Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1990, Blaðsíða 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 1990.
Viðskipti
____________________________________________________________PV
Skýrsla flármálafyrirtækisins Moody’s um ísland:
Þið skuldið of mikið
- Island fær einkunnina A-mínus hjá Moody’s
Bandariska fyrirtækið Moody’s, en skýrslur þess fara til allra helstu fjármálastofnana í heiminum, segir að við
íslendingar skuldum of mikið. Þá sé mikil hætta á sveiflum vegna þess hve fiskur er stór hluti útflutnings okkar.
Til skamms tíma fáum við góða einkunn, við erum mjög vel lánshæf.
Skýrsla fyrirtækisins Moody’s,
sem þekkt er fyrir að veita öllum
helstu peningamálastofnunum í
heimi ráðgjöf um fjármál einstakra
landa, segjr í nýlegri skýrslu sinni
að efnahagsleg áhætta á íslandi sé
lítil sem engin til skamms tíma sem
er mjög góð einkunn, en hins vegar
sé um áhættu að ræða þegar til lengri
tíma er litið.
Fyrirtækið segir aö íslendingar
skuldi of mikið erlendis en hins veg-
ar sé það ekki óyfirstíganlegt vanda-
mál. Island fær einkunnina A-2 hjá
Moody’s. Það er eins konar A-mínus
og þýðir að við séum í flokki traustra
fjármálaþjóða en þó aftarlega á mer-
inni, nálægt B-þjóðmn.
Með löndum eins og
Irlandi og Portúgal
Þess skal getið að flest vestræn iðn-
ríki eru í A-flokki. Neðarlega með
pkkur eru lönd eins og Portúgal og
írland. Skammt undan, í B-flokki,
eru lönd eins og Tyrkland og Grikk-
land.
Það var einmitt þessi skýrsla sem
norska dagblaðið Aftenposten hafði
fyrir framan sig þegar blaðið varaði
norska við að fjárfesta á íslandi.
Skýrsla Moody’s dregur hins vegar
upp miklu jákvæðari mynd af ís-
lensku efnahagslífi en Aftenposten
geröi.
Skýrslur Moody’s fara til flestra
helstu peningastofnana í heiminum
og eru þess vegna mikilvægar. í
þeirri skýrslu sem DV hefur undir
höndum og fengin er hjá Seðlabank-
anum vekur nokkra athygh hve
margar tölulegar vitleysur eru í
skýrslunni.
Einkunnin er A-2
Engu að síður segir í dómsorðum
bandaríska ráðgjafafyrirtækisins að
ísland fái einkunnina A-2 til lengri
tíma htið vegna hættunnar á sveiflu-
kenndu atvinnulífi en fiskur sé
helsta útflutningsvaran. Minnki
veiðamar hafi það margfold áhrif til
samdráttar á efnahagslífið þar sem
útflutningur detti þá niður.
Ennfremur segir að mikið ójafn-
vægi í islensku efnhagslífi undanfar-
in ár haíi leitt til aukinna erlendra
skulda þjóðarinnar. Erlend skulda-
byrði sé mikh en samt ekki óyfirstíg-
anleg.
Þá segir að tekjur þjóðarinnar séu
hlutfallslega mjög háar og að stöðug-
leiki ríki í stjórnmálum. Það er góður
plús.
Takmörkuð hagstjórn
Komið er inn á fiskveiðistjórnun
íslendinga og sagt að hún sé th að
vemda og nýta fiskistofnana þannig
að þeir haldi áfram að skila af sér
tekjum í framtíðinni. Hættan á of-
veiði sé engu aö síður fyrir hendi.
fslandsbanki:
Sameiningu
bankanna á
Akureyri lokið
Gyffi Kristjánsson, DV, Akureyri;
Sameining bankanna þriggja á Akur-
eyri sem standa að íslandsbanka er
formlega lokið, en í gærmorgun opn-
aði bankinn í nýjum og glæshegum
húsakynnum að Skipagötu 14.
