Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1990, Síða 16
16
FÖSTUDAGUR 10. ÁGÚST 1990.
fþróttir
Sport-
stúfar
Hin árlega hjóna- og
parakeppni í golíi á
vegum GHR verður
haldin á Strandarvelli,
Rangárvöllum, sunnudaginn 12.
águst og verður ræst út frá kl. 10.
Leikinn verður 18 holu höggleik-
ur með forgjöf. Keppnisfyrir-
komulagið er þannig að báðir
aðilar slá upphafshögg. Betri
bolti er valinn eftir upphafs-
höggið og parið slær til skiptis
þar til boltinn er í holu. Skráning
fer fram samdægurs á keppnis-
stað.
Golfmótfyrir
heilbrigðisstéttir
Sunnudaginn 12. ágúst
verður haldiö á Svarf-
hólsvelli á Selfossi
golfmót fyrir heil-
brigöisstéttir og hefst mótið kl.
10. Leiknar verða 18 holur með
forgjöf í karla- og kvennaflokki'
en einnig verða veitt verðlaun
fyrir besta skor án forgjaíar.
Einnig verður sveitakeppni þar
sem 3 bestu skor frá sama vinnu-
stað mynda sveit. Leikiö verður
um farandbikar í sveitakeppn-
inni. Rétt til þátttöku eiga allir
þeir sem teljast til heilbrigðis-
stétta og hafa skráða forgjöf. All-
ar nánari upplýsingar veita Einar
Þórhallsson og/eða Guðfmna Ól-
afsdóttir á sjúkrahúsi Suður-
lands í síma 98-21300.
Zilnic aftur í
leikbann
Janni Zilnic, leikmað-
ur með 1. deildar liði
Víkings, var úrskurð-
aður í eins leiks bann
vegna 6 gulra spjalda á fundí aga-
neihdar KSÍ á þriðjudaginn.
Zilnic getur því ekki leikið með
liði sínu gegn ÍA á sunnudaginn.
Tveir leikmenn úr 2. deild, Gunn-
ar Þór Pétursson, Fylki, og Örn
Torfason, Leiftri, voru úrskurð-
aðir í eins leiks bann vegna brott-
vísunar. Þá voru þeir Lúðvík
Bergvinsson og Helgi Kolviðsson,
báðir úr ÍK, úrskurðaðír i eins
leiks bann vegna brottvísunar. í
4. deild voru tveir leikmenn úr-
skurðaðir í bann vegna rauðs
spjalds, Kristján Björgvinsson,
Gróttu, og Anton Tómasson frá
Reyni, Sandgerði. Leikbönnin
taka gildi á hádegi á fostudag.
Grasshopper
að hressast
Úrslit i leikjum i 1. deild
svissnesku knatt-
spyrnunnar í fyrra-
kvöld urðu þannig:
YoungBoys-Aarau.........2-2
Wettingen-Sion..........0-0
Ziirich-Lugano..........1-1
St Gallen-Lausanne......1-1
Servette-Grasshopper.....1-3
Luzern-Xamax............0-1
• Lausanne og Zurich eru í efsta
sæti eftir fjórar umferðir, bæði
liðin eru með 6 stig. Grasshopper
kemur næst með 5 stig.
Þjálfaraskipti
hjá Bordeaux
Franska 1. deildar liöíö
Bordeaux hefur byrjað
keppnistímabilið í
Frakklandi illa og er
liðiö í 17. sæti eftir þijár fyrstu
umferöirnar. í fyrradag ákvað
stjóm félagsins að segja þjálfara
félagsins upp störfum, Belganum
Raymond Goethals. Goethals er
fyrrum þjálfarí belgiska lands-
liðsins og tók við stjóminni hjá
Bordeaux í upphafi síðasta
keppnistímabils og hafnaði liðið
í öðru sæti í deildarkeppninnl á
eftir Marseille. Viö þjálfarastöð-
unni tekur Gemot Rohr sem
þjáifar varaliö félagsins.
ÍK vann
Haukana
ÍK komst í 2. sæti 3. deildar í gær-
kvöldi er liðið sigraði Hauka, 3-0, í
geysimikilvægum toppbaráttuleik.
