Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1990, Page 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt-
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
Frjálst,óháð dagblað
MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 1990.
Fj árlagafrumvarpið:
Agreining-
ur um hús-
næðismál
- ráðherra viU breytingar
Jóhönnu Sigurðardóttur félags-
málaráðherra greinir mjög á við fé-
laga sína í ríkisstjórn um framlög
þau til húsnæðiskerfisins sem gert
er ráð fyrir í drögum að fjárlaga-
frumvarpi fyrir næsta ár.
Jóhanna hefur lýst yfir óánægju
sinni meö að engin tilhneiging virðist
vera til að leysa vanda húsnæðis-
lánakerfisins en ákvörðun þurfi að
taka um framtíð almenna lánakerfis-
ins frá 1986. í nýlegri skýrslu ríkis-
endurskoðunar kemur fram að
Byggingarsjóðir ríkisins verði gjald-
þrota eftir 11-15 ár þó að hætt verði
strax að lána úr þeim. Vill Jóhanna
loka almenna kerfinu. Þá hefur hún
lýst yfir óánægju með niðurstöðu
fjárlagafrumvarps varðandi félags-
lega íbúðakerfið.
Jóhanna áskilur sér rétt til að
leggja fram breytingartillögur á
þingi og væntir stuönings frá þing-
flokki sínum og ráðherrum.
Skattaskýrsla OECD:
Skatthlutfall
lágt hérlendis
- eignaskattur hár
I nýútkominni skýrslu OECD,
efnahags- og framfarastofnunarinn-
ar í París, um skattamál kemur með-
al annars fram að heildarskattar rík-
is og sveitarfélaga á íslandi árið 1988
eru næstlægstir meðal Evrópuþjóða
innan OECD miðað viö hlutfall af
landsframleiðslu eða 31,7 prósent.
Aöeins í Tyrklandi voru heildar-
skattarnir lægri, 22,9 prósent. Frá
1988 hafa skattar hér hækkað og
benda fyrirliggjandi upplýsingar til
að við höfum farið upp fyrir Sviss í
heildarskattheimtu. Skattakóngar
OECD eru hins vegar Svíar með 55,6
prósent skatthlutfall og Danir með
52,1 prósent skatthlutfall.
ísland er nú í fyrsta skipti með í
skýrslu OECD um skattamál en 24
ríki eiga aðild að stofnuninni. í sam-
anburði á samsetningu skatta milli
íslands, EFTA-ríkjanna, EB-ríkjanna
og Bandaríkjanna kemur í ljós að
tekjuskattur og tryggingagjöld ein-
staklinga og fyrirtækja eru mun
lægri hér á landi. Eignaskattur er
með hærra móti en þegar kemur að
neyslusköttum eða óbeinum sköttum
sláum við öll met þar sem þeir eru
hvergi hærri, 57,1 prósent.
-hlh
LOKI
Einhvern veginn þarf
að bæta
kaupmáttarrýrnunina!
Verkakvennafélagið Framtíðin:
Rekin fyrir að
taka 8 milljónir
- greiddiafturmeðsöluáíbúðogbíl
Ung kona, sem hafði starfað um „Ég vil ekkert ræða þetta mál verður fljótlega,“' sagði Guðriöur
eitt ár á skrifstofu Verkakvennafé- fyrr en ég hef haldið fund með kon- Elíasdóttir.
lagsins Framtíðarinnar í Hafnar- unum,“ sagði Guðríður Elíasdóttir Félagsmenn, sumir hveijir,
firði, var rekin frá störfum eftir að formaður Framtíðarinnar. munu vera ósáttir við að ekki hafi
upp komst aö hún hafði tekiö um - Var konan ekki kærð? verið lögð fram kæra á hendur
átta milfiónir króna úr sjóðum fé- „Nei. Við höfum fengið allt okkar starfsmanninum fyrrverandi
lagsins. Fjárdrátturinn var aldrei aftur.“ vegna fjárdráttarins. Því er búist
kærður til lögreglu. - Verður haldinnalmennurfélags- viö að heitt verði í kolunum á fé-
Konan hefur endurgreitt allt það fundur vegna þessa máls? lagsfundinum þar sem þetta mál
sem hún tók. Samkvæmt heimild- „Já.“ verður rætt.
um DV var það gert með sölu íbúð- - Hvenær? -sme
ar og bíls. „Þaö er ekki ákveðið, en það
Jafnræði var með skáksveitum Taflfélags Reykjavíkur og Solingen frá Þyskalandi er þær mættust i gærkvöldi.
