Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1991, Blaðsíða 17
FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1991.
25
Iþróttir
Lttleikur:
rjarnir
sterkir
*egn íslendingum
lenska landsliðsins, hefur valið 16 leik-
menn fyrir leikina gegn Ungverjum og er
liðið þannig skipað:
Markverðir:
GuðmundurHrafnkelsson.............FH
Hrafn Margeirsson........... Víkingi
Aðrir ieikmenn:
Jakob Sigurðsson..................Val
Konráð Olavsson....................KR
SkúliGunnsteinsson.........Stjörnunni
Geir Sveinsson............Granollers
Bjarki Sigurðsson.............Víkingi
Valdimar Grímsson.................Val
Júlíus Jónasson..............Asnieres
Héðinn Gilsson............Dtisseldorf
Einar Sigurðsson.............Selfossi
Sigurður Bjamason.........Stjörnunni
Patrekur Jóhannesson......Stjörnunni
JónKristjánsson...................Val
Stefán Kristjánsson................FH
• Islenska landsliðið hefur alls leikið 14
leiki gegn Ungverjum. Útkoman úr þeim
er Ungveijum mjög í vil en þeir hafa unn-
ið 10 leiki, íslendingar 2 og tvívegis hefur
orðið jafnteíli. ísland vann Ungverjaland
1974 í Reykjavík, 22-20, og síðast í Ung-
verjalandi 1985 en þá urðu lokatölur 24-28,
íslandi í vil.
• Leikurinn á mánudag hefst klukkan
21 en klukkan 20 á þriðjudag og báðir fara
leikirnir fram í Laugardalshöll.
-JKS
Fraleg ummæli
is um Johnson
> gefur í skyn að Ben Johnson sé jafnvel enn á lyfjum
í það að gróið sé um heilt á
na Carl Lewis frá Bandaríkj-
on frá Kanada. Þessir tveir
eldað grátt silfur og það gera
s hafa eftir sér hluti um Ben
i bæta „sambúð“ þeirra í bráð.
án lyfja og þegar hann er á lyfjum,"
sagði Lewis í gær.
„Þarf að forðast bandaríska
hlaupara til að sigra“
Og hann bætti því viö að Johnson
þyrfti hreinlega að forðast bandaríska
hlaupara til að vinna sigur á móti inn-
anhúss á þessu ári.
Þetta em glæfraleg ummæli og að
hluta til beinlínis röng því Johnson
vann á dögunum sigur í 55 metra
hlaupi þar sem Bandaríkjamenn voru
á meðal þátttakenda. Johnson hefur
þrívegis keppt eftir að hann losnaði
úr keppnisbanninu sem hann var
dæmdur í í kjölfar síðustu ólympíu-
leika. Tvívegis varð hann í öðru sæti
á eftir bandarískum hlaupurum en í
síðasta hlaupinu vann hann kanadíska
og bandaríska hlaupara.
Lewis minntist ekkert
á ölvunaraksturinn
Mjög litlar líkur verða að teljast á því
að Ben Johnson sé í dag á lyfjum.
Hann hefur verið í stöðugum lytjapróf-
um og enn hefur ekkert komið fram
sem bendir til þess að hann hafi aftur
gerst brotlegur.
• Lewis og Johnson munu mætast í
Svíþjóð 5. ágúst í sumar og aftur tveim-
ur dögum síðar í Sviss. Lewis minntist
ekkert á þessi mót í gær en sagði það
eitt aðalmarkmiðið hjá sér næsta sum-
ar að vinna ein eða fleiri gullverðlaun
á heimsmeistaramótinu sem fram fer
í Tókýó í lok ágúst. Hann minntist
heldur ekkert á það hvaða áhrif það
kynni að hafa á keppnistímabilið hjá
honum að hann var á dögunum tekinn
ölvaöur undir stýri. Carl Lewis var
talinn fyrirmyndar íþróttamaður þar
til að hann komst í kast við lögin.
