Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1990, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1990, Blaðsíða 15
FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 1990. 15 Klúður í stóriðjumálum Það hefur vakið furðu margra hugsandi manna hvernig ríkis- stjórnin með forsætisráðherrann og iðnaðarráðherrann í broddi fylkingar hafa haldið á stóriðju- málum á undanfomum misserum. Með ótímabærum og illa grunduð- um yfirlýsingum um staðsetningu Atlantalálversins hafa þeir veikt verulega samningsstöðu íslend- inga gagnvart Atlantalhópnum og sundrað þjóðinni í þýðingarmiklu hagsmunamáh. Nú blasir við að fljótfærnislegar fullyrðingar ráð- herranna kunna að kosta þjóðina nokkra milljarða þegar upp verður staðið frá samningaborðinu. Ný vinnubrögð I árslok 1987 lauk starfshópur á vegum iðnaðarráðuneytisins gerð forathugana á hagkvæmni nýs ál- vers viö Straumsvík og verkefnið fékk nafnið Atlantalverkefnið. Staðarvahð byggðist á því að áhtið var aö fjárfesting sparaðist í aö- stöðu sem þegar var fyrir hendi. í því sambandi var nefnt til sögunn- ar t.d. hafnaraðstaða, súrálsupp- skipunartæki og geymslutankar, rannsóknaraðstaða, viðhaldsað- staöa, hluti af steypuskála o.fl. Forráðamenn Alusuisse buðu upp á þessa samnýtingarmöguleika. Mjög hörð samkeppni ríkti mhh landa um uppbyggingu áhðnaðar og öhu máh skipti þess vegna að velja ódýrustu staðsetninguna hér á landi. í því sambandi má nefna Venesúela, en þar hafa fram- kvæmdir tafist, og Kanada þar sem nú þegar hafa tekist samningar um tvö ný álver og tvöfoldun á fram- leiðslu tveggja annarra. Með Atlantalverkefninu urðu þáttaskh í vinnubrögöum tU að afla samstarfsaðUa í stóriðjumálum. Ný vinnubrögð skUuðu árangri á tíl- tölulega skömmum tíma. íslensk KjaUaiinn Friðrik Sophusson alþingismaður stjómvöld ákváðu við hvaða aðUa yrði samið og hvers konar verk- smiðju þau vUdu. Kynning á Atl- antalverkefninu fór fram fyrri hluta ársins 1988 og í júlí var undir- ritaður samningur um hagkvæmn- isathugun milh fjögurra álfyrir- tækja í Evrópu og íslenskra stjóm- valda. Iðnaðarráðuneytið og Landsvirkjun stofnuðu sérstaka markaðsskrifstofu tíl að staðfesta áhuga stjórnvalda á markvissri uppbygingu orkufreks iðnaðar. Togstreita um staðsetningu Óþarfi er að rekja sögu málsins í einstökum atriðum hér. Þegar lagt var af stað með þetta verkefni var htið á álverið sem landsmál en ekki byggðamál, enda stóð vahð um at- vinnutækifæri fyrir íslendinga eða hvort álfyrirtækin byggðu annars staðar og nýttu erlenda orku og vinnuafl. Tvö þeirra fyrirtækja, sem upphaflega tóku þátt í Atlant- alhópnum, heltust úr lestinni á síð- asta ári en í stað þeirra bættist bandaríska stórfyrirtækið Alumax í hópinn. Alumax er eitt þeirra fyr- irtækja sem um árabil hefur sýnt áhuga á samstarfi við íslendinga í stóriðjumálum. Eftir að Alumax gerðist aöili að viðræðunum varð Ijóst að áhuginn beindist að ann- arri staðsetningu en Straumsvík þótt fyrir lægi að það væri ódýrasti kosturinn. Ástæðan var m.a. sú að iðnaðarráðherra hafði eindregið lagt til að ný staðsetning yrði valin. í þeirri nýju stöðu, sem komin var upp, hlaut það að vera eðhleg krafa íslensku samningsaðilanna að viðbótarkostnaðurinn vegna breyttrar staðsetningar yrði greiddur af þeim sem ættu og rækju álverið. í stað þess að halda þannig á málunum og bíða niður- stöðu Atlantalhópsins um stað- arvalið kusu einstakir ráðherrar að sýna á sphin, sem þeir höfðu á hendi, með því að bjóða skattívhn- anir og lægra orkuverð ef nýju