Staðan í hálfleik var markalaus en
ÍK-menn réðu algerlega gangi seinni
hálfleiks og Júlíus Þorfinnsson skor-
aði fyrsta markið. Ómar Jóhannsson
bætti öðru við úr vítaspyrnu og
Hörður Magnússon bætti þriðja
markinu við undir lokin. Birni Svav-
arssyni Haukamanni var vikið af
leikvelli og gestirnir voru því aðeins
10 undir lokin.
Reynirvann Fjölni
í 4. deild var einn leikur í gær-
kvöldi. Reynir frá Sandgerði vann
2-1 sigur á Fjölni á gervigrasinu. Sig-
urður Guðnason gerði bæði mörk
Reynis en Finnur Leifsson skoraði
fyrir Fjölni.
-RR
Jaf nt hjá
ValogKR
íslandsmeisturam Vals tekst ekki
að halda titlinum í 1. deild kvenna
en þær gerðu jafntefli gegn KR, 3-3,
í gærkvöldi.
KR-stúlkur höfðu betur í fyrri hálf-
leik, skoruðu tvö mörk gegn einu
marki Vals. Dæmið snerist síðan við
í síðari hálfleik en þá náðu Valsstúlk-
ur að jafna eftir að KR hafði náð
tveggja marka forystu.
Helena Ólafsdóttir skoraði tvö
mörk fyrir KR og Sara Smart eitt.
Mörk Vals skoraðu þær Guðrún
Sæmundsdóttir, Bryndís Vaisdóttir
og Ingibjörg Jónsdóttir. -ih
• Bryndís Valsdóttir skoraði eitt
marka Vals gegn KR og fimmta
mark sitt i deildinni i sumar.
• ÍK-menn fagna eftir mikilvægan sigur á Haukum i 3. deildinni i gærkvöldi. ÍK vann leikinn, 3-0, og stendur nú vel að vígi
öðru sæti deildarinnar. DV-mynd G
EyjóKur ekki með
í sigri Sf uttgart
- vestur-þýska deildarkeppnin hófst 1 fyrrakvöld
Keppni í vestur-þýsku úrvalsdeild-
inni í knattspyrnu hófst í fyrrakvöld
með leik Dortmund og Stuttgart og
fór leikurinn fram í Dortmund. Lið
Stuttgart hafði nokkra yfirburði í
leiknum og sigraði, 0-3. Fritz Walter
var á skotskónum í liði Stuttgart og
skoraði öll þrjú mörkin, tvö undir lok
fyrri hálfleiks, og það síðasta 10 mín-
útum fyrir leikslok.
Eyjólfur Sverrisson lék ekki með
Stuttgart þar sem hann er í nokkurra
daga fríi á íslandi. DV náði tali af
Eyjólfi heima á Sauðárkróki í gær
en hann og unnasta hans eignuðust
sitt fyrsta barn fyrir skömmu.
„Það má segja að ég sé í barneign-
arfríi hér heima en ég mun halda
aftur út til Þýskalands eftir helgina.
Ég hef ekki mikið fengið að spreyta
mig með aðailiðinu en hef þó fengið
aö koma inn á í einum og einum leik.
Mér hefur þó gengið ágætlega þegar
ég hef fengið að spreyta mig og hef
náð að skora þrjú mörk í æfingaleikj-
um liðsins. En það þýöir ekkert ann-
að en að bíöa rólegur eftir tækifær-
inu en mun fleiri leikmenn berjst um
hverja stöðu heldur en á síðasta
keppnistímabili," sagði Eyjólfur
Sverrisson í samtali við DV.
Liði Stuttgart hefur verið spáð
nokkurri velgengni á keppnistíma-
bilinu sem nú fer í hönd. í síðustu
viku lék liðið tvo leiki, þann fyrri
gegn austurrísku meisturunum Ty-
rol og sigraði Stuttgart, 3-1, Hinn
leikurinn var gegn svissneska félag-
inu Aarau og sigraði Stuttgart, 5-2.
Nýlega keypti félagið Ludwig Kögl
frá vestur-þýsku meisturunum Bay-
em Munchen og á hann öragglega
eftir að styrkja liðið mikið.
-GH
Eyjólfur Sverrison lék ekki með Stuttgart.
