Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1990, Qupperneq 16
16
LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 1990.
Skák
Þeir skákmeistarar, sem komnir
eru af léttasta skeiði, kvarta gjarn-
an undan því hve ungdómurinn er
vel lesinn í fræðunum. Þeir tala um
„teóríuhesta" og rifja upp gamla
góða daga er skákbækur voru ekki
á hverju strái.
Nú eru hðin 24 ár síðan júgóslav-
neska skákritið „Informator" kom
fyrst fyrir augu skákáhugamanna.
Síðan hefur ritið verið gefið út
tvisvar á ári og eru nú bindin orðin
49 talsins. Ritið hefur að geyma
bestu skákir síðasthðins hálfs árs
og með útgáfu þess var fyrst reynt
að flokka skákbyijanir eftir kerf-
um og skrá það markverðasta sem
fram kom í þeim fræðum. „Inform-
atorinn" var löngum eins konar
biblía skákmannsins en þó hygg ég
að með tilkomu tölvutækninnar og
örara upplýsingastreymis sé það
að breytast. Þeir sem á annað borð
fylgjast meö á skáksviðinu láta fátt
koma sér á óvart sem í ritinu birt-
ist.
í „Ljóstra", eins og ég vil nefna
ritið uppá íslensku, er að finna skrá
yfir bestu skákir úr síðasta hefti,
samkvæmt mati níu manna dóm-
nefndar. Þar er einnig að finna lista
yfir snjöllustu nýjungarnar í byij-
unum, skv. mati annarrar nefndar,
en þess má geta að þar á Jóhann
Hjartarson sæti, ásamt stórmeist-
urunum Timman, Larsen, Vaganj-
an, Browne, Georgiev, Adoijan,
Tsjemín og Ftacnik. Þessir hstar
vekja jafnan athygh og eru oft
umdeildir.
í nýjasta ritinu, númer 49, velja
stórmeistaramir Botvinnik,
Christiansen, Ghgoric, Kavalek,
Panno, Polugajevsky, Ribh, Smej-
kal og Speelman bestu skákir
seinni hluta ársins 1989. Þrír þeirra
- Botvinnik, Panno og Smejkal -
gefa skák Karpovs við Adoijan,
sem tefld var á heimsmeistaramóti
landsliða í Luzem, hæstu einkunn
og samanlagt hlýtur hún flest stig,
eða 57 að tölu. í 2. sæti, með 54 stig,
lendir sigurskák Nunns við Port-
isch frá heimsbikarmótinu í Skell-
eftea og sigur Kasparovs heims-
meistara gegn Jóhanni Hjartarsyni
frá Tilburg hlýtur einu stigi færra
og þriðja sæti.
Sigurskák Karpovs er vissulega
vel tefld en að mínum dómi verð-
skuldar hún ekki þann heiður aö
verða tahn besta skák þessa hálfs
árs tímabils. Th þess er hún ekki
nægilega frumleg - Karpov vinnur
tafhð á þekktum aðferðum en gerir
það að vísu hnökralaust.
Það vakti athygh mína að tveir
úr dómnefndinni, Lev Polugajev-
sky og Jonathan Speelman, sem
þekktir em fyrir líflega tafl-
mennsku og mikla hugmynda-
auðgi, gefa skák Sovétmannsins
Dorfmans við Búlgarann Velikov
hæstu einkunn. Skákin hafnar í
sjöunda sæti yfir bestu skákir
tímabhsins. Forvitni mín var vak-
in, ég skoðaði þessa skák og verð
ég að viðurkenna að öhu fjörugri
og tilkomumeiri skák hef ég ekki
séð lengi.
Nú langar mig th að sýna lesand-
anum þessar tvær skákir og læt
honum eftir að dæma um það
hvora hann telur „betri“.
Luzern 1989
Hvítt: Anatoly Karpov
Svart: Andras Adoijan
Drottningarindversk vörn.
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rfí b6 4. g3
Ba6 5. b3 Bb4 + 6. Bd2 Be7 7. Bg2 c6
8. 0-0 d5 9. Bc3 0-0 10. Re5 Rfd7 11.
Rxd7 Rxd7 12. Rd2 Hc8 13. e4 b5 14.
Hel dxe415. Bxe4 bxc416. bxc4 Rb6
Þetta er ný thraun Adoijans í
stöðunni en áður hefur svartur
reynt 16. - c5. Karpov tekst að sýna
fram á vankanta leiksins og nær
betra tafh.
Nokkrir skákmenn töldu að Dorfman hefði tefit bestu skákina.
