Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1990, Blaðsíða 26
34
FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 1990.
Afmæli
Sigurður Hinriksson
Sigurður Hinriksson, fyrrv. útgerð-
armaður, Þiljuvöllum 33, Neskaup-
stað, er níræður í dag.
Sigurður fæddist í Norðfirði og
hefur átt heima í Neskaupstað alla
tíð. Hann stundaði lengst af útgerð
frá Norðfirði en rak einnig eigin
fiskverkun í fjölda ára. Sigurður
gerði út marga mótorbáta og smíð-
aði sjálfur tvo þeirra en hann smíð-
aði fyrsta frambyggða mótorbátinn
áAusturlandi.
Sigurður var einn af frumkvöðl-
um og stofnendum Samvinnufélags
útgerðarmanna í Neskaupstað 1932.
Hann sat í fyrstu sjórn félagsins og
til ársins 1936 en félagið er aðaleig-
andi Síldarvihnslunnar hf., eins
stærsta sjávarútvegsfyrirtækis hér
á iandi. Hann var einnig meðal
stofnenda Dráttarbrautarinnar hf. í
Neskaupstað 1942 og einn af stofn-
endum Goðaness hf. árið 1946 er
átti og gerði út nýsköpunartogarann
Goðanes á árunum 1947-52. Þá sat
Sigurður í stjóm Kaupfélagsins
Fram í Neskaupstað um þijátíu ára
skeið
Eiginkona Sigurðar er Kristrún
Helgadóttir, f. 28.1.1910, húsmóðir,
en hún er dóttir Helga Flóvenssonar
og Jóhönnu Jóhannsdóttur sem
bæði voru frá Húsavík. Kristrún
ólst upp að Skörðum í Reykjahverfi
í Suður-Þingeyjarsýslu hjá hjónun-
um Þuríði Sigurðardóttur og Jóni
ÁgústiÁmasyni.
Kristrún rak um árabil Hótel Eg-
ilsbúð í Neskaupstaö. Hún er mikil
hannyrðakona og hefur tekið virk-
an þátt í félagsmálum en hún var
um skeið formaður kvenfélagsins
Nönnu í Neskaupstað og bamastúk-
unnar Vorblómsins.
Sigurður og Kristrún eignuðust
tvo syni. Þeir em:
Ragnar Ágúst, f. 27.1.1930, d. 1988,
loftskeytamaður, hafnarstjóri í Nes-
kaupstað og loks sparisjóðsstjóri
Sparisjóðs Norðíjarðar, var kvænt-
urKristínuLundberg,f.30.1.1930
og eignuðust þau fjögur böm, Sig-
urð, f. 1951, framkvæmdastjóra, sem
kvæntur er Ragnheiði K. Hall hús-
móður og eiga þau þijú böm, Sigur-
borgu, f. 1956, myndlistarkonu og
kennara, en hún er búsett í Nes-
kaupstað og á einn son, Kristrúnu,
f. 1959, fóstru í Neskaupstað, í sam-
búð með Snorra Styrkárssyni hag-
fræðingi og eiga þau einn son og
Jóhönnu Kristínu, f. 1961, hár-
greiðslukonu í Neskaupstað, sem
gift er Hjálmari Kristinssyni fisk-
tækni og eiga þau tvö böm.
Hinrik Jóhann, f. 5.11.1943, (kjör-
sonur) áður verkstjóri við fiskverk-
un, nú verkstjóri hjá íslenskum að-
alvertökum, búsettur í Keflavík,
kvæntur Ingibjörgu Haraldsdóttur,
f. 24.8.1945 og eiga þau saman þrjú
börn, Harald, f. 1964, verkamann í
Keflavík, í sambúð með Signýju
Marínósdóttur og á Haraldur eina
dóttur, Margréti, f. 1967, skrifstofu-
mann í Keflavík, og á hún einn son
og Sigurð, f. 1969, verkamann í
Keflavík. Auk þess á Hinrik einn
son með Hjálmveigu Jónsdóttur frá
Eskifirði, Hafstein, f. 1963, sjómann
á Eskifirði, sem kvæntur er Önnu
Óðinsdóttur og eiga þau tvö böm.
