Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1990, Qupperneq 9
rwöi uiJ/\uun iu. auuoa i»yu. 9
DV Útlönd
Þann 7. ágúst sendi Bush Bandaríkjaforseti hermenn og herskip til Persaflóa til að verja Saudi-Arabíu og önnur
ríki við flóann fyrir ágangi Saddams Hussein íraksforseta. Símamynd Reuter
Vaxandi spenna við Persaflóa:
Olíu- og landadeilur
- hatrammur ágreiningur um yfírráðarétt yfir tveimur eyjum
Irakar lýstu því yfir á miðvikudag
að þeir hefðu innlimað hið smáa og
fámenna nágrannaríki sitt í suðri,
Kuwait. Þessi yfirlýsing kemur í
kjöldar munnlegs ágreinings fulltrúa
ríkjanna, ágreinings sem snýst um
olíu, land og peninga.
Vaidagræðgi
Margir fréttaskýrendur segja að
Hussein stefni að yfirráðum í araba-
heiminum og að atburðir síðustu
daga sýni enn frekar aö hann svífist
einskis í þeirri baráttu sinni. íraks-
forseti hefur yfir að ráða milljón
manna her, vel vopnum búinn, þó
margir fréttaskýrendur og hernað-
arsérfræðingar telji að herstyrkur
hans sé ofmetinn. Auk þess hafa ír-
akar yfir að ráða efnavopnum og
hafa.sýnt að þeir hika ekki viö að
beita þeim.
Hussein telur sig ósigranndi, segja
sumir fréttaskýrendur. Og að auki
er hann nú í þeirri aðstöðu að erfitt
er fyrir hann að taka skref aftur á
bak án þess að missa virðingu. Hann
hefur reyndar lýst því yfir að hann
vilji frekar láta lífið en gefa eftir í
þessari stöðu.
Olíudeilur
Helsta umkvörtunarefni Husseins
gegn Kuwait er meint offramleiðsla
Kuwait umfram kvóta OPEC, Sam-
taka olíuútflutningsríkja. írak reiðir
sig mikið á olíuútflutning og koma
ríflega 90 prósent útflutningstekna
landsins frá ohuútflutningi. Því kem-
ur sér illa fyrir íraska efnahaginn
lækki heimsmarkaðsverð á olíu en
það er óhjákvæmilegt aukist fram-
boð mikið.
En það er fleira en olíuverð og
Mikii mótmæli hafa veriö víða um heim vegna innrásar íraka i Kuwait. Hér
má sjá einn mótmælanda hengja upp brúöu af Hussein íraksforseta.
Símamynd Reuter
framleiðsla sem angra Hussein varð-
andi nágrannaríkið Kuwait; landa-
deilur hggja einnig að baki atburðum
síðustu daga. írakar segja ráðamenn
í Kuwait hafa fært til landamæri
Kuwait, fjóra kílómetra norður á
bóginn, eftir að Persaflóastríðið
(1980-1988) milh íraks og írans hófst.
Eiga Kuwaitmenn að hafa staðið að
þessu th að komast í Rimaha-ohu-
svæðin við landamærin. íraksforseti
segir nágrannana hafa unnið olíu af
svæðinu og krefst skaðabóta upp á
rúmlega tvo mhljarða dollara.
Stríðið um eyjarnar
En auk landamæranna agnúast
Hussein mjög út í eyjamar Bubiya
og Warbah úti fyrir strönd Kuwait.
Dehan um eyjarnar hefur staðið
lengi milli þessara tveggja ríkja.
Strandlengja íraks er afar stutt og
fyrir stórum hluta hennar stendur
Bubiyaeyja þeirra Kuwaitmanna.
Þessu unir Hussein hla og vhl fá
yfirráð yfir eyjunni með því að leigja
hana eða að Kuwait láti hana írökum
í hendur. Þessu hafna yfirvöld í
Kuwait.
