Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1990, Qupperneq 4
4
LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 1990.
Fréttir
Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar:
Átök og uppnám vegna
deilna um formannskjör
lögfræðiálitum ber ekki saman og stjómarmaður vill hreint mannorð
„Hver félagsmaður er ábyrgur fyr-
ir atkvæði sínu. Hrekklaust fólk þarf
því að varast að láta nota nafn sitt
og atkvæði til óhappaverka sem
skaða félagsandann og skapa sundr-
ungu og illindi í félagi okkar,“ segir
í bréfi sem Óskar Jóhannsson,
stjómarmaður í Starfsmannafélagi
Reykjavíkurborgar, hefur ritað til
fulltrúa, varafulltrúa og nokkurra
starfsmanna Reykjavíkurhorgar.
Tildrög þessa bréfs eru harðvítugar
deilur innan fulltrúaráðs og stjómar
starfsmannafélagsins um hvort opna
eigi fyrir formannskjör um leið og
kosið verður til stjórnar í byrjun
næsta árs. Verði formaöur ekki kjör-
inn beinni kosningu munu einungis
10 manns sitja í stjórninni á næsta
ári í stað 11 eins og lög félagsins gera
ráð fyrir. Skoðun meirihluta stjómar
er hins vegar sú að. Sjöfn Ingólfs-
dóttir, sem var kjörin varaformaður
af stjórn, skuli gegna formennsku
út kjörtímabil Haralds Hannessonar,
sem lést fyrr á árinu, en hann var
kosinn beinni kosningu til tveggja
ára.
Samkvæmt lögum félagsins er for-
maður kosinn sérstaklega til tveggja
ára í senn en í forfóllum hans skal
varaformaður gegna störfum hans.
Varaformaður er hins vegar ekki
kosinn beinni kosningu heldur af
stjórn. Samkvæmt lögum félagsins
eru 5 meðstjórnendur kosnir í einu
til tveggja ára og ganga því árlega 5
úr stjórninni á víxl.
Fyrir liggja tvö lögfræðiálit vegna
þessa máls. Annars vegar liggur fyr-
ir álitsgerð Atla Gíslasonar hrl. en
hann kemst að þeirri niðurstöðu að
við næstu stjómarkosningar í starfs-
mannafélaginu verði að kjósa nýjan
formann í opinni kosningu auk
þeirra 5 stjórnarmanna sem lög fé-
lagsins kveða á um. Hins vegar liggur
fyrir bréf frá Gesti Jónssyni hrl. þar
sem segir að eðlilegt sé að varafor-
maður taki við stöðu formanns og
gegni henni í forfóllum hans.
Ljóst er að innan ráðsins er mikil
andstaöa gegn hugmyndum meiri-
hluta stjómar um að opna ekki fyrir
formannskjör næst þegar kosið verð-
ur í stjóm félagsins. Þegar hafa á
þriðja tug fulltrúa í ráðinu skrifað
undir tillögu þess efnis að opna beri
fyrir formannskjör.
Á fulltrúaráðsfundi, sem haldinn
verður næstkomandi mánudag,
veröur tekin afstaða til þessa máls.
Bréf Óskars mun sjálfsagt hleypa
enn meiri hörku í fundinn því þar
segir meðal annars um deilurnar:
„Ég mun ekki láta mitt eftir liggja
við að uppræta þennan rógburð og
hreinsa mannorö mitt og samstarfs-
fólks míns í stjórninni...“
-kaa
Langtímaspá um veður á N-Atlantshafi fyrir október*
Byggt á gögnum NOAA (National Oceanic and Atmospheric Administration)
* Spáin sýnir frávik frá meöaihita og meöalúrkomu á spásvæöinu
Álverið hefur tæpast áhrif á svínin
- segirÞorvalduríSlldogfisk
„Það hefur nú enginn óskaö eftir
því að við fjarlægjum okkur enda
útlit fyrir aö þetta álver veröi svo
langt frá okkur,“ sagði Þorvaldur
Guðmundsson, kaupmaður í Síld og
fisk, en hann rekur eitt stærsta
svínabú landsins á Vatnsleysu-
strönd. Þorvaldur á jörðina sem
svínabúið stendur á.
