Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1990, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1990, Blaðsíða 17
Petrov 1. hluti Svikarinn I THE MAN FHOM KGB PART 2 FtNAL SETTLEMENT Petrov 2. hluti Uppgjöriö LAÚGARDÁGUR 20. OKTÓBER 1S90. A LEIGUNUM S8t*£0H£ mt m raiL-t etíSWiWTS Tfi : TSKilTSACK. Rising Son Troop Beverly Hills smiíís Þórarinn Guðjónsson, níræður en i fullu fjöri. DV-myndir Árni S. Árnason Eins og sjá má á þessari mynd tætur Þórarinn sig ekki muna um að handieika 50 kg mjölsekk. Handleikur 50 kg mjölsekki sem stæltur unglingur væri - Þórarinn Guðjónsson verður níræður á morgun en vinnur enn fullan vinnudag Sigurður Sverrisson, DV, Akranesi; Þórarinn Guðjónsson fagnar 90 ára afmæli sínu á morgun, 21. okt- óber. Áfanginn þætti e.t.v. ekki í frásögur færandi ef ekki kæmi til sú staðreynd að Þórarinn stundar enn fulla vinnu hjá Síldar- og fiski- mjölsverksmiðju Akraness þar sem hann hefur starfað í þrjátíu ár. Hann er mjög ern, verður nær aldrei misdægurt og handleikur 50 lulóa mjölsekki eins og stæltur unglingur væri. Bakverkir og gigt eru kvillar sem öldungurinn síungi þekkir aðeins af afspurn. Þórarinn sagði í viðtali við DV í vikunni að hann væri ekkert á þeim buxunum að setjast í helgan stein. „Ég ætla að vinna áfram ef þeír leyfa mér það,“ sagði hann og vitnaði til forráðamanna verk- smiðjunnar sem notið hafa krafta hans í þrjá áratugi. Þórarinn er fæddur í Bolungar- vík þann 21. október sjálft alda- mótaárið. Hann hóf róðra á árabát- um fjórtán ára gamall og stundaði sjómennsku í nærfellt 45 ár eða þar til hann réðst til starfa hjá SFA. Árið 1928 flutti Þórarinn til Akra- nes ásamt Sigurði Hallbjömssyni og var skipverji á Mb Hermóði undir stjóm Sigurðar. Leiðir þeirra lágu lengi saman og síðar var Þór- arinn á Mb Svölunni og Bárunni undir skipsstjórn þeirra feðga, Sig- urðar og Magnúsar, sonar hans. Einnig á Mb Bjama Jóhannessyni hjá Einari Ámasyni áður en hann fékk pláss á Höfrungi, þar sem Garðar Finnsson sat við stjóm- völinn. Örlagaríkur róður Þrátt fyrir að hafa stundað sjóinn í nærfellt 45 ár sagðist Þórarinn ekki oft hafa komist í hann krapp- ann svo að orð væri á gerandi. Hann gat þó ekki stillt sig um að nefna róður sem hann fór í ásamt Bemódusi bróður sínum og hafði nær orðið þeim bræðmm að ald- urtila. „Ég ætlaði ekki að róa þennan dag. En þar sem ég átti beitta línu lagði Bernódus bróðir hart að mér að róa með sér. Að endingu lét ég undan og sú sjóferð varð söguleg. Við hrepptum aftakaveður, allt upp í 14 vindstig í verstu hviðunum. Bemódus átti fyrstu vakt við stýrið en hafði ekki staðið hana í nema hálfa klukkustund þegar hann sagði: „Taktu við,“ sem ég gerði. Svo hvasst var að ég brá á það ráð að binda mig fastan svo mér skolaði ekki útbyrðis í verstu ágjöf- unum. Það mátti ekki tæpara standa að við næðum landi í veðu- rofsanum. Um leið og við höfðum hundið landfestar drapst á vélinni. Hún var þá orðin olíulaus; Það hefði ekki þurft að spyrja að örlög- um okkar hefðum við orðið vélar- vana úti fyrir Akranesi í þessu veðri.“ Þórarinn er einbúi en lætur sig ekki muna um að elda ofan í sig daglega. „Hvað æth maður sé í vandræðum með að elda, ég var nú kokkur hjá Garðari Finnssyni í sjö eða átta ár og hann vildi mik- inn mat og góðan,“ sagði hann og hló. Þórarinn brúkaði neftóbak í nær sjötíu ár og fékk sér oft vindil en hefur nú lagt þá iðju af. „Tóbak- ið d.repur menn fyrir aldur fram en ég fæ mér nú tár alltaf af og til. Það er bara hressandi," sagði þessi níræði unglingur. UTANKJÖRSTAÐAKOSNING vegna prófkjörs um skipan á framboðslista Sjálfstæðisflokksins við næstu alþingis- kosningar fer fram alla virka daga í Valhöll, Háaleitisbraut 1, frá kl 9.00 - 17.00, laugardaginn 20. október kl. 10.00-12.00. Utankjörstaðakosningunni lýkur fimmtudaginn 25. október. Utankjörstaðakosningin er ætluð þeim sem fjarverandi verða úr borginni aðalprófkjörsdagana, 26. og 27. október', eða geta ekki kosið þá af öðrum ástæðum. i próW^ " yögjhto-- * „xut, o'~ G°Ö QaQ„a^öW'' ae.9^30 „ ■«'» ö'aW 's'e' ee"" „ Qaii>a,s^ mabu<s'0 „riort*3 . fiibV*6® Sýnishorn af atkvæðaseðli í prófkjöri sjálfstæðismanna i Reykjavík dagana 26. og 27. október 1990. ab „oe' , sK 'P' Ráðleggingar til kjósenda í prófkjörinu: Klippið út meðfylgjandi sýnis- horn af kjörseðli og merkið þar eins og þér hyggist fylla út atkvæðaseðilinn. Hafið úr- klippuna með á kjörstað og stuðlið þannig að greiðri kosn- ingu. Atkvæðisrétt eiga: Allir félagsbundnir sjálfstæðis- menn í Reykjavík sem þar eru .búsettir og náð hafa 16 ára aldri prófkjörsdagana; þeir stuðningsmenn Sjálfstæðis- flokksins sem eiga munu kosn- ingárétt í Reykjavík þairn 25. apríl 1991 og undirritað hafa inntökubeiðni í sjálfstæðisfé- lag í Reykjavík fyrir lok kjör- fundar. Yfirkjörstjórn Sjálfstæðisflokksins í Reykjavik.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.