Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1990, Qupperneq 28
28
MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 1990.
Meiming
Andlát
Tónleikar Camerata
Hljómsveitin Camerata undir stjórn Amar
Óskarssonar hélt tónleika í Hafnarborg í Hafnarfirði
í gærkvöldi ásamt einleikumnum Þorsteini Gauta Sig-
urðssyni á píanó og Lámsi Sveinssyni á trompet. Á
efnisskránni vom verk eftir Dag Wirén, W.A.Mozart,
D. Shostakovich, Jón Þórarinsson og Inga T. Lárusson.
Serenada Wiréns er létt og skemmtilegt verk af þeirri
tegund sem nefnd hefur hljómskálamúsík. Það er tón-
hst sem rennur auðveldlega niður og skilur lítið eftir.
Verkið var ágætlega flutt og hentaði vel sem upphitun
fyrir sinfóníu Mozarts í A dúr K 201. Þetta æskuverk
Mozarts bar af öðmm verkum á þessum tónleikum
eins og gull af eiri fyrir hugmyndaauðgi, smekkvísi
og það fullkomna vald sem tónskáldið hefur á hst
sinni. Tónhstarmennirnir vom í þessu verki gripnir
innilegri sphagleði sem geislaði af flutningnum og
vom þar fremstir hinir snjöllu fiðlarar frá Póllandi,
Simon Kuran konsertmeistari og Andrzej Kleina, leið-
ari í annarri fiðlu. Smæð hljómsveitarinnar gaf flutn-
ingnum örhtinn brag kammertónhstar með tilheyr-
andi auknum kröfum og auknum möguleikum sem
hljómsveitarfólkið nýtti prýðilega.
Píanókonsert Shostakovich nr. 1, sem hann samdi
tiltölulega snemma á ferli sínum, er ekki eins hnitmiö-
uð tónsmíð eins og ýmis síðari verk hans eru. Verki-
ber þó skýr einkenni þessa merka rússneska tónskálds
og margir staðir þar eru mjög fahegir. Þorstejnn Gauti
Tónlist
Finnur Torfi Stefánsson
spilaði einleikshlutverkið með ágætum tilþrifum og
skýrleika og sýndi auk þess líka á sér ljóðræna hlið
þar sem það átti viö. Lárus Sveinsson lék einleiks-
hlutverk í þessu verki á trompet og skiiaði því mjög
vel, sérstaklega hljómaði lága tónsviðið hjá honum oft
fahega. Tónleikunum lauk á Tveim lögum úr kvik-
myndinni Paradísarheimt eftir Jón Þórarinsson, sem
eru bæði ágætlega gerð, og laginu í svanalíki eftir
Inga T. Lárusson í útsetningu Szymons Kurans sem
því miður er ekki mjög gott lag.
Öm Óskarsson er einn þeirra ungu íslensku hljóm-
sveitarstjóra sem eru að kveðja sér hljóðs um þessar
mundir og verður ekki annað sagt en hann geri það
með töluverðum glæsibrag. Hann virtist kunna verkin
vel og hafa gott vald á þeim öllum. Hljóðfæraleikaram-
ir nutu sín vel og tónleikarnir í heild voru einkar
skemmtilegir. Verkin voru sum ekki sérlega erfið í
flutningi en í öðmm reyndi töluvert á og er það skyn-
samlegt val í byijun ferils. Má óska Emi th hamingju
með góða byijun og velfamaöar í framhaldinu.
Stjömubíó - Með tvær í takinu
Lágvær fyndni
Harry Dobbs er einkaspæjari og gerir sitt besta til
þess að hta út sem slíkur. Hann gengur í síðum frakka
með hatt niðri í augum og talar eins og víðlesinn Raym-
ond Chandler aðdáandi. Stærsti vandi Harrys er hvað
hann er tröllheimskur og sljór og hefur slæma athygl-
isgáfu sem er afar vont í þessu starfi. Annar vandi
hans er í kvenmannslíki en sambýhskona hans er
bókstaflega geggjuð af aíbrýðisemi og nýr Harry stöð-
ugt framhjáhaldi um nasir.