Svínabú þetta er ekki langt frá
Keilisnesi en þar er nú fyrirhugað
að reisa risastórt álver. Fyrst í stað
verður það upp á 210.000 tonn en síð-
an er ætlunin að stækka það um
helming.
Þorvaldur sagðist sáralítið hafa
leitt hugann að því hvort svínabúiö
yrði að víkja. „Það er algengt erlend-
is, að því að mér er sagt, og það hef-
ur engin áhrif á svínin. Annars er
þetta ekki komið svo langt að maður
sé nokkuð farið að hugsa um þetta,“
sagði Þorvaldur.
Þorvaldur sagðist geta ímyndað sér
að álverið yrði um það bil tvo til þrjá
kílómetra frá svínabúinu. Hann
sagði að þaö væri svipað og fjarlægð
vinnslufyrirtækisins frá ísal.
-SMJ
Megindrættir í veðrinu fram 1 miðjan nóvember:
Svalt og blautt
Hitastig verður heldur lægra en í
meðalári en úrkoma hins vegar örlít-
ið meiri. Þannig hljómar lang-
tímaspá bandarísku veðurstofunnar
fyrir tímabilið frá miðjum október til
miös nóvember.
Samkvæmt gögnum bandarísku
veðurstofunnar er hitinn í Reykjavík
á bihnu 2,8-4,1 gráða, eða 3,3 gráður
að meðaltali á þessu tímabili. DV
ræddi við veðurfræðing veðurstof-
unnar vestra í gær og upplýsti hann
að spá til skemmri tíma, fyrir tíma-
bihð 23.-27. október, væri ekki alveg
í samræmi við 30 daga spána. Sú spá
segði mönnum að í næstu yiku yrði
frekar hlýtt á svæðinu viö ísland og
úrkoma aðeins meiri en venja er til
á þesum árstíma. Þegar horft er
lengra fram í tímann má þannig bú-
ast við kólnandi veðri.
Kortiö hér th hhðar sýnir reyndar
30 daga spá bandarísku veðurstof-
unnar fyrir októbermánuð, en kort
fyrir miðjan október til miðs nóv-
ember hefur ekki borist blaðinu enn-
þá. Þar kemur fram að ekki verður
mjög kalt í október frekar votviðra-
samt.
Lesendur DV ættu að vera farnir
að kannast við þessar spár sem birst
hafa reglulega í blaöinu síðasthðin
tvö ár. Nú hefur kortið verið endur-
bætt þannig að lesendur eigi auð-
veldara með að átta sig á megintil-
hneigingum í veðrinu næstu vikurn-
ar.
Sem fyrr minnum við á aö spár,
sem gerðar eru th lengri tíma en
næstu 5-6 daga, eru ekki eins áreið-
anlegar og skammtímaspár. Ber því
að taka þessar langtímaspár með fyr-
irvara enda er tilgangur þeirra aðal-
lega að sýna megintilhneigingar í
veðurfarinu næstu vikur en ekki að
spá í veðrið frá degi th dags. Þess
má þó geta aö spárnar hafa í flestum
thvikum gengið eftir í meginatriðum.
-hlh
Kvennakórinn Lissý með tónleika
Gylfi Kris^ánssan, DV, Akureyit Kvennakórinn Lissý, sem skipaöur er 60 konum víös vegar úr Þingeyj- arsýslu, heldur tvenna tónleika í Eyjafirði á sunnudag. Þeir fyrri veröa í félagsheimilinu Hlíðarbæ skammt norðan Akur- eyrar kl. 16 en hinir síðari í Víkur- röst á Dalvík og heflast þeir kl. 21. a emtsskra era kirkjuleg og ver- aldleg kórlög íslenskra og erlendra höfunda, m.a. eftir Pál ísólfsson, Sigvalda Kaldalóns, Franz Schu- bert og Mozart. Einsöngvarar eru Þuríður Baldursdóttir og Hildur Tryggvadóttir, tmdirleikari Guð- rún A. Kristjánsdóttir og stjórn- andi Margrét Bóasdóttir.
