Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1991, Síða 2
2
MÁNUDAGUR 4. FEBRÚAR 1991.
Fréttir________________________________________________________________________________dv
Gífurlegt eignatjón á Flateyri og í Önimdarfirði:
Sumarbústaður fauk á haf út
- milljónatjón þegar þak fauk af verksmiðjuhúsi Hjálms hf. og gafl lagðist inn
Gífurlegt eignatjón varð á Flateyri
í óveðrinu í gær. Óruggt má telja að
tjónið nemi tugum milljóna króna.
Skemmdir höfðu ekki verið full-
kannaðar í gærkvöldi en á tímabili í
gær var talið að eitthvert tjón hefði
oröið á fjórða hverju húsi í þorpinu.
„Þetta brast á um þijúleytið eins
og hendi væri veifað - alveg snarvit-
laust. Það urðu mjög miklar
skemmdir á mannvirkjum hér. Mest
varð tjónið í beinamjölsverksmiðju
Hjálms hf. Þar fauk þakið alveg í
heilu lagi af verksmiðjunni og efri
hlutinn af suðurgafli hússins lagðist
inn. Það eyðilagðist líka stór harð-
fiskhjallur sem stóð niðri á Odda-
tánni skammt frá verksmiðjunni.
Þarna varð milljónatjón. Mikið af
jámi fauk auk þess af fiskverkunar-
húsum í eigu Hjálms hf.,“ sagði
Kristján J. Jóhannesson, sveitar-
stjóri á Flateyri, í samtah við DV í
gærkvöldi. Kristján varð vitni aö því
þegar þak fauk af einbýlishúsi í
Hafnarstræti 45 þar sem öldruð kona
var stödd einsömul inni:
„Ég var staddur í næsta garði þegar
þetta gerðist. Það varð bara spreng-
ing. Helmingurinn af þakinu sviptist
í burtu. MiUiloftið stóð eftir þannig
að konan sem býr í húsinu varð að
flytja út. Ég veit ekki alveg hvað varð
um innanstokksmunina en það urðu
örugglega einhveijar skemmdir. Það
er búið aö fenna inn í þetta í dag,“
sagði Kristján.
Sumarbústaðúr, sem stóð skammt
frá bænum Innri-Veðrará, fauk einn-
ig á haf út í innanverðum Önundar-
firði. Sumarbústaðnum hafði verið
fest á grunni. Bændur í nágrenninu
sáu hann takast á loft í heilu lagi,
fjúka um 200 metra vegalengd og
lenda síðan á grunnsævi fyrir utan
þar sem hann maraði í sjónum eftir
sitt hinsta ferðalag.
Kristján sagði að útihurð á kirkj-
unni á Flateyri hefði brotnaði í sund-
ur þar sem hún stóð beint upp í veðr-
ið: „í sama mund fuku jámplötur
öömm megin af þaki kirkjunnar.
Nærstaddir menn bmgðu skjótt við
og gátu komið í veg fyrir að skemmd-
ir yrðu á innanstokksmimum. Ég
held nú að það hafi sloppið," sagöi
Krisfján.
Kona með þijú börn var nýbúin að
setja límband á 5 fermetra stofu-
glugga í húsi sínu í Ólafstúni 9 og
fara með börnin inn í eldhús þegar
rúðan sprakk. Ekki var vitað hvort
eitthvað fór í rúðuna eða hvort hún
gaf sig undan þrýstingnum. Konunni
tókst ekki að ná sambandi við al-
mannavamamefnd en hún fékk
hjálp hjá íhúa í næsta húsi og fleirum
sem komu til að negla fyrir glugg-
ann. Búið var að þétta til bráðabirgða
um klukkan tíu í gærkvöldi.
Þakplötur fuku af húsi Sparisjóðs-
ins í Hafnarstræti 1. Þar brotnaði
rúða á skrifstofu sparisjóðstjórans.
Fólksbíll fauk einnig 30-40 metra
vegalengd eftir götunni við Ólafstún.