Minni spámenn hafa lent í fangelsi
fyrir vikið og nægir þar að nefna enska
knattspyrnumanninn Tony Adams
sem fékk fjögurra mánaða dóm fyrir
ölvunarakstur og situr enn bak við
rimlana. -SK
• Carl Lewis er kokhraustur þessa dagana og sendir
Ben Johnson óspart tóninn.
Gummi Steins áfram í Fram?
„Ekki búinn að
taka ákvörðun“
Svo gæti farið að Guðmundur Steinsson léki ekki í
sumar með 1. deildar liði Fram í knattspyrnu. Guðmund-
ur hefur verið í sambandi við nokkur félög og liggur
undir feldi þessa dagana.
„Ég get ekki svarað því á þessari stundu hvort ég leik
áfram með Fram. Ég er blár eins og er en framhaldið
er óljóst,“ sagði Guðmundur í samtali við DV í gær-
kvöldi.
Samkvæmt heimildum DV eru félög í 1. deild inni í
myndinni og einnig kemur til greina að Guðmundur
leiki með og þjálfi lið í 2. deild. Guðmundur mun taka
ákvörðun fljótlega.
-SK
• Ben John-
son. Er hann
ennþá á lyfjum
eins og Lewis
gefur i skyn í
greininni hértil
hliðar.
Ross hættur við
Ian Ross mun ekki þjálfa 1. deildar
lið KRí knattspymu í sumar. Honum
hefur boðist starf sem aðstoðarfram-
kvæmdastjóri hjá enska liðinu
Huddersfield og hyggst takaþví boði.
„Ross hefur rift samningnum við
okkur. Við gáfum hann ekki eftir,“
sagði Geir Þorsteinsson, varafor-
maður knattspymudeildai' KR, í
samtaii við DV i gærkvöldi,.„Frétt,
sem birtist um Ross og Huddersfield
i einu dagblaðanna á dögunum, var
ekki rétt þrátt fyrir þetta. Hudders-
field hefur hins vegar gengið mjög
vel eftir að Ross féllst á að aöstoða
vin sinn hjá liðinu og í framhaldi af
þvi var honum boðin staða hjá félag-
inu,“ sagði Geir ennfremur. KR-
ingar standa þvi uppi þjálfaralausir
fyrir næsta keppnistímabil. Kom
ákvörðun Ross eins og blaut tuska
framan í þá og skyldi engan undra.
-SK
Framarar f ara til Bröndby
Þrír Framarar munu um helgina leggja land undir fót og fara til Dan-
merkur þar sem þeir munu kynna sér aðstæður og fylgjast með gangi mála
hjá hinu þekkta danska félagi Bröndby.
Hér er um að ræða Ásgeir Elíasson, þjálfara meistaraflokks, Eyjólf Berg-
þórsson, formann meistaraflokksráðs, og Magnús Jónsson, þjálfara 2. flokks.
Munu þeir félagar dvelja í vikutíma hjá Bröndby og væntanlega koma reynsl-
unni ríkari heim að viku liðinni.
-SK
Einar Þór Einarsson, spretthlaupaii úr Ármanni, sekúndubroti frá lágmarkstíma á heimsmeistarmótið
jafnaði i fyrrakvöld íslandsmetiö í 50 metra hlaupi innanhuss sem fram fer í Sevilla á Spáni í byrjún
innanhúss þegar hann hljóp vegalengdina á 5,7 sek- rnars. Á sama móti sigraði Geirlaug Geirlaugsdóttir,
úndum á innanfélagsmóti KR i Baldm'sliaga. Ármanni, í 50 roetra lilaupi þegar hún hljóp á tímanum
Á dögunum setti Einar nýtt glæsilegt íslandsmet í 6,5 sekúndum. Geirlaugá íslandsmetið i greininni sem
60 metra blaupi á norska meistaramótinu þegai' liann er 6,8 sekúndur.
hijópá tímanum 6,86 sekúndum og var þá aðeins einu -GH
mtnrmntmmmimijminmnmniiifitmminifimTtiTmmnnmnmnmmmiimiitimtimnfíínimffníniiJiHfiiimin'r1