Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1991, Side 12
12
MÁNUDAGUR 4. FEBRÚAR 1991.
Spumingm
Hvað er rómantík?
Þiðrik Emilsson dagskrárgerðar-
maður: Að varðveita þetta leyndar-
dómsfulla.
Jón Guðmundsson öryrki: Eigin-
gjörn ást.
Jóhann Bjarnason nemi: Fagur-
fræðileg upplifun.
Kristín Bjarnadóttir nemi: Það er
eitthvað sem gerist þegar rafmagnið
fer.
Laufey Dís Ragnarsdóttir nemi: Dá-
samlegt samband milli tveggja ein-
staklinga.
Hildur Kjartansdóttir nemi: Að sitja
við kertaljós og spjalla.
Lesendur
Leifur Guðjónsson og Guðmundur J. Guðmundsson Dagsbrúnarmenn. Sjá þjóðarsáttina i andarslitrunum. - Ás-
mundur Stefánsson, forseti ASÍ. - Sáttur við þjóðarsátt.
Þjóðarsáttin og launþegamir:
Dagsbrún ætlar
að duga best
Einar Magnússon skrifar:
Mér finnst æ fleiri taka undir skoð-
un þeirra Leifs Guðjónssonar og
Guðmundar J. Guðmundssonar hjá
Dagsbrún um að þjóðarsáttin sé í
þann veginn að syngja sitt síðasta og
ekki verði langt þar hún verði liðið
lík. - Það er eins og stjórnarliðar með
ráðherra í broddi fylkingar séu hvað
ákafastir í að stuðla að því að samn-
ingum sem gerðir voru við launþega
verði sagt upp hið bráðasta. Er enda
um lítið um annað að ræða úr því
sem komið er.
Eini maðurinn, sem ekki virðist
vilja átta sig á hvert stefnir, er for-
seti ASÍ, Ásmundur Stefánsson.
Hann fullyrðir í viðtölum að laun-
þegar geti verið nokkuð sáttir við
stjórnvöld, þau hafí staðið við sitt og
því sé ekki ástæða til að gera neinar
sérstakar kröfur um eitt né neitt. -
Hann er nánast einn um þá skoðun,
utan kannski forustumenn VR og
annarra aumingjasamtaka, sem ekk-
ert hafa gert fyrir sitt fólk svo áratug-
um skiptir.
Einar Oddur hjá VSÍ er meira að
segja hreinskilnari en forseti ASÍ og
ögn raunsærri, því hann segir að
vísu að lítiö verði um fjármuni til
launahækkana, en hann leggur þó til
að til þess að hægt verði að koma til
móts við þá launalægstu verði hætt
að „greiða með“ fuilfrísku fólki sem
sé á bótagreiðslum og styrkjum frá
hinu oginbera. - Undir þetta skai
tekið. Á þetta þora verkalýðsleið-
togar aldrei að minnast, og sér hver
heilvita maður að þeir eru ekki
hreinskiptnir þegar slík mál eru
dregin upp á borðið.
Um þjóðarsáttina vil ég segja það
að lokum að hún var í upphafi and-
vana fædd, og það veit Einar Oddur
jafnvel og aörir. - Hún var gerð í
þeim eina tilgangi að halda öllu
„föstu“ í skamman tíma, svona rétt
til að ríkisstjórnin heföi frið til að
ljúka kjörtímabilinu í friði. - Og
sannið þið til. Um leið og því lýkur
eru núverandi stjórnarflokkar til-
búnir til að æsa allan vinnumarkað-
inn til átaka á ný og stuðla að gömlu
góðu verðbólgunni sem hefur verið
svo sárt saknað af mörgum.
Frjálsræði og samkeppni í flugi
Björn Sigurðsson skrifar:
Ég vil taka undir forystugrein í DV
sl. miðvikudag (30. jan.), þar sem
teknar eru fyrir flugsamgöngur okk-
ar íslendinga til og frá landinu. Þegar
Arnarflug hefur nú verið lagt niður
taka samstundis aðrir við og reyna
fyrir sér því sannleikurinn er sá að
landsmenn una því ekki að hér sé
ekki nema eitt innlent flugfélag sem
sinnir samgöngum okkar við útlönd.
