Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1990, Page 16
16
FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 1990.
íþróttir
FH-ingar af
hættusvæðinu
- eftir sigur á Stjömunni í Garðabæ í gærkvöldi
„Viö erum mjög ánægöir með sig-
urinn og viö þurftum svo sannarlega
á þremur stígum að halda. Við erum
komnir upp í miðja deild og nú er
áhyggjulaust frí framundan,“ sagði
Halldór Halldórsson, markvörður og
fyrirhði FH-inga, eftir að Hafnar-
fjarðarliðið hafði sigrað nágranna
sína úr Stjömunni, 0-1, í Garðabæn-
um í gærkvöldi. FH-ingar eru þar
með komnir úr fallbaráttimni, alla
vega í bili, en sigur þeirra í gær-
kvöldi var mjög sanngjam þegar á
heildina er litið.
Leikurinn var nokkuð íjörugur og
opinn og bæði lið fengu góð martæki-
færi í leiknum. Stjörnumenn áttu
fyrsta hættulega tækifærið þegar Þór
Omar Jónsson þramaði í þverslánan
á marki FH-inga. Hinum megin small
boltínn í slá Stjömumarksins eftir
að Jón Ottí jónsson hafði varið vel
skot Pálma Jónssonar. í síðari hálf-
leik vom FH-ingar mun sterkari og
fengu aragrúa marktækifæra. Þeim
tókst aðeins að nýta eitt þeirra og það
gerði markahrókurinn Hörður
Magnússon sem skoraði þarna sitt
8. mark í sumar. Hörður lék laglega
á vamarmenn Stjömunnar inn í
vítateignum og skoraði með góðu
skoti sem Jón Ottí réð ekki við. Pálmi
Jónsson og Ólafur Kristjánsson feng-
u báðir góð marktækifæri til að bæta
mörkum við fyrir Hafnfirðinga og
einnig átti Andri Marteinsson
hörkuskot sem Jón Otti varði vel.
Stjömumenn fengu fá tækifæri til að
jafna metín en þó munaði htlu þegar
Ingólfur Ingólfsson komst óvænt í
færi en Halldór lokaði markinu vel.
FH-ingar léku einn sinn besta leik
í sumar. Andri og Hörður vom mjög
sterkir og vömin var geysitraust.
Stjömuliðið olli vonbrigðum í þess-
um leik og það var aðeins Jón Otti í
markinu sem eitthvað sýndi.
Dómari var Bragi Bergmann og
hafði hann mjög örugg tök á leikn-
um.
-RR
í 1. deild svissnesku
knattspyraunnar hófst að loknu
sumarleyfx i fyrrakvöld, Grass-
hopper, deildar- og bikarmeistarar
frá siöasta keppnistimabili, hófu
keppnistímabilið illa og töpuðu fyr-
ir nýliðunum f dcildinni, liði FC
Zúricháheimavellisínum, 1-2. Sig-
urður Grétarsson, sem gekk til Iiös
við Grasshopper eftir lok síðasta
keppnistímabils, gat ekki leikið
meö sinu nýja félagi.
„Ég var skorinn i hné fyrir tveim-
ur vikum og reikna með að verða
klár i slaginn eftir um það bil 3
vikur. Það var agalegt aö tapa þess-
um leik. Við vorum með boltann
meiri hluta leiksins og misnotuð-
um mörg góö marktækifæri í ieikn-
un. Urslit leika í deildinni urðu
þamúg:
Grasshopper - FC Zúrich..........1-2
Aarau - Wettingen................1-0
Sion—Luzern...............................1—0
Lausanne - Servette..............2-0
Lugano - St. Gallen..............0-0
Yong Boys - Xamax...............l-l
Afspyrnulélegt
- þegar Framarar unnu Þórsara, 1-0
Leikur Fram og Þórs á Laugar-
dalsvellinum í gærkvöldi var einn sá
lélegasti leikur sem sést hefur í 1.
deild. Framarar sigraðu í leiknum
með einu marki gegn engu og em
áfram í toppslagnum í deildinni en
Þýrsarar era sem fyrr á botninum
óg með sama áframhaldi er fátt sem
getur bjargað hðinu frá falh.
