Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1990, Page 12
12
LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 1990.
Erlendbóksjá
THE BOMBER
COMMAND WAR
DIARiES
AN OPERATIONAL BEFERENCE 600Kt
1939-1945
Loftárásirnar
á Þjóðverja
Fljótlega eftir upphaf síðari
heimsstyijaldarinnar hófu
breskar sprengjuflugvélar árásir
gegn Þjóðvetjum sem lögöu á
skömmum tíma undir sig mikinn
hluta Evrópu. Eftir því sem á
stríðið leið urðu sprengjuárásim-
ar magnaðri og eyðileggingin af
þeirra völdum meiri en nokkurn
hefði grunað í upphafi.
Tveir breskir fræðimenn hafa
tekið saman tæmandi yfirlit um
allar árásarferðir sem famar
voru á vegum bresku herstjórn-
arinnar, Bomber Command, það
ríflega hálft sjötta ár sem styij-
öldin stóð í Evrópu. Bókinni er
skipt í kafla eftir gangi stríðsins
og meginatriði hvers tímabils
dregin saman í stuttum formál-
um. Veittar eru allar helstu upp-
lýsingar um hverja árásarferð
fyrir sig.
Hér er því á rúmlega 800 hlað-
síðum sagt frá á íjórða hundrað
þúsund árásarferðum sprengju-
flugvéla en um 9000 flugvélar fór-
ust í þessum ferðum og um 50
þúsund flugliðar létu lífið. Einnig
er sagt frá eyðileggingunni á
jörðu niðri í borgum og bæjum
víða um Evrópu en einkum þó
að sjálfsögðu í Þýskalandi.
THE BOMBER COMMAND WAR
DIARIES.
Höfundar: Martin Middlebrook og
Chris Everitt.
Penguin Books, 1990.
a longthe
riverrun
ICHARD
ELLMANN
Ritgerðir
Ellmanns
Ævisagnaritarinn og bók-
menntaprófessorinn Richard Ell-
mann, sem lést árið 1987, var
einkum kunnur fyrir skrif sín um
írsku stórskáldin Yeats, Joyce og
Wilde.
Fyrsta bók hans, um Yeats, kom
út árið 1948. Frægust bóka hans
er mikið rit um ævi og störf Jo-
yce sem fyrst kom út árið 1982.
Sú síðasta var hins vegar ævisaga
Wilde sem birtist rétt eftir andlát
Ellmanns.
Á milli þessara kunnugustu
verka Elimanns samdi hann
ýmsar aðrar bækur, auk þess sem
hann flutti fjölda fyrirlestra. í
þessari nýju bók er einmitt safn-
aö saman tuttugu fyrirlestrum og
ritgerðum sem flestar hafa ekki
áður birst í bókarformi og eru
sumar þeirra þó samdar fyrir
mörgum áratugum.
í þessum ritgerðum eru eftir-
lætis-viðfangsefni Ellmanns - Jo-
yce, Yeats og Wilde - að sjálf-
sögðu tekin til enn frekari krufn-
ingar. En hann fjallar hér um
marga fleiri rithöfunda, svo sem
WaUace Stevens, Henry James,
Pound, EUot og Auden, Lawrence
og Hemingway og jafnvel Freud.
A LONG THE RIVERRUN.
Höfundur: Richard Ellmann.
Penguln Books, 1990.
Hirohito og
heimsstríðið
Þegar Hirohito, keisari Japans, var
jarðsettur 24. febrúar í fyrra mættu
ekki færri en 163 þjóðarhöfðingjar
og ríkisleiðtogar tU að votta honum
virðingu sína. Mæld í fyrirmönnum
var þetta vafalítið glæsUegasta útför
allra tíma og verðugur endir á best-
heppnuðu ímyndarsmíð í stjóm-
málalífi aldarinnar.