„Það voru járnplötur og fiskikassar
á fleygiferð um allt þorp. Þaö er mik-
ið um rúðubrot og skemmdir á
klæðningum. Björgunarsveitin er
búin að vera að í allan dag við að
bjarga því sem bjargaö verður.“
Kristján sagði að klæöning hefði
flest af Flateyrarvegi skammt fyrir
utan þorpiö. Skemmdimar höfðu
ekki verið fullkannaðar þegar DV
ræddi við hann í gærkvöldi en þá
voru björgunarsveitarmenn og íbúar
á Flateyri í óöaönn að taka til efdr
óveðrið. Flateyringar hafa varaafls-
stöð þannig að þar varð ekkert raf-
magnsleysi.
-ÓTT
Magnús Tulinius sýnir blaðamanni trén sem rifnuðu upp með rótum við Skothúsveginn. Trén voru gróðursett
árið1936- DV-mynd S
Tré lokuðu inngangi við Skothúsveg
- níutréfukuumkollíKarfavogi41
„Eg heyrði mikinn hávaða þegar
trén féllu á húsið. Þau vom gróður-
sett áriö 1936 þannig að það er mikil
eftirsjá að þeim,“ sagði Magnús Tul-
inius, íbúi að Skothúsvegi 15, í sam-
tali viö DV í gær.
Þijú myndarleg reynitré, sem
stóðu viö steinvegg með austurhlið
hússins, fuku um koll og lögðust upp
að húsinu um klukkan þrjú í gær.
Trén lokuðu algjörlega gangstétt við
inngang hússins. Magnús sagðist
ekki sjá annað fært en að fá krana
til aö fjarlægja trén. Skammt frá
brotnaði einnig stórt grenitré, í garö-
inum að Fríkirkjuvegi 11, um svipaö
leyti og reynitrén í garðinum hjá
Magnúsi.
í Karfavogi 39 var Sveinn Guð-
mundsson, íbúi þar, að koma kaðli á
stóra ösp sem var í garðinum hjá
honum til að afstýra því aö tréö fyki.
í næsta garði, við hús númer 41,
höfðu níu reynitré og aspir fokið á
hliðina og var garðurinn þar nánast
eins og jarðýta hefði rutt öllu niður.
Ljóst er að gróður fór víða mjög
illa á höfuðborgarsvæðinu í óveðrinu
i gær. Tré lágu á hhðinni víös vegar
í görðum, á opnum svæðum og í al-
menningsgörðum. Tré, sem staðið
hafa óveður af sér í marga áratugi,
létu undan öllum ósköpunum sem
dundu yfir í gær. Það voru því marg-
ir sem urðu fyrir óbætanlegu tjóni.
-ÓTT
Guðjón Petersen um hrun langbylgj ustöðvarinnar:
Hneyksli að búa svo
illa að langbylgjunni
„Það var búiö aö vara viö þessu
fyrir 20 árum og reglulega síðan þá.
Menn hafa einhvem veginn ekki
haft í sér löngun til að setja upp nýja
langbylgjustöð en það var orðið
löngu tímabært. Það er auðvitað
hneyksh að við skulum búá jafniha
að svo mikhvægri öryggisstofnun
sem Ríkisútvarpið er. Við höfum litið
á það sem meginhlekk í upplýsinga-
miðlun til almennings á hættutíma.
Þó við höfum gott FM-dreifikerfl er
þaö blettótt og getur dottið út í viss-
um landshlutum. Langbylgjustöðin
nær hins vegar til alls landsins. Þá
má ekki gleyma að sendamir era úr
sér gengnir líka, ekki aðeins möstrin.
Það er óskaplegt th þess að vita að
afskekktir staðir nái ekki Ríkisút-
varpinu,“ sagði Guðjón Petersen,
forstjóri Almannavama, um hran
axmars langbylgjumastursins á
Vatnsendahæð.
Hrun langbylgjustöðvarinnar þótti
dökkur blettur á almannavarnakerfi
landsins, nokkuð sem menn höfðu
reyndar búist viö í mörg ár. En var
Guðjón ánægður með þátt Almanna-
vama í óveðrinu í gær?
