Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1990, Blaðsíða 4
Fréttir
MIÐVIKU.DAGUR 3. OKTÓBER 1990.
Kínverska sendiráöiö gagnrýndi kynningu þáttar á rás 1:
Þátturinn klipptur til í
óþökk þáttagerðarmanns
„Mér finnst mjög gagnrýnivert aö
það virðist nægja að kínverski sendi-
herrann sé eitthvað að fetta fingur
út í ðrðalag fréttatilkynningar um
þáttinn og þá er honum breytt. Ég
var búinn að taká það fram að ég
vildi ekki að þættinum yrði breytt.
Það er mjög gróft að eiga við hann á
þann hátt sem gert var þar sem hann
var klipptur til og styttur um þrjár
mínútur," sagði Gísli Þór Gunnars-
son sem vann útvarpsþátt um Dalai
Lama og Tíbet fyrir rás 1, sem út-
varpað var á laugardag.
Gísh lagði fram drög aö þætti um
Dalai Lama og Tíbet í maí og var
hann samþykktur í lok júní. Þáttur-
inn var síðan tekinn upp 8. ágúst.
Eftir dagskrárkynningu á þættinum
hafði kinverska sendiráöið samband
við útvarpið og kom á framfæri at-
hugasemd við að Dalai Lama væri
kallaður þjóðarleiötogi Tíbeta. Kín-
verjar viðurkenna ekki Tíbet sem
annað en óijúfanlegan hluta af Kína
og í augum þeirra er Dalai Lama
enginn þjóðarleiðtogi.
„Viðbrögðin við þessu erindi Kín-
verjanna viröast hafa verið mikil því
að á laugardagsmorgninum er hringt
í mig og mér tilkynnt að þátturinn
sé ekki á dagskrá. Mér leist illa á að
fara aö eiga nokkuð við þáttinn þar
sem mikil vinna hafði verið lögð í
hann og vinnsluferliö tekið langan
tíma. Því hringdi ég í Ingu Jónu
Þórðardóttur, formann útvarpsráðs.
Henni fannst vera óhæfa að taka
þáttinn af dagskránni þar sem engin
ástæða væri til þess. Hún virðist
hafa talað við Hörð og þátturinn var
settur aftur á dagskrá en með þess-
um hka breytingum. Mér fannst að
mér vegið þar sem meðferðin á þætt-
inum grefur undan gildi hans fyrir
hlustendur.“
Gísli segir að meðal annars hafi
verið klippt út úr þættinum ræða
Dalai Lama yfir stúdentum í Santa
Crus í Bandaríkjunum þar sem hann
var að segja þeim frá góðu eðh mann-
eskjunnar. Segist Gísh hafa sagt
þessa afstöðu hans merkilega þar
sem hann hefði verið vitni af einu
óhugnanlegasta þjóðarmorði mann-
kynssögunnar þar sem væri skipu-
lögð útrýming Kínverja á tíbetsku
þjóðinni. Þá var komið inn á friðar-
hugmyndir Dalai Lama.
„Ég var búinn að segja að þátturinn
væri á mína ábyrgð og var tilbúinn
að standa við það enda er ásökun um
þjóðarmorð ekki frá mér komin held-
ur frá alþjóðlegum dómurum á veg-
um Sameinuöu þjóðanna. Ef útvarp-
ið setur fyrir sig innskot á ensku þá
er það fáránlegt þar sem ekki er ann-
að en forvitnilegt fyrir útvarpshlust-
endur að heyra í svo merkilegum
manni sem fengið hefur friðarverð-
laun Nóbels. Annað eins hefur gerst
á þeim bæ.“
DV hafði samband við Hörð Vil-
hjálmsson, framkvæmdastjóra Rík-
isútvarpsins sem vísaði á Márgréti
Oddsdóttur, dagskrárstjóra rásar 1
en sagði: „Þetta var fyrirfram upp-
tekinn þáttur og ég held að það hafi
ekki verið farið í að breyta honum
neitt.“
Margrét Oddsdóttir sagði að þetta
hafi aldrei farið í gegnum hendurnar
á henni og benti á Hörð Vilhjálms-
son.
