Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1990, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1990, Qupperneq 2
Fréttir MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 1990. Búnaðarfélagið hafnar kröfu hrossabænda og segir upp samkomulagi: Tekur útf lutning hrossa af Félagi hrossabænda - Kristni Hugasyni ráðunaut ætlað að sjá um útflutninginn framvegis Stjórn Búnaðarfélags íslands hefur með bréfi til Félags hrossabænda hafnað meginkröfu þeirra vegna kynbótadóma frá því í sumar og sagt einhliða upp samkomulagi um útf lutning hrossa sem gert var 1988. DV-mynd GVA „Með því að segja upp þessu sam- komulagi er verið að segja upp starfi Gunnars Bjamasonar og aðstoðar- manns hans, Hallveigar Fróðadóttur. Þá er verið að taka þessi mál úr höndum Félags hrossahænda sem þau heyra til en Búnaðarfélagið hef- ur aldrei komið nálægt þessum mál- um. Það er ekki siðaðra manna að segja gerðu samkomulagi upp ein- hhða eins og Búnaðarfélagið hefur gert með þessu bréfi. Þessi framkoma Búnaðarfélagsins er með öllu óskilj- anleg. Ef menn vilja gera breytingar á samkomulagi er venjan að óska eftir umræðum um þær,“ sagði Halldór Gunnarsson í Holti, formað- ur markaðsnefndar Félags hrossa- bænda og annar tveggja fulltrúa fé- lagsins í hrossaræktamefnd Búnað- arfélagsins. Búnaðarfélagið hefur einhhða sagt upp samkomulagi við Félag hrossa- bænda frá 1988 um að Félag hrossa- bænda fari með útflutningsstimpil Búnaðarfélagsins, sjái um gerð upp- runavottorða hrossa og útflutnings- verslun á hrossum. Er samkomulag- inu sagt upp frá og með 15. nóvemb- er. Hefur Kristni Hugasyni ráðunaut verið fahð að sjá um útflutningsmál- in framvegis. Kristinn er mjög um- deildur meðal hrossabænda meðal annars vegna breyttra forsendna kynbótadóma sem hann er talinn hafa staðið fyrir. Gunnar Bjamason ráðunautur sá í fyrstu um útflutning hrossa sem ráðunautur Búnaöarfélagsins. í reglugerðarákvæði er kveðið á um að útflutningur hrossa falh undir Búnaðarfélagið. í samkomulaginu 1988 var skilyrt að Félag hrossa- bænda réði ekki annan en þann sem Búnaðarfélagið samþykkti og var ráðning Gunnars Bjarnasonar sam- þykkt. Vegna uppsagnar Búnaðarfé- lagsins á samkomulaginu sendi Fé- lag hrossabænda landbúnaöarráð- herra bréf í gær þar sem óskað er eftir reglugerðarbreytingu þannig að útflutningur hrossa verði áfram al- farið í höndum hrossabænda. Kröfum hafnað Auk uppsagnarinnár á samningn- um frá 1988 svarar bréf Búnaðarfé- lagsins kröfum vegna kynhótadóma sem meirihluti hrossaræktamefndar og fjórir landshlutafulltrúar lögðu fram á fundi með stjóm Búnaðarfé- lagsins og búnaðarmálastjóra í byrj- un ágúst. Hafnar stjórn Búnaðarfélagsins í fyrsta lagi alfarið kröfu um skýra verkaskiptingu milli landsráðunauta í hrossarækt. Þá er kröfum er varða framkvæmd kynbótadómanna, end- urskoðun og afturköllun dóma frá þessu ári vísað til hrossaræktar- nefndarinnar. í hrossaræktarnefnd eiga sæti tveir fulltrúar frá Búnaðarfélaginu, annar er Þorkell Bjarnason, tveir frá Félagi hrossabænda og tveir frá Landssam- bandi hestamanna. Oddamaður og ritari er Kristinn Hugason. -hlh Pramminn sést hér fastur við Árvakur. Skömmu eftir að myndin var tekin sökk pramminn. DV-mynd Ægir Már Sanddælupranmii sökk 1 Keflavíkurhöfn: Ægir Már Kárascm, DV, Suðumesjum; „Viö erum hræddir um ohumengun frá