„í svona tilfelh mæðir mest á al-
mannavamanefndunum víðs vegar
um landið og þeim mannafla sem er
úti að vinna. Að því er virðist hefur
þeim öhum gengið mjög vel að vinna
sitt verk. Þetta var varnarbarátta en
við búum að þvi skipulagi sem búið
er að koma á umhverfis landið. Þetta
er kerfi sem fer í gang og samræmir
aðgerðir björgunarsveita, lögreglu,
slökkvhiðs og annarra heima í hér-
aði. Sums staðar vora ahir verkfærir
menn einnig kallaöir út. Nefndirnar
samræma aðgerðir og styðjast við
ákveöið skipulag. Að vera undirbú-
inn til að takast á við svona verkefni
gerir að verkum að miklu markviss-
ar er tekist á við vandamáhð. Það
snýr síðan aö okkur hjá Almanna-
varnanefnd ríkisins að vera í sam-
bandi við ríkisstofnanir sem geta
aðstoðað, Vegagerðina, Landsvirkj-
un, Póst og síma og fleiri, til dæmis
varöandi forgangsröðun orku meðan
rafmagnsskömmtun er eða útvegun
færanlegra rafstöðva."
Almannavarnir leggja ríka áherslu
á að menn athugi vel sitt næsta ná-
grenni og fergi aht lauslegt eða bindi
sé von á óveöri. Þá er fólk beðið um
að hafa sterkt límband fyrir glugga-
rúður við hendina auk hamars og
saums. -hlh
Fjárhúsið splundraðist
- segir Þorvaldur Jónasson í Hrunamannahreppi
„Það varð töluvert tjón á bænum.
Það fauk heht fjárhús, partur af
hlöðu og þakplötur af íbúðarhúsinu.
Fjárhúsið splundraðist hreinlega.
Það sprakk upp af sökkhnum og
brakinu rigndi yfir fjósið sem slapp
með smáskrámur," segir Þorvaldur
Jónasson, heimihsmaður á Syðra-
Seli í Hrunamannahreppi.
„Það voru á mihi 60 og 70 ær í fjár-
húsinu. Það drapst engin af þeim og
nú höfum við fengið pláss fyrir þær
á öðrum bæjum í sveitinni. Þegar
fjárhúsið sprakk fór gaflinn í hlöð-
unni en það virðist sem það hafi ekki
tapast neitt af heyinu sem var þar
inni. Veðrið var svo mikið að við
hættum okkur ekki út á meðan það
var sem verst.
Það veröur mikil vinna viö að
byggja upp á nýjan leik en það verð-
ur ekki síður mikh vinna að hreinsa
upp brak sem hggur eins og hráviði
um allar sveitir." -J.Mar
Horfði á þökin hverfa
- segir Þráinn B. Jónsson í Biskupstungum
„Ég hef aldrei lent í öðra eins. Eg
horfði á þakið á fjárhúsinu, sem
stendur nær bænum, hverfa út í
buskann eins og hendi væri veifað.
Það hvarf á fimm mínútum ásamt
þaki og gafh á öðra fjárhúsi sem er
hér á bænum.
Á sama tíma rifnaði stórt tré upp
með rótum í garðinum við íbúðar-
húsið. Þegar það var hvassast var
þurrt en þaö var samt eins og það
væri slagviðri því vindurinn sópaði
upp vatninu af túnunum og það rauk
úr öhum lækjum," sagði Þráinn
Bjargdal Jónsson, bóndi í Miklaholti
í Biskupstungum.
Það stóð níöþungur heyvagn hér
úti á túni og honum hvolfdi í einni
hryðjunni.
Um 260 kindur vora í fjárhúsunum
sem byggð voru rétt eftir 1960 og
sluppu þær allar ósærðar. „Við höf-
um fengið pláss víðs vegar í fjár-
húsum hér í sveitinni fyrir æmar,
svo þaö bjargast með þær, og þangað
vora þær fluttar í gærkvöldi.
Það er ljóst aö það hefur orðið mik-
ið eignatjón hér í sveitinni og útihús
á mörgum bæjum hafa skemmst. Ég
man aldrei eftir að það hafi gert ann-
að eins veður hér um slóöir, það var
hreinlega allt á tjá og tundri og langt
frá því að þaö væri stætt úti.“
-J.Mar