Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1990, Side 8
8
LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 1990.
Vanur sölumaður
óskast
Óskum eftir góðum sölumanni til starfa sem
fyrst. Áhugasamir skili inn umsókn með
upplýsingum um aldur og fyrri störf til DV,
merkt „Sölumennska 24“, fyrir 25. október.
Kvennalistinn í Reykjavík
Fyrri skoðanakönnunin vegna alþingiskosninganna
í vor verður kynnt að Laugavegi 17 kl. 11.00
á laugardag.
Uppstillingarnefnd
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Menntamálaráðuneytið auglýsir styrki úr Þróunar-
sjóði grunnskóla skólaárið 1991-92.
Tilgangur sjóðsins er að stuðla að nýjungum, tilraun-
um og nýbreytni í námsefni, kennsluaðferðum, náms-
mati og skipulagi náms og kennslu í grunnskólum
landsins.
Samkvæmt reglum sjóðsins er heimilt annað hvert
ár að tiltaka ákveðinn þátt í starfsemi grunnskóla sem
hefur forgang það ár. Hefur verið ákveðið að um-
sóknir um verkefni í list- og verkgreinum njóti að
öðru jöfnu forgangs við næstu úthlutun.
Umsóknarfrestur er til 1. desember 1990.
Umsóknum skal fylgja ítarleg lýsing á verkefninu og
tilgangi þess og áætlun um framkvæmd.
Umsóknareyðublöð, ásamt reglum sjóðsins og nán-
ari upplýsingum, fást á fræðsluskrifstofum og í
menntamálaráðuneytinu.
~ ■ f-
Flug, bíll og lúxushús í Hostenherg, ntióað vió 4
saman í bíl og húsi.
20. nóv. - 25. nóv. Kr. 30.770,-
29. nóv. - 3. des. Kr. 29.200,-
6. des. - 9. des. Kr. 28.580,-
7. des. - 11. des. Kr. 29.200,-
Flug, bíll og íbúó í Hostenherg, 20 minútna akst-
ur frá Trier, ntiöaó vió 2 í bil og íbúó.
20. nóv. - 25. nóv. Kr. 33.380,-
29. nóv. - 3. des. Kr. 31.800,-
6. des. - 9. des. Kr. 29.980,-
7. des. - 11. des. Kr. 31.800,-
Flug oggisting í Trier, tvíbýli á Altstadthótelinu.
20. nóv. - 25. nóv. Kr. 35.550,-
29. nóv. - 3. des. Kr. 32.900,-
6. des. - 9. des. Kr. 30.570,-
7. des. - 11. des. kr. 32.900,-
Ofangreint veró er án flugvallarskatts, kr. 1.150,-
Takmarkaóur sætajjöldi.
Ath. Verslanir í Trier eru opnar X
alla laugardaga í desember.
Hinhliðin_____________________ pv
Ætla að verða
góður þjálfari
- segir Vanda Sigurgeirsdóttir knattspymukona
Vanda Sigurgeirsdóttir, besti leikmaður kvenna i fyrstu deild.
Vanda Sigurgeirsdóttir var fyrir
stuttu valin besti leikmaöur í fyrstu
deildinni í kvennaknattspymu.
Vanda er fædd og uppalin á Sauðár-
króki þar sem hún hóf aö æfa fóbolta
sjö ára gömul. Þar var þó ekkert
kvennalið og þurfti Vanda því aö
sætta sig viö að vera með strákunum
á æfingum en þaö segir hún aö hafi
ekki verið mikiö mál. „Þaö var helst
að upp kæmi sturtumál þegar viö
komumst á kynþroskaaldurinn,"
segir hún. Vanda spilar og þjálfar
með Breiðabliki auk þess sem hún
leikur með íþróttafélagi stúdenta.
Það er Vanda Sigurgeirsdóttir sem
sýnir hina hliðina aö þessu sinni:
Fullt nafn: Vanda Sigurgeirsdóttir.
Fæðingardagur og ár: 28. júní 1965.
Maki: Enginn.
Börn: Engin.
Bifreið: Toyota Corolla árg. 1987.
Starf: Aðstoðarforstöðumaður í fé-
lagsmiöstöðinni Árseli.
Laun: Spyrðu Davíð. Þau eru alit of
lág.
Áhugamál: íþróttir og útilíf.
Hvað hefur þú fengið margar réttar
tölur í lottóinu? Ég spila aldrei í lottó-
inu, líklegast vegna þess að ég hef
aldrei neinn tíma til þess.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera? Að spila fótbolta og að þjálfa
annan flokk kvenna í Breiðabliki.