„Það er ekki frá neinu að segja
öðru en því að kínverski sendiherr-
ann kom með þá athugasemd að Kín-
verjar teldu Dalai Lama ekki þjóð-
höfðinga Tíbeta. Kínverjar höfðu
engin áhrif á dagskrána hér og þess-
um þætti var ekki breytt frá minni
hendi,“ sagði Margrét.
-hlh
Akureyri:
Aðgerðir í gangi til
varnar hraðakstri
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Það sem verið er að gera í Skarðs-
hliöinni er aö verið er að færa götuna
í rétta breidd og þessar framkvæmd-
ir miðast eingöngu að því að draga
úr umferðarhraða á þessum staö,“
segir Árni Ólafsson skipulagsstjóri á
Akureyri, en framkvæmdir í Skarðs-
hlið skammt noröan við Undirhlíð
hafa vakið athygh margra að undan-
förnu.
Byggðir hafa verið kantar út í göt-
una beggja megin sitt á hvað og
myndast þar á milli „vasar", eins og
Árni orðaði það, og eru þeir hugsað-
ir sem bílastæði. Margir hafa haft á
orði að gatan líti orðið út eins og
svigbraut og verði erfitt að aka þar
um í vetur þegar snjórinn fer að tor-
velda mönnum að komast um.
Árni vildi lítið gera úr þessu, sagði
að ef menn héldu sig á löglegum
hraða ættu engin aukin vandræði við
akstur að fylgja þessum fram-
kvæmdum, þær væru reyndar ekki
til þess hugsaðar, heldur einungis til
þess að draga úr umferðarhraða.
Aðgerðir til að draga úr umferðar-
hraða hafa einnig verið í gangi á
öðrum stöðum og eru fyrirhugaðar
víða. T.d. eru búið aö setja tvær
„bungur“ í Skógarlundi og fyrir-
hugað er aö setja slíkar „bungur"
upp í Höfðahlíð, Skaröshlíð og e.t.v.
við Bugðusíðu nærri Síðuskóla.
Sumir segja að Skarðshlíðin á Akureyri líti nú út eins og svigbraut, en skipulagsstjóri segir að framkvæmdirnar
miði einungis að því að draga úr umferðarhraða. DV-mynd GK
I dag mælir Dagfari___________________,
Álmálið fyrir og eftir kvöldmat
Dagfari ákveður að fara með gamla
útvarpið sitt í viðgerð í hvert skipti
sem hann heyrir í Steingrími Her-
mannsyni því þá verður allt tal svo
óskýrt og illskiljanlegt. En svo
prófaði hann nýja tækið sem konan
keypti í Fríhöfninni og þá kom í
ljós að þetta lagaðist ekkert. Eftir
sem áður botnaði hann ekkert í því
sem Steingrímur var að segja. Er
þetta mjög bagalegt, einkum þegar
um stórmál er að ræða eins og t.d.
álmálið og afstöðu ríkisstjómar-
innar í því. Á þetta reyndi í gær
þegar Steingrímur var að útskýra
nákvæmlega og með sínu lagi
hvernig ákvarðanataka í ríkis-
stjóminni og samningar við út-
lendinga um svona mál gengju fyr-
ir sig.
Tveir sérfræðingar ríkisstjómar
Steingríms, sem hafa verið ráðu-
nautar ráðherranna, voru samtím-
is Steingrími í útvarpinu fyrir
kvöldmat og sagði annar þeirra að
fyrir helgina ætlaði Jón Sigurðsson
iðnaöarráðherra aö „staðfesta
meginatriði samnings" um álmáhð
með undirskrift sinni. En á Stein-
grími var að skilja að eitthvert
hrafnaspark Jóns Sigurðssonar á
löggiltan skjalapappír kæmi nú
háttvirtri ríkisstjóm hans ekki
mikiö við. „Að sjálfsögðu gerir
hann það á eigin ábyrgð," sagði
forsætisráðherra um iönaðarráö-
herra sinn, og hér hættir Dagfari
að skilja.