sanddæluprammanum. Við erum hér með 200 þúsund seiði í eldi og ef gasohan fer að leka úr pramman- um eru þau í hættu því olíubrákin myndi strax berast hingað,“ segir Tryggvi Emhsson, starfsmaður Bakkalax í Keflavík. Sanddæluprammanum hvolfdi við Garðskaga á sunnudagskvöldið er Árvakur, skip Dýpkunarfélagsins var að draga hann frá ísafirði til Voga á Vatnsleysuströnd þar sem átti að nota hann við dýpkunarfram- kvæmdir í höfninni. Norðanstrekk- ingur var þegar óhappið vhdi th en þó tókst að draga prammann á hvolfi th Keflavíkur. Orsakir slyssins eru ókunnar en taldar eru líkur á að sjór hafi komist inn í prammann gegnum sprungu á botni hans. í gær var reynt að rétta prammann við á árdegisflóðinu og voru notaðir til þess tveir kranar. Ekki tókst betur til en svo að prammanum hvolfdi og hggur hann nú á hhðinni við enda hafnargarðsins. Á milli 8 og 10.000 htrar af gasolíu eru í prammanum og óttast menn að eitthvað af henni muni leka út. Reynt verður að bjarga pramman- um en ekki er ljóst hvenær það verð- ur. Átta ára drengur slapp meö ótrúlega lítil meiðsl: Féll af handriði fjóra metra - varaðklifraáhandriðiviöFjalIkonuveg „Drengurinn var á leið heim úr skólanum hjá undirgöngunum við Fjallkonuveg þegar hann fór að klifra upp á handrið fyrir ofan göng- in. Síðan skipti engum togum að hann féh niður á steinsteypta gang- stéttina fyrir neðan - um fjögurra metra fall. Hann datt meö höfuðið á undan. Á leiðinni niður rakst hann í málmstykki á veggnum," sagði Kristjana Líndal í Fannafold í Graf- arvogi, móðir átta ára drengs, sem slapp með tiltölulega líth meiðsl eftir sögulega ferð heim úr skólanum í fyrradag. Drengurinn var að klifra við handrið sem var reist fyrir ofan undirgöngin - til að koma í veg fyrir slys. „Hann bólgnaði strax mikið á enn- inu og upp á höfuð, tognaöi á öðrum handleggnum og skrámaðist á hné. Skólafélagi hans, sem sá hvað gerð- ist, fylgdi honum heim. Þegar hann kom hingað mundi hann ekkert hvernig þetta hefði viljað th. Hann skoðaði sig svo í spegli og þá brá honum mikið enda var ennið stokk- bólgið. Þá fór að rifjast upp fyrir honum hvað hann hafði verið að gera. Ég fór svo með hann á slysa- deild Borgarspítalans," sagði Kristj- ana. Drengurinn heitir Böðvar Ingi Sig- urðsson. Hann er nú að ná sér eftir þessa lífsreynslu sem hann slapp úr með líth meiðsl. Böðvar Ingi er nem- andi í Foldaskóla. „Þegar undirgöngin komu við Fjallkonuveg hafði ég engar áhyggj- um af bömunum þegar þau færu í skólann sem er skammt frá göngun- um. Svo kom þetta upp á. Drengur- inn segist hafa verið að stytta sér leið. Ég get ekki skhið þau rök. Það er því ljóst að brýna verður fyrir bömunum að vera ekki að prha þar sem hætturnar leynast," sagði Kristjana. -ÓTT Böðvar Ingi Sigurðsson, átta ára, á gangstéttinni fyrir neðan handriðið sem hann klifrað upp á þegar hann datt niður. Fallið var fjórir metrar niður á steinsteypta gangstétt. DV-mynd GVA Tveggja drengja leitað í Mosfellssveit Tveggja tíu ára gamaha drengja uö út th leitar á níunda tímanum. Voru þeir orðnir blautir og úr Mosfehssveit var saknað í gær- Skömmu eftir að leit hófst sáust óhreinir eftir ferðina. kvöldi. drengimir - þeir höfðu farið í Þeim varð ekki meint af. Lögreglaoghjálparsveitvarköll- „fjallgöngu" í nágrenninu. -ÓTT

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.