Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1990, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1990, Blaðsíða 15
LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 1990. 15 í viöjum vanans Ég sat fyrir framan sjónvarpiö á sunnudagskvöldiö síðasta þegar þeir kynntu nýja þáttinn. Ófriður og örlög heitir hann og nafnið gefur góö fyrirheit. Maður er allur fyrir örlög og ófrið, sér í lagi ef ein- hverjir aðrir verða fyrir barðinu á örlögunum. En svo kom rúsínan í pylsuendanum: Þættirnir verða þijátíd samtals og verða jafnan sýndir á sunnudagskvöldum. Mér féll allur ketill í eld. Sat máttvana fyrir framan sjónvarps- skerminn og hugsaöi með hryllingi til framhaldsins. Þijátíu þættir þýða rúmlega sjö mánuðir. Það verður komið vor þegar þessum ósköpum lýkur! Og ég sá fyrir mér sunnudagskvöldin í vetur, límdur fyrir framan sjónvarpið, gagntek- inn af ástum, örlögum og ófriði, ofurseldur söguþræði ómerkilegs reyfara. En hvað er þetta, maður! Hver biður þig um að sitja öll kvöld fyrir framan sjónvarpið? Það neyðir þig enginn til að sitja þrjátíu sunnu- dagskvöld í röð yfir einum sjón- varpsþætti. En ég spyr á móti: Hver neyðir þig að fara alltaf sömu leið í vinn- una? Það segir þér enginn að hvíl- ast á nóttunni eða fara í bað eða hlusta á fréttirnar. Það segir þér enginn að falla inn í iúð daglega munstur rútínunnar, fara á fætur á sama tíma, mæta í vinnunni á réttum tíma, borða í hádeginu, hvíla þig á kvöldin, tala um hvers- dagslega hluti, hitta sömu kunn- ingjana, lifa og hrærast í innilokuð- um heimi íjölskyldunnar og næsta nágrennis. Það neyðir þig enginn til að ganga vananum á hönd. En ef þú endurtekur sömu hlutina og sömu viðbrögðin nógu oft ertu ekki lengur sjálfs þíns herra. Eða kannski er betra að orða það þann- ig að þú sért þjónn þinnar eigin hegðunar. Án þess að þú vitir af því. í gamla daga kom heilt fótboltalið inn í búningsklefann og hver og einn gekk að sínum stað og sínum sama snaga leik eftir leik og mót eftir mót. Þó voru engir snagar merktir og engin fyrirmæh gefin. Menn gengu einfaldlega og ósjálf- rátt á sinn gamla stað, líkt og kým- ar rata á básana sína. Það er enginn sem segir þeim að gera það og það er enginn sem segir manni að end- urtaka hegðan sína aftur og aftur. Tímaskekkja En svona er nú þetta samt og þó ég neiti því ekki að tilbreytingin sé nauðsynleg og uppákomurnar skemmtilegar þá sogast maður allt- af inn í sömu hringrásina, sömu venjurnar, sömu ósjálfráöu og ómeðvituöu viðbrögðin. Og það verður sífellt þægilegra eftir því sem árin líða. Maður sigUr hrað- byri inn í vanabindandi lífshætti hvunndagsins og streitist Utið sem ekki á móti. Þetta er víst það sem kallað er að verða miðaldra og búið að vara mann við. Ég þekki raunar suma sem ekki gefast upp og eru enn á fullri ferð í skemmtanalífinu og framhjáhlaupunum og láta ekki deigan síga þrátt fyrir eUimörk og axlasig. Eg kalla þá skallapoppara og dáist að þreki þeirra og úthaldi og læt þá stundum ylja mér með sögum af ævintýrum næturlífsins. Maður er sosum ekki alveg synd- laus heldur og lætur sig hafa vöku- nætur ef mikiö liggur við eftir herrakvöld óg árshátíðir, en þeir gerast verri, timburmennirnir, með hveiju árinu og þreytulegri morgunsporin þegar svefntíminn raskast og maöur sér hvorki dag- inn né veginn. í sjálfu sér er þetta synd og skömm hvað