Sigurmark Framara og eina mark
leiksins kom á 14. mínútu. Jón Erling
Ragnarsson skoraði þá með skoti frá
markteig sem Friðrik Friðriksson,
markvörður Þórsara, hefði átt að
veija. Þegar rúmlega hálftími var hð-
inn átti Guðmundur Steinsson góðan
skaha í stöngina á marki Þórsara og
era þá marktækifærin upptalin.
Síðari hálfleikur var afspymu lé-
legur en Framarar höfðu yfirburði á
vellinum og héldu boltanum vel.
Hins vegar geröist ekkert í leik hðs-
ins. Þórsarar héngu lengst af í vöm
en komu framar á völhnn síðustu 10
mínúturnar. Þeir sóttu nokkuð stíft
en uppskáru engin færi.
Framarar verða að gera betur en í
þessum leik ef þeir ætla að beijast
um titihnn. Baldur Bjamason var
langbesti maður hðsins í þessum leik
og sá eini sem lék yfir meðallagi.
Hjá Þórsuram var Friðrik mark-
vörður skástur í annars ákaflega lé-
legu höi.
-SK
Landsmótið í golfi:
Barist í öllum flokkum
Gylfi Kristjánssan, DV, Akureyii
Keppendur í 2. og 3. flokki á lands-
mótinu í golfi „slógu um sig“ í 14
klukkustundir á Jaðarsvelh á Akur-
eyri í gær en þá var fyrsti dagur
mótsins. Ekki var annað að sjá og
heyra en ahir væra ánægðir, fram-
kvæmd gekk vel og veður var mjög
ákjósanlegt.
I 2. flokki kvenna er Magdalena S.
Þórisdóttir úr Golfklúbbi Suðumesja
með forastu eftir 18 holur, lék á 97
höggum. Karóhna Guömundsdóttir,
Golfklúbbi Akureyrar, lék á 101
höggi og síðan munar ekki nema 4
höggum á þeim sem era í 8 næstu
sætum. Þama verður því hugsanlega
hörkukeppni
í 3. flokki karla era tveir jafnir,
Böðvar Bergsson, Golfklúbbi Reykja-
víkur, og Jón Sæmundsson, Golf-
klúbbi Akureyrar, á 84 höggum, og
Leó Ragnarsson, Golfklúbbnum
Leyni, þriðji á 85 höggum.
Maður dagsins var þó Jón Ólafur
Jónsson, gamh „markvarðahrellir-
inn“ úr knattspymuhði ÍBK hér á
árum áður. Hann lék á 75 höggum 1
gær eða 4 höggum yfir pari vaharins
og er þetta „skor“ óvenjulegt í 2.
flokki. I næstu sætum era þrír menn
á 78 höggum, Haraldur Júhusson,
GA, Jónas H. Guðmundsson, GR, og
Gísh Torfason, GS, sem er þekktur
úr knattspymunni eins og Jón Ólaf-
ur og gott ef þeir léku ekki saman
með ÍBK lengi vel.
• Hilmar Gislason, bæjarstjóri á Akureyri, slær upphafshöggið á íslands-
meistaramótinu í golfi. DV-mynd gk
• Barist á hálum vellinum í Vestmannaeyjum. Leiknum lauk með 2-2 jafntefli og n
eftir að flautað var til leiksloka.
