Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1990, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1990, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 1990. Utlönd Bardagamir 1 Líberíu: Fjöldamorð á borgurum Leiötogi Afríska þjóðarráösins, blökkumannalelðtoginn Nelson Mandela, er Jjúkandi reiöur vegna handtöku aðstoðarmanns síns, Hann mun í dag ræða viö forseta Suöur-Afríku, F. W. de Klerk, sem er æstur vegna meints samsæris Afríska þjóðarráðsins. Viðræðumar voru ákveðnar I skyndi í kjölfar handtöku starfs- manns ráðsins sem lögreglan grunar um að hafe átt aðiid aö sam- særi um að steypa stjórninni ef við- ræður um afnám kynþáttaaðskiln- aðarstefhunnar færu út um þúfur. Mandela neitaði því í gær að Af- ríska þjóðarráðið hefði ráögert að steypa stjórninni. Ættflokkaskærurnar í Líberíu snerust upp í óhugnanlegt blóðbað í gær þegar hermenn hliðhollir Samu- el Doe forseta drógu óbreytta borg- ara nauðuga viijuga úr húsum sínum og sjúkrarúmum og myrtu þá með köldu blóði á ströndum landsins. Að minnsta kosti tuttugu og fjórir óbreyttir borgarar voru skotnir til bana eða brytjaðir í spað með sveðj- um að sögn sjónarvotta. Flest fórnar- lambanna voru af Gio eða Mano ætt- flokkunum en stuðningsmenn for- setans eru allir úr Kahn ættflokkn- um. Taliö er að morðingjarnir hafi grunað fórnarlömbin um að styðja Charles Taylor og uppreinsarher- menn hans en þeir hafa nú hert mjög tökin. Stuðningsmenn forsetans óttast að þeir verði myrtir þegar forsetinn gefst loks upp. Þeir gengu berserks- gang um borgina og neyddu fólk til að koma með sér. Að sögn sjónar- votta fóru þeir með suma niður á strönd nærri Monróvíu, myrtu fólkið og hentu líkunum í sjóinn. Sumir voru skotnir þar sem þeir voru bundnir hver við annan. Sjórinn var fuflur af flmlestum líkum. Uppreisnarmenn hafa nú nærfellt alla höfuðborgina á sínu valdi en Doe forseti situr sem fastast í höfl sinni og hefur heitið því að beijast til síð- asta blóðdropa. Hann neitar að láta af völdum þrátt fyrir að flestir telji nú að endirinn sé í nánd. Sendiherrar fimm Evrópubanda- lagsríkja, Frakklands, Ítalíu, Bret- lands, Vestur-Þýskalands og Spánar, gáfu frá sér yfirlýsingu í gær þar sem þeir lýstu hryllingi sínum vegna morða á óbreyttum borgurum. Reuter Tengsl við mafíuna Yflr tvö hundruð manns tengdir mafíunni á Suður-Ítalíu voru í maí síöastliðnum kjömir í bæjar- og sveitarstjómir, aö þvi er segir í skýrslu þingnefndar. . { skýrslunni segir að á sumum stöðum neiti yfirvöld þvi stöðugt aö mafían eigi þátt í ofbeldi og glæpum þrátt fyrir að þaö hafi i vissum til- fellum verið sannað fyrir rétti. Þmgnefiidinni, sem birti skýrslu sína í gær, haföi verið faliö að rann- saka Stök mafíunnar í bæjar- og sveítarstjórnum í suðurhluta landsins í kjölfar morða á átta frambjóöendum í apríl og maí. Peter-Michael Dlestel, Innanrlklsrððherra A-Þýskalands, til hægri, ásamt de Maiziere forsaetisrá öherra. Símamynd Heuter Feter-Michael Diestel, innanríkisráöherra Austur-Þýskalands, vísaði 1 gær á bug fréttum um net njósnara úr Stasi, fyrrum leyniþjónustu aust- ur-þýskra stjómvalda á tímum kommúnisma, sem fylgdist með gjörðum austur-þýskra embættismanna. Þaö voru háttsettir embættismenn sem skýrðu fró þvi í gær að fundist hefðí leyniherbergi I ráðhúsinu í Austur- Berlin og viðar um land sem leynileg skilaboð heföu verið send úr i síð- ustu víku. Þeir sögðu njósnara Stasi vera hér að verki rúmum sjö mánuð- um eftir að Stasi var opinberlega lögð niður. Diestel kvaö þessi herbergi vera flarskiptaherbergi sem notuð væru til afar eðlilegra samskipta í dag. Hann sagöi að maðurinn, sem komið heföi fram með