Gösta Tompuri, sem starfar viö
friðar- og þróunarrannsóknir í
Gautaborg, telur að með innrásinni
hafi Hussein reynt að styrkja stöðu
sína fyrir hugsanlegar samningaviö-
ræður um eyjamar. í stríðinu við
írani náöu írakar aldrei yfirhöndinni
og þar af leiðandi aldrei góðri samn-
ingsstöðu. Nú ætlar hann að hafa
vaöið fyrir neðan sig, lætur sér ekki
nægja að hertaka einungis það land-
svæði sem hann hefur augastað á
heldur allt landið og tryggir sér
þannig styrka samningsstöðu.
Tompuri kveðst telja að Hussein
vhji síst af öllu stríð við Bandaríkin.
Hann telur að írakar muni draga
herhð sitt smám saman til baka gegn
því aö efnahagsþvingunum verði af-
létt. Hann telur einnig aö samninga-
viðræður og málamiðlun komi th
sem geti leitt til þess að Kuwait fall-
ist á yfirráðakröfur Husseins yfir
eyjunum tveimur.
Hitnar í kolunum
Um miðjan júhmánuð síðasthðinn
fór heldur betur að draga th tíðinda
við Persaflóa. í fyrstu samþykkti ír-
aksforseti aö senda fuhtrúa th við-
ræðna við fulltrúa Kuwait en þær
viðræður fóru út um þúfur.
Spenna fór vaxandi með degi hverj-
um og hér á síðunni er yfirlit yfir
helstu atburði æ síðan Saddam Huss-
ein íraksforseti sakaði nágranna sína
um að reka rýting í bak íraka og þar
til í gær er bandarískir hermenn
streymdu th Saudi-Arabíu, reiðu-
búnir th að verja landið.
Heimildir m.a. Reuter, Time og TT
Atburðarásin
17. júlí: Saddam Hussein íraks-
forseti sakar Kuwait og Sameinuðu
arabísku furstadæmin um að reka
„eitraðan rýting í bak íraka“ með
því að framleiða olíu umfram
kvóta.
18. júlí: Tareq Aziz, utanríkisráð-
herra íraks, skýrir aðhdarríkjum
Arababandalagsins frá því að
Kuv;ait hafi stohð oliu að verð-
mæti 2,5 mhljónir dollara úr olíu-
svæðum á umdehdum landamær-
um ríkjanna. Olíuverð byrjar að
hækka og má rekja óvissu á verð-
bréfamörkuðum til vaxandi
spennu við Persailóa.
19. júli: írak sakar Kuwait um að
vinna ohu á irösku landsvæöi.
24. júh: írakar senda þúsundir her-
manna th landamæranna við
Kuwait, Mubarak Egyptalands-
forseti fer til viöræðna við íraska
ráðamenn, auk yfirvalda í Kuwait
og Saudi-Arabiu. Olíuverð hækkar
enn.
25. júlí: írakar krefja stjórnvöld í
Kuwait um 2,5 mihjarða dollara
skaðabætur. Mubarak Egypta-
landsforseti segir að fuhtrúar
eyða öhu lifi í Kuwait grípi önnur
lönd inn í atburöina i Kuwait
Öryggisráð Sameinuðu þjóöanna
fordæmir innrásina og eigur íraks
og Kuwait víðs vegar um heim eru
frystar. Sovésk stjómvöld stöðva
vopnasendingar til íraks og í sam-
eiginlegri yfirlýsingu hvetja utan-
ríkisráðherrar risaveldanna ír-
ösku sljómina th að kalla hermenn
sína heim. Heimsmarkaðsverð á
oliu rýkur upp um fimmtán pró-
sent.
3. ágúst: írakar flytja hermenn
nærri landamærum Saudi-Arabíu
og Kuwait og enn er barist á götum
höfuöborgar Kuwait.
4. ágúst: Fregnir berast af því að
íraskir hermenn hafi komið sér
fyrir á „hlutalausa svæðinu'1 á
landamæmm Saudi-Arabíu og ír-
aks. Fyrirhugaður leiðtogafundur
arabaleiðtoga fer út um þúfur. ír-
akar handtaka 35 breska hermenn
og færa þá til Bagdad. íraksstjórn
varar erlend ríki enn á ný við íhlut-
un í atburðina við Persaflóa og lýs-
ir því yfir aö hún hafi engin áfonn
uppi um að ráðast inn í Saudi-
Arabíu.