Hvað finnst þér leiðinlegast að gera?
Þetta er vandræðaspurning. Mér
þykir ekkert leiðinlegt enda er ég
alltaf mjög bjartsýn.
Uppáhaldsmatur: Það er allur mat-
urinn hennar mömmu.
Uppáhaldsdrykkur: Mjólk og vatn.
Hvaða íþróttamaður finnst þér
standa fremstur i dag? Það eru
nokkrar konur sem standa mjög
framarlega í íþróttum, svo sem Erna
Steinsen sem ætlar aö byija aö þjálfa
aftur tveimur vikum eftir bamsburð.
Uppáhaldstimarit: íþróttablaðið.
Hver er fallegasti karl sem þú hefur
séð? Mel Gibson leikari.
Ertu hlynnt eða andvíg ríkisstjórn-
inni? Mamma yröi fyrir miklum von-
brigðum ef ég segðist ekki taka af-
stöðu. Ég hef haft svo margt og mik-
ið að gera undanfarið og því ekki
haft nokkurn tíma til að fylgjast með
stjómmálum svo ég verö að vera
hlutlaus.
Hvaða persónu langar þig mest að
hitta? Carl Louis.
Uppáhaldsleikari: Dustin Hoffman og
Sigurður Sigurjónsson.
Uppáhaldsleikkona: Meryl Streep og
Jessica Lange.
Uppáhaldssöngvari: Pabbi minn, Sig-
urgeir „Muni“ Angantýsson.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Mar-
teinn Luther King.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Hermann.
Uppáhaldssjónvarpsefni: íþróttir.
Ertu hlynnt eða andvíg veru varnar-
liðsins hér á landi: Þegar ég var átján
ára og í menntaskóla var ég á móti
hemum.
Hver útvarpsrásanna finnst þér best?
Eff emm er stillt á tækiö og ég hef
ekki ennþá nennt að breyta til.
Uppáhaldsútvarpsmaður:Vinkona
min, Anna Björk Birgisdóttir.
Hvort horfir þú meira á Stöð 2 eða
Sjónvarpið? Ég hef ekki afmglara.
Uppáhaldssjonvarpsmaður: Sigrún
Stefánsdóttir.
Uppáhaldsskemmtistaður: Hótel ís-
land.
Uppáhaldsfélag í íþróttum: Breiða-
blik og íþróttafélag stúdenta.
Stefnir þú að einhveiju sérstöku í
framtíðinni? Aö verða góður þjálfari.
Hvað gerðir þú í sumarfríinu? Ég fór
á þjálfaranámskeiö í Svíþjóö og var
síðan meö æfingabúðir kvenna á
Laugarvatni.
-ELA
Uppáhaldsmatur á sunnudegi
Ljúffengur lundi
- að hætti Stefaníu Valgeirsdóttur þular
„Sósuna baka ég upp og krydda
með kjötkrafti, aromat, salti og worc-
hestersósu og að lokum er sett ein
matskeið af rifsberjahlaupi út í. Og
auðvitað sósulitur.
Mér fmnst ágætt að bera fuglinn
fram kaldan, þá tek ég hann frá bein-
inu og legg kjötið á fat og það sem
verður eftir á beininu geymi ég í tar-
talettur daginn eftir.
Meölæti gæti verið brúnaðar kart-
öflur, niðursoðnar pemr og rifs-
berjasulta. Auðvitað má nota græn-
meti en það er alveg óþarft.
Þessi veislumatur er öðmvisi og
gaman að elda eitthvað annað en
gamla kindakjötið eða svínið."
-ELA
„Mín uppáhaldsuppskrift er án efa
nýr, hamflettur lundi sem ég sendi
ykkur uppskrift að,“ segir Stefanía
Valgeirsdóttir, þulur hjá Ríkisút-
varpinu, í bréfi sem hún sendi helg-
arblaðinu. Uppskriftin lítur vel út og
sjálfsagt að prófa hana.
„Nýr, hamflettur lundi, tíu stykki
handa fjórum. Fuglinn er lagður í
bleyti í mjólk yfir nótt. Þerraður og
steiktur í smjöri. Kryddaður með
salti og pipar. Látinn í pott og fjögur
til fimm lárviöarlauf sett út í, síðan
vatn svo fljóti yfir fuglinn. Soðinn í
einn og hálfan tíma. Þegar fuglinn
hefur soðið í klukkustund er einum
pela af ijóma bætt út í,“ segir Stef-
anía.
Stefania Valgeirsdóttir, þulur hjá
Ríkisútvarpinu. DV-mynd BG