Jafnvel þótt þetta eina flugfélag
gæti annað eftirspurn hvað varðar
sætaframboð er þaö ekki nema hálf
sagan. Fargjaldaverð verður aldrei
það sama eða framboð á mismunandi
veröum fyrr en samkeppni er til stað- •
ar. - Einokun markaðarins dregur
allan mátt úr þjónustu og samkeppni
og það sannaðist einmitt nú þegar
Arnarflug hætti starfsemi.
Nú hefur verið stofnað annað flug-
félag, ekki eitt heldur tvö. Þeim hefur
verið tekið tveim höndum af markað-
inum eins og fréttir hafa greint frá.
Samvinnuferðir-Landsýn hefur t.d.
samið við annað þeirra um leiguflug
næsta sumar á lægra verði en Flug-
leiöir gátu boðið.
Það er svo spurningin hvaða hlut-
verki hið opinbera á að þjóna í sam-
göngum við útlönd. Hvers vegna á
ríkið að úthluta leyfum til flugferða
til útlanda, fremur en það ætti að
úthluta leyfum til ferðalaga einstakl-
inga til útlanda. Einu sinni úthlutaði
ríkið gjaldeyri til íslenskra ferða-
langa. Það er liðin tíð. - Eins kemur
að því að það verður ekki í valdi rík-
isins að setja hömlur á flugstarfsemi
í landinu. Þegar sá dagur rennur upp
verður þrúgandi fargi létt af þjóðinni
sem þarf öörum fremur að vera laus
undan ríkisafskiptum í flugmálum
og geta valið milli keppinauta í þess-
ari starfsgrein eins og öðrum.
Lagt í hvert skot við Amtmannsstíg.
Ófremdarástand við
Amtmannsstíg
Á.P. skrifar:
Verulegt ófremdarástand er nú á
lóöinni fyrir ofan Amtmannsstíg 2
síðan KFUM seldi húsið Amtmanns-
stíg 2 B. Nemendur í MR leggja t.d.
bílum sínum þarna og loka allri lóð-
inni þannig að hvorki sjúkrabflar né
brunabílar kæmust að.
í þessu hverfi eru eingöngu ein-
býlishús og því er þarna hættu-
svæði. - Varla verður þessu betur
lýst en með því að láta mynd fylgja
af hluta svæðisins til að rökstyðja
máhð.
Símareikningarog
persónuvernd!
Hulda Sigurðardóttir skrifar:
Enn getum við ekki fengið
sundurliðaða reikninga frá Pósti
og síma. Þetta hefur verið í bígerö
svo lengi sem ég man, a.m.k. hin
síðustu ár, en hvorki gengið né
rekið.
Nú er það hins vegar komið í
ljós að það er ekki að öllu leyti
Pósti og síma aö kenna að þessi
dráttur hefur orðið. Þar á bæ er
í raun allt tilbúið til úrvinnslu. -
Svokölluð tölvunefnd hefur
hindrað afgreiðsluna. Talsmaður
tölvunefndar segir nefndina bíða
úrskurðar Evrópuráðsins um
sundurliðun símreikninga. Einn-
ig tala þeir í nefndinni um að
sundurliðun símreikninga verði
að samræma kröfum um „per-
sónuvernd“!
Ég get ekki skilið hvernig per-
sónuvernd kemur inn í dæmið
um sundurliðun símreikninga.
Er þetta ekki dæmigert fyrir
nefnd á vegum hins opinbera?
Engin niðurstaða er því sjáanleg
í máhnu. - En það er enginn
dráttur á 3,5% hækkun hjá Pósti
og síma. Hún tekur gildi um þessi
mánaöamót.
Lokiðbjórkrám
ásunnudögum!