Systkini Sigurðar vora íjögur.
Systkini hans: Margrét, f 1902, nú
látin, var gift Einari Jónssyni, út-
gerðarmanni og skipstjóra að
Tröllanesi í Neskaupstað og áttu
þau einn fósturson, Guðmund Sigm-
arsson sem búsettur er í Neskaup-
stað; Helga, f. 1904, húsmóðir að
Bjarma í Neskaupstað, er látin, var
gift Benedikt Benediktssyni skip-
stjóra sem einnig er látinn en þau
áttu eina kjördóttur, Ingu Kristínu
Benediktsdóttur sem búsett er í
Reykjavík; Borghildur, f. 1908, hús-
móðir að Ekm í Neskaupstað, giftist
Níels Ingvarssyni framkvæmda-
stjóra og eignuðust þau tvo syni,
Jóhann lögfræðing sem er búsettur
í Reykjavík og Ingvar verkfræðing
sem einnig er búsettur í Reykjavík;
Sveinbjörg, f. 1913, húsmóðir, var
gift Magnúsi Pálssyni, útgerðar-
manni og skipstjóra, sem er látinn
og eignuðust þau þijú böm, Jó-
hönnu, húsmóður í Reykjavík,
Pálmar, kennara í Reykjavík, og
Sigrúnu Margréti, röntgentækni í
Reykjavík.
Foreldrar Sigurðar vom Hinrik
Þorsteinsson, f. 1863, d. 1941, útgerð-
Sigurður Hinriksson.
armaður á Norðfirði, og kona hans,
Jóhanna Bjömsdóttir, f. 1877, d.
1938.
Sigurður tekur á móti gestum í
safnaðarheimili Norðfjarðar á af-
mælisdaginn.
Benedikt G. Frímannsson
Benedikt G. Frímannsson, Búðanesi
1, Stykkishólmi, er sextugur í dag.
Benedikt fæddist á Steinhóli í
Fljótum og ólst upp frá sex ára aldri
á Reykjarhóli í Vestur-Fljótum hjá
fósturforeldrum sínum, Áma Ei-
ríkssyni, bónda þar, f. 5.12.1905, d.
28.1.1967, og Líneyju Guðmunds-
dóttur húsmóður, f. 27.2.1919.
Benedikt lauk sveinsprófi í húsa-
smíði og iðnskólaprófi í Vestmanna-
eyjum 1958 en þar bjuggu þau hjón-
in til 1964 er þau fluttu til Reykjavík-
ur. Benedikt bjó í Reykjavík og vann
þar við húsasmíðar til 1971 en þá
fluttu þau að Stórholti í Dalasýslu
þar sem þau stunduðu búskap þar
til nú í sumar aö þau fluttu að Búð-
amesi 1 í Stykkishólmi.
Kona Benedikts er Ester Guðjóns-
dóttir, f. 4.4.1934, en þau giftu sig
1.10.1955. Ester er dóttir Guðjóns
Hafliðasonar, f. 8.6.1889, útgerðar-
manns í Vestmannaeyjum, og
Halldóru Þórólfsdóttur, f. 10.7.1893,
húsmóður.
Böm Benedikts og Esterar eru
Rebekka, f. 21.1.1957, húsmóðir á
Stokkseyri, gift Kjartani Jónssyni
sjómanni og eiga þau fjögur böm;
Rakel, f. 4.11.1959, skrifstofumaður
í Reykjavík og á hún tvö böm; Krist-
ín, f. 19.6.1962, húsmóðir í Stykkis-
hólmi, gift Ómari Jóhannssyni vél-
stjóra og eiga þau tvö börn, og Lín-
ey, f. 3.10.1963, húsmóðir í Vest-
mannaeyjum, gift Þorleifi Guð-
bjartssyni sjómanni og eiga þau þrjú
böm.