Hvor sveit hlaut 3 stig. Um var að ræða fyrri viðureign liðanna í Evrópukeppni félagsliða en þau keppa nú í fjög-
urra liða úrslitum. Úrslit urðu þau að Jóhann Hjartarson tapaði fyrir Nigel Short, Jón L. Árnason gerði jafntefli
við Boris Spassky, Margeir Pétursson gerði jafntefli við Robert H. Bner, Helgi Ólafsson sigraði Eric Lobron, Hann-
es H. Stefánsson tapaði fyrir Ralf Lau og Karl Þorsteinsson sigraði J. Duebal. Síðari umferð hefst síðdegis í dag.
Á myndinni tefla stórmeistararnir Jón L. Árnason og Boris Spassky. -kaa/DV-mynd Brynjar Gauti
Veöriöámorgun:
Hvasstog
rigmng
Framan af degi verður norð-.
vestanstrekkingur með slyddu-
éljum við norðausturströndina
en annars fremur hæg breytileg
átt og þurrt. Þegar líður á daginn
þykknar upp suðvestanlands
með vaxandi austanátt. Hvasst
og rigning undir kvöld en þá létt-
ir til norðaustanlands. Hiti 3-10
stig og hlýjast á Suðausturlandi.
Keflavíkurflugvöllur:
Norðmaðurstung-
inn með hnrfi
31 árs gamall austurríkismaður sit-
ur í vörslu lögreglunnar á Keflavík-
urflugvelli eftir að hafa stungið
norskan þyrluflugmann í magann í
Flugstöö Leifs Eiríkssonar í gær-
kvöldi. Norðmaðurinn gekkst undir
aðgerð á sjúkrahúsinu í Keflavík en
er ekki tahnn í lífshættu.
Mennirnir voru að koma með Flug-
leiðaþoju frá Narssarssuaq. Millilent
var í Keflavík áður en haldið var
áfram til Kaupmannahafnar. Sá
austurríski var ósáttur við að Norð-
maðurinn hafði áður hjálpað lög-
reglu við leit að sér á Grænlandi þeg-
ar hann hvarf úr mannabyggðum.
Árásarmaðurinn hafði valdið Norð-
manninum ónæði á leiðinni til ís-
lands og óskaði flugstjórinn eftir því
að haft yrði eftirlit meö honum. Lög- i
reglumenn í flugstöðinni urðu við I
þeim óskum. Þegar brottfór hafði
verið tilkynnt og mennirnir voru I
komnir að „rananum" á leið inn í |
þotuna tók sá austurríski upp hníf :
og stakk hinn í kviðinn. Árásarmað-
urinn var strax handtekinn og veitti |
hannekkimótspyrnu. -ÓTT
Ungir læknar:
Minni yfirvinnu
„Ef við fáum engin svör viö kröfum
okkar frá stjórn ríkisspítalanna og
samninganefnd ríkisins munum við
fara út í frekari aðgerðir í framtíð-
inni til að draga úr yfirvinnu,“ segir
Björn Rúnar Lúövíksson í stjórn Fé-
lags ungra lækna.
Síðasta sólarhring lögðu aðstoðar-
læknar niður vinnu á sjúkrahúsun-
um til að minna á kröfur sínar um
bætt kjör. Gærdaginn notuðu þeir til
að funda og var haldinn geysiijöl-
mennur fundur í Félagi ungra lækna.
Á fundinum var samþykkt ályktun
og kosið í ráö og nefndir á vegum
félagsins. Meðal annars var skipað i
svokallaða aðgerðarnefnd en hún
mun fara með samningamál félags-
ins í samráOi viö stjóm Félags ungi'a
lækna og samninganefnd. -J.Mar
í
i
!
i
!
Mikiðumþjófnaði á
var irm í tvn hílíT l Rpvkia- ^
Brotist var inn í tvo bíla' í Reykja
vík og stolið úr þeim verðmætum í
gærkvöldi. Annar bíllinn stóð við
Háskólabíó en hinn viö Bíóborgina.
Úr öðrum bílnum var stolið veski en
radarvara og fleiru úr hinum.
Að sögn lögreglunnar í Reykjavík
hefur mikið veriö um þjófnaði og.
innbrot í bíla á síðustu vikum. Hefur
komið fyrir að fjögur tilfelli hafi ver-
ið kærð á dag. Er þá bæði um að
ræða að brotist sé inn í læsta bíla og
að farið sé inn í bifreiöar sem skildar
hafa verið eftir ólæstar. -ÓTT
í
i
í
g KONFEKT
— Heildsöludreifmji sími: 91- 41760
ö*
I
láftrvggingarj
Al.ÞJÓÐA
LIFTRYGGINGARFELAGIÐ HF.
LÁGMÚI.15 - RLYKJAVlR
-ínil 681644 í