Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1990, Qupperneq 4
4
FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 1990.
Fréttir
Skiptaráðanda sent bréf vegna Tunglsins í Hveragerði:
Naglfastar innréttingar
voru hreinsaðar út
- segir bæjarstjóri og krefst skýringa
„Meginskylda bústjóra, og síðar
skiptastjóra, er náttúrulega að gæta
eignanna. Allt tal um að engir pen-
ingar hafi verið til að gæta hússins
eru alveg út í hött. Það er ekki að sjá
að skemmdir á húsinu hafi verið
kærðar til lögreglu eða beðið um
aðstoð hennar til að upplýsa
skemmdarverkin. Það voru lu-eins-
aðar naglfastar innréttingar úr hús-
inu og varla hafa krakkar verið þar
að verki þó rekja megi eitthvað af
rúðubrötum til þeirra. Við krefjumst
skýringa á hvers vegna eignin fór
svona illa og hver beri ábyrgð á
því,“ sagði Hallgrímur Guðmunds-
son, bæjarstjóri í Hveragerði, í sam-
tah við DV.
Hallgrímur hefur sent Ragnari
Hall skiptaráöanda bréf vegna húss-
ins Tunglsins, Grænumörk lc í
Hveragerði, sem Hveragerðisbær
keypti fyrir eina mifijón á uppboði
6. júlí síðastliðinn. Var húsið mjög
illa farið við söluna. í bréfinu segir
meðal annars:
„í júlí 1988 er William Möller ráö-
inn bústjóri til bráðabirgða og síðan
kosinn skiptastjóri að búinu í nóv-
ember sama ár. Frá þeim tíma hefur
eignin stórlega rýmað og svo virðist
sem verðmæti hafi átölulaust verið
borin úr húsinu. Síðla árs 1989 voru
nokkrar rúður brotnar í húsinu og
síðan var það smám saman lagt í
rúst. Engin viðbrögð eða viðleitini
er merkjanleg af hálfu skiptastjóra
til aö forða húseigninni, og þar með
kröfuhöfum, frá enn frekara tjóni.
Hveragerðisbær hefur látið hreinsa
glerbrot úr húsinu til að forða óvit-
um frá slysum og loka duldu gati á
annarri hæð sem var augljóslega lífs-
hættulegt. Hveragerðisbær, sem var
einn kröfuhafa, óskar hér með eftir
að gefnar verði ítarlegar skýringar á
hvers vegna fasteignin er komin í það
ástand sem meðfylgjandi vottorð'og
ljósmyndir byggingarfufitrúa bæjar-
ins sýna og skiptastjóri hefur ekki
gert athugasemdir við. Bæjarfélagið
mun áskilja sér afian rétt til að krefj-
ast greiðslna vegna hreinsunar húss-
ins og bóta vegna rýmunar eignar-
innar ef ástæða er talin til.“
Hallgrímur sagði að bærinn hefði
nánast keypt húsið nauðugur og tap-
ið vegna gjaldþrots Skemmtigarðsins
hf. næmi milljónum. Námu hald-
bærar kröfur Hveragerðisbæjar í
þrotabúið 6-8 milljónum en ömggar
kröfur um þremur milljónum.
-hlh
Gunnar Eyjólfsson kynnir starf útilífsskóla skáta á blaðamannafundi.
DV-mynd JAK
Skátar 1 Reykjavík:
Starfrækja útilífsskóla
Skátafélögin í Laugarnes-, Heima-,
og Vogahverfi munu standa fyrir
spennandi fimm daga ævintýranám-
skeiðum, útilífsskóla, frá 30. júlí til
27. ágúst. Þar mun bömum í Reykja-
vík gefast kostur á að kynnast hinum
ýmsu hliðum skátastarfs eins og úti-
lífi og leikjum. Fer fræðslan fram
undir handleiðslu reyndra skátafor-
ingja.
Námskeiðin verða fimm talsins,
þrjú sérstaklega ætluð fótluðum, 10
ára og eldri. Hvert námskeið stendur
í fimm daga og er þátttökugjald 4.100
krónur. Öll námskeiðin verða haldin
í samvinnu við Reykjavíkurborg.
Dagskrá fyrir námskeiðin er í gróf-
um dráttum þannig að á fyrsta degi
fer fram kynning skátastarfs, kynn-
ingarleikur. Reykjavíkurhöfn verð-
ur heimsótt og kenndir verða sjó-
mannahnútar. Á öðram degi verður
rútuferð um Reykjanes þar sem Bláa
lónið og Grænavatn verða heimsótt,
útieldar kveiktir, snætt, tínt í blóð-
bergste og hverir skoðaðir. Á þriðja
degi er farið í náttúraskoðun í Öskju-
hlíð. Þá verður slökkvistöðin heim-
sótt og kennt á áttavita. Á íjórða degi
verður farið í útilegu að Úlfljóts-
vatni. Þar verður ýmiss konar útilífs-
kennsla, gestir koma í heimsókn og
haldin verður kvöldvaka. Á fimmta
degi verður ræs-fáni, póstaleikur,
kennt á áttavita og skoðaðar jurtir.