Á virkilega að trúa því að Jón
Sigurðsson, sem tiltölulega nýlega
gerðist atvinnukrati, sé orðinn sá
bógur að ganga persónuléga í
ábyrgð fyrir heilu álveri með til-
heyrandi stórvirkjunum, hafnar-
framkvæmdum og öðru sem því
fylgir og fylgja ber? Sá hefur heldur
betur spjarað sig á skömmum tíma
og vonandi er það tilfellið. En það
er þetta með undirskrift ráðherra
í ríkisstjórn sem mætti kannski
vera örlítið skárri en er þó löglega
skipuö af meirihluta Alþingis og
nýtur forystu Steingríms Her-
mannssonar. Bera þessir aðilar
enga ábyrgð? Dagfari, sem ekki
skilur Steingrím, sem ekki skilur
sjálfan sig, skildi það svo áður en
hann fór að hlusta á Steingrím að
verkaskipting í ríkisstjóm breytti
engu um það að hún væri í heild
ábyrg gjörða sinna. „En ég segi
bara fyrir mig,“ segir Steingrímur
stundum og í þessari ríkisstjóm er
það líklega svo áð hver segir fyrir
sig þaö sem honum sýnist og hver
skrifar fyrir sig undir það sem hon-
um sýnist og kemur ekki mikið við
hvað aðrir segja og skrifa og enginn
er ábyrgur nema aumingja Jón sem
er komin í sjálfsskuldarábyrgð fyr-
ir einu álveri, nokkrum stórvirkj-
unum ásamt hafnarmannvirkjum.
Þegar hér var komið sögu skrúf-
aöi Dagfari frá sjónvarpinu og sá
sér til mikillar gleði að Steingrímur
var á skjánum að útskýra álmálið
eins og það gengur fyrir sig í ríkis-
stjórn hans eftir kvöldmat. Fyrir
kvöldmat var það sem sagt ákveðið
mál eins og áður getur að Jón Sig-
urðsson ætlaöi að „staðfesta meg-
inatriði samnings" um álmálið eftir
rúman sólarhring, eða svo sögðu
a.m.k. sérfræðingarnir við hliö
Steingríms í útvarpinu. Sama sagði
Jón Sigurðsson sjálfur í miðjum
kvöldmatartímanum á Stöð 2. En
hafi einhver haldið að hann væri
farinn að skilja álmáliö eftir mat,
mátti hann gjöra svo vel að éta þá
meinloku ofan í sig með hjálp
Steingríms á skjánum.
Eins og staðan var í álmálinu í
ríkisstjórninni kl. 20.05 í gærkvöldi
að sögn Steingríms Hermannsson-
ar ætlar Jón Sigurðsson bara aö
staðfesta einhverja fundargerð á
fimmtudaginn „fyrir sína hönd“ en
ekki annarra óviðkomandi manna
eins og forsætisráðherra og ríkis-
stjórnar að öðru leyti, sem voru
ekki einu sinni á fundinum. Verst
var að Steingrímur skyldi ekki
segja Jóni Sigurðssyni þetta áður
en hann fór á Stöð 2 og sagði allt
annað, þótt vel megi vera að hann
hafi orðað þetta við hann með sínu
lagi en Jón ekki skilið hann.
En mikið lifandis skelfing og
ósköp var Dagfari ánægður með
Steingrím eftir kvöldmat á skján-
um og kannaðist við sinn mann
þegar hann sagði orðrétt af ein-
hverju tilefni sem Dagfari missti
af: „Ég heyrði þetta einhvers stað-
ar.“ Ekki átti þetta við fundargerð-
ina sem Jón ætlar að undirrita fyr-
ir sína hönd en ekki annarra
vandamanna í ríkisstjórninni á
fimmtudaginn, en því má treysta
aö Steingrímur fór með rétt mál
bæöi fyrir og eftir kvöldmat og hef-
ur ábyggilega heyrt allt sem hann
sagði einhver staðar.
Dagfari