Áfram beint frá Ítalíu
- Stöð 2 hefur keypt 34 leiki 1 beinni útsendingu
Nú er orðið að ljóst að beinar út-
sendingar frá ítölsku knattspym-
unni verða á dagskrá Stöðvar 2 í vet-
ur. Stöð 2 hefur keypt 34 leiki í beinni
útsendingu og verður fyrsti leikur-
inn á dagskrá sunnudaginn 9. sept-
ember.
Leikir í ítölsku knattspyrnunni
fara fram á sunnudögum og hefst
útsending Stöðvar 2 ýmist kl. 13.25
eða 13.55. Þá hefur verið ákveðið að
Stöðin verði með 30 mínútna syrpu
frá öðram leikjum í ítölsku 1. deild-
inni á hverju miðvikudagskvöldi frá
og með 3. október.
Enski boltinn í
ríkissjónvarpinu
Ekki hefur enn verið samið um sýn-
ingar frá leikjum í ensku knattspyrn-
unni í ríkissjónvarpinu í vetur en að
sögn Ingólfs Hannessonar á íþrótta-
deild Sjónvarpsins ættu málin að
skýrast á næstu dögum. Fyrirhugað
er þó að hefja beinar útsendingar frá
leikjum í 1. deild ensku knattspyrn-
unnar í nóvember og munu þær
standa fram í marsmánuð en fram
að þeim tíma verða vikugamlir leikir
sýndÍE í íþróttaþætti á laugardögum.
Að sögn Ingólfs er ekki ætlunin að
sýna leiki í beinni útsendingu frá
vgstur-þýsku knattspyrnunni í vetur
eins og gert var í fyrra.
-GH
Heil umferð í 2. deild
- 5 hörkuleiklr á dagskrá í kvöld
Heil umferð fer fram í 2. deild karla
á íslandsmótinu í knattspymu í
kvöld. Nágrannaslagur verður í
Garðinum þegar Víðir tekur á móti
Grindavík. Víðismenn era í öðru
sæti í deildinni en Grindvíkingar eru
nálægt botninum. UBK fær ÍR í
heimsókn en Breiðhyltingamir hafa
verið á góðu skriði í undanfórnum
leikjum og er liðið fariö að blanda
sér í toppbaráttuna ásamt Breiða-
bliki. Á Sauðárkróki verður botn-
baráttuslagur þegar Tindastóll og
Leiftur leiða saman hesta sína. Fylk-
ir og ÍBK leika á Árbæjarvelli. Bæði
liðin léku í 1. deild á síðasta keppnis-
tímabili, Fylkismenn eru í efsta sæti
en Keflvíkingar þurfa heldur betur á
stigunum að halda í botnbaráttunni.
Á Selfossi verður án efa mikill slagur
þegar heimamenn taka á móti Sigl-
firðingum. Allir leikimir hefjast kl.
19.
-GH
Ben Johnson, spretthlauparinn
heimsfrægi, sem var dæmdur í keppnis-
bann eftir aö hafá notað ólögleg lyf á
Ólympiuleikunum í Seoul, hefur feng-
iö grænt ljós á að keppa aftur fyrir
Kanada.
fþróttamálaráðherra Kanada, Marcel
Danis, skýröi frá þessu á fundi í gær en
íþróttasamband Kanada hafði dæmt
Johnson í æviiangt bann áríð 1988.
Johnson setti sem kunnugt er heimsmet
í 100 m hlaupi en síðan komst upp að
hann hafði notað ólögleg lyf og þá var
heimsmetið dæmt ógilt og Johnson
missti af gullverölaunum sínum í kjöl-
farið. Hinn 28 ára gamli Johnson sagðist
viija keppa fyrir land sitt á nýjan leik á
næstu ólympíuleikum og þá án þess að
nota ólögleg lyf.
Bandaríkin unnu stórt
Bandaríkin unnu Suður-Kóreu stórt,
146-67, á heimsmeistaramótinu í körfu-
knattleik sem nú stendur yfir í Buenos
Aires í Argentinu.
Ítalía vann Ástraliu, 94-89, eftir æsi-
spennandi lokakafla.
í fyrrakvöld unnu Bandaríkjamenn
Grikki, 103-95, og þá unnu Argentínu-
menn Kínverja, 106-85.