aldurinn segir tíl sín og þrekiö bregst þegar síst skyldi. Nú er loksins búið að opna fyrir bjórinn og bjórstofurnar og maður sér langar biðraðir fyrir utan tísku- staðina og lítur löngunaraugum inn í alla dýrðina og gleðina sem maður fer á mis við. Aldurinn á mér er eiginlega djöfulleg tíma- skekkja og ég verð að játa að stund- um gleymi ég þessum ellimörkum. og geng á vit þessarar fyrirheitnu lífsgleði en verð alltaf fyrir jafn- miklum vonbrigðum. Sem er ekki vegna skorts á lífsgleði né heldur vegna þess að fólkið í kringum mig skemmti sér ekki nógu vel. Von- brigðin stafa af því að maður hefur misst taktinn, fellur ekki lengur inn í strauminn og er sennilega vaxinn upp úr þeirri lífsnautn sem einu sinni var. Sumir kalla þetta þroskamerki, aörir afturfor, en hvað sem það nú annars heitir eru þetta auðvitað dapurleg örlög fyrir mann á besta aldri. Krati eða ekki krati Ég lít í kringum mig á bjórstof- unni, á skemmtistaðnum, á fómum vegi almúgans og sé engan sem ég þekki. Ekki í bíói, ekki í leikhúsinu og ekki einu sinni á rakarastofunni hittir maður jafnaldra sína eða samferðamenn. Hvað er orðið um allt þetta fólk sem engar andláts- fregnir hafa borist um og býr með manni í sömu borg og nánast undir sama þaki? Það skyldi þó ekki hafa þroskast til annarrar iðju og gengið á vit þeirrar sömu örlaga og eru að heltaka mig? Inn á bak við gluggatjöldin, inn á bak við sjón- varpið, inn á bak við þrjátíu sjón- varpsþætti um ófrið og örlög. Einn er þó sá staður sem heldur sínum hlut. Póhtíkin he'ldur sínu fólki, hvað sem líður aldri og árum. Fylgismennirnir standa sína plikt. Á flokksfundum sjást gömlu, góðu andlitin ár eftir ár og þeirri tryggð fær hvorki sjónvarp né veraldar- vafstur grandað. En hér er aftur vaninn á feröinni. Af gömlum vana Laugardags- pistOl Ellert B. Schram mæta menn á skyldufundina, af gömlum vana ganga menn að kjör- borðinu og setja krossinn á sinn sama stað. Af gömlum vana standa þeir vörð um flokkinn sinn og múrana sem hann hefur reist. Ýmsir flokksholhr menn ráku upp ramakvein þegar það spurðist að undirritaður var tilkynntur sem ræðumaður á flokksþingi krata um sfðustu helgi. Var EUert að svíkja ht? Ertu orðinn krati ofan í annað? spurðu menn og Morgunblaðið fór á vettvang og spurði hvað þetta ætti að þýða. Já, krati eða ekki krati. Hver er ekki krati ef aö er gáð? Og hver er ekki sjálfstæðismaður ef að er gáð? Erum við ekki öh með svipuð lífs- viðhorf og eins þenkjandi þegar kemur að jafnrétti, frelsi og bræðralagi? Samt neglum við okk- ur niður hvert í sinn flokkinn og högum okkur og tölum eins og framtíðin sé undir því komin að þessi eða hinn flokkurinn komist 111 valda. Hin falska sýn í Evrópu brutu þeir niður múrinn mUli austurs og vesturs. Á einu augnabhki varð umheiminum ljóst að báðum megin múranna lifði fólk og hrærðist sem var rétt eins og það sjálft. Allir voru eins og samt var þessi múr búinn að standa eins og víggirðing eða fangelsisveggur í áratugi og koma í veg fyrir eðlileg samskipti. Tákn hins eilífa aðskiln- aðar kapitahsmans og kommún- ismans, fjötranna og frelsisins. Með múrnum hrundi þessi heims- mynd og sömuleiðis fordómarnir gagnvart fólkinu hinum megin. Og hin falska sýn. Hér heima þurfum við líka að bijóta niður múra, flokksmúrana, sem hindra samganginn á milh flokkanna og fólksins sem er af sama meiði, með