5. ágúst: Bandarísk yfirvöld segjast
ekki sjá nein merki þess að írakar
Saddam Hussein, forseti Iraks.
deiluaðila muni funda í Saudi-
Arabíu. Arabískir stjórnarerind-
rekar segja að írösk yfirvöld hafi
heitið Mubarak því að ráöast ekki
inn í Kuwait.
27. júlí: Aðhdarríki OPEC, Samtaka
ohuútflutningsríkja, samþykkja á
leiðtogafundi að hækka heims-
markaðsverð á olíu upp i 21 doilar
tunnuna. írak varar Kuwait við og
krefst þess aö gengið veröi að „lög-
mætum kröfum“ þeirra.
31. júlí: Fuhtrúar íraks og Kuwait
hittast í Jedda í Saudi-Arabíu. Fjöl-
miðlar skýra frá því aö íraksstjórn
hafi nú sent alls eitt hundrað þús-
und hermenn til landamæra íraks
við Kuwait.
1. ógúst: Viðræöur fulltrúa íraks
og Kuwait í Jedda sigla í strand.
Fulltrúar íraks segja þaö vera
vegna þess að Kuwait sé ekki al-
vara en fuhtrúar Kuwait segja
ástæðuna vera þá að þeir séu ekki
reiðubúnir að gefa eftir lands væði,
2. ágúst; Klukkan tvö að staðartíma
aðfaranótt fimmtudags 2. ágúst
ráðast íraskar- hersveitir inn í
Kuwait. Á örfáum klukkustundum
hafa írakar náö landinu að mestu
á sitt vald en fregnir berast af and-
spyrnu íbúa Kuwait og átökum á
götum Kuwait-borgar. Stjórnvöld í
Irak segjast hafa sent inn hermenn
eftir að ungir Kuwait-búar hafi far-
ið fram á aðstoð. írakar vara erlend
ríki viö íhlutun og segjast munu
Símamynd Reuter
séu að flytja herafla sinn í Kuwait
á brott þrátt fyrir loforð þess efnis.
6. ágúst: írakar segja að refsiað-
geröir kunni að tefia fyrir brott-
flutningi íraskra hermanna frá
Kuwait. írakar í Kuwait safna sam-
an bandarískum, breskum og vest-
ur-þýskum borgurum. Bandarísk
yfirvöld segja að írakar séu að efla
herafla sinn við landamæri Kuwait
og Saudi-Arabíu. Öryggisráð Sam-
einuðu þjóðanna samþykkir efna-
hagslegar refsiaðgerðir gegn írak,
þar á meðal alþjóðlegt vopnasölu-
bann.
7. ágúst: Tyrkir stöðva lestun ohu
úr leiðslunni sem liggur yfir landið.
Leppstjórn íraka í Kuwait lýsir yfir
lýðveldi og Bush Bandaríkjaforseti
sendir hermenn og herflugvélar th
Saudi-Arabíu.
8. ágúst:Bandaríkjaforseti lýsir því
yfir aö bandariskir hermenn í
Saudi-Arabíu gegni einungis varn-
arhiutverki til að veija landið og
önnur riki við Persafióa. Tahð er að
alls kunni fjöldi bandarískra her-
manna í Saudi-Arabíu að ná fjörutíu
þúsimd. Liðsflutningar Bandaríkj-
anna th Persaflóa stefna í að verða
meiri en á dögum Víetnamstríðsins.
Bresk, frönsk og sovésk herskip
stefha og til Persaflóa. íraksforseti
lýsir yfir innlimun Kuwait í írak og
heitir því að ráðast ekki inn í Saudi-
Arabíu. Mubarak Egyptalandsfor-
seti hvetur th neyðarfundar leiðtoga
arabaríkja. Reuter