Knstinn Sigurðsson skrifar:
Ég skora á yfirvöld að láta loka
bjórkrám á sunnudögum. Fjöldi
manns mætir ekki til vinnu á
mánudögum eða er flla á sig kom-
inn vegna aukinnar drykkju um
helgar. Ég þarf ekki að minnast
á vandamál heimilanna þar sem
svo er ástatt. - Það er óþarfi fyrir
borgaryfirvöld að bukka sig fyrir
eigendum bjórkráa þótt þeir
greiði há gjöld til borgarinnar.
Einnig er fuh ástæða til.að hin-
ir svoköhuðu „hádegisbarir" séu
lokaðir. Þetta er ósómi sem er
öhum til smánar og mjög mörg-
um til mikils ama. - Það væri lík-
lega þjóðhagslega hagkvæmt að
fara að þessum ráðum, ekki síst
með tilliti til þeirra aðstæðna sem
hér eru að skapast einmitt þessar
vikumar. Væri ekki ráð að skoða
máhð eilítið nánar?
Ólýsanleg
auðæfi
Hannes hringdi:
Það hefur komið fram í fréttum
aö stríðsreksturinn við Persaflóa
er afar kostnaðarsamur. Má
minnast á sem dæmi að meðal-
verð þeirra stýriflauga, sem not-
aðar eru til að hitta skotmörk, er
talið vera um 80 mihjónir ísl.
króna. - Það er líka vitað að meg-
inþungi alls þessa kostnaðar er
borinn uppi af Bandaríkjunum.
Margir spyrja sem svo: Hvernig
geta Bandaríkin kostað allan
þennan útbúnað og haldið uppi
vörnum og hermönnum í mörg-
um löndum? - Því er til að svara
að hvergi í heiminum eru jafn-
gífurleg auðæfi til staðar og í
Bandaríkjunum. Mörg þeirra,
svo sem auðæfi á og í jörðu, eru
enn mikið til ónotuð. Án þessara
auðæfa gætu Bandaríkjamenn
ekki kostað alla þá eyðslu sem
þeir taka þátt í, jafnt heima fyrir
og erlendis.
í hring á þingi
L.K. skrifar:
Kunningi minn, sem ég hitti á
þorrablóti nýlega, vildi ekki enda
borðhaldið svo að hann gæfi ekki
þingmönnum okkar einhverja
einkunn um leið og hann blessaöi
þá í bak og fyrir. Sagði hann að
ekki gætum við nógsamlega
þakkað þeim og stjórnmála-
mönnum okkar og ekki sætum
við hér við allsnægtir og ætum
súrt og drykkjum sterkt nema því
aðeins að þeir væru vaktir og
sofnir yfir velferð okkar.
Hann stóð síðan upp tók lagið
og söng við raust (við lagið Nú
er hún Gunna á nýju skónum):
Hvað er líkt með korktrekkjara
og kjörnum manni á þing?
Hann gengur alltaf lengra og
lengra
um leið og hann snýst í hring.
Kæfan góð
hjáKA
Margrét skrifar:
Þegar við forum austur í sumar-
bústað vill nú margt gleymast hjá
fólki sem vinnur aha daga og get-
ur bara skroppið í búðir í matar-
tímanum í hádeginu til að útbúa
sig meö mat í sumarbústaðinn.
Þannig var eitt sinni sl. sumar
að ég gleymdi að kaupa kæfu sem
er uppáhalds álegg mitt. Ég
komst inn í kaupfélagið á Selfossi
rétt fyrir lokun og keypti þar
kæfu. Það er ekki að orðlengja
það aö þetta var sú besta kæfa
sem ég og fjölskylda mín höfum
smakkað. - Þökk sé fyrir góða
verslunarþjónustu á Selfossi.
Ég vil í leiðinni þakka hinar
góðu Vilhelmínuflatkökur sem
fást í versluninni Horninu á Sel-
fossi og eru alveg frábærar.