Að sögn Guðjóns Steindórssonar
sem stýrir íslandsbanka Akureyrar
em stöðughdi í bankanum á Akur-
eyri 30 talsins, en vom um 40 í bönk-
unum þremur, Iðnaðarbanka, Út-
vegsbanka og Alþýðubanka fyrir
sameininguna. Kristín Jónsdóttir er
þjónustustjóri og Eygló Birgisdóttir
rekstrarstjóri. Bankinn rekur útibú
í Hrísalundi og þar er útibústjóri
Aðalheiður Alfreðsdóttir.
Það var mikið um dýrðir er bank-
inn opnaði í gærmorgun, starfsfólkið
blómum prýtt og viðskiptavinum
boðið upp á kafíi og kökur allan dag-
inn. Þegar fyrsti viðskiptavinurinn
mæth var tekið á móti honum með
blómum, en það var Eyjólfur Magn-
ússon hárskeri.
Guðjón Steindórsson útibústjóri tekur á móti Eyjólfi Magnússyni, fyrsta við-
skiptavininum, með blómum. DV-mynd GK
Aukið frelsi í gjaldeyrisviðskiptum:
Bindur hendur vinnumarkaðar
og krefst aga í hagstjórn
Ólafur ísleifsson, hagfræðingur í
Seðlabankankanum, segir í athyglis-
verðri grein um fijálsa ftármagns-
flutninga á milli landa í nýútkomnu
hefti Rjármálatíðinda, að ftjálsar
tj ármagnshreyftngar skapi innlendri
hagstjóm strangari aga. Hann segir
ennfremur að aðgerðir og yfirlýsing-
ar stjómvalda, sem th þess em falln-
ar að rýra traust á innlendum fjár-
festingarkostum, geti leitt af sér taf-
arlausa fjárstrauma úr landinu.
„En þtssi agi nær lengra en ein-
ungis aö ákvörðunum stjómvalda á
vettvangi ríkisfjármála og peninga-
- segir Ólafur Isleifsson hagfræðingur
Ólafur Ísleifsson.
mála. Almennar tekjuákvarðanir
fara fram við allt önnur og strangari
skhyröi en í efnahagslífi, sem er lok-
að eða hálflokað fyrir fjármagns-
hreyfingum. Ákvörðun um almenna
hækkun innlends tilkostnaðar, th
dæmis almenna launahækkun, fær
alls ekki staðist, nema hún sé reist á
aukinni framleiðni vinnuafls eða
öðru álíka,” segir Ólafur.
Hann bætir því við að hækkun th-
kostnaðar, án þess að aukin fram-
leiöni sé fyrir hendi, leiöi th þeim
mun alvarlegri vandamála fyrir
samkeppnisstöðu atvinnufyrirtækja
og viðskiptajöfnuð, sem gengi gjald-
miðhs er fastar skorðað.
„Eftir því sem fjármagnshreyfing-
ar eru fijálsari verður gengi gjald-
miðhsins næmara fyrir innlendri
kostnaöarþróun og sá timi veður æ
skemmri, sem hðið getur, uns gengis-
skráningin verður leiðrétt. Að þessu
leyti bindur gjaldeyrismarkaöurinn
hendur vinnumarkaöarins og skapar
aga, sem stuðlar að því, að tekju-
ákvaröanir standi á traustum efna-
hagslegum grunni.”
-JGH
Sagt er frá því að vegna mjög lítils
atvinnuleysis og takmarkaðrar hag-
stjórnar hafi verðbólga veriö mikil
og sömuieiðis hahi á viðskiptajöfn-
uðinum. Th að brúa bilið hafi erlend-
ar skuldir vaxið hratt.
Lokaniðurstaðan er því sú að þjóð-
in fær góða einkunn th skamms tíma.
