Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1990, Blaðsíða 48
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem .birt- krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað í OV, greiðast 2.000 krónur. fréttaskotum allan sólarhringinn.
LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 1990.
Árásarmál upplýst:
Tveir hafa
játað
nauðgun-
artilraun
- annar rauf skllorö
Tveir menn hafa játað að hafa gert
tilraun til að nauðga tæplega fimm-
tugri konu í húsi í vesturbænum í
síðustu viku. Rannsóknarlögregla
ríkisins hefur upplýst máliö.
Nauðgunartilraunin átti sér stað
snemma á föstudagsmorgun í síðustu
viku. Konan fór síðan á miðborgar-
stöð lögreglunnar i Reykjavík og
kærði verknaðinn. Hún var með
töluverða áverka eftir átök og föt
hennar voru illa útleikin. Sagði hún
að annar mannanna hefði haldið sér
á meðan hinn reyndi að nauðga sér.
Mönnunum tókst ekki að koma fram
vilja sínum.
Mennimir tveir voru handteknir
um síðustu helgi. Annar þeirra er 31
árs. Hafði hann áður hlotið 15 mán-
aða dóm fyrir nauðgun. Maðurinn
hafði afplánað 10 mánuði af dómn-
um, eða tvo þriðju hluta tímans, þeg-
ar hann var látinn laus gegn skilorði
í tvö ár. Skilorðið hefði runnið út í
byijun næsta árs. Þessi maður hefur
því vegna skilorðsrofs verið sendur
aftur í fangelsið á Litla-Hrauni sam-
kvæmt fyrri dómi. Mun hann afplána
þá flmm mánuði sem eftir voru.
Hinum manninum, sem er þrítug-
ur, var sleppt eftir að játning lá fyr-
ir. Ríkissaksóknari mun fá mál
mannanna tveggja í hendur eftir
helgina.
Rannsóknarlögreglan hefur einnig
til meðferöar nauðgunarkæru sem
ung kona lagði fram fyrir tveimur
vikum. Sagði hún að tveir menn
hefðu komið fram vilja sínum eftir
að þeir höfðu tekið hana upp í bifreið
sem þeir voru á. Það mál er í rann-
sókn og er óupplýst.
-ÓTT
Kasparovfékk
skákinnifrestað
Garry Kasparov fékk fimmtu skák-
inni í einvíginu við Anatoly Karpov
frestað í gær eftir að hann hafði að-
eins náð jafntefli á hvítt í fjórðu skák-
inni.
Engin skýring var gefin á frestun-
inni en skákskýrendur segja að
Kasparov telji að heimsmeistarinn
vilji fá að jafna sig eftir að hafa lent
í kröppum dansi í fjórðu skákinni.
Áætlað er aö tefla fimmtu skákina á
mánudaginn. GK
LOKI
Loksins uröu Arnar-
flugsmenn flugleiöir!
Virðist stef na i 800
milijona gjaldþrot
Forráðamenn Arnarflugs hafa
óskað þess að fyrirtækið verði tekið
til gjaldþrotaskipta. Ragnar H. Hall
borgarfógeti mun kveða upp úr-
skurð um gjaldþrotabeiðnina eftir
helgi.
í greinargerð, sem forráðamenn
Arnarflugs hafa samið, kemur
fram að skuldir félagsins eru rúm-
ar 960 milljónir króna. Eignir fé-
lagsins eru taldar vera 130 til 150
milljónir. Vonast er tii að ríkissjóð-
ur geíi eftir 358 milljóna króna
skuld. Ef það gengur eftir eru
skuldir umfram eignir um 450
miiljónir - aimars eru skuldir um-
ffam eignir rúmar 800 milljónir.
Helstu eignir Amarflugs eru
þijár af fimm flugvéium sem Arn-
arflug innanlands notar. Þær eru
aliar veðsettar fyrir hærri fjár-
hæðum en söiuverð þeirra er. Arn-
arflug innanlands er að mestu í
eigu sömu aðila og Amarflug hf.
Gjaldþrot Arnarflugs hf. bitnar
ekki á innanlandsfluginu nema
vegna flugvélanna þriggja. Fast-
eignir fyrirtækisins við Lágmúla í
Reykjavík eru mikið veðsettar.
Auk flugvéla og fasteigna á Arnar-
flug útistandandi skuldir, húsgögn
og ýmiss konar búnað. Skrifstofur
félagsins eru innsiglaðar að kröfu
Gjaldheimtunnar í Reykjavík.