ál- veri yrði vahnn staður utan suð- vesturhornsins. Nú er svo komið að viðsemjendur okkar telja sig geta fengið nokkra milljarða í með- gjöf ef staðarvahð verður að ósk ráðherranna. Þessar umræður, sem einstakir ráðherrar bera fuha ábyrgð á að hafa hleypt af stað, urðu til þess að forsvarsmenn einstakra byggð- arlaga og þingmenn nokkurra kjör- dæma hafa hafið kapphlaup um aö laða til sín álverið. Slík viðbrögð eru fuhkomlega eðlheg eftir að ein- stakir ráðherrar hafa gefið í skyn að ríkisstjómin sé thbúin th að greiða verulegar upphæðir í því skyni að hafa áhrif á staðarvahð. Frumhlaup og klúður Frumhlaup ráðherranna hefur veikt samningsstöðu íslendinga og ýtt undir togstreitu mhli byggðar- laga og kjördæma. Það stóra álver, sem nú er verið að semja um, fer aðeins á einn stað á landinu og verður því engin ahs- heijarlausn á byggðaþróunar- vanda þjóðarinnar. Aðrir staðir verða jafnilla settir og áður. Ef rík- isstjórnin er thbúin th að greiða nokkra mhljarða fyrir breytta stað- setningu hlýtur sú spurning að vakna hvort ekki sé hehladrýgra að nota fjármagnið th verkefna sem komi fleiri byggðarlögum til góða. Ljóst er að frumhlaup ráðherranna getur klúðrað þessu stóra hags- munamáh, sem margir binda vonir við, þegar samdráttur í lífskjörum og atvinnuleysi blasa við. Fleiri tækifæri Aðalatriðið er að íslendingar fái sem mest í sinn hlut í samstarfi við rekstraraöila fyrirhugaðs álvers. Einnig er nauðsynlegt að áfram verði haldið á þeirri braut að bæta lífskjör þjóðarinnar með skyn- samlegri nýtingu auðlinda lands- ins. Möguleikar okkar th nýsköp- unar á ýmsum sviðum - ekki að- eins í stóriðju -felast m.a. í því að erlendir samstarfsaðilar finni aö þeir geti átt árangursríka sam- vinnu við okkur. Frumhlaup, klúð- ur og innbyrðis togstreita mega ekki sphla fyrir árangri. Fleiri tækifæri koma í kjölfarið ef vel er að málum staðið. Friðrik Sophusson „Frumhlaup ráöherranna hefur veikt samningsstöðu Islendinga og ýtt undir togstreitu milli byggðarlaga og kjör- dæma.“ Arnarflug og ráðherrann Miðað við röggsemi fjármálaráðherra í málefnum bókaútgáfunnar Svart á hvítu ætti honum að vera í lófa lagið að lána Arnarflugi hálfan mill- jarð gegn veði í eldhúskolli á kaffistofu starfsfólks félagsins, segir grein- arhöfundur. Á aðalfundi Arnarflugs fyrir skömmu leyfði þáverandi stjómar- formaður félagsins sér að benda á að fjármálaráðherra hefði látið undir höfuð leggjast að framfylgja samþykkt ríkisstjórnarinnar varð- andi vissa fyrirgreiðslu til handa Arnarflugi. Þetta hefði valdið Arn- arflugi gífurlegu tjóni sem yrði að skrifast á óskhjardega tregðu fjár- málaráðherra til að láta fara saman orð og efndir. Ólafur Ragnar Grímsson íjár- málaráðherra tók þessi ummæh óstinnt upp og boðaði th blaða- mannafundar af þessu thefni. Kom þar fram að hann hefði ekki heim- hd th að framkvæma ákvarðanir ríkisstjómarinnar í þessu máli. Auk þess hefði Herði Einarssyni láðst að lúta ráðherra í auömýkt heldur þvert á móti gerst svo ósvíf- inn að senda íjármálaráðherra bréf og það hefði veriöheldur snubbótt. Af tilhtssemi við1 Arnarflug vhdi hann þó ekki leggja þetta bréf fram á blaðamannafundinum. Næst gerist það að Hörður Ein- arsson gerist svo djarfur að senda forsætisráðherra bréf þar sem hann fer fram á að málefni Amar- flugs verði tekin úr höndum fiár- málaráðherra og færir fram sterk rök máli sínu th stuðnings. Stein- grímur Hermannsson hummaði og æjaði en sagðist ekki hafa tíma til að lesa bréf Harðar th enda. Er það í sjálfu