Júgóslavneska skákritið Informator:
Speelman og Polu
gáfu Dorfman
hæstu einkunn
- en dómnefndin taldi skák Karpovs við Adorjan þá bestu
17. c5! Rd5 18. Dc2 g6 19. Rf3 Bf6 20.
Re5 Dc7 21. h4!
Karpov hefur komið mönnum
sínum fyrir á ákjósanlegum stöð-
um og nú er hann reiðubúinn að
blása th sóknar.
21. - Hfd8 22. Bd2 Bg7 23. Hadl Re7
24. Dc3! Bb5
Skák
Jón L. Árnason
Hvítur hótaði 25. Da3 en Karpov
stingur upp á 24. - Hxd4!? 25. Dxd4
Bxe5 26. De3 í athugasemdum sín-
um við skákina, með heldur betra
tafh á hvítt.
25. Bc2!
Nú á hvítur mun betra, að sögn
Karpovs.
25. - Rf5 26. Bf4 Db7 27. a4 Ba6 28.
Be4 Da8 29. h5! g5
Ef 29. - Re7 30. hxg6 hxg6 31. Df3
með sterku frumkvæði.
30. Bxg5 f6 31. h6 Rxh6 32. Bxh6 Bxh6
33. Db3!
Laglegur vinningsleikur.
33. - He8 34. Rg4 Kg7
Ef 34. - Bg7, þá 35. Bf5! og vinnur.
35. Kg2 f5 36. Rxh6 Kxh6 37. Bxf5!
exf5 38. Df7
Og svartur gafst upp.
Palma á Mallorca 1989
Hvítt: Velikov
Svart: Dorfman
Drottningarpeðsbyijun.
1. Rf3 g6 2. g3 Bg7 3. d4 c5 4. c3 b6
5. dxc5 bxc5 6. Dd5 Rc6 7. Dxc5 Rf6
Svartur hefur fómað peði í byij-
uninni fyrir skjóta liðsskipan.
8. Bg2 Ba6!? 9. Rd4 Rxd410. Dxd4 0-0!
Og nú býður hann upp á skipta-
mun, sem hvítur gerir hklega best
með að hafna. Eftir 11. Ddl d5 hefur
svartur prýðisgóð færi fyrir peðið.
11. Bxa8?! Dxa8 12. f3 e5! 13. Ddl e4!
14. Kf2 He8 15. Hel Dc6! 16. Ra3 De6
17. Rc2 Dh3 18. Kgl He5 19. Bf4
Það er ótrúlegt hvað sóknarmátt-
ur svarts er mikill. Dorfman gefur
nokkra möguleika upp í athuga-
semdum sínum: a) 19. Re3 Hh5 20.
Rfl exf3 og vinnur; b) 19. Dd6 exf3
20. exf3 Hxel+ og vinnur; c) 19. g4
Rxg4 20. fxg4 Dxg4+ 21. Khl (eða
21. Kf2 Hf5+ 22. Ke3 Bh6+ 23. Kd4
e3 mát!) e3 22. Hfl Hg5 og vinnur.
19. - Hd5!!
Mikilvægur millileikur. Ef nú 20.
Dcl, þá 21. - Hh5 22. g4 exf3 22.
exfS Dxf3 23. gxh5 Bb7 24. Re3 Rxg4
og svartur vinnur.
20. Rd4 Hh5 21. g4 Rd5! 22. Db3
Hvað annað? Ef 22. Dcl Rxf4 23.
Dxf4 Be5 24. Dxe4 Dxh2+ 25. Kfl
Bg3 26. De3 Dh3 + og svartur vinn-
ur.
22. - Rxf4 23. Db8+ Bc8! 24. Dxc8
Bf8 25. Kf2 He5 26. Ke3 exf3+ 27.
Kxf4
Eða 27; Kd2 f2 28. Hfl Hxe2 29.
Rxe2 Dd3+ og vinnur.
-gf
1 1 Á
Á
1
A 1 m
A A A B C D A E F G A H
27. - d6!
Hótar 28. - g5 mát. Hvítur á að-
eins einn varnarmöguleika, því að
svarið við 28. Rxf3 yrði einnig 28. -
g5+ 29. Rxg5 De3 mát.
28. e4 f2 29. Rf3 fxel=D 30. Hxel h5!
31. Rxe5 dxe5+ 32. Kg5
Eða 32. Kxe5 Dxh2+ 33. Kd5 (ef
33. KÍ6 Df4+) Dd2+ 34. Kc4 Dxel
og vinnur.
32. - Kg7! 33. Dd7 Dxg4!
Og hvítur gaf, því að eftir 35.
Dxg4 Be7 er hann mát.
-JLÁ