1. deild/Hörpudeild
Valur.......11 8 1 2 19-11 25
KR..........12 7 2 3 18-12 23
Fram........12 7 1 4 23-11 22
ÍBV.........11 5 4 2 18-19 19
FH..........12 5 1 6 16-18 16
Víkingur....11 3 6 2 12-11 15
Stjarnan....12 4 2 6 14-17 14
KA..........11 3 17 12-15 10
ÍA...........11 2 2 7 12-21 8
Þór..........11 2 2 7 6-16 8
Golfstúfar
Bergur Guðnason, fyrrum
handboltakappi úr Val, er meðal
keppenda í 2. flokki á landsmót-
inu en sonur hans, Böðvar, í 3.
flokki. Bergur hafði á orði eftir
upphafshögg stráksins að senni-
lega væri réttast að þeir hefðu
flokkaskipti, strákurinn væri
orðinn betri. „Dagskipunin til
hans er að sigra í 3. flokki," sagði
Bergur. Böðvar lék svo á 84 högg-
um og er í 1.-2. sæti en Bergur
var 86 höggum í sínum flokki.
„Þetta vargott“
„Þetta var bara gott,“ sagði
Hilmar Gíslason, bæjarverkstjóri
á Akureyri, en hann sló upphafs-
högg landsmótsins að þessu
sinni. „Marri“, eins og Hilmar er
jafnan kallaður, var léttur á sér
á 1. teig en því fylgir jafnan nokk-
ur pressa að slá upphafshögg
landsmóts.
Keppa í öllu
Strákamir í Nesklúbbnum á
landsmótinu hafa gaman af því
að keppa og era með ótal keppnir
og veðmál í gangi. Þeir hafa því
margt að ræða þegar þeir hafa
lokið leik og Hafnfirðingur nokk-
ur, sem heyrði á tal þeirra, spurði
hvort þeir kepptu ekki hka í því
hver væri fljótastur aö borða. Svo
mun ekki vera en spumingin
kom jú frá Hafnfirðingi.
Fyrstu gullverðlaunln
sem Carl Lewis vinnur
•Carl Lewis vann th sinna fyrstu gull-
verðlauna á friðarfeikunum í Seattle þeg-
ar hann sigraði í langstökkskeppninni
með því að stökkva 8,38 metra. Mike Pow-
ell frá Bandaríkjunum, sem hefur stokkið
lengst ahra á þessu ári, 8,66 metra, varð í
öðru sæti með 8,34 raetra og Sovétmaöur-
inn Robert Emmiyan varð í þriðja sæti
með 8,23 metra. Lewis hefur verið ósigr-
andi í langstökki frá því árið 1981 og var
þetta 64. sigur lians í röð í greininni.
Johnson vann tugþrautina
•Bandaríski tugþrautarmeistarinn Dave
Johnson tryggði sér sigur í tugþrautar-
keppninni meö því aö sigra í síöustu grein-
inni, 1500 metra hlaupi. Johnson hlaut
samtals 8.403 stig. Næstur á eftir Johnson
kom félagi hans og landi, Dan O’Brien,
með 8.358 stig en hann leiddi keppnina
fram að síðustu greininni. Þriðji varö síð-
an Sovétmaðurinn Mikhail Medved raeð
8.330 stig.
Tvöfaldursigur íkúlu
•Helmsraethafinn í kúluvarpi, Randy
Bames frá Bpdaríkjunum, sigraði í kúlu-
varpi með því að kasta 21,44 metra og það
strax í fyrstu umferð. Hann var þó nokkuð
langt frá heimsmeti sínu sem hann setti í
maí síðasthðnum en þá kastaði hann 23,12
metra. Landi hans Jim Doehring varö í
Öðru sæti með 21,22 metra og Sovétmaður-
inn Vyacheslav Lykho í þriöja sæti raeð
20,70 raetra.
Sovétmenn töpuöu
Liö Puerto Rico kom á óvart í fyrrinótt
þegar höiö vann sigur á Sovétmönnum,
99-84, í körfuknattleikskeppninni en áður
höföu Sovétmenn borið sigurorð af Banda-
rikjamönnum. í sama riðh sigraði hð
Bandaríkjanna hð ítahu með miklum mun
eða 113-76. í hinum riölinum sigraði Bras-
ilía hð Ástraliu, 101-94, og Júgóslavar
unnu Spanverja, 81-67. Bandaríkin, Sovét-
ríkin, Júgóslavía og Brasilía leika til úr-
shtá um sigur í körfuknattleikskeppninni.