Systkini Benedikts vom sextán og
em fimmtán þeirra á lífi. Þau em
Jón, f. 12.3.1913 og á hann fimm
böm; Katrín, f. 12.7.1914 og á hún
tvær dætur; Jórunn, f. 12.7.1915 og
á hún átta böm; Bjöm, f. 26.4.1917
og á hann fjögur börn; Ásmundur,
f. 20.71919 og á hann átta böm; Ste-
fanía, f. 23.7.1920 og á hún einn son;
Guöbrandur, f. 26.51922 og á hann
þrjú böm; Gestur, f. 28.2.1924 og á
hann þijú börn; Þórhallur, f. 9.8.
1926, d. 30.12.1949; Hafliði, f. 7.6.
1927 og á hann tvær dætur; Guð-
mundur, f. 29.4.1929 og á hann sex
böm; Sveinsína, f. 17.10.1931 og á
fjögur böm; Pálína, f. 10.1.1935 ogá
hún sex böm og Regína, f. 16.7.1936
ogáhúnfimmböm.
Foreldrar Benedikts voru Frí-
mann Guðbrandsson, b. á Austari--
Hóli í Flókadal, og kona hans, Jósef-
ína Jósepsdóttir.
Frímann var sonur Guðbrands,
b. á Steinhóli, bróður Björns, skip-
stjóra á Karlsstöðum. Guðbrandur
var sonur Jóns, b. á Vestara-Hóli,
Ólafssonar, b. á Hólum í Fljótum,
Jónssonar. Móðir Ólafs var Stein-
unn Ámadóttir, b. á Kaðalstöðum,
Bjömssonar, b. í Nesi, Þórarinsson-
ar. Móðir Bjöms var Kristín Áma-
dóttir, systir Jóns, afa Skúla Magn-
ússonar landfógeta. Móðir Guð-
brands var Soffía Björnsdóttir
(Róðuhóls-Bjöms)rb. á Róðuhóli í
Sléttuhlíð, Bjömssonar. Móðir
Bjöms var Una Guðmundsdóttir,
systir Einars, fööur Baldvins þjóð-
frelsismanns.
Móðir Frímanns var Sveinsína
Sigurðardóttir, b. á Hálsi, Jónsson-
ar, og konu hans, Helgu, systur Jóns
Norðmanns, prests á Barði, langafa
Einars fræðimanns og Þuríðar Páls-
dóttur óperusöngkonu. Helga var
dóttir Jóns, b. á Krakavöllum, Guð-
mundssonar, bróöur Skáld-Rósu.
Móðir Helgu var Margrét, talin
laundóttir Jóns, prests og skálds á
Bægisá, Þorlákssonar.
Jósefína var dóttir Jóseps, b. á
Stóru-Reykjum í Flókadal, Bjöms-
sonar, b. í Hvanndölum, Gíslasonar,
b. í Saurbæ í Siglufirði, Hinriksson-
ar, b. á Auðnum, Gíslasonar. Móðir
Hinriks var Oddný Jónsdóttir, b. á
Skálá, Guðmundssonar, b. á Ysta-
hóli, Jónssonar, bróður Þórdísar,
ömmu Páls Melsteð amtmanns, ætt-
föður Melsteðættarinnar. Móðir
Benedikt G. Frímannsson.
Jóseps var Ambjörg Þorvaldsdóttir,
b. á Frostastöðum, Ásgrímssonar.
Móðir Þorvalds var Guðný Gott-
skálksdóttir, systir Þorvalds, afa
Bertels Thorvaldsen myndhöggv-
ara.
Ágúst Jónsson,
Hrafnistu við Kleppsveg. KeyHjavík.
80ára
Unnur Guðmundsdóttir,
Eyrargötu 9, Súgandafirði.
75ára
Auðbjörg Bj arnadóttir,
Hausthúsum I, Eyjarhreppi.
Ármanía Kristjánsdóttir,
Aðalgötu 56, Ólafsfirðl.