Eins og blaðamaðurinn kunni Ed-
ward Behr, sem starfaði um langt
árabil hjá tímaritunum Time, Life
og Newsweek, bendir á í þessari eftir-
tektarverðu bók sinni um æviferil
Hirohito, er það nánast viðtekin
skoðun að Japanskeisari hafi í reynd
verið eins konar fangi japanskra her-
foringja sem ráðið hafi gangi mála í
Japan frá upphafi fjórða áratugarins
og allt þar tU heimsstyijöldinni lauk
í ágúst árið 1945. Hirohito hafi þann-
ig engu ráðið um hemaðarstefnu
Japana né grimmdarlegan stríðs-
rekstur þeirra, ef ekki beinlínis verið
þeirri stefnu andvígur.
Behr telur hins að hér sé um goð-
sögn að ræða, ímynd sem búin hafi
verið tU með skipulögöum hætti af
Bandaríkjamönnum og japönskum
ráðamönnum á árunum eftir stríðið.
í bókinni sviptir hann með sannfær-
andi hætti grímu valdaleysis og frið-
arvilja af Hirohito á tímabiUnu frá
um 1930 til stríðslokanna 1945 og sýn-
ir um leið hvernig og hvers vegna
hin nýja og nú viðtekna ímynd af
Hirohito var búin tU.
Guð í augum
landa sinna
Japanskeisari var afkomandi guð-
anna í augum landa sinna fram yfir
lok síðari heimsstyijaldar og því
bæði andlegt og veraldlegt yfirvald.
Hann var sóUn sem þegnarnir máttu
ekki einu sinni horfa á.
Hann var hafinn yfir lög og reglur
sem giltu um aðra. Gegn vUja keisar-
ans treysti enginn sér til að rísa þótt
nánir samstarfsmenn reyndu að
sjálfsögðu að hafa áhrif á endanlegar
ákvarðanir hans.
Við slíkum arfi tók Hirohito þegar
hann var krýndur keisari árið 1926,
að fóður sínum látnum og viðhélt
honum óbreyttum aUt tíl stríðsloka.
Foringjar hers og flota, þar sem
öfgafuU þjóðernishyggja og trú á rétt
Japana til forræðis yfir öðrum þjóð-
um var ríkjandi, bættu valdastöðu
sína verulega upp úr 1930. Þá hófst
sókn Japana til yfirráða í nágranna-
ríkjunum. Fyrst var lagt tU atlögu í
Mansjúríu, þá í Kína og loks ráðist á
flotastöð Bandaríkjanna í Perluhöfn,
ýmis ríki í Suðaustur-Asíu og
FUippseyjar.
Japanir höfðu vit á því að brenna
í stríðslok flest opinber skjöl sem
vörðuðu á einn eða annan hátt
ákvarðanir um fimmtán ára stríðs-
rekstur. Engu að síður eru til staðar
ýmis gögn sem Behr vitnar óspart í
tU stuðnings þeirri niðurstöðu sinni
að Hirohito hafi verið hjartanlega
sammála útþenslustefnu herforingja
sinna aUt frá árásarstríðinu gegn
Kína til sóknarinnar í Suðaustur-
Asíu og árásarinnar á Bandaríkin.
Nýtt hlutverk
Behr rekur einnig ítarlega hvemig
Hirohito fékk nýtt hlutverk eftir
hemám Bandaríkjanna.
Það yar ákvörðun McArthurs her-
foringja, sem stýrði hemámsliðinu,
og Trumans forseta að Hirohito -
sem á stríðsárunum var einna mest
hataður aUra manna í Bandaríkjun-
um og meðal margra Asíuþjóða -
skyldi hvítþeginn af ábyrgð á árásar-
stríði Japana og notaöur til þess að
auðvelda Bandaríkjamönnum að
koma á lýðræðislegum stjómarhátt-
um í landinu og endurreisa efnahag
þess.
Hirohito, sem sjálfur óttaðist að
verða handtekinn sem stríðsglæpa-
maöur, tók þessari afstöðu Banda-
ríkjaforseta fegins hendi og gjör-
breytti um lífsstíl til þess að gegna
nýju hlutverki sem valdalaus þjóð-
höfðingi að vestrænum sið.