Mjög vel lánshæf. Hins vegar er
hætta á sveiflum í útflutningi þjóðar-
innar vegna þess hve fiskur er stór
hluti útflutningsins. Áhættan er fólg-
in í því að útflutningurinn detti nið-
ur. Þá er settur stór mínus við það
hve erlendar skuldir þjóðarinnar eru
miklar.
Það breytir því ekki að þjóðin er
vel lánshæf.
-JGH
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóösbækurób. 3,0 Allir
Sparireikningar
3jamán. uppsögn 3-4 Ib.Sp
6 mán. uppsögn 4-5 ib.Sb
12mán.uppsögn 5-5,5 Ib
18mán. uppsögn 11 Ib
Tékkareikningar.alm. 0,5-1 Allir nema Ib
Sértékkareikningar 3,0 Allir
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1.5 Allir
6 mán. uppsögn 2.5-3.0 Allir nema Ib
Innlán með sérkjörum 3-3,25 Ib.Bb
Innlángengistryggð
Bandaríkjadalir 6,6-7 Ib
Sterlingspund 13-13,6 Sp
Vestur-þýskmörk 6,75-7,1 Sp
Danskarkrónur 8,5-9,2 Sp
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennir vixlar(forv.) 13,75 Allir
Viðskiptavíxlar(forv) (1) kaupgengi
Almenn skuldabréf 12,25-14,25 Ib
Viöskiptaskuldabréf (1) kaupgengi Allir
Hlaupareikningar(yfirdr.) 16,5-17,5 Bb
Utlán verðtryggð
. Skuldabréf 6,5-8,75 Ib
Útlántilframleiðslu
Isl. krónur 14-14,25 Sp
SDR 11-11,25 Ib
Bandaríkjadalir 9,75-10 Ib
Sterlingspund 16,5-16,7 Sp
Vestur-þýsk mörk 10-10,2 Sp
Húsnæðislán 4,0
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 23.0
MEÐALVEXTIR
Óverðtr. ágúst 90 14.2
Verðtr. ágúst 90 8.2
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitalasept. 2932 stig
Lánskjaravisitaia okt. 2934 stig
Byggingavisitala sept. 551 stig
Byggingavisitala sept. 172,2 stig
Framfærsluvisitala júli 146,8 stig
Húsaleiguvísitala hækkaði 1,5% l.júli.
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Einingabréf 1 5,077
Einingabréf 2 2,761
Einingabréf 3 3,344
Skammtímabréf 1,712
Lífeyrisbréf
Kjarabréf 5,034
Markbréf 2,681
Tekjubréf 2,026
Skyndibréf 1,502
Fjölþjóðabréf 1,270
Sjóðsbréf 1 2,441
Sjóðsbréf 2 1,768
Sjóðsbréf 3 1,702
Sjóðsbréf 4 1,456
Sjóðsbréf 5 1,025
Vaxtarbréf 1,7215
Valbréf 1.6185
Islandsbréf 1,054
Fjórðungsbréf 1,054
Þingbréf 1,054
Öndvegisbréf 1,049
Sýslubréf 1,057
Reiðubréf 1,040
HLUTABRÉF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Sjóvá-Almennar hf. 650 kr.
Eimskip 544 kr.
Flugleiðir 213 kr.
Hampiðjan 173 kr.
Hlutabréfasjóður 170 kr.
Eignfél. Iðnaðarb. 171 kr.
Eignfél. Alþýðub. 131 kr.
Skagstrendingur hf. 410 kr.
Islandsbanki hf. 171 kr.
Eignfél. Verslunarb. 140 kr.
Olíufélagiö hf. 557 kr.
Grandi hf. 188 kr.
Tollvörugeymslan hf. 110 kr.
Skeljungur hf. 593 kr
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge.
Skammstafanir: Bb = Búnaðarbankinn,
lb= Islandsbanki Lb= Landsbankinn,
Sb = Samvinnubankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.
Nánari upplýsingar um peningamarkaö-
inn birtast i DV á fimmtudögum.