Stjóm Ibúasamtaka Grafarvogs:
Vilja að íbúar geti lifað áhyggjulaust í framtíðinni
- Áburöarverksmiðjan greiöir um helming þess verös sem Atiantsál vill greiða vegna álvers á Keilisnesi
„í áhættumatinu kemur skýrt
fram að innra eftirhti í verksmiðj-
unni er stórlega ábótavant og að
umtalsverð hætta stafar af starfsemi
hennar fyrir íbúa í nágrenninu. í
matinu er ekki tekið tihit th hætt-
unnar sem stafar af flutningi efna th
og frá verskmiðjunni en þó er gféint
frá því að óhöpp vegna þessa séu
tíð,“ segir Guömundur Guömunds-
son, formaður íbúasamtaka Grafar-
vogs um nýútkomna skýrslu norska
ráðgjafarfyrirtækisins Technica yfir
áhættumat vegna Áburðarverk-
smiðju ríkisins í Gufunesi.
Stjóm íbúasamtakanna ályktaði
vegna þessa máls á fimmtudags-
kvöld. í ályktuninxh segir meðal ann-
ars að eina ásættanlega lausnin sé
að leggja niður starfsemi Áburðar-
verksmiðjunnar á þessum stað.
„Stjómin skorar á borgarstjóm, al-
þingismenn Reykjavíkur og ríkis-
stjóm að taka höndum saman og
vinna ákveðið að lausn þessa máls
þannig aö íbúar Grafarvogs geti lifað
áhyggjulaust í framtíðinni,“ segir í
lok ályktunarinnar.
Mörgum sem DV hefur leitað th
finnst undarlegt að forsvarsmönnum
Áburðarverksmiðjunnar skuh hafa
verið fahð að kynna niðurstöður
norska ráðgjafarhópsins, þeim sé í
raun gefiö eftir að túlka niðurstöð-
umar sér í hag. Telja sumir að túlk-
un þeirra á innihaldi skýrslunnar sé
bæöi vihandi og hlutdræg. Þetta tel-
ur Hákon Björnsson, framkvæmda-
stjóri verksmiðjunnar, ekki maklega
gagnrýni. „Við fengum virt fyrirtæki
á þessu sviði til að gera þessa úttekt
og stóðum síðan fyrir því aö gefa fjöl-
miðlum færi á því aö tala við þessa
aðha,“ segir Hákon.
Deilur um ávinning
af áhættu
Nokkuð skiptar skoðanir era á því
hvort ávinningurinn af starfsemi
Áhurðarverksmiðjunnar sé nægjan-
legur th að réttlæta þá áhættu sem
af henni stafar. í ljósi þess að áburö-
amotkun innanlands mun óhjá-
kvæmhega minnka á komandi áram,
meðal annars vegna ákvæða búvöra-
samninga um samdrátt í landbúnað-
arframleiðslu, hlýtur hins vegar sú
spuming aö verða æ áleitnari hvort
ekki sé rétt að afnema einkarétt
Áburðarverksmiðjunnar á fram-
leiðslu og dreifingu áburðar og leggja
starfsemi hennar niöur.
í samtah við DV segir Hákon
Bjömsson verksmiðjuna þjóðhags-
lega hagkvæma, og í svipaðan streng
hefur Steingrímur J. Sigfússon land-
búnaðarráðherra tekið. Á öndverðri
skoðun eru hins vegar margir, meðal
annarra Davíð Oddsson borgarstjóri.
Hvað sem þessum dehum um hag-
kvæmni líður er þó ljóst að á undan-
fómum 5 árum hefur Áburðarverk-
smiðjan fengiö ríflega mhljarð króna
í bein framlög úr ríkissjóöi og á íjár-
lögum fyrir næsta ár er gert ráð fyr-
ir 90 mihjón króna framlagi. Þá
greiðir verksmiðjan óverulegt verð
fyrir rafmagnsnotkun sína en orku-
þörfverksmiðj unnar er um einn tí-
uridi af orkunotkim álversins í
Straumsvík.
Á meðan Reykvíkingar greiða tæp-
ar 6 krónur fyrir kílóvattstundina
greiðir Áburðarverksmiðjan einung-
is 53 aura. Th samanburöar má geta
þess að álverið í Straumsvík greiðir
um 85 aura fyrir khóvattstundina og
samkvæmt drögimi að samningum
við Afiantál-hópinn er fyrirhugað
verð á raforku til álversins á Keihs-
nesi um 1 króna kílóvattstundin mið-
að við núverandi gengi.
-kaa