Svava Lútbersdóttir,
Laugavegi 27B, Reykjavík.
Niels Hermannsson,
Háaleitisbraut 101, Reykjavík.
Jón Jóhannsson,
Tjamarbrautð, Suðurfiaröar-
hreppi.
70 ára
Sigurður Þórarinn Oddsson,
Norðurbrún 1, Reykjavík.
Bjarni Hermann Finnbogason,
Vogatungu 57, Kópavogi.
60ára__________________________
Auður ÓÍafsdóttir,
Skaftahlíð 34, Reykjavík.
Hákon Ormsson,
Skriðunesenni, Óspakseyrarhreppi.
MariaBender,
Nesvegi44, Reykjavík.
Halldór Gunnarsson,
Eskihlíð 14, Reykjavík.
Haraldur Jónsson,
Einilundi 4F, Akureyri.
Sigríður Skúladóttir,
Lambeyrum, Laxárdalshreppi.
50 ára
Filippia Jónsdóttir,
MiðkotiII,Dalvík.
Þórhiidur Elíasdóttir,
Hraunbæ70, Reykjavík.
Ragnhildur Theodórsdóttir,
Vallarbraut 3, Akranesi.
Gylfi Gunnarsson,
Strandgötu 62, Neskaupstað.
BirgirGuðjónsson,
Hrísholti 9, Garöabæ.
Guðrún J. Jónsdóttir,
Heiðargerði23, Vatnsleysustrand
arhreppi.
40 ára
Gunnar Viðar Geirsson,
Smárahlíð 10G, Akureyri.
Barclay Thomas Anderson,
Prestbakka 5, Reykjavík.
Oddný B. Guðjónsdóttir,
Holtsgötu 28, Miðneshreppi.
Lifja Krístín Kristinsdóttir,
Múlavegi 17, Seyöisfirði.
Magnús S. Jóhannsson,
Tjamarlundi 8C, Akureyri.
Guðlaugur Sigurðsson,
Kambaseli 51, Reykjavík.
Þorbjörg Svanfríð Gisladóttir,
Austurgötu 37, Hafnarfirði.
Jóney Margrét
Jónsdóttir
Jóney Margrét Jónsdóttir húsmóð-
ir, Hringbraut 104, Keflavík, er ní-
ræðídag.
Jóney fæddist að Hellnum á Snæ-
fellsnesi og ólst upp til níu ára ald-
urs hjá ömmu sinni, Ingileifu Erl-
ingsdóttur. Þá flutti hún til föður
síns að Lýsudal í Staðarsveit þar
sem hún naut almennrar skóla-
göngu.
Jóney giftist 1923 Kristjáni Jóns-
syni, bónda og skósmið að Einars-
lóni, en þar hófu þau búskap og
bjuggu síðan í tuttugu ár. Þau fluttu
síðan að Kirkjubóli í Staðarsveit, þá
til Akraness og loks til Keflavíkur
áriö 1954.
í Keflavík stundaði Kristján skó-
smíðar en hann lést árið 1970. Jóney
starfaði lengst af hjá Kaupfélagi
Suðumesja við afgreiðslustörf.
Jóney og Kristján eignuðust þijár
dætur. Elst var Ingileif Aðalheiður,
sem er látin, þá Friðbjörg Ólína og
yngst Þórheiður Guðbjörg. Þá ólu
þau upp dótturson sinn, Jón Ólafs-
son.
Systkini Jóneyjar em Friðjón,
kaupmaður í Njarðvík, látinn, Sig-
ursæll, matreiðslumeistari í
Reykjavík, og Aöalbjörg, starfs-
Jóney Margrét Jónsdóttir.
stúlka í Garðvangi í Garöi.
Foreldrar Jóneyjar vom Katrín
Friðriksdóttir og Jón Magnússon.
Jóney tekur á móti gestum í Vík-
ingasal á Hótel Loftleiöum á af-
mælisdaginn milli klukkan 17 og 19.