Þá fer fram afhending viðurkenninga
og loks verður haldið heim.
-hlh
Vestmannaeyjar:
Láta smíða nýtt skip á Akureyri
Ómar Garðarason, DV, Vestmannaeyjum:
Þeir kunnu feðgar hér í Eyjum,
Óskar Matthíasson og Siguijón
Óskarsson, ætla að láta smíða fyrir
sig nýtt skip hjá Shppstöðinni á
Akureyri í stað happafleytunnar
Þórannar Sveinsdóttur VE og
gengur Þórann upp í kaupverð
nýja skipsins metin á 85 milljónir
króna.
Þeir feðgar hafa skrifað undir
samning um smíði nýja skipsins.
Það er stórt, um 37 metrar á lengd
og 8 metra breitt, með hefðbundnu
skuttogaralagi, gert fyrir tog- og
netaveiðar og einnig snurvoð. Að-
alvélin er 1425 hestöfl og íbúðir fyr-
ir 14. Áætlað kaupverð 245 mifij.
króna og smíðin á að taka 14 mán-
uði. Byijaö veröur á verkinu í
haust.
„Samþykkt um smíðina frá Fisk-
veiðasjóði hggur fyrir en sjávarút-
vegsráðuneytið á eftir að leggja
blessun sína yfir samninginn. Eg á
ekki von á öðru en það fáist mögl-
unarlaust,“ sagði Sigurjón Óskars-
son. Ekki er enn vitað hvað skipiö
kemur til meö að mælast í tonnum.
Vestmannaeyjar:
Risastór kóral-
grein á
Ómar Garðarsson, DV, Vestmannaeyjum:
„Við vorum að prófa að fara með
hnuna djúpt þama, fóram niður á
600 faðma. Færðum okkur síðan upp
einhvers konar fjali á þessum slóðum
og þar fengum við kóralgreinina,"
sagði Hilmar Sigurbjörnsson á Krist-
björgu VE en á dögunum fengu skip-
veijar á bátnum risastóra kóralgrein
á lúðuhnu. Það var á miðunum suð-
austur af Vestmannaeyjum á um 450
faðma dýpi. Áhöfnin færði Náttúru-
gripasafninu í Eyjum - fiskasafninu
- greinina.
„Ég hef aldrei séð annað eins sam-
ansafn af kynjafiskum og var á þess-
um slóðum. Við fengum til að mynda
ígulker sem var á stærð við egg en
með 10 sentímetra langa brodda. Þá
var þar rottufiskur alsettur göddum,
þijár stórar skötur sem vora guheit-
ar og svo hnt í þeim að það rifnaði
út úr þegar goggað var í þær. Fiskur-
inn í þeim var að sjá eins og í skötu-
sel - glær og fingerður. Þetta var
ekki hkt neinum venjulegum sköt-
um,“ sagði Hfimar. Hins vegar var
htið um lúðu. Kristbjörg VE fékk
aðeins eina smálúðu þarna.
Kóralgreinin, sem komið var með
lúðulínu
Kóralgreinin risastóra sem fiska-
safninu í Eyjum barst.
DV-mynd Ómar
í safnið, var svo stór að ekki var
hægt að koma henni í nein ker þar.
Var þá brugðið á það ráð að reyna
að þurrka hana. Hún er í þurrki
núna og verður síðan sett upp í safn-
inu.
Uppgröfturinn á Gjögri:
Eins og dökk randaterta
Regína Thorarensen, DV, Gjögri:
Byijað var að grafa í Akurvík og
Bæjarhól hér á Gjögri 24. júlí og dag-
inn eftir skrapp ég upp á hóhnn þar
sem fomleifafræðingamir era búnir
að grafa stóra holu. Mér fundust ht-
irnir í hólnum minna mig á dökka
randatertu. Fyrst þunnt lag af mold.
Þá kom öskulag og þar næst graslag,
- heylag.
Sex vinna við uppgröftinn á báöum
stööunum en hver niðurstaða þess-
ara rannsókna verður leiðir tíminn
í ljós. Hálfpartinn vorkenni ég fólk-
inu sem vinnur við þetta, - þennan
beinauppgröft, þrátt fyrir glaðasól-
skin og gott veður. Þetta var strax
orðið mannhæðarhátt og í hólnum
er gömul súrheystóft.
Skátar tll ferðamanna:
Slysalausa verslunarmannahelgi
Bandalag íslenskra skáta minnir
ferðamenn á einkunnarorð sín,
„ávallt viðbúinn", í tilefni þess að
mesti umferðartími ársins er að fara
í hönd. Gangast skátar fyrir lím-
merkjasölu um verslunarmanna-
helgina og er markmið hennar að
hvetja ökumenn tfi að aka gætilega
í umferðinni og stuðla þannig að
slysalausri verslunarmannahelgi. Á
límmerkjunum stendur: Ávallt við-
búinn... og kemst hefil heim. Kosta
þau 300 krónur stykkið. Verða merk-
in seld við þjónustumiðstöðvar og
bensínstöövar um land allt og einnig,
verðurgengiðíhús. -hlh