sér skhjanlegt því forsætis- ráðherra var í þann mund að stíga upp í flugvél á leið th Skotlands þar sem hann kynnir sér nú geitarækt. Það út af fyrir sig er nóg th þess að loðdýra- og fiskeldisbændur landsins fylhst hrylhngi. Hvítt og svart Ég ætla ekki að rekja hér frekar KjaUaiirm Sæmundur Guðvinsson blaðamaður umræðuna um Arnarflug og fiár- málaráðherra því hún er öllum kunn úr fiölmiðlum. En afskipti fiármálaráðherra af málefnum Ámarflugs annars vegar og bóka- útgáfunnar Svart á hvítu hins veg- ar eru eins og hvítt og svart. Út- gáfufyrirtækið sá ekki ástæðu th að standa skil á söluskatti og var svo komið að skuldin nam tugum mhljóna króna. Fjármálaráðherra er æðsti yfirmaður mkkunardehd- ar söluskatts og var þekktur fyrir vasklega framgöngu í innheimtu þegar tugum fyrirtækja var lokað ef þau höfðu ekki staðið skil á umræddum skatti. En ráðherrann, sem ekki telur sig hafa heimhd th að framkvæma samþykktir ríkis- stjórnarinnar varðandi málefni Amarflugs, sá bara hvítt en ekkert svart við skuld umræddrar bóka- útgáfu. Því ákvað hann í snarheit- um að þessi tugmhljóna króna söluskattsskuld skyldi greidd með skuldabréfum th langs tíma gegn veði í framtíðarhugmyndum eig- enda útgáfunnar. Munu þær hug- myndir hafa verið nokkurra þús- unda króna virði. Þessi ákvörðun vakti óneitanlega nokkra athygli, ekki síst vegna þess að um svipað leyti ákvað hann að feha niður mhljónaskuldir blaða- útgáfu framsóknarmanna þar sem enginn gróði hefði orðið af þeim loftköstulum. Þess má geta svona í leiðinni, þó að það komi þessum málum að sjálfsögðu ekkert við, að núverandi upplýsingafuhtrúi fiár- málaráðherra sat í stjóm bókaút- gáfunnar Svart á hvítu. En ég nefni þessi dæmi aðeins th að sýna fram á að þó að Ólafur Ragnar hafi dreg- ið lappirnar í Amarflugsmálinu þá á hann það th að sýna röggsemi, hug og þor og er því ekki alls varn- að. Svo megum við ekki gleyma því að menn hafa misjafnar skoðanir á því hvort Amarflug skuh lifa eða deyja en ekki ætla ég mér að ráða í það hvers vegna fiármálaráðherra er svo umhugað um að félagið hvorki lifi né deyi. En miðað við fyrrnefnda röggsemi ætti ráðherra að vera í lófa lagið að lána Amar- flugi hálfan mhljarð gegn veði í eld- húskolh á kaffistofu starfsfólks fé- lagsins. Þjóðviljanum hótað I fyrra kom út bókin Útgangan - bréf th þjóðar eftir Úlfar Þormóðs- son sem lengi var innsti koppur í búri Alþýðubandalags og Þjóðvhj- ans. Þar ræðir hann meðal annars um átök flokksarma um Þjóövilj- ann og fiárhagserfiðleika blaðsins. Á einum stað segir orðrétt: (Birt án leyfis höfundar) „Ólafur Ragn- ar, orðinn formaður flokksins og fiármálaráðherra lýðveldisins, vissi aht um þetta og notfærði sér hina bágu fiárhagsstöðu blaðsins og sagði umbúðalaust: Verði ekki fariö að mínum kröfum í þessu máh, og ritstjórinn settur á, mun ég formlega slíta tengshn á milli blaðs og flokks og beita aðstöðu minni sem fiármálaráðherra til þess að knésetja blaðið.“ Ekki ætla ég að ræða frekar um innanflokkserjur Alþýðubanda- lagsins. En þegar ég var að velta fyrir mér samskiptum forráða- manna Amarflugs og fiármálaráð- herra barst mér í hendur eintak af DV þann 23. júlí. Spakmæh dags- ins voru höfð eftir Voltaire og hljóða svo: „Eru stjórnmál annað en hstin sú að kunna að ljúga á réttum tíma?“ Sæmundur Guðvinsson „En afskipti íj ármálaráðherra af mál- efnum Arnarflugs annars vegar og bókaútgáfunnar Svart á hvítu hins veg- ar eru eins og hvítt og svart.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.