Harry'garmurinn telur sig komast í feitt þegar vafasöm
forrík kvensnift biður hann að fylgjast með Rick
nokkmm sem hún elskar út af lífinu. Harry vaktar
Rick, eltir hann um þvert landið og flettir fljótlega
ofan af tvöföldu lífemi hans. Það skyggir nokkuð á
gleði Harrys að hann verður ástfanginn af vinnuveit-
anda sínum og til sögunnar kemur annar einkaspæj-
ari sem fylgir Harry hvert fótmál. Þess utan er Harry
að elta rangan mann. Viöfangsefni Alans Rudolph í
þessari mynd er annars vegar að gera grín að þeim
aragrúa kvikmynda um einkaspæjara sem geröar hafa
verið og gera miskunnarlaust grín að þeim goðsögnum
sem um þá hafa skapast og hins vegar að draga upp
grátbroslega mynd af fjölbreytileika mannlífsins, ást-
inni sem fær okkur til þess aö haga okkur eins og fífl
og þeirri staðreynd að sannleikurinn er oft ótrúlegri
en nokkur lygi.
Það er Tom Berenger í hlutverki Harrys sem fer á
kostum í téðri mynd. Hann leikur af miklu öryggi og
Kvikmyndir
Páll Asgeirsson
sýnir enn einu sinni að hann er vemlega góður leik-
ari. Mótleikarar hans em konumar Ann Magnusson,
Elizabeth Perkins og Anne Archer og falla þær ahar
mjög vel inn í þá flóknu mynd sem upp er dregin.
Handritið er hstavel skrifað og gerir talsverðar kröfur
th áhorfandans því hér er flétta með mörgum þráöum
sem þarf að greiða úr. Það er helst að myndin detti
svohtið niður í endinum þar sem aht er látiö faha í
ljúfa löð í sönnum Hohywood sth en það á reyndar
ágæta vel við. Undir öllu saman grætur blúskennd
tónhst sem ljær myndinni satírískan blæ.
Þeir sem eru vel heima í sögum og kvikmyndum um
spæjara skemmta sér konunglega svo og þeir sem
unna lágværri háðskri fyndni því þaö er ekkert sprengt
í loft upp og enginn dettur á rassinn eða fær ijómat-
ertu í andhtið.
Love At Large - amerisk
Leikstjóri: Alan Rudolph
Aöalhlutverk: Tom Berenger, Anne Archer, Elizabeth Perk-
ins, Kate Capshaw, Annette O’Toole og Ann Magnusson.
Tilkyimiiigar
Námstefna um notkun ör-
gagna og Ijósdiska
viö varðveislu á skjölum og
upplýsingum
Félag um skjalastjóm og Stjómunarfélag
íslands efna til námstefnu um notkun
örgagna og ljósdiska viö varðveislu á
skjölum og upplýsingum. Aðalfyrirlesari
er David O. Stephens, forseti og aðalfram-
kvæmdastjóri ARMA Intemational, sem
em alþjóðleg samtök skjalastjómenda
með liðlega 10.000 félagsmenn. David O.
Stephens er ennfremur framkvæmda-
stjóri þjá Dataplex, öflugu ráðgjafafyrir-
tæki á sviði upplýsinga- og skjalastjómar
í Mississippi. Einnig mun íslenskur lög-
fræðingur gera stuttlega grein fyrir ís-
lenskri löggjöf á þessu sviði. Námstefnan
verður haldin í Höfða, Hótel Loftleiðum,
þriðjudaginn 2. október nk. kl. 9-17. Hún
er einkum ætluð þeim stjómendum inn-
an fyrirtækj a sem annast skrifstofurekst-
ur og/eða skjalastjóm. Innritun er hafm
hjá Stjómunarfélagi íslands í síma
621066.
Björgunarsveitin Ingólfur
verður með kynningu á starfsemi sinni
í kvöld kl. 20. Allir velkomnir.
ITC-deildin Harpa
heldur fund í kvöld, þriðjudagskvöld, kl.
20 í Brautarholti 30. Allir velkomnir.
Ágúst Kjartansson, Blönduhhð 10,
lést föstudaginn 21. september.
Halldóra J. Guðmndsdóttir, Miðengi,
lést í sjúkrahúsinu á Selfossi 22. sept-
ember.
Sveinn Kjartan Kaaber lögfræðingur
lést í Landakotsspítala 23. september.
Ingunn Jónasdóttir, Austurbrún 6,
áður th heimihs að Skúlagötu 64, lést
á gjörgæsludehd Borgarspítalans
laugardaginn 22. september.
