Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1990, Page 9
MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 1990.
9
DV
De Klerk fékk „allt það sem hann vlldiu í Bandaríkjaferðinni:
Mælir með að blökkumenn
fái fullan atkvæðisrétt
- bandarískir þingmenn fara fögrum orðum um forsetann
í nýafstaöinni heimsókn F.W. de
Klerks, forseta Suöur-Afríku, til
Bandaríkjanna sagöi hann aö til
greina kæmi að i framtíðinni yröi
kosningalögum landsins breytt á
þann veg að einn maður heföi eitt
atkvæöi án tillits til litarháttar.
Þessi yfirlýsing varð þegar til þess
að margir þingmenn á Bandaríkja-
þingi milduöust í afstöðunni til
stjómar Suöur-Afríku og aðskilnað-
arstefnu hennar. Öldungadeildar-
þingmaðurinn David Boren sagði t.d.
að enginn væri betur til þess fallinn
en de Klerk að leiða Suður-Afríku í
átt til lýðræðis.
Bush Bandaríkjaforseti hefur þeg-
ar borið lof á de Klerk fyrir hugrekki
hans við að breyta stjórnarháttum
og sagði að héöan í frá væri ómögu-
legt að snúa frá þróuninni í lýðræðis-
átt.
De Klerk hafði þann fyrirvara á
yfirlýsingunni um jafnan atkvæðis-
rétt að tryggja yrði rétt minnihluta-
hópa. Á fréttamannafundi viöur-
kenndi forsetinn að í framtíðinni
yrðu svartir menn í meirihluta á
þingi landsins og í ríkisstjórninni.
Hann vildi þó ekki spá snöggum
umskiptum og taldi líklegt að hvítir
menn og svartir gætu jafnvel unnið
saman að stjórn landsins. De Klerk
vildi annars ekki gefa mikla yfirlýs-
ingar um Bandaríkjaferðina að svo
stöddu en þó var haft eftir samstarfs-
mönnum hans að hann teldi sig hafa
náð verulegum árangri í að rjúfa ein-
angrun lands síns á alþjóðavett-
vangi.
„De Klerk fékk allt það sem hann
vildi og meira til,“ sagði einn af emb-
ættismönnunum sem voru í för með
honum. Lofið sem de Klerk hefur
fengið í Bandaríkjunum styrkir
verulega stöðu hans meðal hvíta
De Klerk getur verið ánægður eftir
að hafa sannfært marga ráðamenn
í Bandaríkjunum um að hann ætli
að breyta stjórnkerfi Suður-Afríku.
Símamynd Reuter
minnihlutans heima fyrir. Hann hef-
ur setið undir ásökunum um linkind
í garð blökkumanna en getur nú sýnt
fram á að stefna hans er að bera ár-
angur.
Hömlur á viðskiptum Bandaríkja-
manna við Suður-Afríku gilda enn
sem fyrr og Bush getur ekki afnumið
þær nema með samþykki beggja
deilda þingsins. Þar hefur andstaðan
við stjórn Suður-Afríku verið mjög
sterk en talið er að de Klerk hafi
mildað hana verulega eftir viðræður
við þingmenn.
Viðskiptahömlumar hafa að sögn
suður-afrískra hagfræðinga kostað
um 200 þúsund landsmenn atvinn-
una. Stjórnin hefur nú náð fyrsta
áfanganum í átt til þess að hömlurn-
ar verði afnumdar.
Reuter
Útlönd
Lögreglan róaði
varúlfmeðýlfri
Lögreglan í Ástraliu varð að
svara manni sem hélt að hann
væri varúlfur með viðeigandi
ýlfri til að róa hann. Maðurinn
var alóöur og hafði m.a. bitiö
bróður sinn og bjóst til að éta
móður sína.
„Hvað gátum við gert annað?
Maðurinn var ýlfrandi og urr-
andi og algerlega snarvitlaus,“
sagði Andrew Holland, lögreglu-
þjónn í Blayney, smábæ um 160
kílómetra sunnan Sydney.
Tungl var fúllt á laugardags-
kvöldi þegar maðurinn fékk þá
flugu í höfuðið að hann væri var-
úlfur. Lögreglan í bænum fékk
simhringingu frá konu sem virt-
ist vera í mMu uppnámi.
Þegar lögreglan kom á staðinn
sat maðurinn í bíl sínum og ýlfr-
aði á móti tunglinu. Lögreglan
sagði að hann hefði verið mjög
drukkinn og ekki árennilegur.
I stað þess aö munda byssur var
þó ákveðið að reyna nýja aðferð
við að handsama varúlfa. Hol-
land lögregluþjónn ýlfraði á móti
manninum sem gafst upp eftir
nokkrar viðræður á þessu sér-
kennilega máli.
„Hann skildi strax hvað ég var
aðfara,“sagðiHolland. Reuter