sama hugarfar, sömu hvatir. Við þurfum að sjá tíl mannanna sem ala með okkur úlf- úðina á öðrum flokkum, sem þrífast í andrúmslofti stöðnunar- innar og vernda sig með himin- háum flokksmúrum. Vernda sig sjálfa en vama fólkinu því að sam- einast í einu afli frjálslyndis og jafnréttis. Mitt erindi á flokksþing krata var að boða þá skoðun að lýðræðislegt fólk ætti samleið. Til að undirstrika þá pólitísku nauðsyn að brjóta nið- ur múrana á milh flokkanna; aö brjótast út úr viðjum vanans og þeirrar flokkshoUustu sem dregur fólk í dUka og kemur í veg fyrir heilbrigt og stöðugt stjórnarfar. Vaninn er þægilegur Vaninn er þægilegur. Einu sinni þekkti ég mann sem gekk svo ná- kvæmlega tíl og frá vinnu að ná- grannarnir gátu stiUt klukkumar sínar eftir honum. Hann gekk aUtaf úr miðbænum til hádegismatar heima hjá sér og gekk inn um dyrn- ar á slaginu tólf. Það stóðst alltaf á endum að þegar hann lét síðasta bitann upp í sig heyrðist í útvarp- inu: Útvarp Reykjavík, nú verða sagðar fréttir. Ekki sekúndunni fyrr, ekki sekúndunni síðar. Ég skUdi það ekki fyrr en löngu, löngu seinna að þessi nákvæmni stafaði ekki af smámunasemi eða tiktúrum. Maðurinn var einfald- lega búinn að venja sig við þetta munstur og allar breytingar vom óþægUegar, röskuðu öðm atferh og koUvörpuðu því öryggi sem fólst í fostum skorðum í lífi þessa manns. Það var vaninn sem hafði náð tökum á honum og vaninn var þægUegur, aðgengUegur og tryggur forunautur. Ekkert kom á óvart, ekkert fór úr skorðum, aUt var eins og það átti að vera dag frá degi, viku eftir viku, ár eftir ár. Elskar friðinn Þverstæðan við vanann er sú að maður ánetjast honum vegna þess að hann veitir öryggi en um leið er hann tilhneiging til að ýta nýj- ungunum frá sér. Hann er múr gegn frelsun, viðjar á framfarir. Vaninn er hættulegur vitnisburður um stöðnun og hann er skjóhð sem menn flýja í þegar krafist er upp- stokkunar og uppreisnar gegn því sem fyrir er. Þijátíu sjónvarps- þættir eru gott ráð við njálg, sjón- varpið, yfir höfuð, er helsti drag- bíturinn á mannleg samskipti. Þá þarf enginn að tala né hugsa og það er óhugnanlega auðvelt aö verða fómardýr slíks vana. Fólk hefur áhuga á að fylgjast með ófriði á skerminum meðan það stendur ekki í ófriði sjálft. Áhorf- endur vilja ganga á vit örlaganna með sögupersónum sjónvarpsins meðan þeir þurfa ekki að sætta sig við hlutskipti þeirra. Hinn hver- dagslegi, miðaldra meöaljón elskar friðinn með því aö strjúka á sér kviðinn. Heima í stofu, niðri í hæg- indastólnum, framan við imba- kassann. Svona er nú lífið í hnot- skurn á öðru hvom heimili og ég er óðum að komast á þetta stig. Ég fóma höndum í uppgjöf og um- komuleysi gagnvart þessum þrjá- tíu framhaldsþáttum og hugsa með hryggð til allra bókanna, sem ég á eftir ólesnar, og allra leikritanna, sem ég fer á mis við, og allra heim- sóknanna sem nú munu því miður falla niður á sunnudagskvöldum af óviðráðanlegum orsökum. Ég bið fólk um að trufla mig ekki með símhringingum á þessum frátekna tíma og ég veit að það skapar ekk- ert nema ófrið og ófyrirsjáanleg örlög fyrir þau félagasamtök sem verða svo vitlaus aö efna til funda- ,halda þegar þjóðin leggst í dvala vanans og viðjanna á þessari helgu stundu. Hvað skyldi guðsmaðurinn á Nesinu segja við þessu? Ellert B. Schram

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.