Guðrún Andrésdóttir, Starkaðar-
húsum, Stokkseyri, áður Smyrla-
hrauni 2, Hafnarfirði, andaðist í
Sjúkrahúsi Suðurlands 24. septemb-
er.
Jaröarfarir
Hallgrímskirkja
-starf aldraðra
Á morgun, miðvikudag, verður Breið-
holtskirKja heimsótt. Ekið um Heiðmörk
og dmkkið kaffi á Vesturgötu 7. Lagt
verður af stað frá kirkjunni kl. 13.30.
Nánari upplýsingar gefur Dómhildur í
síma kirkjunnar 10745 í dag, annars s.
39965.
Helga Sigurðardóttir lést 16. sept-
ember. Hún fæddist í Gröf á Vatns-
nesi 30. janúar 1944, dóttir hjónanna
Unnar Ágústsdóttur og Sigurðar
Gestssonar. Eftirlifandi eiginmaður
hennar er Sævar Snorrason. Þau
eignuðust fjögur börn. Útfór Helgu
verður gerö frá Árbæjarkirkju í dag
kl. 13.30.
Séra Bjartmar Kristjánsson, sem
andaðist 20. september sl., verður
jarðsunginn frá Munkaþverárkirkju
laugardaginn 29. september kl. 14.
Sigurður Kristjánsson fyrrverandi
matsveinn, er andaðist í Hrafnistu,
Reykjavik, þann 17. september sl.,
verður jarðsunginn frá Fossvogskap-
ellu miðvikudaginn 26. september kl.
10.30.
Hörður Smári Guðmundsson, fyrr-
verandi símamaður, lést 14. septemb-
er sl. í Landspítalanum. Útförin hef-
ur farið fram í kyrrþey að ósk hins
látna.
Elías Halldórsson, Grænukinn 11,
Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá
Fríkirkjunni í Hafnarfirði miðvik-
daginn 26. september kl. 13.30.
Aðalsteinn Guðmundur Steingríms-
son, Vatnsstíg 11, Reykjavík, áður
Lindargötu 24, verður jarðsunginn
fimmtudaginn 27. september kl. 15
frá Fossvogskapehu.
Sigurlaug Hólm Ólafsdóttir, Furu-
gerði 1, Reykjavík, verður jarðsungin
frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 27.
september kl. 13.30.
Jóna Margrét Jónsdóttir lést 15. sept-
ember. Margrét fæddist á Kalastöð-
um á Stokkseyri 5. september 1910,
dóttir hjónanna Viktoríu Hahdórs-
dóttur og Jóns Þóris Ingimundarson-
ar. Eftirlifandi eiginmaður hennar
er Þorvaldur Ármannsson. Þeim var
fjögurra barna auðið en af þeim eru
þijú á lífi. Útför Margrétar verður
gerð frá Fossvogskirkjú í dag kl. 15.
Messur
Breiðholtskirkja: Bænaguðsþjónusta í
dagkl. 18.30, altarisganga. Fyrirbænaefn-
um má koma á framfæri við sóknarprest
í viðtalstímum hans þriðjudaga til fóstu-
daga kl. 17-18.
Bústaðakirkja: Haustferð aldraðra á
morgun, miðvikudag 26. sept., kl. 14.
Hallgrimskirkja: Fyrirbænaguðsþjón-
usta í dag kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum.
Ráðstefnur
Æska án ofbeldis
Ráðstefna um ofbeldi meðal bama og
unglinga, orsakir, tiðni og lausnir, verður
haldin á vegum Samtaka heilbrigðis-
stétta. Ráðstefiian verður haldin 5. októb-
er nk. kl. 9-17 að Borgartúni 6 í Reykja-
vík. Þar munu fulltrúar ýmissa fagstétta
auk annarra fjalla um þetta fjölþætta
vandamál. Ráðstefnan er öllum opin
meðan húsrúm leyfir. Skráning fer fram
virka daga 25. sept. til 2. okt. milli kl. 15
og 17 í sima 619570 eða 624112. Ráðstefnu-
gjald er kr. 1500 með kaffi og mat. Fund-
arstjóri verður Guðrún Agnarsdóttir al-
þingismaður.