Af þessum sökum urðu stríðs-
glæparéttarhöldin í Japan einungis
til málamynda. Jafnvel Japönum
sem í nafni keisarans myrtu þúsund-
ir stríösfanga, þar á meðal með
ógeðslegum tilraunum, var sleppt við
málaferli og refsingu.
Þetta er lærdómsrík bók. Hún gef-
ur forvitnUega mynd af ótrúlegum
ferh manns sem lifði svo sannarlega
tímanna tvenna. En hún er einnig
kennslubókardæmi um það hvemig
pólitísk tækifærismennska og stór-
veldahagsmunir megna að gera svart
hvítt og lygi að viðteknum sannleika.
HIROHITO: BEHIND THE MYTH.
Höfundur: Edward Behr.
Penguin Books, 1990.
MetsöluJdljur
Bretland
Sfcáldsögur
1. Martin Amls:
LONDON FIELDS.
2. Len Deighton:
SPY LINE.
3. stephen Klng:
THE OARK HALF.
4. Scott Turow:
PHESUMED INNOCENT.
5. J. Barnes:
A HISTORY OF THE WORLD IN
10'/j CHAPTERS.
6. Vlrglnla Andrews:
GATES OF PARADISE.
7. Martín Cruz Smith:
POLAR STAR.
8. Terry Pratchett:
TRUCKERS.
9. KEN FOLLETT:
PILLARS OF THE EARTH.
10. Isaac Asimov:
NEMESIS.
Rit almenns eðlis:
1. Nlget Ntcolson:
PORTRAIT OF A MARRIAGE.
2. Peter Mayle:
A YEAR IN PROVENCE.
3. Oenls Healey:
THE TIME OF MY LIFE.
4. Rosemary Conley:
CQMPLETE HIP & THIGH DIET.
5. Hannah Haunwetl:
SEASONS OF MY UFE.
6. Rosemary Conley:
INCH-LOSS PLAN.
7. Mlchael Lewls:
LIAR’S POKER.
8. Wllllam Dalrymple:
IN XANADU.
9. floger Penrose;
THE EMPEROR’S NEW MIND.
10. Joanna Lumley:
STARE BACK ANO SMILE.
(Byggl a The Sunday Tlmes)
Bandaríkin
Sfcáldsögur:
1. Slephen King:
THE DARK HALF.
2. Scott Turow:
PRESUMED INNOCENT.
3. Carrie Fishcr:
POSTCARDS FROM THE EDGE.
4. Píors Anthony:
ISLE OF VIEW.
5. Tom Clancy:
CLEAR AND PRESENT DANGER.
6. Kathleen E. Woodiwlss:
SO WORTHY MY LOVE.
7. Allon Gurganus:
OLDEST LIVING CONFEDERATE
WIDOW TELLS ALL.
8. donathan Kellermen:
SILENT PARTNER.
9. Isaac Aslmov:
NEMESIS.
10. Ken Follott:
THE PILLARS OF THE EARTH.
11. Amy Tan:
THE JOY LUCK CLUB.
12. Martha Grimes:
THE OLD SILENT.
13. Stephen Coonts:
THE MINOTAUR.
14. Jennlfer Lynch:
THE SECRET DIARY OF LAURA
PALMER.
15. John Jakes:
CALIFORNIA GOLO.
16. Llllan Jackson Braun:
THE CAT WHO TALKED TO
GHOSTS.
Rlt almenns eðtis:
1. Robort Fulghum:
ALL I REALLY NEED TO KNOW I
LEARNED IN KINDERGARTEN.
2. M, Scott Pecfc:
THE ROAD LESS TRAVELED.
3. Thomas L. Frledman:
FROM BEIRUT TO JERUSALEM.
4. Tracy Kidder:
AMONG SCHOOLCHILDREN.
5. Erma Bombeck:
I WANT TO GROW HAIR, I WANT
TO GROW UP, IWANTTO GO TO
BOISE.
6. Stephen Hawfclng:
A BRIEF HISTORY OF TIME.
7. Michael Lewis:
LIAR’S POKER.
8. JIII Ker Conway:
THE ROAD FROM COORAIN.