Allt starfsfólk Arnarflugs hefur
nú misst atvinnuna, Tæplega 50
manns voru á launaskrá. Launa-
skuldir Arnarflugs em um 20 millj-
ónir auk launatengdra gjalda. Rík-
issjóður verður að greiða vangold-
in laun félagsins.
Helsti lánardrottinn Amarflugs
er ríkissjóður. Skuldir félagsins við
r íkið eru á annað hundrað milljón-
ir, ef reiknað er með niðurfellingu
358 milljóna af skuldum Amarflugs
við ríkið. Ef það verður ekki gert
skuldar Arnarflug rikíssjóði um
500 milljónir króna. Amarflug
skuldar KLM rúmar 100 milljónir
króna.
Hluthafar eru ábyrgir fyrir um
50 milljónum króna af skuldum
Arnarflugs. Einhverjir hluthafar
munu því tapa verulegum flár-
hæðum við gjaldþrot fyrirtækisins.
Þá er allt hlutafé tapað.
Á blaðamannafundi, sem Geir
Gunnarsson stjórnarformaður og
Kristinn Sígtryggsson fram-
kvæmdastjóri boðuðu til i gær,
kom fram að aðallega eru nefndar
til tvær ástæður fyrir gjaldþroti
fyrirtækisins. Önnur er sú að
skuldahalinn hafl verið of mikili
þegar nýir aðilar komu inn í rekst-
urinn áríð 1986. Hin ástæöan er
sögð vera vanefndir af hálfu ríkis-
vaidsins. Áætiað tap á þessu ári er
um 120 milljónir.
Kristinn Sigtryggsson sagði að ef
sama aðferð væri notuð og viö sölu
aflakvóta ættu Flugleiðir að greiða
Arnarfiugi flmm til sex hundmð
milijónir fyrir flugleiðirnar til
AmsterdamogHamborgar. -sme
.
Utför Vals Arnþórssonar, bankastjóra Landsbankans, var gerð frá Dómkirkjunni í gær, að viðstöddu miklu fjöl-
menni. Séra Bragi Friðriksson og séra Pálmi Matthíasson önnuðust útförina. Organisti var Hörður Áskelsson og
Fóstbræður sungu. Jarðsett var að Görðum á Álftanesi. DV-mynd BGS
Nýathuguní
forræðismálinu
í dómi Hæstaréttar frá því á
fimmtudag, í máli föður gegn móður
vegna umráða yfir níu ára gamalli
dóttur þeirra, kemur fram að í bréfi
dómsmálaráðuneytisins felist
ákvörðun um að verða við ósk móð-
urinnar um nýja athugun í forræðis-
málinu. í dóminum kemur fram að
ráðuneytið hefði tilkynnt að málið
hefði verið sent til umsagnar þriggja
sérfræðinga.
„Meðan máhð er á því stigi sem í
bréfmu greinir er ekki rétt að verða
við kröfu sóknaraðila," segir í niður-
lagi dómsins. Eins og fram kom í DV
í gær hefur Hæstiréttur staðfest úr-
skurð fógeta frá 4. október síðastliðn-
um. Faðirinn kærði úrskurðinn til
Hæstaréttar. í úrskurði fógeta var
kröfu fóðurins um að bamið yrði
tekið úr umráðum móður og fengið
honum synjað. -ÓTT
Fjórir bílar í árekstri
Þrír bílar skemmdust mikið þegar
fjögurra bíla árekstur varð skammt
vestan við Grindavíkurafleggjarann
á Reykjanesbraut um hálffimmleytið
í gær. Tveir úr bílunum voru fluttir
á sjúkrahús með minni háttar
meiðsl. -ÓTT
Veðrið á sunnudag
ogmánudag:
Suðlæg átt
oghlýtt
Á morgun, sunnudag, verður
suðlæg átt og hlýtt, súld við suð-
urströndina en annars þurrt og
víða léttskýjað um norðanvert
landið.
Á mánudag verður veöur svip-
að - suðlæg átt og hiýtt, þokusúld
við suður- og austurströndina en
annars þurrt og víða léttskýjað
norðvestan- og norðanlands. Hiti
verður á bihnu 6-9 stig.
§ kOM I k l
— Heildsðludreifins slmi: 91-41760 |
B
H
lll
\SXMJJ
ALIMOOA
LIFTRYGGINGARFELAGIÐ HF.
LÁGMÚIJ 5 - KF.YkJAY'lk
síinl 681644