þessar ásakanir, Thomas Kröger, yfirmaður mnanríkisdeildar borgarsljómar Austur-Berlínar, vissi ekki hvað hann væri að tala um. Krúger segír að útsendarar Stasi hafi sent leymieg skllaboð úr herbergjun- um í ráðhúsinu i Austur-Berlín i þessari viku. Maðurinn, sem hefur yfir- umsjón með þessum herbergjum, vísar því á bug. Pólítískar væríngar Breskir landgönguliðar leituöu í snekkju Charles Haughey, írska forsæt- ísráðherrans, á sunnudag og ollu þar með pófltískum ágreiningi ríkjanna í milU. Haughey var ekki um borö í snekkjunni, The Celtic Mist, þegar landgönguliöamir geröu ieit sína. írska stjómin hefur leitað skýringa þjá þeirri bresku vegna þessa máls. Flýta sér frá Mongólíu Sovétríkin flyija nú hermenn sína á brott frá Mongóliu fyrr en ráðgert haföi verið vegna þverr- andi áhrifa sinna í landinu. Um 80 prósent sovéska heraflans í Mong- ólíu, sem samanstendur af 65 þús- und hermönnum, hafa þegar feriö. Ríkin geröu með sér samkomulag á þessu ári aö 75 prósent hermann- anna skyldu vera farnir á brott fyr- ir lok órsins og aö allur sovéskur herafli yrði á brott fyrir lok næsta árs. 2Mongólía er á hcrnaöaiiega mikilvægu svæöi milli Kína og Sov- étríkjanna sem nokkmm sinnum hafa átt í landamæraátökum. Kosnlngaspjald I Mongóliu. Vill ræða við Eistlendinga Michail Gorbatsjov Sovétforseti er reiðubúinn að hefja fljótlega viö- ræöur við Eistlendinga. Hefur hann skipað nefnd háttsettra emb- ættismanna í þeim tilgangi, að því er fréttastofa Eistlands greindi frá í gærkvöldi. Einn aðstoðarmanna Gor- batsjovs hringdi í gær í Arnold Ruutel, forseta Eistlands, og sagði að viðræðurnar gætu jafnvel hafist í næstu viku. Aðstoðarmaðurinn sagði að grundvöllur umræðnanna yrði hinn nýi ríkjasáttmáli sem Gorbatsjov vonast tfl að drög verði lögð að á næstu tveimur mánuðum. Ruutel kraföist þess hms vegar að grundvöllur umræðnanna yrði sjálfstæðisyflrlýsing Eistlands frá 4. apríl, að því er sagði í fréttinni. Ráðgert er að Ruutel hitti í dag í Riga forseta Litháens og Lettlands. í Riga er einnig Boris Jeltsin, for- seti Rússlands. Sagði hann aö Rúss- land myndi innan fjögurra til sex vikna undirrita sáttmála þar sem sjálfstæði Lettlands yrði viður- kennt. Reuter Castro veitir fararleyf i Fidel Castro er hann hélt ræðu sína í Havana I gær. Simamynd Reuter Fidel Castro Kúbuforseti sagði í gær að ef Bandaríkin, Spánn og önn- ur ríki Evrópubandalagsins sam- þykktu að tryggja vegabréfsáritanir myndi hann veita öllum sem vfldu brottfararleyfl. Castro lét þessi orð falla í ræðu í Havana en sakaöi um leið yflrvöld á Spáni um að taka þátt í herferð Bandaríkjanna gegn stjóminni á Kúbu. Sagði forsetinn að spænsk yfirvöld gætu hætt efnahagslegri samvinnu við Kúbumenn. Ræðuna, sem var nær þriggja tíma löng, hélt Castro á fjöldafundi á Bylt- ingartorginu í höfuðborginni og það var í lok hennar sem hann bauð lausn á deilunni við Spán um Kúbu- mennina sem vflja fara úr landi. Hann bætti því við að ef Bandaríkin vildu taka viö þeim sem fyndust þeir vera ofsóttir á Kúbu þá skyldu þau bara senda báta eftir þeim. Castro gerði það þó ljóst að boð þetta næöi ekki til þeirra tuttugu og tveggja sem nú hafast viö í erlendum sendiráðum í Havana. í spænska sendiráðinu eru átján kúbanskir flóttamenn en fjórir dvelja í bústað ítalska sendiherrans. Vestrænir stjómarerindrekar segja að líklegt sé aö Bandaríkin og Evrópubandalagsríkin taki boði Castros með fyrirvara. Bættu þeir því við að of snemmt væri að segja til um hvort það myndi leiða til fjöldaflótta eins og 1980 þegar 125 þúsund Kúbumönnum var leyft að fara til Bandaríkjanna. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.