9. Jonathan Coleman:
EXIT THE RAINMAKER.
10. Gilda Radner;
IT’S ALWAYS SOMETHING.
11. Shelley Winters:
SHELLEY 11.
(Byggt á tiew York Ttmcs Boofc RoJew)
Danmörk
Metsölukiljur:
1. Marilyn French:
SIN MORS DATTER.
2. Isabel Allende:
EVA LUNA.
3. Ib Michael:
KILROY KILROY:
4. Isabel Alfende:
ANDERNES HUS.
5. Bjarne Reuter:
MANEN OVER BELLA BIO.
6. Jean M. Auel:
HULEBJ0RNENS KLAN.
7. Henrik Stangerup:
MANDEN DER VILLE VÆRE
SKYLDIG.
8. Jean M. Auel:
MAMMUTJÆGERNE.
9. Gail Godwin:
EN SYDSTATSFAMILIE.
10. Jean M. Auel:
HESTENES DAL.
(Byggt á Polltiken Sondag)
Umsjón: Elías Snæland Jónsson
Amerískur
Raspútín
Bandaríski rithöfundurinn
Lawrence Sanders er löngu
kunnur fyrir spennusögur sínar.
Að þessu sinni beinir hann sjón-
um að þeim hættum sem gætu
steðjað að bandarísku stjóm-
málalífi ef eins konar amerískur
Raspútín kæmi til sögunnar.
Kristos er amerískur predikari
sem gefur sig út fyrir að geta
læknað fólk pieð með andlegm
prku sem hoiium herist frá guði.
í reynd er hann valdasjúkur
nautnaseggur. Honum tekst hins
vegar að sannfæra forseta Banda-
ríkjanna um að hann sé krafta-
verkamaður sem einn geti lækn-
að son forsetans af banvænum
sjúkdómi.
Þegar Kristos hefur náð slíkum
tökum á valdamesta manni ver-
aldarinnar þá færir hann sig að
sjálfsögðu upp á skaftið og fær
forsetann til þess að fara að „vilja
guðs“ einnig í veraldlegum efn-
um. Samstarfsmenn forsetans,
embættismenn og þingmenn, sem
gera sér grein fyrir hinu sanna
eðli kraftaverkamannsins, bregð-
ast brátt hart við.
Þetta er hörkugóð pólitísk
spennusaga og hin ánægjulegasta
afþreying í skammdeginu.
CAPITAL CRIMES.
Höfundur: Lawrence Sanders.
Berkley Books, 1990.
BRENDA MALL0N ®
C h i l d r e n
|:nft WE^tNC AJýO
í:->JCNin^\Nl.t ÓF
'VSf ” '• v *****
fHHP AVOUVttMKÍ
Draumar bama
og unglinga
Hvers vegna dreymir okkur
mun meira á æskuárunum en
þegar aidurinn færist yfir? Hvaða
hlutverki gegna draumar í
þroska barna og unglinga?
Hvernig verða draumar til og
hvernig her að túlka þá og bregð-
ast við þeim?
Brenda Mallon, höfundur þess-
arar bókar, hefur safnað saman
ijölmörgum lýsingum bama og
unglinga á draumum sínum, og
sömuleiðis frásögnum fólks sem
nú er fullorðið á eftirminnilegum
draumum frá æskuárunum.
Með þessar draumalýsingar í
huga hefur hún flokkað algenga
drauma eftir aldri bamanna og
einnig að hluta eftir aðstæðum
þeirra. Hún dregur sínar ályktan-
ir af reynslu barnanna og ráð-
leggur foreldrum hvemig við
skuh bregðast þeim vandamálum
sem gjaman leiða af tilteknum
tegundum drauma, til dæmis
martrööum.
Jafnframt gerir höfundurinn
stuttlega grein fyrir þeirri vitn-
eskju sem vísindamenn búa nú
yfir um hvemig draumar verða
til og því mikilvæga hlutverki
sem þeir gegna fyrir starfsemi
heilans.
CHILDREN DREAMING.
Höfundur: Brenda Mallon.
Penguin Books, 1990.