færi á að leysa ágreining sinn. Taliö er að sam- komulag hafi náðst á löngum fundi samtaka breskra og erlendra Arthur Scargill, leiðtogi breskra námamanna fyrr í vikunni. námamanna. Moi herðir tökin Andófsmaöurinn Gitobu Imanyara, sem var leystur úr haldi í Kenýa á miðvikudag, var handtekinn á nýjan leik í gær. Var honum gefiö að sök að hafa gefið út tímarit er hvatti til uppþota og uppreinsa. Verði hann fundinn sekur getur hann átt von á allt að sjö ára fangelsi. Hann var fyrst handtekinn fyrir þremur vikum þegar Moi forseti herti aðgerðir gegn andófsmönnum en var síðar sleppt. Imanyara er ritstjóri tímaritsins sem hér um ræðir. Greinin, sem ákæran byggir á, birtist í apríl og íjallar um kröfuna um íjölílokkalýðræði í landinu. Samkomulag Kóreuríkjanna Þrír suður-kóresklr andófsmenn á fandamærum ríkjanna. Símamynd Reuter í morgun náðist samkomulag Norður- og Suður-Kóreu um fyrir- hugaðan fúnd sendinefhda ríkjanna sem fjalla á um sameiginleg hátíða- höld í Panmunjon í tilefni þjóðhátiðardags Kóreu í næsta mánuði. Deilur um framgangsmáta fundarins, svo og hvar átti að halda hann, höfðu orð- ið til þess að fundinum, sem halda átti í gær, var frestað. Andófsmenn frá Suður-Kóreu bíða nú við landamæri ríkjanna eftir að taka á móti Norður-Kóreumönnunum. Þeir elhdu til raótmæla við landamærin í gær þegar fréttist að viðræöurnar hefðu siglt í strand og var þetta í fyrsta sinn sem efnt er til mótmæla í Panmunjon. Irak mætir andstöðu írakar mættu andstöðu á yfir- standandi fundi aðildarríkja OPEC, Samtaka olíuútflutningsríkja sem nú stendur yfir í Genf. Krafa þeirra um að hækka verð á olíutunnu í 25 doll- ara fellur ekki vel í kramið hjá mörg- um fulltrúum á fundinum. Mörg að- ildarríki, þar á meðal Venezuela, eru mótfallin svo mikilli hækkun þar sem þau óttast að slíkt muni fæla neytendur frá. Og snemma í morgun var ljóst að enn er ágreiningur um heimsmarkaðsverð á olíu og fram- leiðslukvóta. írakar hafa krafist þess að aðildar- ríki OPEC dragi svo úr framleiðslu að verðið á olíutunnunni nái 25 doll- urum. Forsetinn, Saddam Hussein, hótaði því að grípa til aðgerða gegn nágrannaríkjum sínum hætti þau ekki að hunsa kvóta OPEC. Stjórnar- eindrekar segja auk þess að liðsflutn- ingar íraka að landamærunum við Kuwait séu hluti þvingunaraðferða Hussein til að ná kröfum íraka í gegn á yfirstandandi fundi. Fréttaskýrendur segja að Hussein hafi þegar unnið sigur aö því leyti að öll aðildarríkin hafa fallist á aö stefna að því að verð fyrir olíutunn- una hækki í 20 dollara. Þá búast stjórnarerindrekar við því að olíu- ráðherrarnir skuldbindi sig til að virða framleiðslukvóta OPEC en flestir fundarmanna hafa falhst á hámarksframleiðslu það sem af er ársins, þak verði sett við framleiðslu 22.491 tunnu á dag. Reuter Vestur-Þýskaland: Sprengjuárás á stjórnmálamann Talið er aö félagar úr hryðju- verkasamtökunum Rauðu her- deildinni beri ábyrgð á sprengjuár- ás á háttsettan vestur-þýskan stjómmálamann í morgun er hann ók af hraðbraut nálægt innanríkis- ráðuneytinu í Bonn. Miði var skil- inn eftir nálægt tilræðisstaðnum og á hann var skrifað að Rauða herdeildin bæri ábyrgði á árásinni. Blaðafulltrúi vestur-þýsku stjórnarinnar sagði að Hans Neus- el, embættismaður í innanríkis- ráðuneytinu, hafi verið fluttur til ráðuneytisins eftir árásina. Hún var gerð er Neusel var á leiðinni til Bonn frá flugvellinum í Cologne. Neusel er sagður hafa slasast lítils- háttar. Reuter ítalskir ráðherrar segja af sér Andreotti, forsætisráðherra Italíu, var í heimsókn hjá Gorbatsjov Sovét- forseta í gær. Stjórnarkreppa er nú yfirvofandi á ítaliu. Simamynd Reuter Fjórir ráöherrar ítölsku stjórnar- innar sögðu af sér í gær vegna deilna um fjárlög til ljósvakamiðla. Forsæt- isráðherrann, Giuho Andreotti, fór fram á stuðningsyfirlýsingu við nokkur atriði sem menn úr hans eig- in flokki eru andvígir. Það var þessi krafa forsætisráðherrans sem leiddi til afsagnar ráðherranna. Atkvæðagrgjðsla fer fram í kvöld og segja stjómmálaskýrendur aö ekki sé ljóst hvort Andreotti muni geta komið í veg fyrir stjómarkreppu með því að stokka upp í stjórninni og skipa nýja ráðherra. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.