Bridge
Bikarkeppni Bridgesambands
íslands:
Einn leikur hefur farið ffarn í 8 sveita
úrslitum bikarkeppni BSÍ, sveit Sigurðar
Siguijónssonar gerði sér litið fyrir og sló
út sveit bikarmeistara Tryggingamið-
stöðvarinnar í jöfnum leik en munurinn
var í lokin 18 impar. Ólokið er 3 leikjum
en þeir fara ffarn sem hér segir:
Roche (áður Delta) - Samvinnuferð-
ir/Landsýn laugardaginn 23.09.90.
Forskot - Esther Jakobsdóttir þriðjudag-
inn 25.09.90.
S. Armann Magnússon - Ásgrimur Sig-
urbjömsson laugardaginn 29.09.90.
Dregið verður í undanúrslit bikarkeppn-
irrnar fyrir spilamennsku í BR, Sigtúni
9, miðvikudaginn 26.09.90.
Undanúrslitaleikurinn (48 spil) fer fram
í Sigtúni 9 sunnudaginn 30.09.90 og hefst
hann kl. 10.00.
Úrslitaleikurinn í bikarkeppninni verður
spilaður á Hótel Loftleiðum sunnudaginn
7. október og verða spiluð 64 forgefin
spil sem sýnd verða á töflu fyrir áhorf-
endur. Spilamennska hefst kl. 10.00.
Fjölmiölar
Nýjar bækur frá
Islenska kiljuklúbbnum
íslenski kiljuklúbburinn hefur sent frá
sér flórar nýjar bækur: Gangandi íkorni
er fýrsta skáldsaga Gyrðis Elíassonar og
kom fyrst út árið 1987. Bókin er 119 bls.
Möltufálkinn eftir bandaríska höfund-
inn Dashiell Hammett er ein fyrsta og
jafnffamt ein frægasta skáldsagan í anda
hins svonefnda harðsoðna reyfara. Hún
er 219 bls. Síðara bindi hininar frægu
skáldsögu Fávitinn eftir Fjodor
Dostojevski sem kom út í Rússlandi árið
1868. Bókin er 338 bls. Allar bækumar
em prentaöar hjá Collins í Glasgow í
Skotlandi.
Sjálfshól rásar 2
Hvortfjölmiðlareru „góðireða
lélegir" ræðst venjulega af frammi-
stöðu þeirra sjálfra. Á sama hátt eru
þeir ektó góðir dómarar í eigin sök.
Þeir sem dæma um gæði fjölmiöla
eru þeir sem þá nota, blaöalesend-
ur, útvarpshlustendur og sjón-
varpsáhorfendur. Nokkur dómur
felst þannig i útbreiðslu þeirra og
því hve mikill áhugi er á aö auglýsa
í þeim. Þessi skilgreining getur hins
vegar ekki átt við ríkisfjölmiðlana
sem er í raun þvingað upp á alla
landsmenn þar sem greiða verður
afnotagjald af öllum tækjum.
í ljósi þessa er sjálfshól dægur-
máladeildar rásar 2 eölilegt.
„Áskrift“ getur ekki talist dæmi um
viðtökur hlustenda og útbreiðsla
ekki um viötökur auglýsenda. Þegar
þetta er tekið inn í dæmið er ef til
vill skiijanlegur hinn fáránlegi
kynmngarþáttur á vetrardagskrá
dægurmálaútvarps rásar 2 um síð-
ustu helgi. Hann var engu að síöur
eitthvert leiðinlegasta útvarpsefni
sem undirrituð hefur heyrt.
Sjálfsagt er aö fjölmíðlar kynni
sjálfa sig og dagskrá sína eftir því
sem þurfa þykir en jafnsjálfsagt að
stjórnendur og starfsmenn þessara
fjölmiöla leggi það í vald neytenda
sinna að vega þá og meta. Því miður
veldur einokun rítósflölmiðlanna
því að óeðlileg flölmiðlaflóra skap-
ast á íslandi þar sem annars vegar
keppa á frjálsum markaði allir aörir
flölmiölar en hins vegar lifir ríkisr-
isinn á þvingunarsköttum og auk-
aflárveitingum úr vasa hins al-
menna skattborgar a og fær því aldr-
ei það mat sem hann á skilið. Að
sumu leyti eru ríkisflölmiölamir
góðir, einhveijir þeir bestu í landinu
og á þaö reyndar nær eingöngu við
um rás eitt. Að öðru leyti eru þeir
slakir og verða ekki annaö fyrr en
þeir fá verðuga samkeppni. Þangaö
til verða þeir því að hæla sér sjálfir.
Jóhanna Margrét